Tíminn - 25.02.1977, Side 10
10
Föstudagur 25. febrúar 1977
Halldór Kristjdnsson:
Um samvinnustefnu
og fleira
Vilmundur Gylfason leitar
álits mins sérstaklega I siöustu
föstudagsgrein sinni. Þaö er
einkum i sambandi viö sölu
varnarliöseigna en þó talar
hann um samvinnuhreyfinguna
i sömu andrá aö kalla. Mér er
ljúft aö segja Vilmundi og
öörum álit mitt og mætti hann
oftar bera hugmyndir sinar og
skoðanir undir eldri og reyndari
menn.
Sala varnarliðseigna
Vilmundur spy r hvort ég haldi
aö fátækir bændur fái nú tæki
frá varnarliðinu fyrir litiö verö.
Ég held aö hlut bænda i þjóö-
félaginu veröi aö rétta meö öör-
um hætti en þeim aö selja þeim
hitt og þetta undir eölilegu
markaösveröi. Þaö held ég gildi
um alla jöfnun lifskjara.
Ég tel eölilegt aö sölu varnar-
liðseigna veröi hagaö líkt og ég
hygg aö veriö hafi. Þar hefur oft
verið lýst eftir tilboöum i bila og
tæki. Þau eru svo seld þeim sem
bezt býður. Hagnaöurinn af
þessum viöskiptum rennur svo i
hinn sameiginlega sjóö okkar
allra, rikissjóöinn. Ég kem ekki
auga á betri og réttlátari leiö.
Vilmundur spyr ekki sérstak-
lega um álit mitt á ráöstöfun
embættis forstjórans en þó er
þessi umræöa hans öll út frá þvi.
Ég sé aö i hópi umsækjenda eru
nokkrir menn sem ég heföi
treyst vel til starfsins en ég er
ekki svo kunnugur aö ég viti
hvort þeim er betur treystandi
en Alfreð Þorsteinssyni. Ég veit
ekki neitt þaö um Alfreö sem
mér sýnast likur fyrir þvi aö
hann dugi ekki til þessa starfs,
vanræki þaö eöa misnoti aö-
stööu sina.
Vilmundur og grafar-
svefninn
Ekki veit ég gjörla um hug-
myndir Vilmundar um framtiö
hinna látnu en mér skilst þó aö
hann telji eölilegast aö þeir sofi i
gröfum slnum Nú hefur hann
áhyggjur af þvi að frumherjum
islenzkrar samvinnuhreyfingar
sé ekki vær grafarsvefninn, ef
ég skil hann rétt þegar hann
segir aö þeim sé ómókt i gröf-
inni. Þýöir þaö ekki aö þeim sé
erfitt aö móka?
Hverjar eru týndu hug-
sjónirnar?
Ég set þessi orö Vilmundar i
sambandi viö þráláta klifun á
þvi að samvinnuhreyfingin sé
komin langt frá upphafi sinu,
búin að glata hugsjónum upp-
hafsmanna sinna, orðin fyrir-
tæki, jafnvel auöhringur.
Við köllum ekki hring nema
endar nái saman og lokaö sé.
Eitt af þvi sem einkennir sam-
vinnufélög er aö þau eru öllum
opin. Þau geta þvi ekki oröiö
lokaöur hringur.
Nú spyr ég: Hverjar voru
þessar upphaflegu hugsjónir
sem nú eru týndar?
Hugsjón Jakobs Hálf-
danarsonar
A stofnfundi Kaupfélags
Þingeyinga sagöi Jakob Hálf-
danarson aö til þess aö geta
starfaö þyrfti kaupfélagiö aö
eignast hús i kaupstaðnum,
Húsavlk. Þetta var hugsjón
hans. Mér sýnist að samkvæmt
hinni sömu hugsjón hafi
kaupfélagshúsin veriöbyggð viö
hverja höfn.
Afurðasala Eyjólfs Kon-
ráðs.
Eyjólfur Konráö heldur aö
þaö sé ekki gott aö fé bænda sé
lagt I fjárfestingu I Reykjavík.
Þará hann sjálfsagt viö Afuröa-
sölu SIS og verzlanir Slátur-
félags Suöurlands. Skyldi nú
samt ekki geta veriö aö stjórn-
endur Sláturfélagsins eins og
Agúst I Birtingaholti og Pétur
Ottesen hafi hugsað þessi mál
eins mikiö og eins vel og Eyjólf-
ur. Hann ætti aö vita þaö aö af-
urðasalan veröur ekki rekin
sem torgsala eöa á þann hátt aö
gengiö sé meö vörurnar I húsin
beint af blóðvellinum. Heldur
hann kannski aö blessaöir kaup-
mennirnir geti annazt þetta
húsalaust eöa án þess aö sá
kostnaöur snerti vöruna?
Fámennisstjórn.
Þaö er talaö um fámennis-
stjórn. Hvar þekkist þaö
stjórnarform aö æösta vald sé
ekki I fárra manna höndum?
Þar viröist mér koma i einn staö
hvort talaö er um ríkisvald,
stéttasamtök eöa alþjóölegar
hreyfingar. Eiga ekki
kaupm ann asam töki n sitt
verzlunarráð? Hvernig vilja
þessir ákærendur láta stjórna
samvinnuhreyfingunni?
Einokunin
Hvaö svo um einokun? Þurf-
um viö alltaf aö láta marga
aöila fást viö þaö sem einn getur
gert?
Sláturhús eru dýr ef þau full-
nægja þeim kröfum sem geröar
eru. Er þaö einokun ef ekki eru
alls staöar tvö sláturhús þar
sem á annaö borö er slátraö? Er
um einokun aö ræöa þar
sem sláturhúsið er eign þeirra
sem þurfa aö nota það og þeir
geta allir oröiö meöeigendur?
Sé svo má spyrja hver trygging
sé fyrir þvl aö ekki þurfi þriöja
húsiö? Og fjórða?
Þarf þá ekki hver aö slátra
hjá sér svo aö enginn sé okaður?
Innantómur öfundar-
söngur.
Kaupfélögunum var aldrei
ætlaö annaö en aö reka verzlun
og þjónustu fyrir almenning svo
aö fólk nyti sannviröis. Þetta er
gert ennþá. Hvaöa hugsjónir
eru þá týndar?
Hvenær hafa kaupmenn
viöurkennt samvinnuhreyfing-
una? Alla tlð frá þvi SIS var
stofnaö hafa þeir mænt bólgnum
öfundaraugum á öll þau
viöskipti sem þaö náöi. Björn
Kristjánsson skrifaöi
Verzlunarólagið og þaö var sent
aö gjöf um allar sveitir til að
frelsa menn frá þeirri ógæfu aö
trúa kaupfélögunum fyrir
nokkru. 1 kreppunni eftir 1930
tóku kommúnistar undir viö
kaupmannablööin og svlvirtu
kaupfélögin vegna þess aö þau
kunnu fótum sinum forráö og
lánuöu meö gætni.
Jakob Hálfdánarson og
deildarstjórar hans gættu þess
að félagsmenn stæöu I skilum.
Hallgrimur Kristinsson lagöi
áherzlu á þaö 1920 aö kaupfélög
og kaupfélagsmenn keyptu ekki
nema þaö sem nauösynlegt
væri.
Siguröur Kristinsson og
félagar hans lögöu kapp á þaö I
kreppunni eftir 1930 aö verjast
skuldum. Ég er ekki viss um aö
þeir sem nú eiga aö stjórna
sambandinu séu þaö sterkari
stjórnendur aö ástæöa sé til aö
tala um forstjóravald nú fremur
en þá.
Þaö er ekkert nýtt I þessum
ádeilum sem nú er uppi. Þaö er
ekkert frumlegt i þessu hjá Vil-
mundi nema ef vera skyldi
mókiö i gröfinni.
Riddarinn á Bakkanum
Auövitaö hefur starf sam-
vinnufélaganna gengiö misjafn-
lega. Sjálfsagt hafa þar orðiö
mistök. Annaö væri ekki mann-
legt. En hvar hafa engin mistök
oröiö? Telja kaupmenn stétt
sina flekklausa og fullkomna?
Sjónvarpiö sýndi okkur ridd-
ara austur á Eyrarbakka um
daginn. Hann sagöi aö kaup-
félagiö flytti aröinn burtu en
kaupmenn skildu hann eftir á
staönum. Þetta er hiö hróp-
legasta öfugmæli. Aö vlsu er
kaupfélagið á Eyrarbakka útibú
Kaupfélags Arnesinga sem hef-
ur heimili á Selfossi. En hvaö
sér nú eftir frá hinum fornu
kaupmannaverzlunum á Bakk-
anum? I hverju liggur nú þeirra
auðsöfnun þar á staönum?
Annaö sagöi riddarinn. Hann
sagöi aö kaupfélögin væru
skattfrjáls svo aö hann yröi aö
borga skatt fyrir þau. 1 hverju
liggur þetta skattfrelsi? Lög-
fræðingur var að tala um þaö I
Morgunblaöinu nýlega.
Vill þetta riddaraliö aö sam-
vinnufélögin borgi skatt af þvi
sem þau leggja 1 stofnsjóö
félagsmanna? Þaö er persónu-
leg eign félagsmannsins, þó aö
hún sé bundin ákveöinn tíma I
vörzlu félagsins. Ég tel fram
eign mina I stofnsjóöi og þaö
sem I hann er lagt árlega er
hluti af tekjum mlnum sem taliö
er fram og skattur greiddur af.
Jafnframt er gerö grein fyrir
þeim vöxtum sem félagiö
greiöir mér af stofnsjóösinn-
stæöunni. Er þaö réttlætishug-
sjón þessa fólks aö t.d. mjólkur-
samlag greiöi sjálft tekjuskatt
af þvi sem þaö greiöir I stofn-
sjóö félagsmanna og þeim vöxt-
um sem þaö greiöir af stofn-
sjóösinnstæöu þeirra?
Hvaö meina menn meö þessu
tali um skattfrelsiö?
Við ráðum af líkum
Lifið er margbreytilegt og
ástæöur og viöhorf eru alltaf
önnur en þau voru fyrir áratug-
um. Þvi er illa hægt aö vita
örugglega hvaö fyrri tima menn
legöu til mála hverju sinni ef
þeir væru enn á foldu. Þaö
veröum viö aö ráöa af likum
eftir þvi sem viö höfum vitið til.
Og þvi enda ég þetta meö þvi aö
leggja umhugsunarefni fyrir
Vilmund Gylfason, Svavar
Gestsson, Eyjólf Konráð og
aöra þá sem tala um aö sam-
vinnuhreyfingin fari afvega:
Hvaö er þaö I samvinnustarf-
inu nú sem ætla má aö menn
eins og Jakob Hálfdanarson,
Benedikt á Auðnum og Hall-
grimur Kristinsson hefðu ekki
getaö fellt sig viö?
Herblástur kaupmanna-
blaða
Kaupmannablööin þeyta nú
herlúöra og boöa þaö aö stööva
veröi vöxt samvinnuhreyfingar-
innar. Hvaða háski skyldi vera i
þvi aö Kron ætti meiri hlut I
smásöluverzluninni I Rvik ef
fólkiö vill þaö? Hverjar ráö-
stafanir á aö gera til aö hindra
slikt? Og hvernig samrýmist
það hugmyndum um lýöræði?
Skyldu ekki hugmyndir
sumra þessara ádeilumanna
vera nokkuö lausar I reipunum,
þegar aö þvi kemur hvernig eigi
ab skipa verzlunarmálum?
En úr þvi kaupmannablöðin,
Morgunblaöið og Vlsir, boöa
striö gegn samvinnuhreyfing-
unni nú á afmælisdegi SIS þá er
auðvitað eölilegt aö samvinnu-
menn finni hvaö aö þeim snýr og
dragi rökréttar ályktanir af þvl
hverjir eru meö þeim og hverjir
móti.
Vilji stjórnmálaflokkar eiga
Itök I samvinnuhreyfingunni
ættu þeir ekki aö reka hernaö
gegn henni.
Deyfðin og drunginn
Þaö er satt aö samvinnu-
hreyfingin hefur eins og fleiri
fundiö fyrir félagslegri deyfö al-
mennings miöaö við þaö sem
vera ætti. Þetta á þó t.d. engu
siður við um verkalýðshreyfing-
una. En þaö er ekki hægt aö
saka stefnuna um slikt. Þaö er
ekki stefnunni aö kenna þó aö
áhugi og almenn þátttaka I
félagsstarfi sé ekki svo sem
skyldi. En skyldu þab alltaf
vera virkustu og starfsömustu
liösmenn samvinnuhreyfing-
arinnar sem mest tala um for-
stjóravaldiö?
H.Kr .
UM MÁLVERK OG FLEIRA
Hálflærðir og hálærðir
1 seinasta þætti var greint frá
Eyvindi Erlendssyni, leikhús-
stjóra á Akureyri og þar sagt aö
hann væri maöur hálflærður, en
þar átti auövitaö aö standa há-
læröur, því Eyvindur hefur
stundaö langt nám I leiklist,
bæöi viö Þjóðleikhúsiö hér og
slöan I Rússlandi. Er Eyvindur
og lesendur beönir velviröingar
á þessari prentvillu, en þaö
veröur aö segjast eins og er, aö
prentvillupúkinn hefur alveg
sérstaka unun af þvi ab brengla
greinar um listir og menningar-
mál, og gengur hann þá til
verka af nær djöfullegri ill-
kvittni. Vona ég bara aö þetta
komist til skila án þess aö fleiri
bíöi tjón af, en orbið er.
Einar Þorláksson
Nokkurt hlé hefur nú orðiö á
skrifum um myndlist hér I
blaöinu og veldur þvl margt,
einkum þó annir og frátafir
vegna annarra verkefna. Merk-
ar sýningar hafa því fariö fram-
hjá án þess aö um þær væri
fjallað og má þar nefna sýning-
una á norrænni vefjarlist, sem
haldin var aö Kjarvalsstööum,
en þetta er einhver bezta sýning
I þessari grein sem haldin hefur
veriöhér á landi um langt skeiö,
enda sýndu þar helztu veflistar-
konur Noröurlanda.
Fleira mætti nefna t.d. nýja
sýningu I Asgrlmssafni og
sýningu á gjöf Markúsar Ivars-
sonar, en um þær sýningar
veröur ef til vill fjallaö hér I
blaöinu slöar.
Eyvindur Erlendsson, leikhús-
stjóri.
Um slöustu helgi opnaöi Einar
Þorláksson sýningu á um 30
pastelmyndum I Gallerl Sólon
Islandus viö Abalstræti I
Reykjavlk.
Einar er myndlistarvinum aö
góöu kunnur og hefur sýnt tals
vert aö undanförnu. Má þar til
nefna ýmsar samsýningar, svo
og sýningu hans I Norræna hús-
inu fyrir einu ári eöa tveim.
Þótt Einar sé einkum kunnur
fyrir ollumyndir sínar, þá hefur
hann í seinni tlö oft sýnt pastel-
myndir, en hann hefur náö all-
góöri tækni 1 meöferö þessara
lita, og viröist I ágætri framför.
Vinnulag hans er hnitmiöaö en
þó frjálst. Þaö vekur sérstaka
athygli okkar hve lagiö honum
er aö sýna „vlðáttur” I mynd
fletinum, jafnvel I hinum
Einar Þorláksson Ustmálarl.
minnstu myndun og I dimm-
brúnum og dökkum myndum er
oft sérstæö stemmning og
kyrrö.
Sérstaka athygli vekur svo
myndasaga fyrir endavegg þeg-
ar gengiö er inn, þar sem nokkr-
ar myndir mynda eina heild. Ég
held hann nefni þær Ramma-
slag.
Þessar myndir eru f sérkenni-
legum bláum og ljósum lit.
Eins og flestum mun kunnugt
þá hefur Einar Þorláksson eink-
um tjáö sig i ollumálverki fram
til þessa, þótt hann hafi sýnt
þessa aukabúgrein sina á sýn
ingum meö ollumálverkum.
Sýningin I Gallerl Sólon Is-
landus gefur þaö ljóslega til
kynna aö málarar okkar hafa
ekki til þessa haft tækifæri sem
skyldi til þess aö halda litlar
sýningar I góöu og hentugu um-
hverfi eins og I Sólon Islandus,
þar sem skilyröi eru hin
ákjósanlegustu fyrir minni
myndir.
Verður þetta mönnum von-
andi til eftirbreytni.
Jónas Guömundsson
fólk í listum