Fréttablaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 74
12. febrúar 2006 SUNNUDAGUR34
Hár og förðunarmódel
18-25 ára óskast
á Sebastian sýningu sem verður haldin
í Borgarleikhúsinu sunnudaginn
19. febrúar kl. 15.00.
Á þessari sýningu sýna erlendir fagaðilar
vor og sumarlínur 2006 frá Sebastian
í hári og förðun.
Skráning er í síma 563 63 00 Anna eða Rósa
Fyrir Miðvikudaginn 15 febrúar.
Kvikmyndatökumaðurinn
Óttar Guðnason hefur vakið
athygli að undanförnu fyrir
frammistöðu sína í mynd-
inni A Little Trip to Heaven
auk þess að hafa nýlega tek-
ið upp fyrir Clint Eastwood.
Freyr Bjarnason hringdi í
hann til Bandaríkjanna og
spurði hann út í ferilinn og
framtíðaráformin.
Óttar stjórnaði tökum á mynd
Baltasars Kormáks, A Little Trip
to Heaven, og þreytti hann þar
frumraun sína sem aðaltökumað-
ur. Áður hafði hann verið á D-
cameru í stórmyndinni Flags of
Our Fathers sem var að hluta til
tekin upp hér á landi í leikstjórn
stjörnunnar Clints Eastwood.
Óttar hefur undanfarin tíu
ár starfað við að taka upp aug-
lýsingar í Bandaríkjunum og er
greinilega orðinn virtur á því
sviði því nú á dögunum tók hann
upp glænýja Pepsi-auglýsingu í
Los Angeles með Evu Longoria úr
þættinum Desperate Housewifes í
aðalhlutverki.
Óttar hefur einnig tekið upp
auglýsingar fyrir stórfyrirtæki á
borð við Sony Playstation, Jagú-
ar, Crysler og Chevrolet. Meðal
annars hefur hann unnið náið
með hinum reynda hollenska leik-
stjóra Jan De Bont sem á að baki
myndir á borð við Speed, Twister
og Tomb Raider.
Longoria er indæl pía
Óttar var nýbúinn að taka upp
Pepsi-auglýsinguna og strax
byrjaður á nýrri með Nascar-
kappakstursmanninum Jimmy
Johnson í aðalhlutverki þegar
blaðamaður náði í hann á milli
takna.
Hann segir að Pepsi-auglýsing-
in hafi verið mjög skemmtilegt
verkefni. „Hún var tekin upp á
baklóð Fox-kvikmyndaversins.
Þar er New York-stræti sem er
búið byggja sem hefur verið þar
í mörg ár. Við vorum þarna í tvo
daga með Evu Longoria þar sem
hún var að drekka Pepsí og labba
í rigningu sem við bjuggum til,“
segir Óttar, og ber Evu vel sög-
una: „Hún er indælis pía.“ Auglýs-
ingin verður frumsýnd í Norður-
og Suður-Ameríku eftir um það
bil tvær vikur en hvort hún verði
sýnd hér á landi verður tíminn
einn að leiða í ljós.
Á framtíðina fyrir sér
Óttar verður 32 ára í sumar og á
því framtíðina fyrir sér í auglýs-
inga- og kvikmyndabransanum.
Hann hóf feril sinn sem tökumað-
ur á Stöð 2 aðeins átján ára og
eftir þriggja ára starf þar færði
hann sig um set til Saga Film þar
sem hann vann í fjögur ár. Eftir
það lá leiðin til Bandaríkjanna og
Evrópu.
Eftir tíu ár í auglýsingabrans-
anum hefur Óttar öðlast mikla
reynslu sem tökumaður og mun
hann væntanlega í auknum mæli
einbeita sér að kvikmyndabrans-
anum fari svo að tilboðin fari nú
að streyma inn þaðan. Þó segist
hann ætla að eyða megninu af
þessu ári í auglýsingarnar, enda
er hann á heimavelli þar.
Þar sem Óttar er aðeins 32 ára
að aldri er ljóst að hann á öll sín
bestu ár eftir ef miðað er við fyr-
irmyndir hans í faginu, kappa á
borð við Darius Khondji (Seven,
Evita, Delicatessen), Janusz Kam-
inski (Munich, Saving Private
Ryan, Schindler´s List) og Conrad
Hall (Road to Perdition, American
Beauty). Kaminski verður 47 ára á
árinu, Khondji 51 árs og Hall lést
fyrir þremur árum 76 ára að aldri.
Allir eiga þeir það sameiginlegt að
hafa slegið í gegn á fertugsaldri í
kvikmyndabransanum og náð að
halda sér á toppnum allar götur
síðan. Vonandi nær Óttar að feta
í fótspor þeirra.
Aukin athygli
Inntur eftir svari segist Óttar
hafa fengið aukna athygli fyrir
þátt sinn í A Little Trip to Heaven.
Hann hafi fengið fyrirspurnir að
utan frá umboðsskrifstofu sinni
í Bandaríkjunum en ekkert hafi
verið neglt niður enn sem komið
er. Hann er ánægður með við-
brögðin við myndinni. „Myndin er
búin að fá mjög góða dóma heima
og mjög góða krítík fyrir alla
tækniútfærslu, hljóð og mynd og
annað. Það er ekki annað hægt en
að vera ánægður með það,“ segir
hann.
Vill ekki að verða leikstjóri
Jan De Bont, sem Óttar hefur
starfað talsvert með í gegnum
árin, sló í gegn í Hollywood sem
leikstjóri eftir að hafa starfað í
fjöldamörg ár sem kvikmynda-
tökumaður. Hann tók upp mynd-
ir á borð við Die Hard, Basic
Instinct, Leathal Weapon 3 og The
Hunt For Red October og var einn
sá heitasti í faginu. Þá ákvað hann
að söðla um og snúa sér að leik-
stjórn með góðum árangri.
Óttar segist ekki ætla að feta
sömu slóð og Bont og gerast leik-
stjóri. „Það heillar mig engan
veginn. Ég hef engan metnað til
að fara í þá átt. Ég hef bara gríð-
arlega gaman af því sem ég er að
gera og vil halda áfram á því sviði.
Þetta er mjög fjölbreytt starf,“
segir Óttar og nefnir sem dæmi
að tökumenn geti tekið að sér mun
fleiri verkefni á hverju ári heldur
en leikstjórar.
Gaman að vinna með Eastwood
Óttar segir að samstarfið við
Clint Eastwood við gerð Flags of
Our Fathers hafi verið mjög gott.
„Þetta gekk bara mjög vel og það
var gríðarlega gaman að vinna
með honum,“ segir hann. Hvort
hann muni starfa aftur með þess-
um merka leikstjóra verði tíminn
aftur á móti að leiða í ljós. „Ég
væri náttúrulega meira en til í
það ef sú staða kæmi upp aftur.“
Spáir Dion Bebe sigri
Óskarsverðlaunin verða afhent
í Hollywood í 78. sinn sunnudag-
inn 5. mars. Fjölmargar myndir
eru tilefndar en fáar útnefnd-
ar og telur Óttar að Brokeback
Mountain í leikstjórn Ang Lee
verði fyrir valinu sem besta
myndin. Hann er þó ekki á því að
hún fái verðlaun fyrir bestu kvik-
myndatökuna. „Ég hefði gjarnan
viljað sjá Januz Kaminski til-
nefndan fyrir Munich en af þeim
sem eru tilnefndir þykir mér lík-
legast að Dion Bebe hljóti titilinn
fyrir kvikmyndatöku í Memories
of Geisha,“ segir Óttar.
Hefur gríðarlega
gaman af starfinu
VIÐ TÖKUR Óttar tók nýverið upp Pepsi-auglýsingu með Evu Longoria úr þættinum Desperate Housewifes í aðalhlutverki.
Í LAUSU LOFTI Óttar hefur starfað mikið í Bandaríkjunum og Evrópu undanfarin tíu ár, mest
við tökur á hinum ýmsu auglýsingum.
Í ÞYRLU Kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason í þyrlu við tökur. Hann hefur verið afar
upptekinn að undanförnu.