Tíminn - 26.05.1977, Síða 11

Tíminn - 26.05.1977, Síða 11
g-'iiii i i ;n Fimmtudagur 26. mai 1977. tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Auglýs- ingastjóri: Steingrfmur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur I Aðalstræti 7, sími 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 70.00. Askriftar- gjald kr. 1.300.00 á mánuði. Blaðaprenth.f. Ingimundur og Þórir og útlenda kexið Veturinn og vorið hafa verið sólrikari i Reykjavik að þessu sinni en um langt skeið. Flest- ir hafa notið þess að vonum, en þó ekki allir. Höfuðeigendum Visis, Ingimundi Sigfússyni og Þóri Jónssyni, hefur slæmur skýjaflóki oft byrgt sólarsýn. Bótin er þó sú, að þessi skýjaflóki er af mannavöldum og þvi er að beita húsbóndavaldinu yfir Visi og láta hann berjast rösklega fyrir þvi, að þessum ófögnuði verði bægt burtu. Visir hefur heldur ekki látið á sér standa i þeim efnum. Ingi- mundur og Þórir þurfa ekki að kvarta undan viðbrögðum húskarla sinna. Hvað er það svo, sem hefur lagzt svona illilega á þá Ingimund og Þóri, að þeir hafa slæma sólar- sýn? Visir fer ekki dult með ástæðuna. Viðskipta- ráðherra hefur sett hömlur á innflutning á kexi i þvi skyni að draga úr gjaldeyriseyðslu. Hömlurn- ar eru þó ekki strangari en svo, að hægt er að finna i flestum matvörubúðum i Reykjavik einar 10-12 tegundir af útlendu kexi. En það finnst þeim Ingi- mundi og Þóri ekki nóg. Framboðið á útlenda kexinu á að vera miklu fjölbreyttara. Það eiga a.m.k. að vera 80-100 tegundir af útlendu kexi i hverri matvörubúð. Mörgum sinnum fleiri búðar- hillur þurfa að vera hlaðnar útlendu kexi i girni- l^um umbúðum. Þá yrði vel séð fyrir mataræði þjóðarinnar. En skýjaflókinn, sem hefur skyggt á sólina hjá þeim Ingimundi og Þóri er stærri en þetta. Sam- band islenzkra samvinnufélaga er að reisa kex- verksmiðju, sem brátt mun taka til starfa. Hún mun færa verulega atvinnu inn i landið, ef vel gengur, og hjálpa til á þann hátt, að áfram takist að bægja atvinnuleysi frá íslandi, en það telja þær þjóðir, semhafa haft reynslu af þvi, hið mesta böl. Hún mun lika spara erlendan gjaldeyri og veitir ekki af að eitthvað sé reynt til að draga úr viðskiptahallanum. Margir munu þvi freistast til að lita svo á, að hér sé frekar um gott fyrirtæki að ræða en hið gagnstæða. En þetta dylst alveg þeim Ingimundi og Þóri. Þeir flytja að visu inn bila, en ekki kex. Er þeir hafa rika stéttartilfinningu. Ef innflutningur á kexi minnkar, dregur það úr hagnaði heildsal- anna. Það verður að koma i veg fyrir slika óhæfu. Nú verður þvi að beita Visi vel. 1 versta tilfelli verður að gripa til þess að láta Visi hrópa: Borðið útlent kex! Styðjið útlendan iðnað! Það er ekki ónýtt fyrir heildsalana að eiga málgagn til þess að boða slika þjóðþrifastefnu. Er það til fyrirmyndar? Það er vafalaust rétt, að mikill munur er á kaup- töxtum hér og i Danmörku. Það er eðlilegt, þvi að þjóðartekjur Dana eru hlutfallslega miklu meiri. Danmörk er eitt bezta landbúnaðarland i heimi og iðnaður Dana er háþróaður. Hinir háu kauptaxtar i Danmörkuhafa hins vegar dregið dilk á eftir sér. Atvinnustarfsemi hefur ekki aukizt nægilega og þvi skapazt stórfellt atvinnuleysi. Spáð er, að at- vinnuleysingjar i Danmörku verði yfir 150 þús. siðari hluta þessa árs. Er það til fyrirmyndar? Ef Islendingar halda skynsamlega á þessum málum, eigaþeir nú að hafa tvennt i huga. Annars vegar að tryggja hlut láglaunafólks. Hins vegar að forðast almenna kauphækkun, sem leiðir til at- vinnuleysis. þþ n K. Smirnof, fréttamadur APN: Maóisminn vill koma á styrjöld Hún á að tryggja heimsyfirráð Kinverja Aróðursstyrjöld Kinverja og Rússa ler enn harðnandi. Herlerö Kinverja gegn Rússum virðist hata lærzt I aukana slðan Maó téll frá. Rússar svöruðu ekki miklu i fyrstu, en hafa nú hafiö mikla gagnsókn. t eftirfar- andi grein er nokkurt dæmi um, hvernig Rússar haga þessari gagnsókn sinni. ENN einu sinni spá Kinverj- ar „óhjákvæmileika þriðju heimsstyrjaldarinnar”, „árekstri risaveldanna’,’ „ákvörðun sovézku sósfal- heimsvaldasinnanna um að leggja undir sig heiminn”, o.s.frv., o.s.frv. Andsovézka herferöin I Pek- ing veröur stöðugt heiftar- legri. Með andsovétisma aö yfirvarpi eru kínversku leiötogarnir i raun að spilla fyrir slökun spennu á alþjóða- vettvangi og stuöla að versn- andi ástandi I heiminum. Þetta er framhald á póli- tiskri linu undanfarinna ára. Núverandi formaöur kín- verska kommúnistaflokksins, Hua Kuo-feng, hefur svariö hollustueiö viö hugmyndir Maós og framkvæmdir, þrátt fyrir skaölegar afleiöingar þeirra fyrir uppbyggingu Nýja Klna, og þrátt fyrir mjög nei- kvæö áhrif þeirra á þróun heimsmála. t þessu sambandi er heldur ekki hægt aö gleyma undir- róöursstarfsemi Peking-leiö- toganna gegn framfaraöflum heimsins, gegn kommúnista- og verkamannaflokkum I öll- um heimsálfum, en hún bygg- ist á starfsemi maóistahópa og einstaklinga á Vesturlönd- um og I þriöja heiminum. Þessi starfsemi hefur óneitanlega skaöaö mjög lýö- ræöis- og byltingaröfl heims- ins, en margir framfarasinnar I Evrópu, Rómönsku Ame- riku, Afrlku, Asíu og viöar hafa flett ofan af þessari starf- semi og bent á illan tilgang hennar. Einn þeirra er Fidel Castro, sem nýlega veitti timaritinu Afrique-Asie viötal. CASTRO benti á hættulegt eöli kinversku stefnunnar. Hann sagöi að klnversku leiö- togarnir væru ekki aö fremja mistök, heldur væru þeir vilj- andi aö svlkja málstaö al- þjóöahyggjunnar meö þvl aö ganga I lið meö heimsvalda- sinnum. „1 engu alþjóöamáli eru Kinverjar á öndveröum meiöi viöheimsvaldasinna” — sagöi kúbanski leiötoginn. Hann minnti á samstööu Kín- verja viö Pinorhet I Chile og bandalag þeirra viö aftur- haldssömustu og alþýöufjand- samlegustu öflin I öörum lönd- um Rómönsku Ameriku. Einnig ræddi hann um striöiö i Angóla, þar sem Kínverjar Hua Kuo-feng heföu slegizt I liö meö UNITA og FNLA, verkfærum heims- valdastefnunnar. Stefna kinversku leiðtog- anna hefur vakiö óánægju framfarasinna I heiminum, en henni hefur veriö tekiö af ódulinni ánægju af and- stæöingum slökunarstefn- unnar og öllum afturhaldsöfl- um. Þetta veröur nánar rökstutt meö einni staöreynd sem tengd er bandarfsku leyni- þjónustunni CIA. I bréfi sem CIA sendi fyrir nokkrum árum til manna sinna i ýmsum löndum var starfsmönnum stofnunarinnar ráölagt aö veita ákveöinn stuöning maóistahópum og koma sér I samband viö þá I þvi skyni aö „hefja virkari baráttu gegn einstaklingum og samtökum sem eru andvíg stefnu Bandarikjanna”. 1 plaggi þessu var lögö megináherzla á aö CIA-menn- irnir i maóistahópnum hvettu ákaft til andsovézkrar starf- semi. Einnig var bent á aö I þessu sambandi skyldu CIA-mennirnir ekki láta byltingarslagorö maóistanna hafa nein áhrif á sig. Menn ættu aö veita þvl at- hygli aö CIA-sérfræöingarnir hafa dregiö slnar eigin ályktanir varöandi möguleik- ann til að nota hópana sem eru á Peking-llnunni sem eins konar Trjóuhesta til að kom- ast inn I byltingar- og þjóö- frelsishreyfingarnar, og þaö gera þeir eftir aö hafa kynnt sér nákvæmlega starfsemi þeirra. Byltingarslagorðin, sem maóistar nota gjarna I yfir- lýsingum sinum, eru I raun og veru til merkis um tengsl þeirra viö hægri sinnaða öfga- menn á Vesturlöndum og heimsvaldasinna I þriðja heiminum. ENDALOK kalda strlösins, Helsinkiráöstefnan og slökun spennu milli austurs og vesturs — allt bendir þetta til uppgjafar þeirra afla sem boöuöu vaxandi átök. En þetta hefur einnig leitt til þess aö fram i dagsljósið hafa komið hefndarsinnar og afturhalds- seggir sem vinna gegn þeim aögeröum sem miöa aö friöi. Leiötogarnir I Peking, og þeir hópar sem þeir stjórna utan Klna, hafa stillt sér upp viö hliö þeirra. Vinstri hóparnir á ltallu eru ekki mjög fjölmennir, en hafa þó valdið framfarasinnuðum hreyfingum þar talsveröum vandræöum, meö siendur- teknum ögrunaraögeröum. 1 Frakklandi gegna þeir svip- uöu hlutverki og nýfasistar. Allir kannast viö starfsemi þeirra I Portúgal, þar sem þeir hafa opinberlega skipaö sér i hóp meö fasistaklikun- um, blindaöir af hatri á kommúnistum. t þriöja heiminum eru þaö aöallega tvö svæöi sem Pekinglinuhópar starfa á. Þaö eru Rómanska Amerika og Suöaustur-Asla ásamt nokkr- um fleiri löndum I Aslu. t Rómönsku Ameríku fara áhrif þeirra þverrandi vegna þessaö meölimir hópanna eru aö missa trúna á byltingar- uppskriftirnar sem þeim ber- ast frá Peking. Þaö sem held- ur I þeim llfinu er nú aöallega fjárhagsleg og annars konar aöstoö sem þeir fá frá CIA og innlendum gagnbyltingaraöil- um. Beztu dæmin um þetta eru Argentina, Brasilla, Uruguay, Ecuador og Kólumbla. Alltaf ööru hverju er komiö upp um maóista I þessum löndum sem störfuöu miklu fremur eftir CIA-línu en Peking-linu. 1 Aslu, og þá einkum I suð- austurhluta álfunnar, er Klna- linuhópunum haldiö uppi af kfnversku innflytjendunum. Maóistahóparnir, I Burma og Tyrklandi t.d., eru ekki fjöl- mennir, en valda þó miklum usla I vaxandi mæli, eins og dæmin sýna i Tyrklandi þar sem maóistaögranir leiddu til árekstra sem kostuöu mörg mannslif, eöa á Indlandi, þar sem þessir hópar komu af staö „sjálfstæöishreyfingu” á svæöunum sem Naga og Myso-ættbálkarnir byggja. Orö og gerðir klnversku leiötoganna hafa sannað rétt- mæti þess grundvallarmats á maóisma sem fram kom á 25. þingi sovézka kommúnista- flokksins. Þar var bent á hættulegt eöli þessarar stefnu sem miöar aö því aö ýta mannkyninuútí styrjöld, sem aö áliti maóista hlýtur ab leiöa til kinverskra heimsyfirráöa. Hua hylltur á útifundi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.