Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 40
ATVINNA
4 18. desember 2005 SUNNUDAGUR
starf.is
Sjúkraflutningamenn
Sjúkraflutningamenn með full réttindi óskast strax
til starfa á Kárahnjúkum. Boðið er upp á góð laun
og gott starfsumhverfi.
Verkstjórar
Verkstjóri óskast fyrir öflugt verktakafyrirtæki.
• Enskukunnátta.
• Reynsla af vinnuvélum.
• Reynsla í verkstjórn
starf.is
Hlíðasmára 15, 201 Kóp.
s: 540 8400, 659 8418
www.starf.is – starf@starf.is
Sölustarf í verslun
Áman óskar að ráða starfsmann í fullt starf. Starfið felst í sölu-
mennsku, tiltekt á vörupöntunum og almennum verslunarstörf-
um. Um er að ræða fjölbreytt starf í rótgrónu fyrirtæki. Starfs-
maðurinn er ábyrgur fyrir þjónustu og mannlegum samskiptum
við viðskiptavini fyrirtæksins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Almenn tölvukunnátta
• Stúdentspróf
• Reynsla af víngerð er æskileg
• Hentar vel fólki sem hefur áhuga og þekkingu á vínum
Starfsmaður skal vera reyklaus og reglusamur. Meðmæli æskileg.
Umsóknir skulu sendir í tölvupósti á max@aman.is fyrir
30. desember n.k. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið
störf sem fyrst.
Áman var stofnuð árið 1988 og er í dag framsækið þjónustufyrirtæki
sem sérhæfir sig í þjónustu á vörum til víngerðar. Áman vinnur náið
með viðskiptavinum sínum, sem koma úr öllum greinum atvinnulífs-
ins, við að uppfylla kröfur þeirra og þarfir.
Fjármálastjóra vantar
til afleysingar
Ofnasmiðjan – Rými hf. óskar eftir að ráða fjármála-
stjóra til afleysingar í fæðingarorlofi. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. febrúar 2006.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af bók-
haldi, uppgjörum og almennum rekstrarmálum.
Umsóknir, með ferilskrá, skulu sendar til starfs-
mannastjóra á helgab@rymi.is eða á Ofnasmiðjan
hf. Háteigsveg 7, 105, R. fyrir 23. desember.
Rými – Ofnasmiðjan hf. býður upp á landsins
mesta úrval innréttinga og tækja fyrir verslunar-
rými, lagerrými, skjalarými og starfsmannarými.
Rafvirki – Vélfræðingur
Við þurfum að bæta við í viðhaldsdeildina og
leitum að manni vönum að umgangast vélar,
rafmagns – vélfræðings menntun æskileg.
Nýjasta tækni
Spennandi starf með góðum hóp.
IÐNVÉLAR er leiðandi fyrirtæki í þjónustu og
sölu á á iðnaðarvélum – fyrir járn, trésmíði og
almennan framleiðsluiðnað.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu: 565
5055 eða sendið tölvupóst með upplýsingum
hulda@idnvelar.is