Fréttablaðið - 12.01.2006, Side 6
6 12. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
KJÖRKASSINN
Telur þú að Úrvalsvísitalan haldi
áfram að hækka á þessu ári?
Já 93%
Nei 7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefurðu áhyggjur af því að
fuglaflensan berist hingað til
lands?
Segðu þitt álit á vísir.is
ÍRAN, AP Það er sama til hvaða
þvingunaraðgerða eða annarra
ráðstafana Vesturveldin kunna að
grípa til, það mun ekki hafa nokk-
ur áhrif á kjarnorkuáætlun Írana.
Þetta sagði Hashemi Rafsanjani,
fyrrverandi forseti Írans, sem enn
er einn æðsti ráðamaður landsins.
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Þýskalands – hóp-
urinn sem í nafni Evrópusam-
bandsins hefur síðastliðin tvö ár
reynt að eiga milligöngu um lausn
á deilunni um kjarnorkuáætlun
Írana – munu hittast í Berlín í dag
til að ráða ráðum sínum um við-
brögð við þeirri ákvörðun Írana
að hefja aftur vinnu við áætlun-
ina. Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, gaf til kynna í Lundún-
um að bresk stjórnvöld myndu ýta
á um að Alþjóða kjarnorkumála-
stofnunin (IAEA) vísaði málinu til
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Það getur ákveðið refsiaðgerðir.
„Ég tel að það fyrsta sem gera
beri sé að tryggja samkomulag um
að vísa málinu til öryggisráðsins,“
sagði Blair. „Við útilokum aug-
ljóslega engar ráðstafanir,“ sagði
Blair um hugsanlegar þvingunar-
aðgerðir.
Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagðist hafa rætt
málið við bandaríska starfssystur
sína, Condoleezzu Rice, og þau
deildu „djúpstæðum vonbrigðum“
yfir ákvörðun Írana. Rússar hafa
lagt Írönum til ýmsan búnað og
aðstoð við uppbyggingu kjarnork-
uáætlunar þeirra.
Til hafði staðið að miðlunarvið-
ræður Evrópusambands-þríeyk-
isins Breta, Frakka og Þjóðverja
héldu áfram í Teheran þann 18.
þessa mánaðar. Háttsettur full-
trúi í þýska utanríkisráðuneytinu
sagði í gær að ESB-teymið gæti
ekki haldið áfram viðræðum við
Írana um kjarnorkuáætlunina
nema þeir hétu því með trúverð-
ugum hætti að auðga ekki úran.
Auðgað úran er hægt að nota í
kjarnorkuvopn.
Sérfræðingar IAEA segja að
í þeim búnaði sem starfsmenn
kjarnorkuáætlunar Írana rufu
innsiglið á í fyrradag sé hægt að
auðga úran.
Íranar halda því staðfastlega
fram að öll kjarnorkuáætlun-
in hafi það eitt að markmiði að
framleiða rafmagn, en ráðamenn
í Washington og víðar á Vestur-
löndum grunar að klerkastjórnin í
Teheran stefni að því að koma sér
upp kjarnorkuvopnum.
audunn@frettabladid.is
Á BÆN Hashimi Rafsanjani, fyrrverandi forseti Írans og einn æðsti klerkurinn í klerkastjórn-
inni, leiðir bænir námsmanna við Teheran-háskóla við upphaf Eid-al-Adha-hátíðar múslima
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Segir þvinganir ekki
munu hagga áætlun
Rafsanjani, fyrrverandi Íransforseti, segir Írana munu halda kjarnorkuáætlun
sinni til streitu, burtséð frá því til hvaða þvingunaraðgerða Vesturveldin kunna
að grípa gegn henni. Líkur aukast á því að málið komi til kasta öryggisráðs SÞ.
STJÓRNMÁL „Afstaða stjórnar-
andstöðunnar kemur mér mjög
spánskt fyrir sjónir, því það er ekki
verið að biðja hana um að tilnefna í
enn eina fjölmiðlanefndina,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráherra.
Formenn þingflokka stjórnar-
andstöðunnar tilkynntu mennta-
málaráðherra í gær að ekki yrðu
tilnefndir fulltrúar í nýja fjöl-
miðlanefnd að beiðni mennta-
málaráðherra nema málefni Rík-
isútvarpsins yrðu þar einnig til
meðferðar.
„Umfjöllun um Ríkisútvarpið
fer ekki að öllu leyti saman við
smíði frumvarps um fjölmiðla
því í sérstöku frumvarpi er fjallað
um rekstrarform þess. Auk þess
er komið til móts við sjónarmið
stjórnarandstöðunar í því frum-
varpi, að það verði áfram í eigu
ríkisins og styrki innlenda dag-
skrárgerð. En almenn löggjöf um
fjölmiðla mun að sjálfsögðu taka
til Ríkisútvarpsins.“
Þorgerður kveðst fagna því
engu að síður að stjórnarandstað-
an sé reiðubúin til þess að koma að
smíði frumvarps ásamt þeim lög-
fræðingum sem hún hafi valið til
starfans og muni líkast til starfa í
sérstakri nefnd.
„Aðalatriðið er að stjórnarand-
staðan var beðin um að koma að
því að semja frumvarp og þar eru
enn álitamál uppi,“ segir mennta-
málaráðherra. - jh
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
MENNTAMÁLARÁÐHERRA Höfum þegar
komið til móts við stjórnarandstöðuna um
Ríkisútvarpið.
Menntamálaráðherra um afstöðu stjórnarandstöðunnar til fjölmiðlanefndar:
Tregðan veldur vonbrigðum
GJALDÞROT Lítið fæst upp í þær
kröfur sem gerðar hafa verið
í þrotabú Slippstöðvarinnar á
Akureyri.
Alls áttu um 300 aðilar kröfu
í búið en einungis 20 höfðu fyrir
því að láta sjá sig á skiptafundi
sem haldinn var í gær. Lang-
stærsti kröfuhafinn er þýska stór-
fyrirtækið DSD og hljóðar krafa
félagsins upp á rúmar 625 millj-
ónir króna en Slippstöðin var und-
irverktaki fyrirtækisins við stórt
verkefni í Kárahnjúkavirkjun. - kk
Slippstöðin á Akureyri:
Fáar eignir
upp í kröfur
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknastofn-
un ætlar að meta á fundi sínum í
morgunsárið í dag hvort leitarskip-
ið Árni Friðriksson RE verði sent
á miðin norður og norðaustur af
Langanesi. Þar hafa nokkur skip
verið við loðnuveiðar í næstum tvo
sólarhringa.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri á nytjastofnasviði Haf-
rannsóknastofnunar, áréttar að
enn ríki algjör óvissa um ástand
loðnustofnsins. „Það voru þarna
fimm skip við veiðar og það er
eitthvað nýtt sem ekki mældist
um daginn, en í augnablikinu er
ekkert hægt að meta hvort það
er mikið eða lítið,“ segir hann og
bætir við að stofnunin fylgist með
þróun mála.
Friðrik Jón Arngrímsson,
framkvæmdastjóri Landsambands
íslenskra útvegsmanna, tekur í
sama streng og Þorsteinn, en kvað
þó ástandið hafa gjörbreyst á þessu
svæði þar sem loðnan hefur verið
að veiðast. „Það er miklu meira líf
og hvalur þarna núna. Þetta er á
svæði sem við fórum yfir um dag-
inn og sáum þá ekki neitt,“ segir
hann en kveður enn of snemmt að
segja til um hvort loðnan sé þarna
komin. „Þessi skip sem eru þarna
taka ekki mjög mikið magn, held-
ur bara eins og þau þurfa til að
frysta, en þau verða þarna nokkur
áfram á miðunum og svo fer rann-
sóknaskipið líka af stað, hvenær
sem það verður.“ Friðrik sagði því
enga ástæðu til að vera með nein-
ar dómsdagsspár að sinni. „Það
er allavega eitthvert líf kviknað
þarna núna.“
Þá segir hann mjög mikilvægt
að menn átti sig á að jafnvel þótt
einn árgangur loðnunnar misfær-
ist, þá þyrfti það ekki að þýða að
stofninn væri hruninn. „Þetta er
allt öðru vísi en aðrir stofnar sem
við erum að nytja vegna þess hve
þetta er skammlífur fiskur. Það er
einn árgangur sem ber uppi veiðina
hverju sinni.“ Hann segir fordæmi
fyrir því að árgangar misfarist, en
áréttar um leið að LÍÚ hafi hvatt
Hafrannsóknastofnun til að verja
mun meiri fjármunum í rannsóknir
á göngum loðnunnar og hrygningu.
„Það er alveg ljóst að hún hefur
haldið sig á öðrum svæðum.“ - óká
LOÐNUVINNSLA Í TOGARA Framkvæmdastjóri LÍÚ furðar sig á umræðum um mögulegt
hrun loðnustofnsins því fordæmi séu fyrir að árgangar misfarist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nokkur skip hafa veitt loðnu norður og norðaustur út af Langanesi en ekki er vitað hversu mikið er af henni:
Ákvörðun um leit tekin í byrjun dags
Fimmtán umsóknir Alls sóttu
fimmtán manns um starf framkvæmda-
stjóra Háskólaskrifstofu Háskólans á Ak-
ureyri sem auglýst var laust til umsóknar
í síðasta mánuði.
UMSÓKNIR
FASTEIGNAVIÐSKIPTI Fasteignin
Austurstræti 12a og 14 í Reykja-
vík og fyrirtækin í húsinu, Kaffi
Reykjavík og tóbaksverslunin
London, skiptu um eigendur í
desember þegar Austurstræti 14
ehf., félag í eigu dánarbús Ketils
Axelssonar, seldi Höllum hf., sem
eru í eigu feðganna Franz og Grét-
ars I. Berndsen, framkvæmda-
stjóra Óðals, eignina.
Í húsinu er margþættur rekst-
ur, Kaffi París, tóbaksverslunin
London, nektarklúbburinn Óðal og
skrifstofur alþingismanna. Grét-
ar segir að reksturinn verði að
mestu leyti óbreyttur. Fasteignin
er rúmlega 2.200 fermetrar að
stærð á fimm hæðum. Kaupverðið
er trúnaðarmál. - ghs
Austurstræti 12a og 14 selt:
Sami rekstur í
húsinu og áður
AUSTURSTRÆTI 12A-14 Dánarbú Ketils
Axelssonar hefur selt húsið sem hefur
verið í eigu fjölskyldunnar frá 1936.
PARÍS, AP Frönsk 38 ára kona
sem á var grætt nýtt nef, haka
og munnur í nóvember fer nú út
á meðal manna án þess að vekja
athygli, að sögn skurðlæknis
hennar. Konan, sem er tveggja
barna móðir, örkumlaðist í fram-
an þegar labradorhundur hennar
réðist á hana í fyrra.
Þetta er í fyrsta sinn sem and-
lit líffæragjafa er grætt á mann-
eskju. - smk
Konan sem fékk nýtt andlit:
Fær nokkuð
eðlilegt útlit
NÝTT ANDLIT Tölvumynd af þeim hluta
andlitsins sem græddur var á konuna.
Tvö ný skip Slysavarnafélagið Lands-
björg sjósetti tvö ný björgunarskip í gær
sem koma í stað eldri skipa á Vopnafirði
og Siglufirði. Er því búið að endurnýja
ellefu af fjórtán björgunarskipum félags-
ins um landið.
BJÖRGUNARSKIP
DÓMSMÁL Þingfest var í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær kæra
á hendur Ásgeiri Davíðssyni, sem
rekur nektarstaðinn Goldfinger í
Kópavogi, og tveimur dansmeyjum,
35 og 33 ára gömlum.
Konurnar eru ákærðar fyrir
að hafa að kvöldi 7. október sýnt
nektardans viðskiptavini í lok-
uðu rými, svokallaðan einka-
dans. Ásgeir er svo kærður fyrir
að hafa sem fyrirsvarsmaður
og rekstraraðili staðarins staðið
fyrir sýningunni.
Brotið er í ákæru sagt vera
gegn lögreglusamþykkt Kópa-
vogsbæjar. Ásgeir vísar ákærunni
hins vegar á bug. „Þetta er ekkert
sem veldur mér áhyggjum,“ segir
hann og bendir á að ekki sé hægt
að líta á staðinn þar sem dansinn
fór fram sem lokað rými. „Það
væri þá eitthvað nýtt ef nægir að
draga fyrir tjald til að úr verði
lokað rými.“ - óká
Kært vegna Goldfinger:
Brutu reglur
um nektardans
ÁSGEIR DAVÍÐSSON Ásgeir, sem stundum
er kallaður Geiri á Goldfinger, hafnar ákær-
um sýslumannsins í Kópavogi.
LÖGREGLA Tvær konur og einn karl
voru flutt á slysadeild eftir harðan
árekstur lítils jeppa og fólksbíls á
Snæfellsnesvegi síðdegis í gær.
Að sögn lögreglu í Borgar-
nesi fór annar bíllinn yfir á
rangan vegarhelming þannig að
þeir lentu framan á hvor öðrum.
Hálka var á snæfellsnesi og snjór
yfir öllu.
Konurnar voru á ferð í jeppan-
um og voru þær fluttar á slysadeild
Landspítalans í Reykjavík, en
maðurinn var fluttur á Sjúkrahús-
ið á Akranesi til skoðunar. Draga
þurfti bílana af vettvangi. Fólkið
kenndi til eymsla í hálsi, að sögn
lögreglu. - óká
Bílslys á Snæfellsnesi:
Þrír slasaðir
eftir árekstur