Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 10

Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 10
 Barnaúlpur margir litir frá kr. 4.790,- 20% af öllum Columbia úlpum til jóla SKIPT_um væntingar Tegund Ver› Patrol Luxury beinskiptur 4.090.000,- Patrol Luxury sjálfskiptur 4.190.000,- Patrol Elegance beinskiptur 4.390.000,- Patrol Elegance sjálfskiptur 4.490.000,- F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 ENDIST ENDALAUST PATROL NISSAN 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 10 18. desember 2005 SUNNUDAGUR DÓMSMÁL Ungur maður hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að láta tólf ára stúlku eiga við sig munnmök á bílastæði í Reykjavík. Maðurinn var tvítugur þegar atburðurinn átti sér stað í nóvemberlok í fyrra. Dómurinn, sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag, er skilorðsbundinn í þrjú ár. Manninum var einnig gert að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur í skaðabætur og rúmar 470 þúsund krónur í málskostnað. Beiðni um rannsókn málsins barst lögreglu í febrúar á þessu ári frá félagsráðgjafa félagsmið- stöðvar sem hafði haft pata af málinu. Stúlkan var boðuð í yfir- heyrslu ásamt móður sinni en bar þá að málið væri á misskilningi byggt og rannsókn var látin niður falla. Í mars komu svo viðbótar- upplýsingar frá félagsmiðstöð- inni og móðir stúlkunnar kærði í framhaldinu kynferðisbrot og lagði fram SMS-skilaboð sem dóttir hennar hafði sent mannin- um úr síma móðurinnar og þóttu grunsamleg. Á meðal skilaboðanna var sending til vinkonu um að stúlk- an væri hrædd, en þau voru send þegar hún var með manninum og félögum hans í bíl. Síðar um kvöldið sendi hún svo manninum sjálfum skeyti, „Hæ tokstu tetta a kmerus“ og „En akkurur vildurur ad eg gerdi tetta?!“ Fram kemur í dómnum að stúlkan óttaðist að annar félaga mannsins hefði tekið atburðinn upp á myndavél sem hann var með en því neitaði hann. Kynni tókust fyrst með stúlk- unni og manninum á tónleikum Scooter þegar kennaraverkfall stóð og laðaðist hún að honum. Stjúpi hennar þekkti til manns- ins. Hjá lögreglu sagði maðurinn að stjúpinn og móðir stúlkunnar hefðu beðið sig að ræða við hana því þau hefðu verið hrædd um að „hún væri farin að nota eiturlyf eða stunda kynlíf“. Í framhaldi af þeim kynnum hefði stúlkan tekið að venja komur sínar í Kringluna í Reykjavík þar sem hann starfaði í verslun. Einhver samskipti hófust svo milli mannsins og stúlkunnar, SMS-skilaboðasendingar og um MSN-forrit á netinu. Fyrir dómi fullyrti maður- inn að hann hefði talið stúlkuna vera fjórtán eða fimmtán ára og viðurkenndi að hafa fengið hana til að eiga við sig munnmök í aftursæti bifreiðar á bílastæð- inu við Húsagnahöllina í Reykja- vík. Samkvæmt framburði stúlk- unnar átti manninum þó að vera aldur hennar kunnur. Dómurinn segir að af gögnum þó ekki hægt að álykta sem svo að ótvíræð sönnun hafi komið fram um að maðurinn hafi vitað að stúlkan var yngri en fjórtán ára umrætt kvöld en þó verði að telja að honum hafi mátt vera ljóst að stúlkan væri ung að árum. „Var háttsemi ákærða því stórfellt gáleysi,“ segir dómurinn, en við slíku broti liggur vægari refsing. „Að áliti dómsins er brot ákærða alvarlegt og beindist gegn mikil- vægum hagsmunum. Ákærði á sér ekki málsbætur.“ Stúlkan er enn í viðtölum hjá sérfræðingi vegna atburðarins. Eftir atburðinn hætti henni við grátköstum, var mjög vansæl og fór helst ekki úr húsi. Hún mætti illa í skóla og leið illa andlega. Þá kemur fram að hún hafi óttast manninn og félaga hans, helst ekki viljað upplýsa hvað gerðist og átt erfitt með svefn. olikr@frettabladid.is Tvítugur var með tólf ára Tvítugur maður misnotaði traust tólf ára stúlku og níddist á henni í bíl. Tveir félagar hans fylgdust með. Maðurinn fékk fimm mánaða skilorðsbundinn dóm. HÚSGAGNAHÖLLIN VIÐ BÍLDSHÖFÐA Á bílastæðinu við Húsgagnahöllina sat tvítugur piltur í aftursæti og misnotaði tólf ára stúlku meðan bílnum var ekið um. Í framsætum bílsins voru tveir félagar mannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÍBANON, AP Detlev Mehlis, sem fer fyrir rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, hefur sagst þess fullviss að yfirvöld í Sýrlandi beri ábyrgð á ódæðinu. Spurður hvort hann ásakaði Bashar Assad, forseta Sýrlands, beint um morðið svaraði hann: „Við skulum segja sýrlensk stjórn- völd“, og útskýrði það ekki frekar. Mehlis segist einnig sjá samband milli morðsins fyrr í vikunni á blaðamanninum Gibran Tueni, sem var andstæðingur Sýrlands- stjórnar, og sprengjuárása sem skekið hafa Líbanon síðan Hariri var myrtur í febrúar. ■ Rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu á Hariri: Sýrlandsstjórn ber ábyrgð á ódæðinu DETLEV MEHLIS Segist þess fullviss að Sýrlendingar beri ábyrgð á morðinu á Rafik Hariri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.