Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 81

Fréttablaðið - 12.02.2006, Qupperneq 81
Vofa gengur nú ljósum logum í knattspyrnuheimi Evrópu – vofa eiganda knattspyrnuliðanna. Þegar rétt tæpir tveir þriðju hlut- ar leiktíðarinnar eru liðnir og lín- urnar eru farnar að skýrast fyrir lokasprettinn í deildinni hefur gripið um sig mikil taugaveiklun meðal eiganda liðanna og fær nú hver þjálfarinn á fætur öðrum að fjúka. Og skiptir litlu hvað menn heita og höfðu afrekað fyrrum. Þannig fengu tveir ungir og stórefnileg- ir þjálfarar að fjúka í Serie A í vikunni, þeir Roberto Donadoni hjá Livorno og Serse Cosmi hjá Udinese. Frægasti og sigursælasti þjálf- ari ítalskrar knattspyrnusögu, Giovanni Trapattoni, fékk sömu- leiðis að taka pokann sinn hjá Stuttgart í Þýskalandi. Þessir brottrekstrar voru mál málanna í vikunni á Ítalíu í bland við mikinn styr um ummæli Fabios Capello um vist sína á Spáni þótt ekki þurfi Capello að óttast um atvinnuöryggi sitt, eflaust enginn þjálfari í dag í traustara sæti nema kannski José „Kristur“ Mourinho hjá Chelsea. Donadoni móðgaðist Atgangurinn í kringum Capello sýnir hversu mikil áhrif pólitísk- ar rétthugsunar eru orðin í press- unni. Capello sagðist í viðtali hafa notið mjög dvalar sinnar á Spáni þennan eina vetur sem hann stýrði Real Madrid fyrir réttum áratug. Samfélagið hefði verið dýnamískt, skipulagðra en hann hefði átt von á og að honum hafi þótt Ítalía hálf sofandi í sam- anburðinum. Einhverjir túlk- uðu orð hans um spænska skipu- lagið á þann hátt að hann væri að hrósa Franco ein- ræðisherra og skósveinum hans fyrir að skilja Spán eftir í góðum hönd- um. Capello brást reiður við, sagðist alla tíð hafa verið hat- rammur andstæðingur fasista og minnti á að faðir hans hefði dvalið í fangabúðum nasista á stríðsárunum. Serse Cosmi hefur náð miklu út úr litlu hjá liðum sínum en í þetta sinnið gekk honum flest í mót, Udinese nú í tólfta sæti og brottreksturinn kom ekki á óvart. Uppsögn Robertos Donadoni var hinsvegar óvænt og málatilbúnaður hjá Livorno svo dásam- lega sérítalskur og kóm- ískur að fáránleikinn kallaði fram bros hjá öllum nema aðdáendum félagsins. Donadoni hefur náð að kreista fram ótrú- lega mikið úr liðinu, það er nú í sjötta sæti og á góða möguleika á Evrópusæti. Að auki hefur Livorno spilað mjög góðan fótbolta og þótti Donadoni afsanna þá kenningu að sókndjarf- ir leikmenn yrðu oft varnarsinn- aðir þjálfarar. En uppá síðkastið hefur heldur hægt á siglingunni og um síðustu helgi gerði liðið jafn- tefli við Messina. Dómgæslan í þeim leik var sikileyingunum mjög hagstæð og hafa bæði dómarinn og annar línu- varðanna fyrir vikið verið settir útaf sakaramenntinu hjá ítalska knattspyrnusambandinu. Úrslitin svo ósanngjörn sem mest mátti vera en það róaði ekki hinn skaps- tóra eiganda Livorno Aldo Spinelli sem réðst með harkalegum hætti á Donadoni í sjónvarpinu á mánu- dagskvöldið. Donadoni móðgaðist og sagði af sér strax morguninn eftir. Fyrir- liðinn og markamaskínan Christi- an Lucarelli reyndi að telja honum hughvarf og hann og umboðsmað- ur hans bentu Donadoni á að það ætti aldrei að taka mark á Spinelli fyrstu þrjá dagana eftir tapleik, það hefði verið vinnuregla hjá þjálfurum Livorno í gegnum tíðina að taka ekki mark á Spinelli eftir leik helgarinnar fyrr en í fyrsta lagi á fimmtudegi! Jafnteflin felldu Trap Giovanni Trapattoni var nýlega valinn í lið allra tíma hjá AC Milan hjá vefnum Football Italia. Ekkert pláss í því liði fyrir Donadoni sem var þó miklum mun flinkari spil- ari. Trap lék í 11 ár með Milan og hóf þjálfaraferil sinn hjá þar. Hann er í hópi fimm sigur- sælustu þjálfara heims og aðeins einu sinni á þrjátíu ára ferli hafði honum verið sagt upp áður, er hann gerði misheppnaða tilraun til að rífa Cagliari upp fyrir tíu árum. Varfærni Trapattonis hefur aukist með árunum, hann náði að steingelda hið annars nánast ófrjóa ítalska landslið og tólf jafntefli í tuttugu leikjum Stuttgart voru of mikið fyrir hina annars þolinmóðu Þjóðverja. En Trap er ódrepandi og þrátt fyrir árin 66 segist hann ekki hættur. xxxx xxxxdxx xxxxxxx Svona er hausinn á pistlum Einars Loga EINAR LOGI VIGNISSON: XXXXXX EINAR LOGI VIGNISSON: SKRIFAR UM BOLTANN Á ÍTALÍU OG SPÁNI Ekki tala við Spinelli fyrri hluta vikun ar FÓTBOLTI Arsene Wenger, stjóra Arsenal, var boðið að taka við enska landsliðinu árið 2000 þegar Kevin Keegan hrökklaðist úr starfi. Wenger var tekinn fram yfir núverandi stjóra landsliðsins, Sven Göran Eriksson, sem mun hætta með landsliðið eftir heims- meistaramótið í sumar. „Ég var beðinn að taka við starfinu en ég gaf þeim alltaf sama svar þar sem landsliðið snýst ekki alfarið um fótbolta, hann fer saman með menningu þjóðarinnar og þjóðarstoltinu,“ sagði Wenger og bætti við að sér þætti eðlilegast ef stjórinn væri enskur. „Landsliðið er mjög mikilvægt fyrir fólk, það sést á áhuganum þegar liðið er í sjónvarpinu. Þetta snýst ekki aðeins um fótboltann, ef England væri að spila gegn Færeyjum myndi það samt laða að fleiri áhorfendur en þegar Liver- pool mætir Arsenal.“ - hþh Arsene Wenger, stjóri Arsenal: Boðið að taka við enska landsliðinu ARSENE WENGER Hefði getað tekið við enska landsliðinu.NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Enska úrvalsdeildin WIGAN - LIVERPOOL 0-1 0-1 Hyppia (30) ARSENAL - BOLTON 1-1 0-1 Nolan (12), 1-1 Silva (90) ASTON VILLA - NEWCASTLE 1-2 0-1 Ameobi (12), 1-1 Moore (16), 1-2 Zogbia (29) FULHAM - WEST BROMWICH 6-1 1-0 Heiðar (4), 2-0 Heiðar (40), 3-0 Radzinski (48) 4-0 Sjálfsmark (58), 5-0 John (83) EVERTON - BLACKBURN 1-0 1-0 Beattie (33) MIDDLESBROUGH - CHELSEA 3-0 1-0 Rochemback (2), 2-0 Downing (45), 3-0 Yakubu (68) PORTSMOUTH - MAN. UTD. 1-3 0-1 Nistelrooy (18), 0-2 Ronaldo (38), 0-3 Ron- aldo (45), 1-3 Taylor (87) STAÐA EFSTU LIÐA CHELSEA 26 21 3 2 52-16 66 MAN. UTD 26 16 6 4 52-27 54 LIVERPOOL 25 14 6 5 31-17 48 TOTTENHAM 25 12 8 5 34-21 44 ARSENAL 25 12 5 8 39-20 41 BOLTON 24 10 9 5 30-23 39 WIGAN 26 12 3 11 30-32 39 WEST HAM 25 11 5 9 36-34 38 BLACKBURN 25 11 4 10 31-31 37 EVERTON 26 11 3 12 19-32 36 MAN CITY 25 10 4 11 33-28 34 Enska 1. deildin: BRIGHTON - LEICESTER 1-2 Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliðinu hjá Leicester í leiknum og lék hann til enda. CARDIFF - STOKE 3-0 Hannes Þ. Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Stoke. DERBY - LEEDS 0-0 Gylfi Einarsson var allan tímann á bekknum. HULL - NORWICH 1-1 IPSWICH - BURNLEY 2-1 PLYMOUTH - SHEFF UTD 0-0 PRESTON - LUTON 5-1 QPR - MILLWALL 1-0 SHEFF WED - CRYSTAL PALACE 0-0 WATFORD - COVENTRY 4-0 WOLVES - CREWE 1-1 STAÐA EFSTU LIÐA READING 33 25 7 1 72-19 82 SHEFF UTD 33 21 7 5 59-32 70 WATFORD 33 17 10 6 61-38 61 LEEDS 32 17 8 7 44-25 59 PRESTON 32 13 15 4 44-23 54 CR.PALACE 32 15 8 9 45-31 53 Þýska úrvalsdeildin BIELEFELD - STUTTGART 2-1 1-0 Boakye (31), 1-1 Magnin (37), 2-1 Boakye (50) DUISBURG - MUNCHENGLADBACH 1-1 1-0 Lavric (4), 1-1 Svensson (20) FRANKFURT - HANNOVER 0-1 0-1 Yankov (78) HAMBURGER - MAINZ 1-0 1-0 Mahdavikia (6) SCHALKE - BAYER LEVERKUSEN 7-4 1-0 Larsen (9), 2-0 Krstajic (17), 3-0 Bajramov- ic (34), 3-1 Voronin (40), 3-2 Berbatov (50), 4-2 Kuranyi (55), 5-2 Larsen (63), 5-3 Voronin (64), 5-4 Krzynowek (70) 6-4 Lincoln (76), 7-4 Asam- oah (81) WERDER BREMEN - KAISERSLAUTERN 0-2 0-1 Sanogo (71), 0-2 Skela (88) WOLFSBURG - HERTHA BERLÍN 1-1 0-1 Marcelinho (víti 32), 1-1 Hofland 63. ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Íslenski landsliðsmað- urinn Heiðar Helguson fór svo sannarlega á kostum í gær þegar lið hans Fulham gjörsigraði West Bromwich Albion 6-1 í ensku úrvalsdeildinni á heimavelli sínum. Heiðar skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum og þá átti hann stóran þátt í öðru marki sem var skráð sjálfsmark hjá varnar- manni West Brom. Annað mark Heiðars var sérstaklega fallegt en þá skoraði hann með hörku- skalla. Hann hefur nú gert átta mörk á leiktíðinni og er svo sann- arlega búinn að sýna sig og sanna hjá félaginu. Chris Coleman hrósaði sókn- arparinu Brian McBride og Heið- ari eftir leikinn. „Þeir eru stórir og sterkir strákar sem gefa varn- armönnunum engan frið,“ sagði Coleman. Liverpool komst aftur á beinu brautina með því að leggja Wigan 1-0 með fyrsta marki Sami Hyyp- ia á leiktíðinni. „Við þurftum að leggja mikið á okkur til að ná þessum sigri og við sýndum mikinn karakter með því að ná honum. Þessi sigur var sérstak- lega mikilvægur fyrir okkur þar sem úrslitin í undanförnum leikj- um hafa verið mjög neikvæð. Þetta er mikilvægt fyrir sjálfs- traust leikmannanna,“ sagði Rafael Benítez, knattspyrnu- stjóri Liverpool. Óvæntustu úrslit gærdagsins voru án nokkurs vafa í leik Midd- lesbrough gegn Chelsea en þar töpuðu Englandsmeistararnir 3- 0. „Á tíma mínum með Chelsea í úrvalsdeildinni er þetta í þriðja sinn sem ég þarf að horfa upp á ósigur. Það er ekki nokkur vafi á því að þetta var sá versti af þeim. Við áttum ekki skilið að tapa hinum tveimur leikjunum en það er hins vegar ljóst að við áttum ekki skilið að fá neitt út úr þess- um leik,“ sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Steve McClaren, stjóri Midd- lesbrough, getur farið að anda léttar en fyrir þennan leik hafði liðið aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum. „Þrátt fyrir alla erfiðleikana hefur liðið allt- af staðið saman og andinn verið góður. Við vorum verðlaunaðir fyrir það í þessum leik,“ sagði McLaren. Glenn Roeder hefur verið að gera góða hluti með Newcastle United en hann stýrir félaginu til bráðabirgða. Í gær vann félag- ið annan leik sinn í röð þegar það bar sigurorð á útivelli gegn Aston Villa 2-1. Shay Given, markvörður Newcastle, varði vítaspyrnu frá Milan Baros í stöðunni 1-1. „Þetta var ekki sanngjarn sigur hjá Newcastle. Við gáfum þeim tvö mörk á silf- urfati en annars stjórnuðum við seinni hálfleiknum algjörlega,“ sagði David O‘Leary, stjóri Aston Villa en Roeder var honum ekki sammála. Manchester United minnkaði forystu Chelsea niður í tólf stig með því að vinna Portsmouth 3-1 þar sem Cristiano Ronaldo skor- aði tvívegis en United var með þriggja marka forystu í hálfleik. - egm Heiðar með stórleik fyrir Fulham Heiðar Helguson átti sannkallaðan stórleik fyrir Fulham í gær þegar liðið vann stórsigur á West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni. Middlesbrough vann mjög óvæntan 3-0 sigur á meisturunum í Chelsea. HEIÐAR Í STUÐI Heiðar Helguson hefur nú skorað átta mörk fyrir Fulham á leiktíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.