Tíminn - 10.11.1976, Page 7
Miövikudagur 10. nóvember 1976
TÍMINN
7
Um nýjar
gerðir móta
fró Svíþjóð
Gætu lækkað byggingar-
kostnaðinn verulega, ef allir
legðust ó eitt, segir Grímur
S. Runólfsson, framkvæmda-
stjóri Byggingasamvinnu-
félags Kópavogs
F.I. Reykjavik — Lækkun
byggingakostnaðarins var
okkur efst f huga, er við völdum
þessi steypumót, og höfðumvið
þá viða leitað fanga á Norður-
löndum og i Bretlandi. Fyrir
valinu urðu sænskar geröir
móta, sem ekki höfðu áður verið
notaðar á höfuðborgarsvæöinu,
sagði Grlmur S. Runólfsson,
framkvæmdastjóri Bygginga-
samvinnufélags Kópavogs í
samtali við Timann, en
Byggingasamvinnuféiagið tók I
vor upp nýjar gerðir móta frá
Sviþjóð við smiði fjölbýiishúsa I
Kópavogi. Þvkir tilkoma
þessara móta skapa mikla
vinnuhagræðingu, og er þá
einkum átt við meiri hraða í
uppbyggingu og efnissparnað.
Að sögn Grims eru mótin
byggð upp á einingastærðum,
sem fara allt upp i 4,20 metra á
lengd. Grindin i veggja-
mótunum er stálgrind, klædd
með krossviði, og er flekunum
læst saman með klofajárni.
Tengingin i mótinu er efst og
neöst, en efri tengingin verður
fyrirofan steypuskil, og eru þvi
aðeins göt i veggnum neðst.
Hvað loftaundirslættinum
viðvikur, þá er hann byggður
upp á járngrind með kross-
viðarklæðningu. Þessa járn-
grínd má siðan tjakka upp og
niður eftir hæð.
Þegar flekarnir hafa gert sitt
gagn og steypan er orðin hörð,
eruþeir fjarlægðir i heilu lagi og
færðir á næsta stað, en krani út-
búinn sérstökum gálga annast
flutningana.
Til samanburðar má geta
þess, að með hefðbundnu
aðferðinni rifa menn móta-
timbrið niður svo til jafnskjótt
og þeir slá þvi upp. Gamli
timburundirslátturinn er að þvi
leyti eilif hringrás uppsláttar og
niðurrifs.
Það er sorgleg staðreynd, hélt
Grimur áfram, að viö Isíend-
ingar höfum verið að byggja úr
steini i þrjá aldarfjórðunga án
þess að hagnúta okkur að
nokkru marki nýjungar i
byggingaiðnaðinum. Menn
virðast hræddir við framfarir á
þessu sviði og imynda sér, að
þeirmissispón úrsinum aski, ef
örlar á breytingum. En sann-
leikurinn er sá, að þeir iðnaðar-
menn, arkitektar og verk-
fræðingar, sem kynnast nýjum
starfsaðferðum i reynd, kunna
að meta þær, enda er andstaða i
þessu sambandi yfirleitt á mis-
skilningi byggð.
Við hjá Byggingasamvinnu-
félagi Kópavogs hófum notkun
sænsku mótanna i vor við smiði
sjö hæða háhýsis að Engihjalla 1
i Kópavogi, en þar voru fyrir
grunnurinn og hluti af kjallara.
í húsinu eru 42 ibúðir, og hug-
myndin er að skila þeim fullfrá-
gengnum á næsta ári.
Sú áætlun ætti að standast,
enda spörum við nú bæði tima
og efni. Veggurinn kemur nú
fullbúinn raflögnum og
slökkvaradósum og er þar að
auki einangraður. Aferð veggj-
anna er f alleg og þurfa þeir ekki
aðra meðhöndlun en holu-
fyllingu og sandspörtslun.
Aðeins útveggir eru sléttaðir.
Áður skiluðum við húsunum
tilbúnum undir tréverk og
málningu, en sameiginlegur
frágangur var á vegum félags-
ins. Af fimm háhýsum, sem
okkur var upphaflega úthlutað,
verða þá þrú fullunnin strax, en
tveimur byggingaflokkum frá
’73 og ’74 verður skilað tilbúnum
undir tréverk og málningu. I
siðari flokknum eru fjölbýlis-
húsin við Kjarrhólma og Furu-
grund.
Aætlað verð á tveggja her-
bergja ibúð við Engihjalla er
tæpar 5 milljónir króna.
Þriggja herbergja ibúðirnar
kosta frá rúmum 6 og upp i
tæpar sjö milljónir og fjögurra
herbergja ibúðir verða á um 7,4
milljónir króna. Þetta verð
áætluðum við auðvitaö út frá
hefðbundnum byggingamáta,
en gerðum ráð fyrir, að það sem
áynnist með nýrri tækni, kæmi
til með að vega upp á móti
væntanlegum hækkunum i
byggingakostnaði.
En ég tek fram, að til þess að
mótin skili fullum arði, verður
að semja við ákveðna aðila.
Nýbreytnin krefst nýrra taxta
til dæmis. Þeir eru þvi miöur
ekki til enn, og uppmælinga-
taxtar eru reiknaðir út frá allt
öðrum forsendum. Þrátt fyrir
þetta hafa forkólfar iðnaðar-
mannastéttanna haldið þvi
fram i f jölmiðlum, að þeir væru
ekki hindrun á vegi fullkomnari
tækni. Eitthvað eru þeir seinir á
sér, er á reynir.
Stjórnvöld taka heldur ekkert
tiliit til breyttra aðstæðna i
byggingariðnaði og leika þar
ó s k e m m t i 1 e g a n leik.
Innflutningur á byggingakrana
og mótum er ekki aðeins mjög
hátt tollaður, heldur er meira að
segja á honum vörugjald, sem
ekki þekkist t.d. i bilainn-
flutningi.
6g legg áherzlu á, aö óþarft er
að hleypa upp verði ibúðarhús-
næðis eins og gert hefur verið.
Augu ráðamanna opnast að
sjálfsögðu einn daginn fyrir
þessari staðreynd, þvi fyrr þvi
betra.
Hey til sölu
Af sérstökum ástæðum, eru til sölu 1100
baggar af góðu heyi.
Upplýsingar i Grænuhlið, Eyjafirði, simi
um Saurbæ.
OC ALFA-LAVAL
Bændur — Athugið
Eigum fyrirliggjandi til afgreiðslu nú þegar örfá
ALFA-LAVAL RÖRMJALTAKERFI
með öllum bezta fáanlega útbúnaði.
Viljum benda á, að 50% stofnlán fæst út á mjaltakerfi.
Gerið góð kaup og hafið samband við okkur nú þegar.
Næsta sending kemur ekki fyrr en eftir áramót og munu
þau kerfi verða dýrari vegna hækkunar erlendis.
Hafið þvi samband straxl
$ Samband islenzkra samvmnufelaga VÉLADEILD
Armula 3 Reykjavik simi 38900