Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 6
6 12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
Byrjendur
30 kennslustunda byrjendanám-
skeið. Engin undirstaða nauð-
synleg, hæg yfirferð með reglu-
legum endurtekningum í umsjá
þolinmóðra kennara.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að
gera þátttakendur færa að nota
tölvuna sjálfstætt, m.a. til að
skrifa texta og prenta, nota Inter-
netið sér til gagns og taka á móti
og senda tölvupóst.
Kennsla hefst 20. febrúar.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin
Framhald I
30 kennslustundir. Hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu
eða hafa sambærilega undirstöðu. Byrjað er á upprifjun áður en haldið
er lengra í ritvinnslu í Word. Framhaldsæfingar á Internetinu og í allri
meðferð tölvupósts.
Kennsla hefst 20. febrúar.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
ELDRI BORGARAR 60+
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
ÓVEÐUR Veðurofsinn á Flateyri í
fyrrakvöld var slíkur að hann reif
bæði veggi og þak trésmíðaverk-
stæðis í loft upp og þeytti brakinu
yfir tveggja hæða hús áður en það
hafnaði á íbúðarhúsum og bílum
sem við þau stóðu, þar á meðal
nýlegri jeppabifreið af Explorer
gerð sem er ónýt eftir. Eigandi
jeppabifreiðarinnar, Guðjón Guð-
mundsson húsasmíðameistari á
Flateyri, segir að greinilegt sé
að jeppinn hafi tekist á loft þegar
hviðan skall á, því að hann hafi
færst sem nemur bílbreidd án
þess að vera á dekkjunum. Brak-
ið úr verkstæðinu dreifðist út um
alla eyrina og lenti að minnsta
kosti á þremur öðrum íbúðarhús-
um og skemmdi þau. Guðjón segir
að furðu sæti að brakið úr húsinu
braut engar rúður í nærliggjandi
húsum og að skemmdirnar væru því minni er búast hefði mátt við,
það sýni stórir timburbjálkar
sem liggja eins og hráviði upp við
íbúðarhús og þar á meðal undir
gluggum þeirra.
Flateyringar þekkja vel hvað
svokölluð Grundarendaveður,
eins og þeir kalla þessa hvelli,
geta verið skæð því árið 1991 fuku
þök af mörgum húsum við sömu
aðstæður og nú. Þá kemur hviðan
niður fjöllinn gegnt þorpinu, yfir
fjörðinn og yfir alla eyrina með
þeim eyðileggingarmætti sem
raun ber vitni.
Til allrar mildi var enginn á
ferli þegar veðurofsinn sprengdi
húsið í sundur því ljóst er að ekki
hefði þurft um að binda ef einhver
hefði staðið þar fyrir. Sést það
best á því að viðmælendur Bæj-
arins besta sögðu blaðamanni þar
vestra að þeir hefðu aldrei orðið
vitni að öðrum eins veðurham.
Björgunarsveitir af svæðinu og
heimafólk vinnur nú að hreinsun
um allt þorpið og nágrenni þess.
Ljóst er að mikið verk er fyrir
höndum því einn viðmælandi
Fréttablaðsins sagði að ástandið á
Flateyri væri eins og „af svæðum
sem maður sér oft í fréttamyndum
þar sem sprengjur eru notaðar.“
Ætla má að tjón Flateyringa
nemi tugum milljóna króna þegar
allt er tekið með í reikninginn. Þó
verður það ekki ljóst fyrr en síðar
þar sem heimafólk og starfsmenn
tryggingarfélaga vinna nú að því
að meta skemmdirnar sem orðið
hafa.
svavar@frettabladid.is
Eins og sprengja hafi fallið
Veðurofsinn lyfti húsi af grunni sínum og brakið dreifðist yfir stórt svæði og er sem yfir vígvöll yfir að líta.
Bílar og að minnsta kosti þrjú íbúðarhús skemmdust. Mikil mildi þykir að enginn skuli hafa slasast.
SKIPULAGSMÁL „Ef af þessari
uppbyggingu á umræddu svæði
verður, þá er það ævintýri fyrir
hestamenn,“ segir Bjarnleifur
Bjarnleifsson, formaður hesta-
mannafélagsins Gusts um hug-
myndir þær að framtíðarsvæði
undir hesthúsabyggð félagsins
sem kynntar voru á fundi í fyrra-
kvöld.
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, kynnti þessar
hugmyndir, sem orðið hafa til
í samvinnu hans og viðræðu-
nefndar Gusts. Samkvæmt þeim
mun Gustur flytjast á Kjóavelli
á næstu 2-3 árum. Ef þetta geng-
ur eftir munu Gustur og Andvari
verða á sameiginlegu svæði.
„Félagsmenn Gusts líta á þetta
sem jákvæðan möguleika og voru
ánægðir að sjá að verið væri að
vinna á þessu forsendum,“ segir
Bjarnleifur. „Þetta er ekki alveg
í hendi ennþá heldur um hráar
tillögur að ræða. Það eru nokk-
ur mál sem þarf að leysa áður en
þetta getur orðið að veruleika en
það standa vonir til að þau verði
leyst.“ -jss
FÉLAGSFUNDUR Hvert sæti var skipað á
félagsfundinum þar sem hugmyndir um
framtíðarbyggð Gusts voru kynntar.
Hugmyndirnar um að flytja hestamannafélagið Gust á Kjóavelli:
Ævintýri fyrir hestamenn
JEPPABIFREIÐIN Eins og sjá má verður
þessari jeppabifreið ekki ekið aftur.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÖ
HREINSUNARSTARF Á FLATEYRI Gífurlegt hreinsunarstarf beið björgunarsveitamanna og heimafólks eftir veðrið á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PÖ
SJÁVARÚTVEGUR Mikil og góð loðn-
uveiði hefur verið vestan við Ing-
ólfshöfða undanfarna sólarhringa.
Að sögn Guðjóns Jóhannssonar,
skipstjóra á Hákoni EA, hefur
verið mokveiði hjá öllum bátum.
Þegar náðist í Guðjón um síðdegis-
bilið í gær var skipið staðsett rétt
utan við Skeiðarársand en hann
segir loðnuna vera að stefna enn
vestar. Um tíu bátar eru við veiðar
á þessum slóðum.
Skipstjórar og aðrir útgerðar-
menn virðast vera almennt sam-
mála um að kvótinn eigi að vera
mun meiri. ,,Það er margfalt meiri
loðna hérna núna en var í fyrra,“
sagði Guðjón að lokum. - sha
Loðnuveiði gengur vel:
Mokveiði hjá
öllum bátum
MOKVEIÐI Skip hafa verið að koma drekk-
hlaðin í land eftir loðnuveiðar við strönd
ALASKA, AP Veiðimálastjórn Alaska
kannar nú hvort lýsa skuli ísbirni í
útrýmingarhættu, því heimkynni
þeirra fara síminnkandi vegna
gróðurhúsaáhrifanna.
Vísindamenn leita nú upp-
lýsinga um heimkynni, fæðu og
hætti bjarnanna, og áhrifin sem
síminnkandi íshella Grænlands-
jökuls hefur á þá og bráð þeirra,
sem og um ólöglegar veiðar og þá
hættu sem aukin uppbygging við
norðurskautið hefur í för með sér.
Gert er ráð fyrir að þessari
upplýsingaöflun verði lokið í byrj-
un apríl. - smk
Veiðimálastjórn Alaska:
Heimkynni ís-
bjarna í hættu
ÍSBIRNIR Verið er að rannsaka hvort ísbirnir
séu í útrýmingarhættu vegna gróðurhúsa-
áhrifanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skjálftahrina við Grímsey
Jarðskjálftahrina mældist við Grímsey í
fyrrinótt og að sögn Halldórs Geirssonar,
hjá Veðurstofu Íslands, mældist einn
skjálftinn 3,7 á Richterskvarða Honum
fylgdu minni eftirskjálftar. Fylgst er
grannt með framvindu mála.
NÁTTÚRA
KJÖRKASSINN
Á að gera jarðgöng til
Vestmannaeyja?
JÁ 15,6%
NEI 84,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu sammála ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins um að fella
úr gildi hámarksökutaxta hjá
leigubílum?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í ÍSAFIRÐI
1. sæti Halldór Halldórsson 364 atkvæði í 1. sæti
2. sæti Birna Lárusdóttir 315 atkvæði í 1.-2. sæti
3. sæti Gísli Halldór Halldórsson 147 atkvæði í 1.-3. sæti
4. sæti Ingi Þór Ágústsson 253 atkvæði í 1.-4. sæti
5. sæti Níels Björnsson 283 atkvæði í 1.-5. sæti
6. sæti Ragnheiður Hákonardóttir 307 atkvæði í 1.-6.s æti
PRÓFKJÖR Halldór Halldórsson
bæjarstjóri bar sigur úr býtum í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
bænum sem haldið var í gær.
Fékk hann góða kosningu í
fyrsta sæti en þrír sóttust eftir
að leiða lista flokksins í kosning-
unum í vor. „Ég er mjög ánægður
með þennan afgerandi stuðning,“
sagði Halldór í gærkvöldi. Hann
gerði sér vonir um sigur og þær
vonir gengu eftir. Halldór telur
að niðurstöður prófkjörsins gefi
Sjálfstæðisflokknum góðan byr
í seglin fyrir kosningarnar í vor.
„Við munum stilla upp sigur-
stranglegum lista,“ segir bæj-
arstjórinn sem sýtir reyndar að
Ragnheiður Hákonardóttir, sem
hann telur góðan bæjarfulltrúa,
hafi hafnað í sjötta sæti.
584 tóku þátt í prófkjörinu en
734 voru á kjörskrá. Er þátttakan
því um 80 prósent. - shá
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði:
Halldór hélt velli
LÖGREGLA Tveir karlmenn á þrí-
tugsaldri voru handteknir á Ísa-
firði í fyrrinótt. Að sögn varðstjóra
lögreglunnar á Ísafirði eru þeir
grunaðir um fíkniefnamisferli.
Mennirnir höfðu komið akandi
til Ísafjarðar frá Reykjavík. Við
leit lögreglu í bíl þeirra fannst
mikið magn fíkniefna, tæp 140
grömm af hassi og 30 grömm af
amfetamíni. Einnig fundustu tæki
til neyslu. Af magni fíkniefnanna
að dæma má ætla að þau hafi verið
ætluð til dreifingar.
Mönnunum sleppt í gærkvöldi
eftir yfirheyrslur og telst málið að
fullu upplýst.
shá
Eiturlyf finnast á Ísafirði:
Tveir teknir
með hass
KÁTT Á HJALLA Sjálfstæðismenn á Ísafirði fylgdust spenntir með talningu atkvæða í próf-
kjörinu í gærkvöldi.