Tíminn - 02.11.1976, Side 1
„Réttarríki - Gróusögur" — sjó bls. 7
ÆHGIRf
Áætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar:
2-60-60 oq 2-60-66
t3
247. tölublað—Þriðjudagur 2. nóvember—60. árangur
ranagnlr
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS’
Skemmuveqi 30 A-FvGfa
Kópavogi tX0**
KAUPA ÞARF TVO
TOGARA TIL
■i
•• ■■. ■
' - ;.v;
MÓ-Reykjavík — Ekki minna en tvo skuttogara
þarf að fá hingaö, ef koma á i veg fyrir hrun at-
vinnulífsins hér á ólafsvík, sagði Alexander
Stefánsson sveitarstjóri í viðtali við blaðamann
Tímans nú um helgina. Af li hér á heimamiðum hef-
ur dregizt verulega saman að undanförnu og upp-
gjöf er hjá útgerðarmönnunum. Fjórir stærstu
bátarnir hafa verið seldir burtu og meirihluti báta-
flotans er nú gömul skip.
Ólafsvik hefur á undanförn-
um árum verið meðal þrótt-
mestu útgerðarstaða á land-
inu, og árið 1975 var útflutn-
ingsverðmæti sjávarafla það-
an um ein milljón kr. á hvern
ibúa i þorpinu. Þessi afli hefur
byggzt á útgerð um og yfir 30
fiskibáta, og aflinn á Breiða-
fjarðarmiðum hefur ekki
brugðizt i áratug eða meir.
Nú hefur það hins vegar
gerzt, að afli hefur verið mjög
tregur, og sagði Aiexander, að
sjómenn kenndu aðallega
ásókn togara á miðin út af
Breiðafirði þar um. Sjómenn
eru sérstakiega óánægðir-með,
að þegar fiskveiðiiögunum var
breytt sl. vor, var aðalreglan
sú, að togurum var hvergi
hleypt nær landi en að 12 sjó-
milna mörkunum.
EN CT AF BREIÐAFIRÐI
OG SUÐUR FYRIR SNÆ-
FELLSNES VAR AFRAM
OPIÐ FYRIR TOGARANA
UPP AÐ 4 OG 6 SJÓMÍLUM.
Litlu bátarnir frá verstöðvum
á Snæfellsnesi geta þvf ekki
lengur hagnýtt sér þessi mið,
sagði Alexander, og fiskur
gengur ekki inn á grunnmið
Breiðafjarðar i neinum mæli.
Alexander sagði, að hingað
til hefðu menn ekki verið að
huga að skuttogarakaupum til
Ólafsvikur. Menn hefðu verið
svo bjartsýnir að trúa því, að
hin mikla uppbygging togara-
flotans allt I kringum landié
hefði ekki áhrif á veiðar bát-
anna við Breiðafjörð, en þeir
stunda nær eingöngu þorsk-
veiðar.
En nú hefur sem sagt komið
annað I ljós, og þvl er óhjá-
kvæmilcgt að bregðast fljótt
við og bjarga þvl, sem bjargað
verður, áður en það er um
seinan. Hér er hlutfallslega
meira af ungu fólki en annars
staðar á landinu, og það er
mikil hættaá.að þetta unga
fólk, flytji burt, ef samdráttur
verður i atvinnunni. Þá hefur
mikil uppbygging verið á
flestum sviðum i sveitarfélag-
inu á undanförnum árum,
m.a. hafa hér verið byggðar
afkastamiklar fiskvinnslu-
stöðvar og verulegar hafnar-
bætur hafa verið gerðar.
Alexander sagði, að hrepps- •
nefnd Ólafsvikurhrepps og
fulltrúar fiskvinnslustöðvanna
hefðu að undanförnu rætt
þetta alvarlega ástand, og
fundir hafa verið með forráða-
mönnum Framkvæmdastofn-
unar ríkisins, alþingismönn-
um Vesturlands og rikisstjórn.
Hraðfrystihús ólafsvikur
h.f. og Lóndrangur h.f. eru að
selja m/b Lárus Sveinsson til
Vestmannaeyja, en vilja
kaupa skuttogara istaðinn. Þá
eru allar fiskvinnslustöðvarn-
ar á ólafsvik ásamt öðrum
aðilum á staðnum reiðubúin
að stofna útgerðarfélag um
kaup og rekstur á öðrum skut-
togara.
Framhald á bls. 5
Aðrir ráðherrar
flytji Alþingi
skýrslu eins og
utanríkisráðherra
HV-Reykjavik. t umræðum um þingsályktunartillögu um
rannsóknarnefnd á vegum Alþingis, I þingi I gær, kvaddi
Ragnhildur Helgadóttir sér hljóðs og varpaði fram þeirri
hugmynd, hvort ekki ætti að skylda aðra ráðherra til þess
að flytja Alþingi árlega skýrslu hver af slnum málaflokk-
um, llkt og utanrlkisráðherra gerir nú.
t máli ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra, kom
fram aö hann teldi hugmynd þessa athyglisverða. Benti
hann á að I frumvarpi þvl til laga um Lögréttu sem lagt
verður fyrir þing innan tíöar væri raunar gengið nokkuð I
þessa átt.
ef koma á í veg fyrir
neyðarástand í atvinnumálum
Skyndikönnun Seðlabankans:
43 tékkar án inn-
stæðu frá 19 aðilum
upp á 12,8 millj.
— 360 aðrir tékkar að upphæð um 6 millj.
Að kvöldi hins 29.
október s.l. fór fram
skyndikönnun innstæðu-
lausra tékka á vegum
Seðlabanka islands.
Könnunin náði m.a. til
innlánsstof nana i
Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Keflavík
og Selfossi.
Af þeim 403 tékkum,
sem reyndust án full-
nægjandi innstæðu, voru
43 útgefnir af 19 aðilum,
að fjárhæð samtals
12.765.000 kr., en hinir
360 voru samtals að
fjárhæð um 6 millj. kr.
Þessar 18,8 milljónir
reyndust vera 0,369% af
veltu föstudagsins i
ávísanaskiptum við
Reiknistofu bankanna
og Seðlabankann, sem
nam 5.103 millj. kr. segir
i frétt Seðlabankans. Til
samanburðar ber þess
að geta, að við könnun
hinn 19. marz s.l. komu
fram 842 tékkar að f jár-
hæð 12,2 millj. kr., sem
ónóg innstæða var fyrir
og námu þeir sem næst
sama hlutfalli af veltu
dagsins.
Reiknistofa bankanna
vinnur nú sem næst alla
tékka sem berast bönk-
um á Reykjavíkursvæð-
inu og næsta nágrenni,
og er fjöldi tékkareikn-
inga, sem Reiknistofan
annast vinnslu á nú um
80 þús. Voru hreyfingar
hjá henni aðfaranótt
s.l. laugardags um
65.000, þar af tékkar um
46.500 talsins, og nam
heildarfjárhæð útborg-
ana 6.070 millj. kr.
Heildarútkoma þess-
arar skyndikönnunar er
heldur betri en verið
hefur að jafnaði undan-
farin 10 ár. Hefur
greinilega gætt meira
aðhalds í meðferð
tékkamála gagnvart
reikningshöfum, segir í
frétt frá Seðlabank-
anum.
Flug Vængja stöðvað — sjá baksíðu
.