Fréttablaðið - 12.02.2006, Side 4
4 12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 10.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 63,09 63,39
Sterlingspund 110,25 110,79
Evra 75,5 75,92
Dönsk króna 10,112 10,172
Norsk króna 9,347 9,403
Sænsk króna 8,151 8,199
Japanskt jen 0,5364 0,5396
SDR 90,81 91,35
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
106,0024
HOLLAND Kanadíski ljósmyndar-
inn Finbarr O´Reilly vann til verð-
launa fyrir fréttaljósmynd ársins
í gær fyrir mynd sína af fingr-
um barns á vörum móður þess í
neyðarskýli í Níger í Afríku.
Umsögn dómnefndar var á þá
leið að myndin næði að sameina
fegurð, hrylling og örvæntingu,
en myndin er tekin á hungur-
sneyðarsvæði.
Alls þurfti dómnefndin að
velja úr 80 þúsund ljósmyndum
að þessu sinni, sem bárust frá 122
löndum.
Finnbarr O´Reilly starfar fyrir
Reuters-fréttastofuna en þetta er
annað árið í röð sem ljósmyndarar
á hennar vegum hreppa fyrstu
verðlaun fyrir fréttaljósmynd
ársins. Ljósmyndarar AP og Getty
Images unnu flest verðlaun eða
átta og sjö samtals.
Þema flestra mynda sem send-
ar voru inn í keppnina að þessu
sinni var móðir náttúra og öfl
hennar. Alls voru veitt verðlaun í
25 flokkum og hlutu 63 ljósmynd-
arar verðlaun eða viðurkenningu
fyrir myndir.
Verðlaunamyndirnar verða
kynntar sem fyrr um víða veröld
á næstu mánuðum en sýningin
hefur verið haldin í Kringlunni
hér á landi undanfarin ár.
- aa
FRÉTTALJÓSMYND ÁRSINS 2005 Hungursneyð ríkir í Níger og tugþúsundir þurfa að leita á
náðir erlendra hjálparstofnana með mat og vatn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fréttaljósmynd ársins 2005 valin í Hollandi:
Þögult neyðaróp
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur
maður var á föstudag dæmdur í
fimm mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir að hafa í
vörslu sinni 33 kannabisplöntur,
38 grömm af kannabislaufum og
1,5 grömm af kannabisstönglum.
Jafnframt að hafa um nokkurt
skeið ræktað umræddar plöntur í
bílskúr við Fálkagötu.
Maðurinn hafði áður hlotið
dóma fyrir brot á umferðarlög-
um, skjalafals, tilraun til þjófn-
aðar, eignaspjöll og brot á lögum
um ávana- og fíkniefni. Sakaferill
hans nær allt til ársins 1996.
Auk fimm mánaða fangels-
is var manninum gert að greiða
málsvarnarlaun að upphæð 65
þúsund krónur. - jss
FIMM MÁNUÐIR Maðurinn ræktaði kanna-
bis í bílskúr við Fálkagötu í Reykjavík.
Síbrotamaður fyrir dómi:
Dæmdur fyrir
kannabisrækt
MOSKVA, AP Fjármálaráðherrar
átta helstu iðnríkja heims eru
bjartsýnir á þróun efnahagsmála
fram eftir þessi ári en fregnir
af fuglaflensu á Ítalíu og Grikk-
landi valda þó nokkrum áhyggj-
um. Þetta kom fram á fundi fjár-
málaráðherranna sem fram fór í
Moskvu í gær, þeim fyrsta sem
haldinn er í Rússlandi.
Talið er að ef fuglaflensutil-
fellum fjölgi mjög í Evrópu geti
það haft efnahagslegar afleiðing-
ar fyrir viðkomandi svæði. Hvatt
er til aukinna fjárframlaga til
hinna sýktu svæða svo draga megi
úr neikvæðum efnahagslegum
áhrifum.
Gestgjafarnir Rússar eru mjög
í sviðsljósinu á þessum fundi. Það
er ekki aðeins vegna þess að þeir
halda nú í fyrsta sinn fund fjár-
málaráðherra G8 ríkjanna heldur
halda þeir mjög á lofti þeirri stað-
reynd að þeir eru aðrir stærstu
olíuútflytjendur í heimi og hafa á
undanförnum árum hagnast mjög
á olíuviðskiptum sínum. Svo mjög
hafa þeir hagnast að þeir standa
nú í samningaviðræðum við
skuldunauta sína um að borga upp
skuldir sovéttímans. Einnig vilja
þeir nota fundinn til að eyða þeim
orðrómi að þeir séu óáreiðanlegir
í olíuútflutningi sínum.
Olíuverð er sem oft áður eitt
af aðalumræðuefnum funda fjár-
málaráðherra G8 ríkjanna. Það
sem veldur áhyggjum er ekki
aðeins aukin eftirspurn held-
ur einnig takmarkanir á magni
útflutningsríkja. „Við sjáum þá
þróun að verð stýrist ekki ein-
ungis af eftirspurn heldur horf-
um við nú fram á enn frekari
framleiðsluhömlur. Þetta getur
haft neikvæðari áhrif á efnahag
heimsins en við höfum séð til
þessa,“ var haft eftir hátt settum
embættismanni.
Mitt í allri þessari umræðu um
framboð og eftirspurn olíu standa
Rússar frammi fyrir því að efast
er um réttmæti hlutdeildar þeirra
í hópi átta stærstu iðnríkja heims.
Þetta sést á því að þeir hafa ekki
verið fullgildir meðlimir í við-
ræðum fjármálaráðherra ríkj-
anna um veigamikil mál eins og
gengi og viðskiptahalla Banda-
ríkjanna. Pútín forseti ver aðild
Rússlands með kjafti og klóm og
segir að land sitt sé málsvari þró-
unarlandanna og veiti mótvægi
við þá sterkustu.
svavar@frettabladid.is
Óttast efnahagsleg
áhrif fuglaflensu
Fjármálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims funduðu í Rússlandi í fyrsta
skipti. Rússar nota tækifærið til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
ÓTTI OG ÁNÆGJA Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heilsar Peer Steinbrueck, fjármálaráð-
herra Þýskalands. Á milli þeirra stendur fjármálaráðherra Bandaríkjanna, John Snow.
MÚHAMEÐSTEIKNINGAR Danir hafa
kallað sendiherra sinn og allt
starfsfólk sendiráðs síns heim frá
Indónesíu eftir að hótanir bárust
þeim í gær. Er þetta enn eitt atvik-
ið vegna birtingar skopmynda af
Múhameð spámanni en ólgan í
kringum málið virðist ekkert ætla
að róast.
Mótmæli hafa nú staðið yfir í
fullar tvær vikur í Indónesíu en
mótmælin í gær fóru friðsamlega
fram að mestu ólíkt mótmælum
undanfarinna daga. Skemmst er
að minnast þegar mótmælendur
brutust inn í anddyri sendiráðsins
á dögunum og brenndu þar fána
Evrópusambandsins. - shá
Mótmæli halda áfram:
Danir flýja
morðhótanir
Fór utan í vegrið Ökumaður
fólksbifreiðar keyrði utan í nýtt vegrið í
Draugahlíðarbrekku rétt austan við Litlu
kaffistofuna í fyrirnótt. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun.
Veltu bíl Bílvelta varð á Grafningsvegi
um hádegisbilið í gær. Tveir voru í bíln-
um og þeir fluttir á heilsugæsluna. til
aðhlynningar en meiðsl þeirra voru ekki
talin alvarleg.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fullur flugmaður Flugmaður Ameri-
can Airlines var handtekinn á Manchest-
er-flugvelli í gær. Þetta var skömmu fyrir
flugtak og hugðist maðurinn, sem er
grunaður um ölvun, fljúga farþegavél
til Chicago. Klukkutíma seinkun varð á
flugtaki.
BRETLAND
VIÐSKIPTI Magnús Kristinsson,
útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, hefur keypt bílaleiguna Hertz
af FL Group. Kaupverðið fékkst
ekki uppgefið og segir Magnús
það vera trúnaðarmál.
Hertz er önnur
tveggja stærstu
bílaleigna lands-
ins með tæplega
þriðjungs mark-
a ð s h l u t d e i l d .
Magnús keypti
Toyotaumboðið
nýlega. Hann
segist ekki gera
sér grein fyrir
því hvort Toyota sé stærsti sam-
starfsaðili bílaleigunnar. „Ég er
ekki farinn að skoða gögnin en
mig grunar það,“ sagði hann í
samtali við Fréttablaðið. Hann
taldi frekar ólíklegt að breytingar
yrðu á rekstri Hertz og að flest-
ir lykilstjórnendur héldu áfram
hjá fyrirtækinu. „Ég er ennþá
að ná áttum en mér sýnist þetta
við fyrstu sýn,“ sagði Magnús og
bætti við að hann væri ekki orðinn
bílakóngur á Íslandi. „Ég er hins
vegar mikill bíladellukarl.“ - fgg
Magnús Kristinsson:
Kaupir Hertz
MAGNÚS KRIST-
INSSON