Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 4
4 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR VESTURBAKKINN, AP Fyrsti þing- fundur nýkjörins löggjafarþings Palestínumanna endaði í rifrildi í gær. Ástæðan var tilraun þing- manna Hamas-hreyfingarinnar til að fella úr gildi ákvarðanir fyrri heimastjórnar landsins sem Fatah-hreyfingin fór fyrir, en þeim var ætlað að minnka vald þingmeirihluta Hamas. Talið er að þetta dragi enn úr líkum á því að Fatah-hreyfingin, sem Mahmoud Abbas forseti Pal- estínu tilheyrir, fallist á stjórnar- þátttöku með Hamas. Forystu- menn Hamas gera sér samt vonir um að ljúka stjórnarmyndunar- viðræðum í vikunni. Talsmenn Hamas afþökkuðu um helgina stuðning al-Kaída hryðjuverkasamtakanna. Í ræðu sem sjónvarpsstððin al-Jazeera sjónvarpaði á laugardag gaf Ayman al-Zawahri, annar æðsti yfirmaður samtakanna, í skyn stuðning við Hamas og klappaði hreyfingunni lof í lófa fyrir að neita að viðurkenna tilverurétt Ísraels. Ónafngreindur talsmaður Hamas-hreyfingarinnar tjáði fréttamönnum AP að hreyfingin hefði ákveðið að bregðast ekki formlega við orðum al-Zawahri, en bætti við að hugmyndafræði Hamas væri mun mildari en al- Kaída. - smk Fyrsti þingfundur nýkjörins Palestínuþings: Endaði með handalögmálum ISMAIL HANIYEH Væntanlegur forsætisráð- herra palestínsku heimastjórnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 6.3.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 65,87 66,19 Sterlingspund 115,63 116,19 Evra 79,26 79,7 Dönsk króna 10,619 10,681 Norsk króna 9,917 9,975 Sænsk króna 8,374 8,424 Japanskt jen 0,5616 0,5648 SDR 95,06 95,62 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 111,1007 LONDON, AP Ekkert bendir til þess að brögð hafi verið í tafli í bílslys- inu sem varð Díönu Bretaprins- essu að bana árið 1997. Þetta kemur fram í rannsókn sem breska ríkið hefur látið gera á dauða prinsess- unnar. Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknarinnar samræmast því franskri rannsókn sem gerð var eftir dauða prinsessunnar. Hún, unnusti hennar Dodi Fayed og bíl- stjórinn, Henri Paul, létust öll þegar Paul, sem var drukkinn, missti stjórn á bílnum í París. Faðir Fayeds hefur löngum sagst gruna bæði Karl Bretaprins og föður hans, Filippus drottningar- mann, um að hafa ákveðið að láta ráða prinsessuna og unnusta henn- ar af dögum. - smk Dauði Díönu prinsessu: Banaslysið var ekki samsæri DÍANA PRINSESSA Ný skýrsla sýnir að ekkert bendi til morðs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VÍNARBORG, AP Yfirmaður Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar, Mohamed ElBaradei, sagði í gær að alþjóðlegt samkomulag um kjarnorkuáætlun Írana gæti náðst á næstu dögum og það án afskipta öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna. Bjartsýni ElBaradeis var talin byggjast á viðræðum Rússa og Írana bak við luktar dyr í höfuð- stöðvum stofnunarinnar í Vínar- borg í gær, en heimildarmenn AP- fréttastofunnar hermdu að Rússar hefðu boðið Írönum að stunda tilraunir með auðgun úrans í Rússlandi en halda samt áfram minni háttar starfsemi við það sama heima í Íran. „Ég er enn mjög vongóður um að samkomulag geti náðst í næstu viku,“ tjáði ElBaradei frétta- mönnum, án þess að skýra þessi orð sín frekar. Hins vegar var fastlega búist við því að þessi málamiðlunartil- laga Rússa félli í grýttan jarðveg hjá Bandaríkjastjórn þegar rúss- neski utanríkisráðherrann Sergei Lavrov fer til að ræða hana við ráðamenn í Washington síðar í vikunni. Bandaríkjastjórn óttast að slík málamiðlun myndi gera Írönum kleift að framleiða á laun efni í kjarnorkuvopn. Samkvæmt rússnesku tillög- unni er gert ráð fyrir að Írönum verði heimilað að auðga úran upp að marki sem Alþjóðakjarnorku- málastofnunin ákveddi og fylgd- ist með að yrði virt. Þannig yrði Írönum gert kleift að framleiða eldsneyti til raforkuframleiðslu, en ekki upp að því marki sem nýt- anlegt væri í kjarnorkusprengju. Þessi nýja tillaga Rússa virtist ætla að valda nokkurri sundr- ungu í röðum annarra helstu aðila deilunnar. Þýska stjórnin lýsti varkárum stuðningi við hana, en Frakkar og Bretar voru óhaggað- ir í andstöðu ásamt Bandaríkja- mönnum. Deilan um kjarnorkuáætlun Írana verður áfram efst á dag- skrá stjórnarfundar IAEA fram eftir vikunni, en fundurinn hófst í Vínarborg í gær. 35 ríki eiga full- trúa á fundinum. Íranar hafa hótað þvi að hefja skefjalausa auðgun úrans ef mál þeirra kemur til kasta öryggis- ráðsins. Það getur ákveðið þving- unaraðgerðir gegn Íran. audunn@frettabladid.is LANDFLÓTTA ÍRANAR MÓTMÆLA Landflótta Íranar mótmæltu kjarnorkuáformum klerkastjórnarinnar hástöfum fyrir utan höfuðstöðvar IAEA í Vín í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ElBaradei bjartsýnn á sátt Á fyrsta degi spennuþrungins stjórnarfundar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í gær lýsti yfirmaður stofnunarinnar yfir bjartsýni á að samkomulag væri mögulegt á næstu dögum án afskipta öryggisráðs SÞ. MOHAMED ELBARADEI Yfirmaður Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ������������������������������������������������������������������ ������������� ���� �������� �� �������� ������ ����� ������ ��������� ������ ��������� �������� ������ �������� ������������� ��������������� ������������������� ������������������ ����������������� ���������������� ������������������ ����������������� ��������������� ��������������� ����������������� ���������������� ��������������� ���������������� ���������������� ����������� �������������� �������� ������ ������������������� ������ ������������� ��������������� ������������������ ��������������������� ��������������������� ������������������� � ������������������ ��������������������� ���������������� ����������������� ����������� ��������������������� ����������������� ��������������� ���������������� ��������������������� ������������������� ���� ��������� ���������� �� �� ������������������� ������������������� �������������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� � � � � � �� � � � � � � � � � � � �� �� �� � � � �� � � �� � � �� � www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express VERÐ 39.900 kr. INNIFALI‹: 16.–18. APRÍL Lið Reading hefur farið á kostum á þessu tímabili og eru á hraðri leið upp í ensku úrvalsdeildina. Ívar Ingimarsson og Brynjar Gunnarsson leika báðir með liði Reading og nú er það Íslendingaliðið Stoke sem kemur í heimsókn. Hörkuspennandi Íslendingaslagur! Flug og flugvallaskattar, 2 nætur á hóteli með morgunverði og VIP-miði á leikinn. Miðað er við að tveir séu saman í herbergi. READING–STOKE FÓTBOLTAFERÐ TIL LONDON Ofsahraði á Reykjanesbraut Lögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði bifreið sem mældist á rúmlega 200 kíló- metra hraða á Reykjanesbrautinni um hálftólfleytið í fyrrakvöld. Ökumaðurinn, sem er 22 ára gamall, var á kraftmiklum fólksbíl og með tvo farþega í bílnum þegar lögreglan stöðvaði hann. LÖGREGLUFRÉTT STJÓRNMÁL „Ég vona að þetta verði þjóðinni til góðs en ég held hins vegar að þetta sé hluti af tals- verðum vandræðagangi innan Framsóknarflokksins,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, um brotthvarf Árna Magnússonar úr stjórnmálum. „Ég hygg að fram- sóknarmenn hafi viljað gera breytingar og Árni segir að hann fari út af persónulegum ástæð- um. Þarna verða breytingar innan ríkisstjórnarinnar og það hefur sjálfsagt verið mat þeirra að þörf væri á því í aðdraganda kosn- inga,“ segir Guðjón A. Kristjáns- son. ■ Guðjón A. Kristjánsson: Vandræði Framsóknar Snjóflóðahætta Skíðafólk var varað við mikilli snjóflóðahættu á skíðasvæð- um í Ölpunum í gær, eftir gríðarmikla snjókomu síðustu daga. Að minnsta kosti fjórir skíðamenn hafa beðið bana í snjóflóðum í Ölpunum síðan um helgina. EVRÓPA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.