Fréttablaðið - 12.02.2006, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
��������������
�����������
����������������������������
������������
���������������������
������������
��������������������������� �����������
�������������
������������
�������������������
������������ �������������� ����������
�������������������������������
����������������������������������
��������������������������������
�����������������������
�����
����������
����
�����������
����
������������
��������������������
����
�����
�������
����
��������
������������
�����������
����������
�
�������������������������
���
Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
Fullorðinsverð frá:7.995 kr.
*Aðra leið með sköttum. Gildir fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum
www.icelandexpress.is
STOKKHÓLMUR
GAUTABORG
Gautaborg er önnur stærsta
borg Svíþjóðar. Heimamönnum
þykir hún alveg passlega stór
og kalla hana „heimsborg með
smábæjarsjarma“ sem er býsna
nálægt tilfinningu þeirra sem
borgina heimsækja.
Gautaborg er stundum kölluð San Fransisco Svíþjóðar enda er
mikið um hæðir, brýr, sporvagna og sjávarréttastaði í báðum
borgum. Samgöngur til og frá Gautaborg eru með þægilegasta
móti; hægt er að taka ferjuna til og frá helstu nærliggjandi
ferðamannastöðum þar sem tilvalið er að hafa það huggulegt og
leigja sumarhús eða gista á hóteli.
Að ganga um miðbæinn er dásam-
legt og þröngar götur Gamla Stan
eru eins og sögusvið ævintýris.
Skerjagarðurinn er skammt undan
og þar er að finna fjölda lítilla eyja
með notalegum sumarhúsum sem
hægt er að leigja með lítilli fyrir-
höfn og kostnaði.
Eins og flestir Íslendingar vita
er Stokkhólmur á austur-
strönd Svíþjóðar. Yndisleg
borg sem teygir sig langt út
á sundin eða út á ellefu eyjar.
NÝTT
NÝTT
3.–6. júní
Stockholm Marathon
1.–6. júní
The Restaurants’ Day – A
Taste of Stockholm
Veisla fyrir bragðlaukana í heila viku.
18.–22. júlí
Stockholm Jazz Festival
Heimsþekktir djassleikarar koma saman
og leggja borgina undir sig.
31. júlí–6. ágúst
Stockholm Pride
Regnbogahátíð homma og lesbía í heila
viku!
MAMMA MIA!
Söngleikur eftir Björn og Benny sem
gengur og gengur.
6.–13. ágúst
Göteborgskalaset
Sumarhátíð! Tónlist, góðar veitingar og
stemning um alla borg!
Liseberg skemmtigarðurinn
Stanslaust fjör fyrir alla fjölskylduna í allt
sumar.
Nóg að gerast
í Gautaborg:
Nóg að gerast
í Stokkhólmi:
Frændur vorir Svíar bjóða
Íslendinga velkomna á tvo
nýja áfangastaði Iceland
Express!
SVÍÞJÓÐ
Robbie Williams í Gautaborg
Magnaðir tónleikar á Ullevi-
leikvanginum.
Nánar á www.expressferdir.is
MEÐ EXPRESS FERÐUM:
2.–5. júlí
Stórkostlegi Stokkhólmur!
Skoðunarferðir, góður matur og góður
félagsskapur. Íslensk fararstjórn. Nánar
á www.expressferdir.is
MEÐ EXPRESS FERÐUM:
19.–26. maí, 30. júní–2. júlí og 11.–13. ágúst
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
�����������������������
Sonur félaga míns byrjaði einn laugardaginn sem oftar á morg-
unsjónvarpinu með Afa og endaði
síðan daginn á Spaugstofunni. Það
fylgdi sögunni að hann hefði virst
mjög hugsi þegar hann lagðist til
svefns umrætt kvöld. Morguninn
eftir bað hann pabba sinn um blað
og penna, settist síðan niður og
skrifaði bréf. Pjakkurinn var sex
ára og ný orðinn skrifandi og því
voru foreldrarnir mjög spenntir
að sjá afraksturinn af fyrsta form-
lega bréfinu. Hann olli þeim ekki
vonbrigðum.
MEÐ skiljanlega bjagaðri staf-
setningu og lítilli sem engri virð-
ingu fyrir háum og lágum stöfum
gátu þau greint eftirfarandi skila-
boð. „Kæri Afi (í morgunsjónvarp-
inu). Ég veit núna hver þú ert. Þú ert
Davíð Oddsson.“ Félagi minn sagði
mér að þau hefðu sent bréfið en ég
gleymdi að spyrja hvort þau sendu
það Erni Árna eða Davíð Oddssyni.
BÖRN eru að mínu áliti fyndnasta
fólk í heimi og þá helst þegar þau
eru alls ekki að reyna það. Hrein-
skilnin er oft alveg óborganleg en
getur líka verið hrein kvöl og pína.
Sonur minn hefur ósjaldan gert
mig kjaftstopp og á vissu tímabili
fékk ég köld svitaköst um leið og
við feðgar stigum inn í anddyri
sundlauga bæjarins.
Í eitt skiptið sátum við í heita pott-
inum ásamt fleirum. Ég tók eftir
því að syni mínum var starsýnt
á íturvaxna konu sem sat beint á
móti honum. Þegar ég sá höndina
á honum lyftast með vísifingur
útréttan ætlaði ég að bregðast við
en var of seinn. Rödd hans gnæfði
yfir alla: „Pabbi, sjáðu hvað þessi
kona er feit.“ Á sekúndubroti íhug-
aði ég þann valkost að láta mig síga
niður í pottinum og reyna að halda
út í tíu til fimmtán mínútur undir
vatnsyfirborðinu en kaus þess í
stað að snúa mér að syni mínum, og
þar með baki í alla aðra í pottinum,
og segja hátt og snjallt við hann (og
nærstadda): „Það er ljótt að benda
á fólk og segja að það sé feitt.“
„Nú?“ svaraði hann, leit yfir öxl-
ina á mér á konuna. Svo lyfti hann
aftur höndinni, benti á manninn við
hliðina á henni og sagði jafnhátt og
áður: „Sjáðu manninn við hliðina á
henni, hann er ekki svona feitur.“
SÍÐAN þetta gerðist hef ég eytt
miklu púðri í að útskýra fyrir
honum kurteisi og tillitssemi sem
mér finnst hafa skilað miklum
árangri. Hann er orðinn sjö ára og
er farinn að gera sér grein fyrir að
sumt sé óviðeigandi að segja, þó
satt sé. Kannski gæti álíka barna-
leg blanda af tillitssemi, kurteisi en
jafnframt hreinskilni orðið nýjum
ritstjórum DV gott veganesti.
Speki æskunnar