Fréttablaðið - 18.12.2005, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Jólagjöfin í ár!
LEIKIR - TÓNLIST - KVIKMYNDIR - NETIÐ
����������
�����������������������
Í gegnum tíðina hef ég nánast fyrirlitið fegurðarsamkeppnir.
Ég átti mjög erfitt með að höndla
tilgerðina í kringum þær og ég var
líka sannfærður um að allar stúlkur
sem kæmu nálægt svona keppnum
enduðu með lystarstol og/eða lotu-
græðgi. Mér var líka í nöp við þá
sem deildu ekki þessari skoðun með
mér.
EN hér með dreg ég til baka allt
sem ég hef áður sagt um fegurðar-
samkeppnir og held hinu gagnstæða
fram. Unnur Birna er ekki bara
gullfalleg heldur virðist hún einnig
vera bráðgáfuð, hörkudugleg og
umfram allt heilbrigð.
EN ég tek þessum sigri samt með
fyrirvara. Eins og nýleg dæmi sanna
höfum við Íslendingar átt það til að
fagna aðeins of snemma. Áður en ég
skála í kampavíni vil ég fá staðfest
að hún hafi verið að keppa hjá réttu
sambandi og að titillinn fáist stað-
festur að öllu leyti. Kannski voru
engar fitumælingar hjá þessu sam-
bandi og titillinn því ónothæfur.
Í kjölfar keppninnar sendi Halldór
Ásgrímsson henni hamingjuósk-
ir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar
sem síðan var mótmælt af konum
sem sögðu hamingjuóskirnar tíma-
skekkju. Ég er ósammála því þar
sem hann sendi þær eftir að úrslit-
in voru kunngjörð. Hefði hann sent
hamingjuóskirnar fyrir keppnina
hefði mátt deila um tímasetningu.
Þarna er Halldór líka að taka fram-
förum. Í þetta skiptið beið hann með
yfirlýsingu þangað til fullnægjandi
upplýsingar lágu fyrir.
FRÁ því að ég man eftir mér hefur
afi minn talað um Herðubreið. Fyrir
honum er Herðubreið málsvari
náttúrunnar hvað fegurð snertir.
Ég efast ekki um að þar eru honum
margir sammála. Amma sér fegurð
í samkvæmisdönsum, já og íslenska
karlalandsliðinu í handbolta (áhugi
hennar virðist þó hafa dvínað síðan
Kristján Ara og Alli Gísla hættu).
Mamma sér fegurð í framkomu
fólks og aðspurður segist sonur
minn sjá fegurð í nammi.
AUÐVITAÐ er fegurð í öllu því sem
lætur okkur líða vel, hvort sem það
eru áþreifanlegir hlutir eða huglæg-
ir. Við eigum að leyfa okkur að njóta
þeirrar fegurðar sem lífið býður upp
á, hvernig sem hún birtist okkur.
FYRIR hönd íslensku þjóðarinnar
vil ég að endingu óska afa mínum
innilega til hamingju með afmælið
þann 7. des. Við erum öll afar stolt
af þér.
BLÓM og mótmæli eru vinsamleg-
ast afþökkuð.
Fyrir Íslands
hönd