Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 29. desember 2005 33 Það má með sanni segja að hátíð- arstemning ríki á Vínbarnum næstu daga. Tappar munu fljúga úr freyði- og kampavínsflöskum og gestir geta smakkað á vínum frá heimsþekktum framleiðend- um. Má þar nefna Mumm, Perrier Jouet, Codorniu og Jacob’s Creek. Áramótin eru tími freyðandi vína og flugelda og tilvalið að koma við á Vínbarnum og fá sér freyð- andi eðalvín. Sérstök tilboð verða í gangi. Mumm Cordon Rouge Brut Þetta er Formúlu 1 kampavínið fræga. Því ekki að upplifa sömu stemningu og frægir ökuþórar og fagna nýju ári með stæl? Mumm Cordon Rouge var fyrst kynnt 1875 með hinum áberandi rauða borða frönsku heiðursorðunnar og er eitt af vinsælustu kampavínum heims. Verð í Vínbúðum 2.850 kr. Codorniu Semi Seco Fyrirtaks freyðivín fyrir þá sem vilja smá sætu. Eitt vinsælasta freyðivínið á síðasta ári. Það hefur ríkan ávaxtailm og bragð sem minnir á epli og ristað brauð. Opið og gott vín sem hentar við öll tækifæri. Magnað vín fyrir lítinn pening. Verð í Vínbúðum 990 kr. Jacob´s Creek Chardonnay-Pinot Noir Brut Freyðivín frá Ástralíu sem er hlaðið verðlaunum og óhætt er að mæla með. Framleitt sam- kvæmt hefðbundnu kampa- vínsaðferðinni en má auð- vitað ekki heita kampavín frekar en önnur freyðivín sem framleidd eru utan C h a m p a g n e - h é r a ð s . Nefna má að boðið hefur verið upp á það á Saga Buisness Class í vélum Icelandair undanfarin misseri. Verð í Vínbúðum 1.130 kr. Flugeldasýning á Vínbarnum Stemningin: Vert er að minnast á húsið sem hýsir staðinn þar sem það er mjög flott að utan. Staðurinn sjálf- ur er mjög ljós og það er létt yfir manni þegar maður gengur þar inn. Það er eins og allt stress hreinlega hverfi eins og dögg fyrir sólu við innkomuna. Það má því segja að umhverfið sé mjög afslappað. Bar- inn gefur staðnum einnig skemmti- legt yfirbragð þar sem hvítu og ljósbrúnu litirnir fá að njóta sín vel. Allt þetta gerir staðinn að nokkurs konar blöndu margra áhrifa. Hægt er að sjá ákveðna Miðjarðarhafs- stemningu en jafnframt er margt mjög íslenskt við hann. Matseðill: Matseðillinn er mjög blandaður. Hægt er að fá nokkra fisk- og kjötrétti og einnig er boðið upp á pasta. Einnig eru svokallaðir klassískir réttir á boðstólnum. Þá er einnig hægt að fá salat ef svo ber undir. Einnig býður staðurinn leik- húsgestum upp á þriggja rétta mál- tíð sem eru súpa, lamb og brulée. Þetta eru svona hálfgerðir hraðrétt- ir sem henta fyrir þá sem vilja fara út að borða fyrir leikhúsið en samt njóta gæðamatar. Vinsælast: Lambasteikin er vin- sælust á Enrico’s. Vöðvinn er glóð- arsteiktur og borinn fram með pip- arrótarrjóma. Svo eru pastaréttirnir einnig mjög vinsælir. Þar má nefna tagliatelle með humar, hörpuskel, sveppum og kóríandersósu svo eitthvað sé nefnt. Réttur dagsins: Það er ávallt boðið upp á rétt dagsins í hádeg- inu og það er mismunandi eftir dögum hvað boðið er upp á. Það rokkar frá fiskréttum til pastarétta og allt þar á milli. ENRICO‘S LAUGAVEGI 3 VEITINGASTAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.