Fréttablaðið - 18.12.2005, Page 32
18. desember 2005 SUNNUDAGUR32
Fyrir fagmanninn
– úrval af hnífum og hnífasettum
Mánudaga til föstudagafrá kl. 8:00 til 18:00Laugardaga frákl. 10:00 til 14:00
Opnunartími í verslun RV:
Heimamaður í höfuðborg
Bretaveldis
Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri.
Ágúst Guðmundsson kvikmynda-
leikstjóri hreifst snemma af
London og þekkir þar hvern krók
og kima. Í Reykjavík hefur hann
búið víða, allt frá parhúsi á Óðins-
götu til skátaheimilis í Garðabæ.
1973-1977
Þegar ég fór til Lundúna að nema
kvikmyndafræðin leigði ég mér
herbergi með eldhúskrók við
Regent Square, eitt af torgun-
um í Bloomsbury. Þarna leið mér
ljómandi vel þrátt fyrir nokkurn
músagang sem verður að teljast
undarlegur miðað við þá katta-
mergð sem bjó í húsinu. Ég hef æ
síðan verið heimamaður í höfuð-
borg Bretaveldis.
1977-1980
Borgin keypti húsið í Blooms-
bury og bauð öllum leigjendum
að flytja annað. Ég tók því boði
og fékk litla íbúð í Camden Town.
Íbúðin er merkust fyrir þá gesti
sem dvöldust þar um lengri eða
skemmri tíma. Diddú var þar einn
vetur meðan hún nam söng og þar
var sáð til tvíburanna sem hún
ól Þorkatli manni sínum. Svava
Jakobsdóttir bjó þar annan vetur
og ritaði sína ágætu Gunnlaðar
sögu. Stuðmenn áttu gjarnan leið
um hlaðið og bjuggu þarna einu
sinni allir með tölu á meðan þeir
tóku upp hljómplötu í hljóðveri í
Kilburn. Ég skil ekki enn hvernig
þeir komust fyrir. Þeir eru allir
svo stórfættir.
1980-1990
Fyrsta íbúðin sem ég festi kaup á
var við Hverfisgötu, á efstu hæð
í svokölluðu Sindra-húsi. Ég hafði
útsýni yfir sundin blá - þang-
að til borgarstjórnarmeirihluta
Sjálfstæðisflokksins datt í hug að
fegra ímynd borgarinnar frá sjó
og veitti leyfi til að reisa turnana
við Skúlagötu. Þegar turnarnir
fóru að skyggja á útsýnið einn af
öðrum seldi ég íbúðina.
1990-2004 Ég flutti í parhús á
Óðinsgötunni og þar var lengi
vel ætlun mín að bera beinin,
svo vel leið mér í Þingholtun-
um. Einhvern veginn er mann-
lífsflóran þar fjölbreyttari en í
úthverfunum og fólk ræðir við
nágrannana og lætur sig jafnvel
varða um hag þeirra. Af Óðins-
götunni fór ég með trega og gæti
vel hugsað mér að flytja þangað
aftur.
1997-2001
Um nokkurt skeið bjó fjölskyldan
á Englandi, lengst af í Kent. Við
leigðum þar ofursnoturt hús með
stórum, villtum garði í bæ sem heit-
ir Royal Tunbridge Wells og kemur
gjarnan fyrir í 19. aldar skáldsög-
um. Þangað fór fína fólkið á sumr-
in til að hvíla sig á höfuðborginni.
Sjálfur hef ég aldrei þurft að hvíla
mig á Lundúnum en óneitanlega er
þetta barnvænna umhverfi, á næsta
leiti er Hundraðmílnaskógurinn
þar sem Bangsímon býr, svo dæmi
sé tekið.
2004-
Skátaheimilið í Garðabæ var aug-
lýst til sölu. Við fórum að skoða
það, mest af forvitni, og viku
síðar vorum við búin að kaupa
það. Seint verður sagt að þetta
sé fallegt hús en það er samt ári
skemmtilegt og situr fallega í
hraunjaðrinum. Þarna fékk ég
loks útsýni sem jafnaðist á við
sundin blá. Í hraunbolla á lóðinni
er náttúrulegt útileikhús með
sviði utan í einum hraunhamrin-
um. Þar gæti ég hugsað mér að
setja Skírnismál á svið. Ég hef
þegar haft samband við Hilmar
Örn um tónlistina. ■
Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri hreifst snemma af London og
þekkir þar hvern krók og kima. Í Reykjavík hefur hann búið víða, allt frá
parhúsi á Óðinsgötu til skátaheimilis í Garðabæ.
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU } ÁGÚST GUÐMUNDSSON
REGENT SQUARE
CAMDEN TOWN
HVERFISGATA
ÓÐINSGATA
ROYAL TUNBRIDGE WELLS
GARÐABÆR
Gamalt, gott og gallsúrt
Núna fyrir jólin er fólk oft á báðum áttum með hvað geisladiska
á að gefa. Við báðum Sigurð Örn Finnsson, öðru nafni Iggy Sniff,
meðlim hljómsveitarinnar Singapore Sling og tónlistargúrú, að
benda okkur á fjórar plötur sem vert væri að gefa vinum og kunn-
ingjum. Þetta er það sem hann mælir með.
TENDER BUTTONS MEÐ BROADCAST
Sívaxandi plata hjá síminnkandi
bandi, víst bara tvö eftir en njóta þess
vel að geta teygt svolítið úr sér.
LOG BOMB MEÐ BOB LOG III Er ennþá fastur í þessum
mikla snilling eftir að hafa dregið hann upp á klakann
um daginn, lofaði að koma aldrei til Evrópu öðruvísi en
að spila hér.
SURGERY MEÐ THE WARLOCKS Vinir
mínir stríðslokkarnir með nýja plötu,
þónokkuð ljúfsára og þrælheiðarlega.
FEELS MEÐ ANIMAL COLLECTIVE
Alþjóðlegir fánaberar krúttkyn-
slóðarinnar í meiri nýbylgjugír en
síðast,minnir mig nokkuð á gamalt,
gott og gallsúrt Mercury Rev.... sem
er gott.
Smáralind . sími 554 4242
TICKET TO HEAVEN
ÚTIGALLAR
TILVALIN JÓLAGJÖF