Fréttablaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 70
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR30
baekur@frettabladid.is
HEILDARLISTI
1 ÍSLANDSATLASHANS H. HANSEN
2 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
3 SUMARLJÓS, OG SVO KEMUR
NÓTTIN
JÓN KALMAN STEFÁNSSON
4 ENDALAUS ORKAJUDITH MILLIDGE
5 HVAR ER VALLI?MARTIN HANDFORD
6 VIÐ ENDA HRINGSINSTOM EGELAND
7 VETRARBORGINARNALDUR INDRIÐASON
8 ÍSLENSKUR STJÖRNUATLASSNÆVARR GUÐMUNDSSON
9 ÞRIÐJA TÁKNIÐYRSA SIGURÐARDÓTTIR
10 VERONIKA ÁKVEÐUR AÐ DEYJAPAOLO COELHO
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
1 SUMARLJÓS, OG SVO KEMUR
NÓTTIN
JÓN KALMAN STEFÁNSSON
2 VIÐ ENDA HRINGSINSTOM EGELAND
3 VETRARBORGINARNALDUR INDRIÐASON
4 ÞRIÐJA TÁKNIÐYRSA SIGURÐARDÓTTIR
5 VERONÍKA ÁKVEÐUR AÐ DEYJAPAOLO COELHO
6 TÍMI NORNARINNARÁRNI ÞÓRARINSSON
7 BLÓÐBERGÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
8 FLUGDREKAHLAUPARINNKHALED HOSSEINI
9 KROSSTRÉJÓN HALLUR STEFÁNSSON
10 BLEKKINGALEIKUR
DAN BROWN
SKÁLDVERK - KILJUR
1 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
2 MINNINGAR GEISJUARTHUR GOLDEN
3 SJÁLFSTÆTT FÓLKHALLDÓR LAXNESS
4 ENGLAR OG DJÖFLARDAN BROWN
5 DAUÐINN Í FENEYJUMTHOMAS MANN
6 MÝRINARNALDUR INDRIÐASON
7 GRAFARÞÖGN ARNALDUR INDRIÐASON
8 ALKEMISTINNPAOLO COELHO
9 SKUGGA BALDURSJÓN
10 DAUÐARÓSIRARNALDUR INDRIÐASONÍSLANDSATLAS EDDU
METSÖLULISTINN
„Dauðasyndirnar leiða ekki til tafarlauss
dauða, það kemur enginn glóandi steinn af
himni eða önnur skyndirefsing. Dauðasynd-
irnar leiða hægt og bítandi til
dauða, þær tæra lífsgleðina,
angistin þrengir að og kærleik-
urinn tortímist hægt en óumflýj-
anlega.“
- Syndin er lævís og lúmsk eins og Jaakko Heinimaki
bendir á í bók sinni Syndirnar sjö.
> Bók vikunnar
The Possibility of an Island eftir
Michel Houellebecq.
Franski
sóðakjaftur-
inn Michel
Houellebecq
er kominn
aftur á kreik
en þessi nýja
skáldsaga
hans er fáan-
leg á Íslandi
í enskri þýð-
ingu. Houell-
ebecq vakti
verðskuldaða
athygli fyrir bækur sínar Öreind-
irnar og Áform. Það er ekki minni
sláttur á honum í nýju bókinni
sem margir vilja meina að sé hans
besta verk hingað til.
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
Díana prinsessa og ástmaður hennar,
Dodi Al Fayed, létust sviplega í bílslysi
í París þann 31. ágúst 1997. Heims-
byggðin var harmi slegin við frá-
fall hinnar ástkæru prinsessu og í
kjölfar dauða hennar spruttu upp
ótal samsæriskenningar. Ein þeirra
gekk út á að breska leyniþjónust-
an hefði komið Díönu fyrir kattar-
nef til þess að koma í veg fyrir að
framtíðarríkisarfinn, Vilhjálmur prins
sonur Díönu og fyrrum eiginmanns
hennar Karls Bretaprins, yrði stjúpson-
ur arabísks kaupsýslumanns. Jon King
og John Beveridge skrifuðu bókina
Hidden Truth, eða Falinn sannleikur,
þar sem þeir viðruðu kenningar
sínar um að bandaríska leyni-
þjónustan CIA og bandaríska
alríkislögreglan FBI hefðu
bruggað prinsessunni bana-
ráð. Samkvæmt tímaritinu
Screen Daily stendur nú til
að gera spennumynd byggða á bókinni.
William P. Cartlidge, framleiðandi
Educating Rita, ætlar að framleiða
þennan breska trylli sem gert er
ráð fyrir að muni kosta 2,8 milljónir
punda í framleiðslu. Engir leikarar
hafa enn verið ráðnir en gera má
ráð fyrir að margar leikkonur renni
hýru auga til hlutverks prinsessunn-
ar dáðu. Engin viðbrögð hafa borist
frá bresku konungsfjölskyldunni en
ætla má að fyrrverandi tengdamóður
Díönu, Elísabetu Bretadrottningu, líki
það mátulega vel að fjölskylda hennar
dragist inn í atburðarás spennumyndar
með pólitískum undirtóni. Rannsókn
á dauða Díönu stendur enn yfir eins
og fyrrverandi lögreglustjórinn Lord
Stevens, sem stjórnar rannsókninni,
upplýsti í síðasta mánuði og sagði
að hún væri miklu umfangsmeiri
og flóknari en nokkurn hefði
getað órað fyrir.
SAMSÆRISKENNINGABÓK KVIKMYNDUÐ
Það þykir ekki lengur góð latína að
berja nemendur til bókar svo upp-
fræðarar landsins þurfa að beita
öðrum meðulum til að birgja þá
upp af andlegri næringu. Frétta-
blaðið leitaði til nokkurra bóka-
orma og bað þá að tilnefna fimm
bækur sem allir menntskælingar
ættu að lesa.
PÁLL VALSSON, ÚTGÁFUSTJÓRI
EDDU
The Catcher in the Rye eftir J.D.
Salinger. Snilldarsaga sem smell-
passar að lesa á þessum örlaga-
ríku mótunarárum í menntaskóla.
Hafði mikil áhrif á mig á sínum
tíma og batnar bara við hvern
lestur. Hef því miður ekki lesið
íslenska þýðingu Flosa Ólafsson-
ar, Bjargvættinn í grasinu, en mér
er sagt að hún sé góð.
Hundrað ára einsemd eftir Gabri-
el Garcia Marques. Meistaraverk
sem opnaði fyrir manni töfralend-
ur bókmenntanna, stórkostlega
andrík og skemmtileg saga sem
er auðvitað löngu orðin sígild.
Rokkað í Vittula eftir Mikael
Niemi. Frábær uppvaxtarsaga frá
norðurhjara sem er í senn bæði
tragísk og drepfyndin. Gott dæmi
um hvað norrænar bókmenntir
geta verið skemmtilegar.
Meistarinn og Margaríta eftir
Mikhail Búlgakof. Skáldsaga sem
hefur allt til að bera, tímalaus
snilld.
Heimsljós eftir Halldór Laxness
Fulltrúi íslenskra skáldsagna í
þessum hópi. Gæti opnað augu
menntskælinga fyrir hinni ljóð-
rænu fegurð tilverunnar.
JÓN KALMAN STEFÁNSSON
RITHÖFUNDUR
Íslenskur aðall eftir Þórberg
Þórðarson. Hreint og beint
skemmtileg, ein af þessum tíma-
lausu bókum og þarafleiðandi allt-
af nútímaleg.
Fjallkirkjan eftir Gunnar Gunn-
arsson, til dæmis fyrsta bind-
ið, Skip heiðríkjunnar í þýðingu
HKL. Þungur niður í þessari bók,
skemmtileg með harmrænan und-
irtón, mikill skáldskapur. Ágætt
líka að gefa bókum Halldórs frí,
lesa eitthvað úr Fjallkirkjunni í stað
Sölku Völku, Sjálfstæðs fólks...
Uppvöxtur litla trés eftir For-
rest Carter. Þessi bók er fyndin,
sorgleg, skemmtileg, maður les
hana hindrunarlaust í afbragðs-
þýðingu Gyrðis Elíassonar, og
ekki skemmir fyrir að viðhorf
höfundar og náttúruskynjunin, er
bókstaflega lífsnauðsynleg fyrir
okkar tíma; skynjun sem lesendur
anda að sér og, í sumum tilvikum,
smitast af.
Ástin fiskanna eftir Steinunni
Sigurðardóttur. Heillandi nóvella,
stutt, sem er einn af höfuðkostum
bóka í augum margra nemenda,
ástríðufull, örvæntingarfull og
sár; tilfinningar og kenndir sem
ríma svo vel við þennan aldur.
Kátir voru karlar eftir John Stein-
beck. Tortilla Flat heitir hún á
frummálinu, hugsanlega vanmet-
in bók út af framsetningu og efni,
einskonar ærsl, lífsafstaða sem
angar af kæruleysi, Steinbeck
sagnamaður með góðri blöndu af
því sem seinna var kallað töfra-
raunsæi.
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR
RITHÖFUNDUR
Fyrst dettur mér í hug Einum
kennt, öðrum bent, eftir Þórberg
Þórðarson. Ég var á fyrsta ári í
menntaskóla þegar ég las hana
og hún límist í höfuðið á manni.
Einmitt fóðrið sem maður þarf á
þessum aldri. Svo er hún líka svo
skemmtileg og á köflum fyndin.
Hvunndagshetjan, eftir Auði
Haralds, er mögnuð kennslustund
í þeirri ótrúlegu visku sem felst
í því að hlæja á óviðeigandi stöð-
um. Þetta er hörmungasaga sem
lætur mann verkja í hjartað, en
um leið kemst maður ekki hjá því
að hlæja upphátt af því að Auður,
sem er einn vanmetnasti höfundur
á Íslandi, er svo guðlega fyndin.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar eru
svo mikilvægur hluti af þjóðar-
arfinum að það er varla hægt
að halda því fram að maður sé
Íslendingur ef maður hefur ekki
lesið þær. Helst ættu þær auðvit-
að að vera námsefni í grunnskóla,
en hálffullorðið fólk hefur líka
gott af því að lesa þær aftur og sjá
þær í nýju ljósi.
Afródíta eftir Isabel Allende væri
fínt mótvægi við hina svokölluðu
klámvæðingu. Ísabella er frábær
lovedoktor og svo er hún líka svo
flink að elda. Ungt fólk verður að
læra að elda ef það á að eiga ein-
hverja von um að sleppa undan
ofríki hamborgaranna.
Að lokum myndi ég setja hreina
skissubók á námsskrána. Þar
hefðu nemendurnir frjálsar hend-
ur og gætu hvílt sig á ítroðslunni.
Í lok annar gætu þau skilað henni
inn, með ljóðum, myndum og
stórkostlegum hugmyndum sem
í fyllingu tímans gætu orðið að
ómetanlegri nýsköpun. Eða í það
minnsta gæti svona bók stuðlað að
ómetanlegri nýsköpun og auknu
frelsi í huga okkar efnilegu æsku.
ÁRMANN JAKOBSSON
ÍSLENSKUFRÆÐINGUR
Íslensk orðabók (t.d. Menning-
arsjóðs). Ekkert er brýnna en að
auka orðaforða íslenskra ungl-
inga. Mig dreymir um nýja kyn-
slóð fólks í Sjónvarpi sem drepur
okkur ekki úr leiðindum með því
að klifa á sömu orðunum og setn-
ingunum.
Ljóðmæli Kristjáns Jónssonar
Fjallaskálds. Líf nútímamannsins
er erfitt. En okkar offituvandamál
og illt heilsufar geta aldrei jafn-
ast á við líf Fjallaskáldsins sem
yrkir um dauða, sorg, svik, feigð,
sjúkdóma, ölæði og þar fram eftir
götunum. Þessi bók setur eigin
vandamál í ákveðið samhengi og
af því hafa unglingar gott.
Ulysses eftir James Joyce. Mörg
íslensk ungmenni eru upptekin af
því að bækur og aðrir textar séu
leiðinleg í merkingunni snauð að
viðburðum og hasar. Sá sem hefur
komist í gegnum Ulysses veit að
fátt er skemmtilegra en textar
sem eru einmitt ekki litaðir af
viðburðum og hasar. Þetta er bók
sem breytir öllum sem lesa hana
til enda.
Vive La Revolution! eftir Mark
Steel. Ef auðvaldsskipulagið á
ekki að vera allsráðandi til fram-
búðar þarf að efla hinn sanna
byltingaranda ungu kynslóðarinn-
ar og enginn getur það betur en
Íslandsvinurinn Mark Steel sem
í þessari bók rekur sögu frönsku
byltingarinnar. Jafn fyndinn og
Ricky Gervais og Rowan Atkin-
son, jafn byltingarsinnaður og
Rósa Luxemburg og Che Guevara.
Það er góð blanda.
Bastarðar Voltaires (Voltaire‘s
Bastards) eftir John Ralston
Saul. Í þessari bók lýsir höfund-
urinn því hvernig nútímamenn
(og einkum stjórnmálamenn og
stjórnendur) hafa snúið út úr og
afskræmt skynsemishyggju upp-
lýsingartímans. Ég held að það sé
nauðsynlegt að stúdentsefnin lesi
þetta áður en það er of seint.
Tvær seinustu bækurnar hafa
ekki verið þýddar; ef miða á við
bækur á íslensku þyrfti ég að líta
lengra aftur í tímann því að fátt er
um þýðingar á mikilvægum nýleg-
um bókum um samfélagsmál.
Bækurnar í veganestið