Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 34
 18. desember 2005 SUNNUDAGUR34 Árbæjarútibú flytur Opnum nýtt og glæsilegt útibú að Kletthálsi 1 þann 19. desember. 410 4000 | landsbanki.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 07 03 12 /2 00 5 Það skúffuskáld sem að þessu sinni mun opna hirslur sínar fyrir lesendur Fréttablaðsins er Bjarki Bjarnason frá Hvirfli í Mosfels- dal. Hann er framhaldsskólakenn- ari og söguritari en nýlega kom út bók hans og Magnúsar Guðmunds- sonar sagnfræðings um Mosfells- bæ, þar sem saga byggðar þar í sveit er rakin. Bjarki er hverri þúfu kunnugur þar um slóðir enda hefur hann leiðsagt fólki um heimahaga sína um alllangt skeið. „Ég varð snemma skúffuskáld,“ segir Bjarki íbygginn. „Orti um allt og ekki neitt, nokkurs konar einnota vísur sem voru fluttar við ákveðin tækifæri en síðan stungið niður í skúffu. Til dæmis er hér ein limra sem fengið hefur sinn stað í skúff- unni en hún á sér þá forsögu að ég kynntist eitt sinn konu sem átti útungunarvél og einhver hafði á orði að hún væri „að hanna hænur“: Konan hún rekur kjúklingabú og kann sko til verka, sú eðla frú. Nú hannar hún hænu og hanana vænu, svo étum við hana og hana-na-nú!“ Um 1980 lá leið Bjarka í Íþrótta- kennaraskólann á Laugarvatni en þar fundust þá fyrir nokkrir hagmæltir piltar sem hann komst í andlegt samband við. „Við kváð- umst á allan veturinn og ortum vísur á milli þess að við stungum okkur kollhnís og syntum bringu- sund,“ útskýrir skúffuskáldið. „Í skólanum var kynjaskipt heima- vist, stúlkur bjuggu á annari hæð- inni en piltar á hinni. Skólayfirvöld tóku treglega í að blanda karla- og kvennavistum saman og þá var ort: Kvöl er að mega ei kvenna njóta er kvölda tekur og vindar þjóta. En æðstu boðorð má ei brjóta þótt bólgni scrotum milli fóta.“ Mikil menningarverðmæti lágu eftir þessa skáldhneigðu pilta á Laugarvatni og reyndu menning- arfrömuðir að varðveita þau um aldur og ævi. „Þetta var tekið saman síðar í ljóðakverið T-gínu sem gefið var út af fyrirtækinu Molaprenti. Það er nú orðið fágætt og aðeins til á betri bæjum,“ segir Bjarki stoltur. En áfram hélt skáldagyðjan að blása Bjarka brag í brjóst við hin ýmsu tækifæri og þegar skondin þjóðfélagsmál skutu upp kollin- um gat skúffuskáldið ekki orða bundist. „Árið 1988 gerðist sá ein- kennilegi atburður í Reykjavík að brjóstmynd Tómasar Guðmunds- sonar skálds hvarf af stalli sínum í Austurstræti. Málið þótti allt hið torkennilegasta í fyrstu en síðan kom á daginn að einhverjir gleði- menn höfðu numið höfuð skáldsins á brott og haft það heim með sér í teiti. Ég orti í orðastað þeirra: Nóttin ljúf og hausinn laus, líflegt er mitt brúsabús. Tómas þarf að taka á bak, Tommi er fús að fara í hús. Eftir þetta var borgarskáldið útlægt gert úr Reykjavík og höfði Tómasar komið fyrir á bernsku- slóðum hans austur í Grímsnesi.“ Brotið var blað á ferli skúffu- skáldsins þegar hann ákvað að gefa út ljóðabókina Fjörbrot fyrir rúmum áratug. Ekki sveik hann aðeins skúffuna um ljóðin heldur sneri hann einnig baki við brag- fræðinni. Bjarki þylur úr bókinni og verður alvarlegri ásýndar:“ sagt er að hjartað sé á stærð við hnefa eigandans sumir læra aldrei að kreppa hnefann þeir hafa stórt hjarta sem vill springa og blæða út... --- kanntu að kreppa hnefann þinn elsku hjartans vinurinn? Þegar Bjarki er kominn í þennan ham verður ekki aftur snúið. Hann fer að tala um skáldin sem eru honum hugleikin og berast böndin að Snorra Hjartarsyni. „Ævistarf hans á ljóðasviðinu kemst fyrir í einni náttborðsskúffu elleg- ar hanskahólfi eða eigum við að segja hjartahólfi?“ spyr Bjarki og virðast nú kennarinn og skáldið komnir upp í honum. „Snorri er feikilega fágaður ljóðasmiður og átti á sínum tíma þátt í að endur- skapa ljóðformið sem lent hafði í nokkrum ógöngum. Ein af perlum hans heitir Kvöld og er svona: Á grunnsævi kvölds flæðir gullinn straumur um þéttriðin net nakinna trjánna og fyllir þau ljóskvikum fiskum Bráðum kemur rökkrið undir brúnum seglum og vitjar um aflann Við skiljum við skúffuskáldið en ljóst er að skáldskapurinn vellur um Bjarka frá hvirfli til ilja. Konan með útungunarvélina SKÚFFUSKÁLDIÐ } BJARKI BJARNASON FRÁ HVIRFLI Í MOSFELSDAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.