Tíminn - 02.06.1977, Qupperneq 17
Fimmtudagur 2. júni 1977.
17
T
Ingibjörg Þórðardóttir
Ingibjörg Þóröardóttir, er lengi
bjó i Tjarnargötu ÍOA, i Reykja-
vik, lézt á Sjúkrahúsi Akraness
26. mai s.l. eftir rúmlega þriggja
mánaöa sjúkdómslegu.
Hún var fædd aö Laugabóli i
Nauteyrarhreppi 22. april 1903.
Foreldrar Ingibjargar voru
merkishjónin Þórður Jónsson
bóndi og Halla skáldkona Eyjolfs
dóttir, er bjuggu þá stórbúi aö
Laugabóli. Eignuöust þau 14 börn
og var Laugabólsheimilið á
þeirra dögum mjög rómað við
Djúp og viðar. Skáldskapur og
tónlist voru þar i hávegum höfð
og þarf i þvi sambandi ekki annað
en nefna kvæði húsfreyjunnar og
lög tónskáldsins og nágrannans
Sigvalda Kaldalóns við mörg
kvæða Höllu._
Ingibjörg átti þvi góða og glað-
væra bernsku. En ævintýraþráin
seiddi hina ungu heimasætu, þvi
aðeins 16 ára gömul hleypti hún
heimdraganum og hélt til
Reykjavikur i atvinnuleit. Hún
vildi verða sinnar eigin gæfu
smiður. Tókst henni af alkunnum
dugnaði sinum og harðfylgi að út-
vega sér vinnu, sem ekki mun
hafa verið svo auðvelt i þá daga.
Réðist hún fyrst að Vífilsstaöa-
hæli en starfaði siðar um árabil
sem simstúlka við Landssima Is-
lands.
Þótt brauðstritið væri sjálfsagt
ærið viðfangsefni ungra dag-
launastúlkna i Reykjavik á þess-
um tima, lét Ingibjörg sér það
ekki nægja. Hún vildi njóta þeirr-
ar gleðiogunaðar, sem lffiö getur
veitt þeim er þess leita. Stóð hún
á timabili fyrir rekstri dans-
klúbbs i höfuðborginni. Hún lagði
mikið upp úr glæsileik í búnaði og
fylgdist vel með tizkustraumun-
um. Sem dæmi um það má nefna,
að einhvern tima á þessum árum,
er henni þótti úrvalið i fata-
verzlunum borgarinnar heldur
fáskrúðugt, þá gerði hún sér litið
fyrir og pantaði beint frá tizku-
húsum Parisarborgar sjö sam-
kvæmiskjóla, svo hún og vinkon-
ur hennar gætu skartað þvi nýj-
asta i tizku heimsborganna. Ekki
naut hún I þessum efnum annars
stuðnings en eigin sjálfsbjargar-
viðleitni.
1936 giftist Ingibjörg Jóni M.
Þorvaldssyni skipstjóra. Eignuð-
ust þau þrjár dætur: Höllu, Krist-
rúnu, gift Nirði Tryggvasyni,
Ingibjörgu Jónu, gift Ingjaldi
Bogasyni. Aður en Ingibjörg gift-
ist eignaðist hún son, Þór Hall-
dórsson viðskiptafræðing, en
hann lézt árið 1970 aðeins 37 ára
gamall. Þór var kvæntur Svövu
Daviðsdóttur og áttu þau tvær
dætur, Guðrúnu og Ingibjörgu
Jónu.
Ingibjörg og Jón bjuggu allan
sinn búskap að Tjarnargötu 10A i
Reykjavik, en það hús byggði Jón
og átti með bræðrum sinum
tveimur.
Fáir eru þeir áreiðanlega, sem ■
komu á heimili Jóns og Ingibjarg-
ar, er gleymdu þeim heimsókn-
um, þvl heimilið var einstakt fyr-
ir þá muni sem Ingibjörg safnaði
og prýddi það með. Málverk eftir
flesta okkar frægustu meistara
þöktu veggina, margs konar fá-
gætir skrautmunir og húsgögn
viða að komin fylltu stofurnar.
Var auðsætt að hér bjó sannur
unnandi lista og fegurðar. Naut
Ingibjörg við þetta dyggilegrar
aðstoðar eiginmanns sins, en hún
fylgdi honum oft á ferðum hans
milli landa.
1965missti Ingibjörg mann sinn
fyrirvaralaust, er hann lézt af af-
leiðingum slyss er hann hlaut um
borð i skipi sinu, m/s Langjökli.
Fimm árum siðar lézt Þór, einka-
sonur Ingibjargar, skyndilega i
blóma lifsins. Hér varð þvi
skammt stórra högga i milli. En
eins og Jón, maður Ingibjargar,
kunni farsællega að sigla skipi
sinu um úfin úthöfin, þá kunni hún
einnig að stjórna sinu skipi i lifs-
ins ólgusjó, án þess það hlyti
skaða af. Hún lét það fleyta
öldurnar, en reyndi ekki að kljúfa
þær og hætta þar með skipi og
áhöfn. Efhún fann aðvandamálið
var óviðráðanlegt og erfið-
leikarnir yfirþyrmandi, þá visaði
hún þeim á bug eins og þeir hefðu
aldrei verið til. Kom þessi eigin-
leiki aðdáanlega vel fram nú sið-
ustu mánuðina i vonlausri bar-
áttu hennar við erfiðan sjúkdóm.
Naut hún þar einnig frábærrar
aðstoðar og aðhlynningar starfs-
fólks Sjúkrahúss Akraness.
Eftir að Þór, sonur Ingibjargar,
lézt seldi hún ibúð sina að
Tjarnargötu 10A og fluttist til
Akraness, þar sem allar dætur
hennar voru þá orðnar búsettar.
Stofnaði hún heimili með Höllu
dóttur sinni að Garðabraut 10.
Vakti það heimili fljótlega aðdá-
un og undrun þeirra er þangað
komu.
Við tengdabörn Ingibjargar, er
þessar linur ritum, minnumst
stórbrotinnar og góðrar konu er
reyndist okkur vel.
Við viljum þvi þakka henni
kynnin og samverustundirnar.
Við tregum sannarlega góðan
ástvin.
Tengdabörn.
Þetta er De Havilland Tiger Moth, sem notaðar voru hér eftir heimsstvrjöldina siðari. Ein sllk
vél er enn til, og hangir hún I pörtum i rjáfrinu á flugskýli Flugfélagsins.
Drög að íslenzkri
flugsögu
Ahugamenn um sögu flugs á Is-
landi hafa bundizt samtökum um
stofnun félags, er hafi það að
markmiði að skrá og.halda til
haga islenzkri flugsögu.
Ekki er siður mikilvægt að varð
veita þær fáu flugminjar, sem til
eru frá fyrri árum og gera nú
þegar ráðstafanir til varðveizlu
sögufrægra flugvéla, sem enn eru
i notkun.
Félagið mun einnig hafa á
stefnuskrá sinniað gefa reglulega
út rit með greinum, myndum og
öðru efni, sem snertir islenzka
flugsögu.
Undirbúningsfundur að stofnun
félagsins verður haldinn i Leifs-
búð á Hótel Loftleiðum, þriðju-
daginn 7. júni kl. 20:30.
Allir áhugamenn um islenzka
flugsögu eru velkomnir.
FisherPrice húsið
OPNUM Í DAG
nýja verzlun að Skólavörðustig 10 (Berg-
staðastrætismetin).
FisherPrice leikföng
Úrval af stórum leikföngum:
Brúðuvagnar. Brúðukerrur. Brúðuhús.
Stignir bilar. Stignir traktorar. Stórir
vörubilar. Stórir kranar. Ámoksturstæki.
Þrihjól og tvihjól. Billiardborð. Bobborð.
Veltipétur. Hoppuboltar. — Póstsendum.
FisherPrice húsið
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10, sími 14806
Frá og með 1. júni 1977 hækkar verð á
Portlandssementi sem hér segir:
Sementsverð kr. 14,000 pr. tonn.
Flutningsjöfnunargjald kr. 3.300 pr. tonn.
Heildarverð á Portlandssementi verður
þvi kr. 17.300 pr. tonn án söluskatts en kr.
20.760 með söluskatti.
Verð á öðrum sementstegundum hækka i
samræmi við framangreint.
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
Bifreiðastjórar
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra með
meira prófi til afleysinga i sumarleyfum.
Kaupfélag
Árnesinga
Selfossi
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
M)STOÐARLÆKNAR. Tveir að-
stoðarlæknar óskast til starfa á
Barnaspitala Hringsins frá 1. júli
nk. Umsóknum skal skiláð á þar til
gerðum eyðublöðum fyrir 20. júni á
Skrifstofu rikisspitalanna, þar sem
taka skal fram m.a. um nám og
fyrri störf. Stöðurnar veitast til 6
mánaða með framlengingarmögu-
leika um aðra 6 mánuði. Umsækj-
endur, sem hyggjast leggja fyrir
sig heimilislækningar verða að
öðru jöfnu látnir sitja fyrir. Nánari
upplýsingar hjá yfirlækni.
Reykjavik 31. mai 1977,
skrifstofa
RlKISSPÍTAUNNA
EIRÍKSGÖTU 5. SÍMI 29000 -