Tíminn - 02.11.1976, Page 19
Þriðjudagur 2. nóvember 1976.
TÍMINN
19
flokksstarfið
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi, verður til viötals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstlg 18, laugardaginn 6.
nóvember kl. 10-12.
Húsvíkingar
Frá 1. október að telja verður skrifstofa Framsóknarflokksins
á Húsavik opin á miðvikudögum og fimmtudögum milli kl. 18 og
19ogá laugardögum millikl. 17 og 19.
Bæjarfulltrúar flokksins verða til viðtals á skrifstofunni á miö-
vikudögum kl. 18 til 19, og eru bæjarbúar hvattir til að notfæra
sér þá þjónustu.
Framsóknarvist ó Hótel Sögu
Fimmtudaginn 11. nóv. 1976 veröur spiluö framsóknarvist að
HótelSögu isúlnasal. Húsið opnað kl. 20,byrjað aö spila kl. 20.30,
dans á eftir. Góö kvöldverðlaun. Allir velkomnir. Framsóknar-
félag Reykjavikur.
Hveragerði
Almennur félagsfundur verður fimmtudaginn 4. nóv. kl. 21 i
kaffisal ullarþvottastöðvarinnar. Fundarefni: a. Kosning full-
trúa á kjördæmisþing. b. Sveitarstjórnarmál. Framsögum.
Þórður Snæbjörnsson. Stjórnin.
Hveragerði
Almennur fundur um byggingu ylræktarvers veröur haldinn á
vegum Framsóknar- og Sjálfstæðisfélaganna i Hveragerði,
þriðjudaginn 2. nóvember kl. 21 i Hótel Hverageröi. A fundinn
mæta, Þórarinn Sigurjónsson, alþm. Guömundur Sigþórsson
deildarstjóri og Ingólfur Jónsson alþingismaður. Framsóknar-
félag Hverageröis.
Breiðholtsbúar — takið eftir
BRIDGE
HFÍB gengst fyrir bridgekvöldum í Breiðholti næstu þriöjudags-
kvöid. Næsta spilakvöld verður 2. nóvember I salarkynnum
Kjöts og fisks að Seljabraut 54. Byrjaö verður að spila kl. 20.00.
Byrjendum verður leiðbeint. Allir bridgeáhugamenn eru vel-
komnir. Hverfasamtök framsóknarmanna i Breiöholti.
Dalamenn
Aðalfundir Framsóknarfélaganna I Dalasýslu veröa haldnir að
Asgarði sunnudaginn 7. nóvember og hefjast kl. 2.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Framsóknarfélags Dalasýslu.
Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna Dalasýslu.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Handavinnukvöld nk. fimmtudag kl. 20.30 að Rauðarárstig 18. —
Basarnefndin.
Framsóknarvist ó Flateyri
Framsóknarfélag önundarfjarðar verður með spilakeppni i
samkomuhúsinu Flateyri föstudaginn 5. nóv. Byrjaö verður að
spila kl. 21.00.
Verðlaun fyrir hvert kvöld. — Allir velkomnir.
London? Kanarí?
Kjalarnes, Kjós, Mosfellssveit
Kjósarsýslubúar! Framsóknarfélag Kjósarsýslu býöur
velunnurum sinum upp á sérstök afsláttarkjör með Samvinnu-
ferðum til Kanarieyja I vetur. Þessi vildarkjör gilda fyrir allar
Kanariferöir með Samvinnuferöum, utan jóla- og páskaferðir.
Einnig stendur til boða vikuferð til London 4. desember n .k.
Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson, Arnartanga 42 simi
66406.
Keflavík — Nógrenni
Fulltrúaráð framsóknarfélagana i Keflavik og nágrenni heldur
fund I Framsóknarhúsinu i Keflavik fimmtudaginn 4. nóv. n.k.
og hefst hann kl. 20.30. Fundarefni: Vetrarstarfiö. Stjórnin.
Félags-
fundur
Verður haldinn miðvikudaginn 3. nóv. nk.
kl. 20.30, i fundarsal Hótel Esju.
Dagskrá:
1. Stefnuyfirlýsing A.S.í.
2. Breytingar á vinnulöggjöfinni.
3. Félagsmál.
Félagsstjórnin.
óska eftir að kaupa
Jörð í Eyjafirði
Ef um semst eru hugsanleg skipti á jörð
og ibúð á góðum stað i Reykjavik.
Tilboð sendist I pósthólf 1133 Reykjavik.
Bronco til sölu
Tilboð óskast i Bronco, árgerð 1974, 6 cyl.
til sýnis á Laugavegi 118.
Bilaleigan Ekill
Bjöllur O
og grafa þar út herbergi. A
meðan þær grafa myndast efni,
sem gengur út af þeim með úr-
gangsefnum. Þessi efni lokka
aðrar bjöllur að trjánum og
taka hin nýkomnu karldýr til við
að grafa. Kvenkynsbjöllurnar
koma á eftir. Meðal bjallnanna
er stundað fjölkvæni, þ.e. hvert
karldýr fær þrjú til fjögur kven-
dýr i sitt herbergi. Út frá her-
bergjunum naga kvendýrin
ganga, sem þær verpa svo eggj-
um sinum i.
Þessi gröftur dýranna hefur
afdrifarik áhrif á lifsstarf trés-
ins, en hann stöðvar flutning
næringarefna milli barrnála og
rótar. Smám saman deyr tréð.
Barrnálarnar þorna, kvistir og
greinar missa kraft sinn og
stofninn stendur eftir uppþorn-
aður og sundurgrafinn. En lifið
heldur áfram fyrir lirfurnar og
bjöllurnar. Fullorðnu bjöllurnar
flykkjast til nýrra trjáa. A einu
vaxtartimabili geta sömu bjöll-
urnar tekið þátt i að drepa allt
að þrjú til fjögur tre, ef ekkert
er gert til að stöðva þær. Tréð
sjálft gerir tilraun til að vinna á
móti þessu. Þegar fyrstu bjöll-
urnar hefja innrás sina, eykur
það framleiðslu á kvoðu, og á
meðan fjöldi þeirra bjallna, sem
ræðst inn, er litill, getur tréð
unnið á móti þeim. En þegar tiu
þúsund bjöllur naga samtimis
getur það ekkert gert og gefst
upp. Kvoðan sjálf hjálpar bjöll-
unum við að framleiða merkja-
efni sin, en úr henni fá þær hrá-
efni til þess.
Bakke hefur fundiö út, að
merkjaefni bjallnanna saman-
standa af fjórum hlutum. Þrir
af þeim gefa upplýsingar um
það, að gott tré hafi fundizt, en
það fjórða, að ekki sé pláss fyrir
fleiri. Fyrstu þrir nefndu hlut-
arnir eru notaðir i baráttunni
gegn bjöllunum.
Meiningin er ekki aö útrýma
öllum grenibarkarbjöllum. Að-
feröin getur lika tæplega verið
svo áhrifamikil, segir Alf
Bakke. Ef bjöllurnar eru ekki of
margar, inna þær af hendi ipik-
ilvægt verkefni I skóginum^Með
þvi að naga dauð, fallin tré, sem
ekki eru nothæf, flýta þær fyrir
rotnun og annarri starfsemi
sem brýtur niður viðinn til nær-
ingar fyrir önnur tré. Takmark-
ið með þvi að berjast gegn bjöll-
unum, er að fækka i stofninum
og hefta útbreiðslu hans.
A siðustu árum hefur gifurleg
aukning verið i bjöllustofninum.
Visindamenn vilja kenna þvi
um, að mikil hvassviðri hafi
feykt um koll miklum fjölda
trjáa frá þvi árið 1969. Þetta
hefur valdið geypilegu tjóni auk
þess sem hagstæð skilyrði eru
komin upp fyrir bjöllurnar, sem
flykkjast á fallin trén og auka
kyn sitt. Áður en skógar i Noregi
voru nytjaðir, voru það þessar
bjöllur, sem sáu um að grisja
þá. Asamt storminum sáu þær
um að fella gömul tré og halda
skógunum ungum.
Nútima nýting á skógum hef-
ur leitt til aukningar á bjöllun-
um. Skógar, þar sem tré eru að
mestum hluta sams konar, eru i
meiri hættu fyrir bjöllunum
helduren blandaðir skógar. Þaö
skapar einnig hagstæð timgun-
arskilyrði fyrir bjöllurnar, að
við skógarhöggið eykst sifellt
hlutfall þeirra trjáa, sem teljast
ónothæf og eru skilin eftir á
jörðinni.
Litið þýðir að nota eiturefni I
þessari baráttu, þvi erfitt væri
að koma þeim undir börkinn,
þar sem bjöllurnar halda sig.
Þess vegna bindur fólk von sina
við, að aðferð Bakkes takist vel,
og fylgzt er með rannsóknum
hans af miklum áhuga bæði i
Noregi og öðrum löndum.
(Þýtt og endursagt J.B.)
Öryggi ®
öryggissjónarmiði”.
4. í frétt Timans s.l. sunnudag
segir: „Það lá viö stóróhöppum
I tið fyrrverandi yfirflugvirkja
okkar, en loftferðaeftirlitið og
flugmálastjóri virðast hafa
reynt að hylma yfir hans hlut,
og nú á þessi vanræksla þeirra
að veröa þeirra aðalvopn I aö-
förinni aö Vængjum”.
Loftferðaeftirlitinu er ekki
kunnugt um nema eitt atvik,
sem þessi lýsing gæti að ein-
hverju leyti átt við, en það er
óhapp sem henti Twin Otter
flugvél Vængja TF-REG á flug-
vellinum viö Holt I önundar-
firði þann 9. ágúst 1976. Það
óhapp fékk embættislega með-
ferð flugmálastjórnar, og var
skýrsla um þá rannsókn send
lögum samkvæmt þann 28.
september 1976 til samgöngu-
ráðherra, dómsmálaráöherra
og saksóknara rikisins. Niður-
stöður skýrslunnar gáfu ekki
ástæðu til þess að ætla, að
brotnar hefðu veriö réttarregl-
ur eða starfsreglur.
5. Með hliðsjón af ofangreindu
ætti að vera ljóst, aö það er ekki
óvild flugmálastjóra eöa loft-
ferðaeftirlits i garð Vængja h/f
eða fólks á landsbyggöinni,
sem hér er um að ræða, heldur
það, að öryggi flugs Vængja h/f
var stefnt i hættu strax og yfir-
flugvirki félagsins lét af störf-
um og enginn ráðinn i hans
stað. Yfirflugvirki Vængja h/f
var eini maðurinn með full
flugvirkjaréttindi á flugvélar
félagsins. Flugrekstur Vængja
h/f sem og annarra flugfélaga
stendur og fellur með viðhaldi
og skoðun loftfaranna og yfir-
flugvirki Vængja h/f, meðan
hann starfaði, naut fulls trausts
loftferðaeftirlitsins og nýtur
enn. Þaö er algjör misskilning-
ur, að hægt sé aö reka flugvél,
hvað þá flugfélag, án þess að
viðhalds- og skoðunarmál séu I
lagi. Þetta gildir jafnt þótt æpt
sé og hrópað i dagblööin, að
verið sé að gera aðför aö
ákveðnum mönnum eða þjón-
ustu við landsbyggðina. Þetta
er kannski hægt I öðrum mál-
um, en i flugi og öryggismálum
þess, sem flugmálastjóra og
starfsmönnum hans er treyst
fyrir, þýðir ekki slikur loddara-
skapur.
Iþróttir Q
Ingi Stefánsson.
Fram: Guðmundur Böövarsson.
ÍR: Kristinn Jörundsson, Jón
Jörundsson, Kolbeinn Kristins-
son, Þorsteinn Hallgrimsson.
Eins og sést, þá er gamla lands-
liðskempan og fyrrum landsliðs-
þjálfari, Einar Bollason, nú aftur
kominn i landsliðshópinn, eftir
nokkurra ára hvild frá landslið-
inu og kröfuknattleik. Þá hefur
Simon ólafsson, sem stundar
nám i Bandarikjunum, verið val-
inn i hópinn.
íþróttir
City og var hann besti maður
Bristol liðsins. i seinni hálfleik
meiddist George og Hector tók
hans stað. Hann hafði ekki verið
lengi inná er hann hafði sent
knöttinn i mark Bristol og gerði
þar með út um leikinn. Annar
sigur Derby i deildinni var stað-
reynd.
Ahorfendur á Carrow Road i
Norwich voru farnir að tinast út
og staðan var 0-0 og allir bjuggust
við marklausu jafntefli, i leik
heimaliðsins við Manchester
City. En leikmenn Manchester
voru alls ekki á þvi aö skilja eftir
annaö stigið i Norwich. Tveimur
minútum fyrir leikslok skoraði
Kidd með þrumuskalla og minútu
siðar endurtók Royle sama leik-
inn, þannig að 2-0 sigur
Manchester City varð staðreynd.
Greinilegt er, að Manchester City
ætlar að fylgja Liverpool eins og
skugginn i vetur, liðið er farið að
vinna á útivelli, nokkuð sem
ávallt hefur vantað hjá liðinu.
Birmingham vann sætan sigur
yfir Q.P.R. á St. Andrews i
Birmingham. Burns náði foryst-
unni fyrir Birmingham snemma i
leiknum, en Eastoe, sem lék
þarna sinn fyrsta heila leik fyrir
Q.P.R. jafnaði með þrumuskoti af
20 metra færi. Eastoe lék, þar
sem Dave Thomas meiddist illa i
deildarbikarleiknum við West
Ham ng verður frá keppni i
nokkra leiki. Rétt fyrir hlé
skoraði svo Trevor Francis fyrir
Birmingham og reyndist það vera
sigurmarkið. Seinni hálfleikur
var marklaus, þrátt fyrir góð
tækifæri á báða bóga. Leikmenn
beggja liða fóru illa með upplögð
tækifæri, og eins var mark-
varslan i toppklassa hjá báöum
liðum. Leikur þessi þótti mjög
hraður og skemmtilega leikinn.
Newcastle sigraði Stoke með
marki frá Paul Cannell i
seinni hálfleik og er Newcastle nú
komiö i hóp efstu liða, en Stoke
liðið hefur oft leikið betur en ein-
mitt nú.
Tottenhamhafði náð 2-0 forystu
á móti Everton i hálfleik á White
Hart Lane i London. Mörkin
gerðu Pratt og McAllister. King
minnkaði muninn fyrir Everton
snemma i seinni hálfleik en
Tottenham náði aftur tveggja
marka forystu er Keith Osgood
skoraöi úr vitaspyrnu. Þáð leit
þvi út fyrir öruggan sigur Totten-
ham, en Everton var ekki á þeim
buxunum aö gefast upp og
skoraði tvivegis á siðustu fjórum
minútunum. Fyrst skoraði
McNaught og rétt fyrir leikslok
tókst Latchford að jafna fyrir
Everton, þannig að lokatölur urðu
3-3. ó.O.