Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 70

Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 70
 18. desember 2005 SUNNUDAGUR54 Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort fólk væri að endur- nýja sparifötin fyrir jólin. Fórum við því á stúfana og spurðum nokkra vel valda hvort þeir færu nokkuð í jólaköttinn. NÝ SPARIFÖT FYRIR ÞESSI JÓL? Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 26.900 kr. NOKIA 6230i SÍMI KOMDU Í SPENNANDI HEIM AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA Sigríður Beinteinsdóttir söng- kona: ,,Ég kaupi mér ekki nýjan kjól fyrir þessi jól. Ég ætla mér að vera sparsöm í ár og eyða pening- unum frekar í eitthvað annað. Ég keypti mér jólaföt fyrir síðustu jól þannig ég læt það duga í ár.“ Eyrún Magnúsdóttir sjón- varpskona: ,,Ég verð að svara þessari spurningu neitandi. Ég ætla að nýta það sem fyrir er í skápunum. En ég stefni að því að fá rosalega flott stígvél í jólagjöf þannig að það verður jólaflíkin mín í ár. Vonandi fæ ég þessa ósk mína uppfyllta. En yfirleitt kaupi ég mér einhver jólaföt. Það verður þó ekki í ár.“ Eivör Pálsdóttir söngkona: ,,Ég býst fastlega við því að kaupa mér ný föt fyrir jólin. Ég geri það venjulega. Oft er ég með jólatón- leika þannig að ég læt stundum sauma á mig kjóla fyrir þá sem ég nota síðan um jólin.“ Stefán Hilmarsson tónlistarmaður: ,,Nei, ég býst ekki við því að endur- nýja jólafötin í ár. Ég held reyndar að það sé óhætt að segja að ég kaupi aldrei sérstök jólaföt. Ég man ekki eftir því að hafa sérstaklega keypt föt með jólin í huga. Ég man að minnsta kosti ekki eftir því á mínum fullorðins árum. Það var auðvitað annað mál þegar maður var klæddur upp á fyrir jólin sem barn.“ Ragnheiður Clausen, fyrrverandi sjónvarpskona: ,,Nei ég endurnýja ekki jólafötin í ár. Ég hef reyndar tekið alveg eldgömul föt upp úr skápnum og verið í þeim á jólun- um. Ég kaupi mér oft klassísk föt sem endast lengur en það sem er sérstaklega í tísku þá stundina. Það endar því oft með því að ég finn eitthvað frábært í skápun- um. En það verður ekkert sérstakt fyrir þessi jól.“ Sigmar Vilhjálmsson Idol-kynnir: ,,Já, það má gera ráð fyrir því að það verði fjárfest í nýjum fötum í ár. Ég fer að minnsta kosti ekki í jólakött- inn. Reyndar gifti ég mig í sumar og það getur vel verið að ég noti þau jakkaföt. Föt verða nú ekkert mikið fínni en það. En ég nota ekki sömu jakkafötin mörg jól í röð. Ég reyni nú bara að notast við nýjustu jakka- fötin mín á hverjum tíma.“ Freyr Eyjólfsson dagskrárgerðar- maður: ,,Nei, ég ætla mér ekki að fjárfesta í nýjum fötum. Ég tíni til það sem finnst í skápunum. Það er í raun allt óákveðið í þessum efnum. Kannski fær maður bara lánaðan smókinginn hans pabba, svo fremi sem hann verður ekki í honum.“ Örn Árnason leikari: ,,Ég hugsa að ég verði að svara þessu játandi. Maður reynir að kaupa sér ný jakkaföt einu sinni á ári og jólin eru ágætis tímapunktur. Ég reyni því að endurnýja reglulega. Fyrst er þetta viðhafnarbúningur og síðan fer þetta í almenn not. Maður reynir að hafa þetta ágætlega vandað þegar maður er að velja.“ Frétt vikunnar að mati Bergljótar Arnalds leikkonu og rithöfundar er þegar George Bush lét af andstöðu sinni við frumvarp sem bannar pyntingar og niðurlægingar á föngum. Hafði hann verið ákaft á móti því þegar það var sett fram en hefur nú gefið sig. ,,Fyrir mér er það frétt vikunnar að Bush lét af þessari andstöðu sinni við nýsamþykkt frumvarp til laga sem kveður á um að banna pyntingar og niðurlægingu á föngum. Bush hafði hótað að beita neitunarvaldi sínu svo lagaákvæðið næði ekki fram að ganga. Það hefði verið gífurlegt áfall fyrir mannkynið ef leyfðar væru pyntingar í Bandaríkjunum og vestræn menning hyrfi hundruð ára aftur í tímann. Þjóð sem leyfir slíkt getur ekki gefið sig út fyrir að berjast fyrir mannréttindum og pyntingar á fólki eru glæpur, sama undir hvaða formerkjum þær eru stundaðar.“ Bergljót gaf út barnabókina Jólasveinasaga fyrir jólin og hefur bókin rokið út úr bókabúðum eins og heitar lummur undanfarið. ,,Bókin er uppseld hjá útgefanda þannig að ég er hæstánægð með það. Það voru prentuð um það bil 3.000 eintök af bókinni og þau eru nánast öll farin,“ segir þessi hæfileikaríki rithöfundur. FRÉTT VIKUNNAR BERGLJÓT ARNALDS RITHÖFUNDUR Bush lætur í minni pokann Þær konur sem eru veikar fyrir guðdómlegum leðurjökkum ættu að leggja leið sína í Evu á Laugavegi. Þar eru nýjar vörur frá tískumerkinu Ventcouvert mættar á svæðið. Um franskt eðalmerki er að ræða sem sérhæfir sig í skinnfatnaði og notar einungis gæðaskinn. Fyrirtækið var stofnað árið 1986 og hefur heldur betur fest sig í sessi og framleiðir nú fatnað fyrir stóru tískuhúsin. Leðurjakkarnir eru einstaklega gæðalegir úr þykku en dásamlega mjúku leðri og oftar en ekki með hlýjum prjóna- krögum sem ættu að verja vel gegn vondu veðri. Að sjálfsögðu eru þeir svo ó g u r l e g a smekklegir í útliti og hrikalega töff. Gæðalegir leðurjakkar FLOTTUR Örlítið mótórhjólalegur en líka ótrúlega töff. VENTCOUVERT Flottur leðurjakki.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.