Fréttablaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 79
SUNNUDAGUR 12. febrúar 2006
UR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS LEI
KUR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS LE
IKUR SMS LEIKURSMS L
Meistaradeildin í 100% beinni! Henry vs. Beckham • Ars
enal vs. Real Madrid
9. hver vinnur! Ferð þú á leikinn?
Léttöl
Vinningar verða afhentir í Skífunni Smáralind/Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Carlsberg býður þér og vini þínum
á Highbury að sjá
Arsenal vs Real Madrid 8. mars!
Sendu SMS skeytið JA SPORT á nú
merið
1900 og þú gætir unnið.
Við sendum þér 2 spurningar.
Þú svarar með því að senda
SMS skeytið JA A, B eða
C á númerið 1900.
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á
leikinn*
• PS2 tölvu
• PSP tölvu
• Fótbolta tölv
uleiki
• Fullt af DVD
og
tölvuleikjum og
fleira!
*Ferðin á leikinn erdreginn úr ölluminnsendum skeytumþann 6. mars.Vinningshafi verður birtur á www.gras.is
Navision Small Business er öflugur viðskiptahugbúnaður
sem heldur utan um allar viðskipta- og fjárhagsupplýs-
ingar fyrirtækisins og gefur þér skjótan aðgang að öllu
sem þú þarft að vita til þess að hámarka framlegð og ná
fram hagræðingu í rekstri.
• Fjárhagsgrunnur
• Fjárhagsbókhald
• Viðskiptamenn
• Sölureikningar
• Lánardrottnar
• Birgðir
Maritech er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með skrifstofur í Kópavogi
og á Akureyri. Hjá okkur starfar stór hópur vel menntaðra sérfræðinga sem notar
upplýsingatæknina til þess að hjálpa þér að ná betri árangri. Maritech hefur þróað
fjölda viðbóta við Navision viðskiptahugbúnaðinn sem eru lagaðar að þörfum
íslenskra fyrirtækja.
Einfalt og þægilegt viðmót
Einföld uppsetning
Íslenskar handbækur
Staðlaðir bókhaldslyklar
Miklir stækkunarmöguleikar
Tenging við aðrar lausnir
Fjöldi viðbótarlausna
Microsoft samhæft
Aðgangur að þjónustuborði
Fjöldi námskeiða í boði
Hringdu núna í síma 545-3200
Fjárfesting til framtíðar
Þú þarft að
þekkja eigin rekstur
til að geta keppt við aðra
Verð frá kr. 130.900*
Öll verð eru án vsk. *Verð miðast við einn notanda
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar
styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja sér menntun eða kynna sér þjálfun erlendis.
Veittir verða 10 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000.-
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns
hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur
eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina. Styrkhæfar teljast umsóknir vegna
ferða/námskeiða á tímabilinu 1. janúar 2006 til 30. júní 2006.
Tekið er við umsóknum á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem skal skilað til
skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir mánudaginn 6. mars nk.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal og á
heimasíðu ÍSÍ – www.isisport.is
Vor 2006
FÓTBOLTI Stærsti leikur tímabils-
ins á Ítalíu fer fram í kvöld þegar
Inter tekur á móti Juventus. Þarna
mætast tvö efstu lið deildarinnar
og má reikna með hörkuleik en ef
Inter sigrar minnkar bilið í topplið
Juventus niður í sex stig en með
tapi má segja að Juventus sé komið
með aðra höndina á bikarinn.
„Þessi leikur er gríðarlega
mikilvægur fyrir bæði lið. Þegar
ég var í Egyptalandi horfði ég á
alla leiki Inter í sjónvarpinu og
fannst óþægilegt að geta ekki
tekið þátt,“ sagði nígeríski lands-
liðsmaðurinn Obafemi Martins
sem snýr aftur í lið Inter eftir að
hafa verið að spila á Afríkumót-
inu. Hans hefur verið sárt saknað
í liði Inter og líklegt að hann byrji
við hlið Adriano í kvöld.
Javier Zanetti, fyrirliði Inter,
hefur biðlað því til dómara leiks-
ins að hann leggi sig allan fram í
leiknum. „Það er alltaf hart bar-
ist þegar þessi tvö lið mætast og
mikið af vafaatriðum sem koma
upp. Því miður hefur hallað á
okkur í þessum vafaatriðum í síð-
ustu viðureignum við Juventus,“
sagði Zanetti en Inter tapaði
síðasta deildarleik sínum fyrir
Fiorentina 2-1 í síðustu viku.
Juventus hefur ekki verið
jafn sannfærandi upp á síðkast-
ið og liðið var í byrjun tímabils.
Sóknarmennirnir Zlatan Ibrahim-
ovic og David Trezeguet hafa ekki
verið mjög beittir í síðustu leikj-
um en á miðvikudag gerði liðið
1-1 jafntefli við Parma. Gianluca
Zambrotta meiddist í þeim leik og
verður ekki með Juventus næstu
þrjár vikurnar.
Búast má við því að Gianluca
Paparesta, dómari leiksins, hafi í
nógu að snúast í kvöld en leikur-
inn verður í beinni útsendingu á
Sýn.
- egm
Stórleikur Inter og Juventus fer fram í kvöld:
Toppslagur á Ítalíu
MIKILVÆGUR LEIKUR Dejan Stankovic
og Pavel Nedved ræða saman í viðureign
liðanna í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Valur er komið áfram
í áskorandakeppni Evrópu eftir
góðan 37-29 sigur á HC Athinia-
kos en leikurinn fór fram í Grikk-
landi í gær. Valsstúlkur töpuðu
fyrri leiknum 26-24 en bitu held-
ur betur frá sér í seinni leiknum
og unnu rimmuna samtals 61-55.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals,
var virkilega ánægður með sigur-
inn en átta liða úrslit keppninnar
fara fram í mars.
„Ég er mjög ánægður með
þennan sigur, það var fyrst og
fremst liðsheildin sem skóp sigur-
inn en stemningin í liðinu er frá-
bær,“ sagði Ágúst við Fréttablaðið
eftir leikinn í gær. „Við vorum að
spila mjög vel og náðum fljótlega
fimm marka forystu. Allt gekk
upp bæði í vörn og sókn og núna
duttu dauðafærin inn í stað þess
að leka út eins og þau gerðu í fyrri
leiknum. Við misstum aðeins tökin
á þessu undir miðjan síðari hálf-
leik og heimastúlkur náðu að koma
þessu niður í tvö mörk. Þá skiptum
við um vörn, fórum í 5-1 og við það
riðlaðist þeirra leikur. Við skoruð-
um helling af mörkum úr hraða-
upphlaupum á lokasprettinum og
gengum frá þeim. Við spiluðum
hraðan leik og sprengdum þær
gjörsamlega,“ sagði Ágúst.
„Við munum líklega mæta mjög
sterku liði í átta liða úrslitunum
en þó eru þarna lið inni á milli
sem við eigum góða möguleika
gegn. Eitt er ljóst að um hörku-
leiki verður að ræða og við bíðum
bara spennt eftir næstu áskorun,“
sagði Ágúst að lokum. - hþh
Valur lagði gríska liðið Athiniakos 37-29:
Valsstúlkur réðu
vel við áskorunina
DRÍFA SKÚLADÓTTIR Drífa er hér í leik gegn Stjörnunni en hún skoraði eitt mark í leiknum í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM