Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 44
Atlir Freyr Steinþórsson,
þulur og dagskrárgerðar-
maður á Rás 1, mun vera á
vakt í útvarpinu um jólin.
Þar mun hann gegna því
geysimikilvæga hlutverki
að óska landsmönnum gleði-
legra jóla.
Atli segir að ástæða þess
að hann hafi verið feng-
inn til þess að gegna þessu
starfi hafi einfaldlega verið
sú að hann átti þessa vakt.
Hann segist ekkert hafa
reynt að koma sér undan
þeirri skyldu. ,,Alls ekki,
það er mjög gaman að fá
að taka þátt í því að skapa
jólahald. Jólaklukkurnar,
jólakveðjan og síðan mess-
an eru ákveðnar hefðir sem
er gaman að skrifa sig inn
í. Mér finnst þetta því bara
frábært,“ segir Atli glaður í
bragði.
Hann segir að fjölskyld-
an sín hafi tekið ágætlega
í þetta og gert ýmsar ráð-
stafanir eins og að koma
með jólamatinn til hans.
,,Síðan verður ekkert úr
því en mér skilst að það sé
hlaðborð þarna. Ég hélt líka
alltaf að þulurinn væri eini
maðurinn á öllu Íslandi sem
væri að vinna. Ég hélt að
ég yrði eins og kallinn með
skeggið sem sat einn uppi
á fjallstindi í Ástríki og
þrautunum tólf. Svo er það
bara bull, því það verður
fullt af tæknimönnum, hús-
vörðum og fleirum í húsinu.
Það verður fámennt en góð-
mennt,“ segir Atli gallvask-
ur.
Atli hefur verið að vinna
uppi á RÚV síðan í sumar
og kallar sig því örverpið í
þulaflokknum. Hér á árum
áður var það Jóhannes Ara-
son sem sá um þetta mikil-
væga starf og finnst Atla
merkilegt að fá að gegna
því sama starfi. ,,Það er
ótrúlega merkilegt að vinna
með öllu þessu góða fólki.
Ragnheiður Ásta hefur
til dæmis unnið hér heila
mannsævi, síðan 1961,“
segir Atli en hann er ein-
ungis 21 árs gamall. ,,Mér
finnst ótrúlega gaman að
heyra Ragnheiði ausa úr
viskubrunni sínum.“
Atli hefur mikinn áhuga
á fjölmiðlum og útvarpi og
ætlar sér að halda áfram
að starfa á þeim vettvangi.
Hann segist vel geta hugsað
sér að stimpla sig inn í huga
landsmanna sem þulurinn
sem óskar landsmönnum
gleðilegra jóla klukkan 18
á aðfangadagskvöldi. ,,Það
væri ekkert verra. Eigum
við ekki að segja að það sé
svona langtímamarkmið,“
segir Atli jólaþulur að
lokum. steinthor@frettabladid.is
Verður jólaþul-
urinn í ár
Atli Freyr Steinþórsson segist stoltur að því að fá að vera þulurinn sem
óskar landsmönnum gleðilegra jóla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Við óskum eftir að ráða vana bréfbera til starfa.
Um er að ræða störf við útburð á blöðum og pósti
á höfuðborgarsvæðinu fyrri hluta dags.
Lengd vinnutíma er samkomulagsatriði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Mjög góð laun í boði!
Kröfur:
- Reynsla af útburði á pósti
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir í síma 585 8300.
Einnig er hægt að senda inn umsókn á
umsoknir@posthusid.is
Ertu vanur bréfberi?
Þú gætir haft
30–40%hærri laun
Pósthúsið er ungt og
öflugt dreifingarfyrirtæki
á sviði blaða-, bréfa-
og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa
um tvö þúsund manns
að uppbyggingu á
fjölbreyttum og
skemmtilegum vettvangi.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
Frá Smáraskóla
• Umsjónarkennnari óskast í 7. bekk frá
áramótum og út skólaárið.
Um er að ræða 100% starf.
Laun skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og KÍ.
Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um
starfið.
Upplýsingar veita: Valgerður Snæland Jónsdóttir,
skólastjóri og
Baldur Pálsson,
aðstoðarskólastjóri
í síma 515 5900
ATVINNA
8 18. desember 2005 SUNNUDAGUR