Tíminn - 01.06.1977, Síða 5
Miðvikudagur 1. júni 1977.
5
Ný þjónustumiðstöð við Gullfoss?
KJ-Reykjavik — „Málið er þann-
ig vaxið að við eina fegurstu nátt-
úruperlu landsins, Gullfoss, fer
öll þjónusta við ferðamenn fram i
ömurlegum skúr sem mikið sjón-
lyti er að á staðnum. Umhverfis-
— stefnt að framkvæmdum i sumar
málanefnd Ferðamálaráðs hefur
margsinnis bent á hversu illa er
þarna að málum staðið og þennan
skúr beri að fjarlægja sem allra
fyrst. Hitt er þó ábyrgðahluti að
f jarlægja hann án þess að nokkuð
komi í staðinn þar sem um Gull-
foss fara einir 60 þús. ferðamenn
á ári, gangandi sem akandi”,
sagði Heimir Hannesson formað-
ur Ferðamálaráðs þegar Tim-
inn innti hann eftir fram-
kvæmdum við Gullfoss i sumar.
Seinni hluta árs 1976 voru lagð
ar fram ákveðnar tillögur um
nýjar framkvæmdir við Gullfoss,
sagði Heimir ennfremur, — og
voru þær kynntar stjórnvöldum
og reynt að fá fé til framkvæmd-
anna á fjárlögum 1977. Tillögurn-
ar miöuðust við að skúrinn yrði
rifinn og gerð ný menningarleg
þjónustumiðstöð, hæfilega stór
sem félli vel inn i umhverfið lýta-
laust. Ekki tókst að fá framlag á
fjárlögum þessa árs, en málinu
var þó mætt af miklum áhuga og
skilningi. Við höfum heldur ekki
gefizt upp og stefnum að ein-
hverjum úrbótum þegar á þessu
ári.
Heimir sagði, að frumskilyrði
fyrir framkvæmdum væri sam-
staða um þær. I þessu skyni m.a.
hélt umhverfisnefnd fund i fyrra-
dag með fulltrúum frá Náttúru-
verndarráði, Ferðafélagi Islands,
Félagi islenzkra ferðaskrifstofa
og Feröaskrifstofu rikisins.
Þarna voru kynntar hugmyndir
sem arktitekt hefur þegar gert
frumskyssur að i sambandi viö
útlit og gerð ferðamannamið-
stöðvar við Gullfoss. Staöarval
hefur ekki endanlega fariö fram,
en ekki má byggja miðstöðina,
bilastæöi eða nokkuð annað þaö
nálægt fossinum að það spilli
náttúrueigindum staðarins.
Þessar hugmyndir veröa einnig
kynntar fjárveitinganefnd Alþing-
is og reynt verður að fá samstöðu
um lausn málsins á þessum
grundvelli og verður þá hægt að
hefja framkvæmdir i sumar.
Framkvæmdir mundu sjálfsagt
dreifast á 2 til 3 ár og taldi Heim-
ir, að einhver ráð yrðu með að
fjármagna þær til að byrja með,
aðeinsef vilyrði fengist fyrirfjár-
veitingu. Ferðamálarað mundi
svo að likindum annast rekstur
þjónustumiðstöðvarinnar.
Landsbanki íslands:
Aukning inn-og útlána
og betri lausafjárstaða
KJ-Reykjavik — t nýútkominni
ársskýrslu Landsbanka tslands
kemurm.a. fram að innlán jukust
um 39% á sl. ári en útlán aðeins
um 20%. Lausafjárstaða bankans
batnaði þvi mikið á árinu en af-
koman er hins vegar svipuð og á
árinu 1975, eða 258 millj. kr. i
tekjuafgang fyrir utan vexti af
eigin fé bankans sem nam 2.243
millj. kr. i árslok.
Af útlánum bankans á siðasta
ári fór mest til sjávarútvegsins
eða 32,5%, næst kemur land-
búnaðurinn með 13,8%, verzlun
með 13,2%, iðnaður með 12,8%,
opinberir aðilarmeð 11%, annað:
10,8% og til ibúðabygginga fór
5,9%. Heildarútlán bankans á ár-
inu 1976 námu 29.673 millj. kr. ef
frá eru talin endurlánuð erlend
lán. Útlánaaukningin var mest til
sjávarútvegs.
Útibú Landsbankans og af-
greiðslustaðireru nú 21 talsins ut-
an Reykjavikur og var heildar-
velta þeirra á siðasta ári 593
milljárðar kr. og jókst um 59%.
Hækkun innlána var um 44% en
útlán jukust um 32%. Staða útibú-
anna gagnvart aðalbankanum
batnaði einnig nokkuð á árinu.
Byggingaframkvæmdir á veg-
um Landsbankansvoru nokkrar á
sl. ári. Lokið var viö byggingar-
framkvæmdir á Hellissandi og i
ólafsvik vegna nýja útibúsins á
Snæfellsnesi sem tók til starfa sl.
ár. Á eldri hluta húss bankans að
Laugavegi 77 fóru fram endur-
bætur og allmiklar breytingar
eins og segir i skýrslu bankans.
Lokið var ýmsum öðrum
byggingarframkvæmdum á sið-
asta ári og nýjar hafnar, t.d. inn-
rétting skrifstofuhúsnæðis að
Laugavegi 7.
Bankastjórn Landsbanka
Islands skipa þeir Björgvin Vil-
mundarson, Helgi Bergs og Jónas
H. Haralz.
Herstöðvaandstæðingar:
Senda erindreka um
landið i sumar
Sumarstarf herstöövaandstæö-
inga fer nú senn aö hefjast og er
ætlunin, aö þaö byrji meö erind-
rekstri um landiö segir f fréttatil-
kynningu frá samtökunum. Und
anfarin ár hafa Samtök her-
stöövaandstæöinga leitast viö aö
ná upp virku starfi um land allt.
Þrátt fyrir góöan árangur álitur
miönefnd samtakanna aö gera
megi miklu betur I þessum efn-
um.
Markmið erindrekstursins er
að kynna starf og stefnu her-
stöðvaandstæöinga á liönu ári og
kanna hugsanlegan grundvöll að
virku starfi í hverju byggöalagi.
Undanfarna mánuði hafa her-
stöðvaandstæöingar staðiö fyrir
fjöldaaögeröum af ýmsu tagi.
Sem dæmi má nefna ráðstefnu
um fjölþjóölegt auömagn og sjálf-
stæði tslands, glæsiilegan fund I
Háskólabiói 30. marz og 21. mai
s.l. var farin Straumsvikurganga
þar sem 8-9 þúsund andstæöingar
herstöðva báru fram kröfuna um
uppsögn herverndarsamningsins
og úrsögn Islands úr NATO. —
Allar þessar aðgerðir eru liður I
fjölbreyttu starfi og sýna tvi-
mælalaust að málstaöur okkar á
vaxandi fylgi að fagna. — Þaö
starf sem nú fer I hönd er rökrétt
framhald undangenginna að-
gerða.
Miðnefndin telur að leggja beri
höfuöáherzlu á árangursrikt starf
nú I sumar, þannig að byggja
megi upp öfluga fjöldahreyfingu
gegn hernum og NATO, segir aö
lokum i fréttatilkynningu.
Hreinsiarmar
margar gerðir frá Bib verð frá kr. 600
Einnig margskonar hlutir til viðhalds
tóngœða
V buðirnar 26 ar i fararbroddi
NÓATÚIMI.^^n^ /
SÍMI 23800,
KLAPPARSTÍG 26.
SÍMI19800.
• •
STJORNULIO BOBBY CHARLTON
gegn Urvalsliði KSÍ í kvöld kl. 20,30
á Laugardalsvelli Einstakt tækifæri til að sjá þessa heimsfrægu
knattspyrnumenn leika saman í liði.
Forsala við Útvegsbankann í dag kl. 13-18.
Tryggið ykkur miða í tíma. Verð aðgöngumiða:
Stúka kr. 1000, stæði kr. 800, börn kr. 300. K.R.R
Bobby Charlton
Jackie Charlton
Alex Stephney
Jim Callaghan
Terry Cooper
Allan Ball
Brian Kidd
Tommy Smith
Norman Hunter
Ralph Coates
Peter Osgood
og fleiri