Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Jólagjöfin í ár! LEIKIR - TÓNLIST - KVIKMYNDIR - NETIÐ ���������� ����������������������� Í gegnum tíðina hef ég nánast fyrirlitið fegurðarsamkeppnir. Ég átti mjög erfitt með að höndla tilgerðina í kringum þær og ég var líka sannfærður um að allar stúlkur sem kæmu nálægt svona keppnum enduðu með lystarstol og/eða lotu- græðgi. Mér var líka í nöp við þá sem deildu ekki þessari skoðun með mér. EN hér með dreg ég til baka allt sem ég hef áður sagt um fegurðar- samkeppnir og held hinu gagnstæða fram. Unnur Birna er ekki bara gullfalleg heldur virðist hún einnig vera bráðgáfuð, hörkudugleg og umfram allt heilbrigð. EN ég tek þessum sigri samt með fyrirvara. Eins og nýleg dæmi sanna höfum við Íslendingar átt það til að fagna aðeins of snemma. Áður en ég skála í kampavíni vil ég fá staðfest að hún hafi verið að keppa hjá réttu sambandi og að titillinn fáist stað- festur að öllu leyti. Kannski voru engar fitumælingar hjá þessu sam- bandi og titillinn því ónothæfur. Í kjölfar keppninnar sendi Halldór Ásgrímsson henni hamingjuósk- ir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar sem síðan var mótmælt af konum sem sögðu hamingjuóskirnar tíma- skekkju. Ég er ósammála því þar sem hann sendi þær eftir að úrslit- in voru kunngjörð. Hefði hann sent hamingjuóskirnar fyrir keppnina hefði mátt deila um tímasetningu. Þarna er Halldór líka að taka fram- förum. Í þetta skiptið beið hann með yfirlýsingu þangað til fullnægjandi upplýsingar lágu fyrir. FRÁ því að ég man eftir mér hefur afi minn talað um Herðubreið. Fyrir honum er Herðubreið málsvari náttúrunnar hvað fegurð snertir. Ég efast ekki um að þar eru honum margir sammála. Amma sér fegurð í samkvæmisdönsum, já og íslenska karlalandsliðinu í handbolta (áhugi hennar virðist þó hafa dvínað síðan Kristján Ara og Alli Gísla hættu). Mamma sér fegurð í framkomu fólks og aðspurður segist sonur minn sjá fegurð í nammi. AUÐVITAÐ er fegurð í öllu því sem lætur okkur líða vel, hvort sem það eru áþreifanlegir hlutir eða huglæg- ir. Við eigum að leyfa okkur að njóta þeirrar fegurðar sem lífið býður upp á, hvernig sem hún birtist okkur. FYRIR hönd íslensku þjóðarinnar vil ég að endingu óska afa mínum innilega til hamingju með afmælið þann 7. des. Við erum öll afar stolt af þér. BLÓM og mótmæli eru vinsamleg- ast afþökkuð. Fyrir Íslands hönd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.