Tíminn - 02.11.1976, Síða 3
Þriðjudagur 2. nóvember 1976.
TÍMINN
3
Kröfiusvæðið:
Skjálftavirknin
skjálftavirknin nokkuð, og var
fram á laugardag 60-80 skjálftar á
dag, en vikuna þar áður mældust
þeir aðeins 3-4 á dag. Aukningin
er þvi mjög mikil á þessum stutta
tima.
— Jarðskjálftaaukningin hefur
orðið samfara miklu landsigi á
Kröflusvæðinu, en aðfaranótt
sunnudagsins mældist mjög mik-
ið landssig, allt að þvi hundrað
sinnum hraðar en landrisið, sem
mælzt hefur að undanförnu, sagði
Páll Einarsson hjá Raunvisinda-
stofnun Háskólans i gær. Siðan
hefur aftur dregið úr sighraðan-
um og fer hann nú jafnt og þétt
minnkandi, sagði hann. Páll kvað
það ómögulegt aö spá nokkru um
hverjar afleiðingar eða hvaða
ályktanir væri hægt aö draga af
þessum nýju atburðum við Kröflu
á þessu stigi málsins. Afram er
fylgzt mjög náið með jarð-
skjálftavirkninni á svæðinu.
Rjúpnaskyttur, sem voru á ferð
á sunnudag við Gjástykki, urðu
varar viö mikinn jaröskjálfta og
foröuöu sér til byggða.
jókst úr 3-4 í 340
skjálfta á sólarhrina
lÍÍÍ!
★ AAjög mikil jarðskjálftaaukning
og landsig á Kröflusvæðinu
★ Upptökin álitin vera við Gjástykki
gébé Rvík — Snemma á
sunnudagsmorgun jókst
jarðskjálftavirknin
skyndilega mjög mikið á
Kröflusvæðinu. Frá því
klukkan þrjú á sunnudag
og til klukkan þrjú á mánu-
dag# mældust alls 340 jarð-
skjálftar. Fólk á sjálfu
Kröflusvæðinu hefur nokk-
uð orðið vart við skjálft-
ana# og vöknuðu menn upp
aðfaranótt sunnudagsins.
Álitið er að upptök skjálft-
anna séu nokkru norðar en
áður# eða við Gjástykki. —
Þetta er mjög svipað og
álíka mikil virkni og var í
janúar í fyrra þegar mestu
lætin voru, sagði starfs-
maður á „skjálftavakt" í
Mývatnssveit í gær, þegar
Tíminn hafði samband
norður.
Um miðja síöustu viku jókst
ávíðavangi
Skattsvik og fram-
kvæmd skattaiaga
Skattamálín hafa verið I
hrennidepli að undanförnu,
segir i upphafi greinar eftir
Halldór Asgrimsson alþitt.,
sem nýlega birtist i Austra.
Flestir viðurkenna, segir
Haildór, aö mikiðóréulætiriki
við álagningu skatta. og stjórn-
völdum beri skylda til aö jafna
skattbyrðina. Halldór vikur
siðan að nokkrum atriöum og
segir ttt.a.:
„Alvarlegasti þá.tturinn i
misrétti i skattamálum eru
skattsvikin. Það er þvi miður
erfiltað kotna algjöriega i veg
fyrir skattsvik. Þaö má hins
vcgar draga stórlega úr þeint
með auknu eftirlití og þyngri
viðurlögutn.
Skattsvikum veröur hins
vcgar aldrei útrýmt fyrr en -
stik brot verða talin glæpsam-
lcg i augum allra þjóöfélags-
þegna. Aukin herferð fyrir
bættu skattsiögæði er þvf
mikilvægt mál.
Réttlát framkvæntd skatta-
laga kostar mikið fé og góðan
starfskraft. Þær stofnanir,
sem hafa farið með skatta-
mál, hafa ekki haft mjög
þröngt svigrúm. Ekki er hægt
að ætlast til alls af þessum
stofnunum, nema samsvar-
andi skilningur á fjárþörf
þeirra sé fyrir hendi.”
Verðbólgan og
skattamálin
lfalfdór Asgrimsson vikur
siðan að þætti verðbólgunnar i
sambandi við skatlaniálin:
„Það mikla misrétti, sem
verðbólgan hefur skapað hef-
ur endurspeglazl t skultalog-
gjöfinni. Verðbólgun er þvi
biílvaldur á þessu sviði sem
mörgum öörum. Þelta mis-
rétti verður bezt lagfært nteð
þvi að halda veröbólgu í skefj-
um. Það er hins vegar nauð-
synlegt að sniöa skattalög-
gjöfina þannig , aö dregið sé
úr þvi misrétti, sent verðbólga
hugsanlega skapar. Núgild-
andi skattalög gera þaö ekki.
Með því að skattleggja sölu-
Itagnað af cignum cftir sér-
stökum reglum ntá bæta hér
úr. Vmsur aðrar ráðstafanir
eru nauðsynlegar, sem eru
þess valdandi, að skattalög-
gjöfin minnki þaö misrétti,
sent veröbólgan skapar, cn
auki það ckki.”
Fækkun
frddráttarliða
Þá viktiír Halldór að frá-
dráttarbærum gjöldutn og
segir:
,,E‘n ástæðan fyrir misinun-
andi skattbyrði er ntismun-
andi réttur manna til frádrátt-
ar frá skattskyldum tekjum.
Til að minnka þennan mun er
eina leiðitl aö fækka frá-
dráttarliöum og samræma
þá.”
Mesta óánægjuefnið
Loks vikur Haildór að
rekstrartekjunum og segir:
„Það, sem skapaö hefur
mesta óánægju i skatlamál-
ttm, cr misrétti milli þeirra,
sem stunda sjálfstæðan at-
vinnurekstur og launþega.
Þessi munur á sér oft ýmsar
orsakir, t.d. rúrnar fyrninga-
reglur, skattfrelsi sölu-
hagnaöur og tap á atvinnu-
rekstri.
l.agfæringar á þessu sviði
krefst þvi, að framtal vegna
atvinnureksturs annars vegar
og einkaiteyzlu ltins vegar sé
sem mest aöskilið.”
Grein sinni lýkur Haildór
með þeim orðum, að skatta-
rnálin séu vandasöm, en til
þess sé ætlazt, að lagfæringar
skapi skattajöfnuð, ekki aö
forminu til, heldur þannig, að
allir, scm eins eru settir, beri
sömu bvrðar. Þ.Þ.
Leirhöfuðið var til-
raun til sameiningar
sjónarmiða vitnanna
Lézt í
árekstri
Gsal-Reykjavik — Banaslys
varð á föstudagskvöld á
Reykjanesbraut fyrir ofan
Innri-Njarðvik, er tvær bif-
reiðar skullu þar harkalega
saman. ökumaður annarrar
bifreiðarinnar lézt við
áreksturinn. Hann hét Nor-
mann L. Fetter og var yfir-
maður radarstöðvar varnar-
liðsins I Grindavfk. Hann var
46 ára að aldri.
Mjög slæmt skyggni var er
áreksturinn varð, rok og
rigning. Bandarikjamaður-
inn ók litilli fólksbifreiö, en
þrir tslendingar voru i hinni
bifreiðinni, sem var jeppi.
Eins og myndin ber glöggt
með sér, var áreksturinn
mjög harður, og bilarnir eins
og flak að sjá.
Gsal-Reykjavík — Haukur
Guðmundsson rannsóknar-
lögreglumaður i Keflavik
hefur sent Tímanum afrit
af langri og ítarlegri grein,
sem stíluð er til ritstjóra
Dagblaðsins og f jallar um
atriði, sem fréttamenn
þess blaðs, hafa greint frá
í fréttum sínum að undan-
förnu. Þar sem grein þessi
hefur aðeins að geyma at-
hugasemdir og upplýsing-
ar vegna frétta Dagblaðs-
ins, sér Tíminn ekki ástæðu
til að birta hana orðrétta.
Hins vegar vill Timinn birta
hluta greinarinnar,. þ.e. yfirlýs-
ingu Kjartans Sigtryggssonar aö-
stoðarvarðstjóra um tilurö leir-
myndarinnar, en um þaö atriði
spurði blm. Timans, Hauk Guð-
mundsson, fyrir nokkru, en hann
vildi þá engar upplýsingar gefa.
Yfirlýsing Kjartans er þannig:
„Ég undirritaður, lýsi þvi hér
með yfir, að mér var, þann 23.
nóvember 1974, falið að annast
umsjón meö gerð myndar af
óþekktum manni, sem kom inn i
Hafnarbúðina i Keflavik, að
kvöldi 19. nóvember sama ár.
Vegna frétta i Dagblaðinu dag-
ana 27. og 28. þ.m. ber nauðsyn tii
að lýsa i höfuðatriðum, undirbún-
ingi og gerð, leirhöfuðsins, sem
birt var I fjölmiðlum 26. nóvem-
ber 1974.
1. Samkvæmt frumrannsókn,
gáfu sig fram tvær stúlkur, sem
töldu sig geta lýst manni þessum.
Stúlkunum ók ég undirritaður til
Reykjavikur, laugardaginn 23.
nóvember 1974 og fór meö þær
báðar til tæknideildar rann-
sóknarlögreglunnar i Reykjavik.
Þarna röðuðu stúlkurnar saman
þar til gerðum andlitsmyndahlut-
um með aðstoð og undir eftirliti,
Haraldar Arnasonar, rann-
sóknarlögreglumanns i tækni-
deild.
2. Að myndgerð þessari lokinni,
kom i ljós, að stúlkurnar voru
ekki á eitt sáttar meö þau andlits-
einkenni, sem fram komu i mynd-
inni. Vegna þessa var hafizt
handa um að teikna rissmyndir
eftir fyrirsögn stúlknanna.
3. Tveir aðilar unnu i sjálfboða-
vinnu að þessum teikningum, en
það voru: Emm núverandi frétta-
ritari Dagblaðsins og stúlka, höf-
undur leirhöfuðsins. Aö þessari
teiknivinnu lokinni voru stúlkurn-
ar enn ekki ánægðar með andlits-
einkenni sem myndirnar sýndu
og verulegur útlitsmunur var á
myndunum, enda voru teiknaöar
eftir hvorri stúlku án viðveru eöa
ihlutunar hinnar.
4. Vegna þessa misræmis var
þaö ráð tekið að móta höfuð
ókunna mannsins i leir til þess að
sameina sjónarmiö stúlknanna.
Við gerö leirhöfuðsins var höfð
hliösjón af öllum frumteikningum
og stuðst við fyrirsögn sjónar-
votta, sem voru aðeins tveir.
Keflavik 29. október 1976
Kjartan Sigtryggsson, aðstoöar-
varðstj. Keflavik.”
BANASLYS í
ÞORLÁKSHÖFN
Gsal-Reykjavik — Þaö hörmuiega slys varö I höfninni I Þorláks-
höfn aöfaranótt sunnudags, að rúmlega þritugur maður, Hrafn
Guðlaugsson, varð á milli borvagns og bómu — og lézt sam-
stundis. Hrafn átti heima i Möðrufelli 9 I Reykjavik. Hann lætur
eftir sig konu og tvö börn.
Slysið varö'meö þeim hætti, að verið var aö færa borvagn um
borð i Stakki og var vagninn færður til með eigin vélarafli.
Skyndilega sporðreistist hann og klemmdist þá Hrafn á milli
vagnsins og bómunnar.