Fréttablaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 6
6 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Félag ungra lækna
hefur ákveðið að vísa ummælum
sem Jóhannes Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Landspítalans, lét
falla í viðtali í Fréttablaðinu þann
2. mars síðastliðinn, til siðanefnd-
ar lækna.
„Við erum búnir að kæra hann
til siðanefndar vegna þessa,“ segir
Bjarni Þór Eyvindsson, formaður
Félags ungra lækna, sem kveður
almenna hneykslan ríkja meðal
starfsmanna á spítalanum, annars
vegar vegna ummæl-
anna og hins vegar vegna þess að unglæknar eigi ekki
sæti í svokölluðum notendahóp-
um.
Í yfirlýsingu sem Félag
ungra lækna sendi blaðinu
í gær segir: „Það er
sorglegt að heyra hann
lýsa ungum læknum
sem þröngsýnum og
með skort á heimssýn.
Að yfirmaður stórrar ríkistofnun-
ar sjái ástæðu til að tala um ung-
lækna með þessum hætti opinber-
lega hlýtur að teljast einsdæmi og
vart til að auka ánægju ungra
lækna í störfum sínum hjá LSH.
Það er rétt að ungir læknar hafa
ekki farið í gegnum þá lífsreynslu
að fara til útlanda að mennta sig til
sérnáms en við lifum á upplýsinga-
tækniöld þar sem hægt er að fylgj-
ast með öllu því nýjasta sem er að
gerast erlendis.
Svo virðist sem lækningafor-
stjórinn sé með orðum sínum einn-
ig að gjaldfella aðra starfsmenn en
unga lækna sem ekki hafa sótt
framhaldsnám á erlendri grundu.
Hann telur ekki not fyrir unga
lækna nema að mjög takmörkuðu
leyti í þeirri undirbúningsvinnu
sem nú fer fram fyrir komandi
hátæknisjúkrahús og það þykir
okkur miður.“ - jss
Mikill hiti í mönnum vegna ummæla lækningaforstjóra Landspítalans:
Unglæknar kæra forstjórann
SLYS Tólf ára drengur brenndist á
fæti þegar hann steig ofan í hver
á Nesjavöllum á laugardag.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var drengurinn á göngu
ásamt föður sínum um jarðhita-
svæðið þegar jarðvegur gaf sig
og undir reyndist sjóðheitur hver.
Drengurinn brenndist nokkuð á
fæti en sjúkraflutningamenn og
lögregla komu til móts við þá
feðga við Nesbúð.
Drengurinn var fluttur á
sjúkradeildina í Fossvogi þar
sem hann fékk þá aðhlynningu
sem hann þurfti. Hann er á bata-
vegi.
- pss
Steig í hver á Nesjavöllum:
Brenndist á
öðrum fæti
KJÖRKASSINN
Á að heimila stækkun álversins
í Straumsvík?
Já 40%
Nei 60%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er eftirsjá að Árna Magnússyni
af Alþingi?
Segðu þína skoðun á visir.is
JÓHANNES M.
GUNNARSSON
Lækningaforstjóri
Landspítalans.
BJARNI ÞÓR
EYVINDSSON
Formaður Félags
ungra lækna.
ÍRAK Bandaríkjaher hefur vísað á
bug sögusögnum þess efnis að
hann ætli að draga allt herlið sitt
frá Írak í byrjun næsta árs.
Breska blaðið The Sunday Telegr-
aph sagði frá því á sunnudag að
flytja ætti allar hersveitir Banda-
ríkjamanna og Breta heim fyrir
þann tíma þar eð hersveitirnar
stæðu í vegi fyrir friðarumleitun-
um í landinu.
Talsmenn Bandaríkjahers hafa
þvertekið fyrir það að eitthvað sé
hæft í fréttinni og ítreka að her-
sveitirnar verði um kyrrt í land-
inu þar til Írakar teljist færir um
að stjórna landinu sjálfir. ■
Bandaríkjaher svarar orðrómi:
Hersveitirnar
verða um kyrrt
BRUSSEL Ítalskir og spænskir karl-
menn standa sig verst allra karl-
manna við að aðstoða maka sína
við heimilisstörfin samkvæmt
nýrri könnun Eurostat.
Eyða ítalskir karlmenn þannig
aðeins 95 mínútum á dag við mats-
eld, uppvask, þrif eða annað það
sem telst öllu jöfnu til heimilis-
verka. Spænskir karlmenn eru
vart hótinu betri með aðeins 97
mínútur að meðaltali daglega en
það er tæplega klukkustund skem-
ur en til að mynda karlmenn í Nor-
egi og Svíþjóð segjast gera. - aöe
Heimilisstörfin í Evrópu:
Ítalskir karl-
menn latir
LÓÐAÚTHLUTUN Búið var að semja
um verð á lóðinni sem bygginga-
fyrirtækið Bauhaus ætlaði að fá í
Garðabæ þegar fjaraði undan
samningnum. Þetta segir Jón
Pálmi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Urriðaholts ehf.
eiganda að landinu sem Bauhaus
sóttist eftir í Garðabæ. Bauhaus
hefði fengið lóðina hefðu forsvars-
menn þess viljað það.
„Eftir á að hyggja held ég að
forsvarsmenn Bauhaus hafi misst
áhugann á lóðinni,“ segir Jón
Pálmi og bendir á að hún hafi
hugsanlega verið of lítil fyrir fyr-
irtækið. Lóðin sem því standi til
boða í Úlfarsfelli sé mun stærri.
Bæjarstjórar Garðabæjar og
Kópavogs bera af sér að hafa
bolað Bauhaus frá bæjunum og
benda á að byggingafyrirtækið
hafi verið í samningaviðræðum
við einkaaðila. Bæjarfélögin
skipulögðu einungis svæðin.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
í Garðabæ, segir bæjarfélagið
ekki skipta sér af því hverjir komi
inn í bæjarfélagið svo framarlega
sem byggingarskilmálum sé
fylgt: „Við skiptum okkur ekki af
því hverjir koma inn á svæðið,
myndum aldrei gera og viljum
ekki.“
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, segir að eftir
sinni bestu vitund hafi Bauhaus
aldrei sóst eftir aðstoð bæjar-
stjórnarinnar við að fá lóð úthlut-
að.
Uppi hafa verið sögusagnir um
að BYKO hafi bolað Bauhaus frá í
Garðabæ. Jón Pálmi segir að ekki
sé fótur fyrir því. BYKO hafi
fengið lóðina eftir ítrekaðar til-
raunir við að koma á viðskiptum
við Bauhaus. „Þessi lóð var til
sölu og þegar upp var staðið báru
þeir sig ekki eftir henni.“
BYKO vill lóð þeim megin sem
Bauhaus fær úthlutað í borgar-
ráði í vikunni.
Ásdís Halla Bragadóttir, for-
stjóri BYKO, segir aðgengi að
verslunum skipta máli. Það sé
betra austan við Vesturlandsveg
en vestan við, þar sem Byko hafi
ásamt Mata og Rúmfatalagern-
um þegar fengið lóð. Hún gagn-
rýnir borgina fyrir að skipta um
stefnu í málinu. Byko hafi ítrekað
sóst eftir lóð austan megin en
verið sagt að þar væri ekki gert
ráð fyrir byggingavöruverslun.
„Þeir geta ekki sagt við Byko eins
og þeir hafa gert að svæðið við
Úlfarsfell sé ekki til ráðstöfunar
fyrir stóra byggingarvöruverslun
og síðan breytt því á einni nóttu
án þess að Byko fái neina aðkomu
að málinu.“ Byko óskar þess að
borgin fari eftir stjórnsýslulög-
um og tryggi jafnræði fyrirtækj-
anna. gag@frettabladid.is
Bauhaus missti áhuga
á að fá lóð í Garðabæ
Framkvæmdastjóri Urriðaholts sem á landið sem Bauhaus sóttist eftir í Garðabæ
segir að fyrirtækið hefði fengið lóð hefði það viljað. Samið hafði verið um verð en
forsvarmenn Bauhaus höfðu ekki samband meir. Lóðin sé minni en borgin bjóði.
GUNNAR
EINARSSON Bæjar-
stjóri í Garðabæ.
ÁSDÍS HALLA
BRAGADÓTTIR
Forstjóri BYKO.
BYKO VESTAN VIÐ VESTURLANDSVEG OG BAUHAUS AUSTANMEGIN Forstjóri Byko segir
aðgengi að verslunum skipta máli. Það sé betra austan við Vesturlandsveg. Hús Byko, Mata
og Rúmfatalagersins á að rísa aftan við Egilshöll og Bauhaus við hlíðar Úlfarsfells.
FUGLAFLENSA, AP Fuglaflensa hefur
fundist í nokkrum köttum í Aust-
urríki, á svæði þar sem hún hefur
áður greinst í fuglum. Þetta er í
fyrsta sinn sem flensan greinist í
dýrum öðrum en fuglum þar í
landi. Mannskæði veirustofninn
H5N1 fannst í tveimur eða þrem-
ur köttum sem allir voru enn á lífi
síðdegis í gær, að sögn yfirdýra-
læknisembættis Austurríkis.
Engar frekari upplýsingar voru
veittar.
Þýsk yfirvöld hafa skipað gælu-
dýraeigendum nærri sýktum
svæðum í Þýskalandi að halda
köttum sínum inni og hafa hunda
í ól. Ekki er vitað hvort kettir geti
smitað fólk af fuglaflensu.- smk
Fuglaflensa í Austurríki:
Veiran finnst í
lifandi köttum
SMITKISA? Köttur í Graz í Austurríki, þar
sem tveir eða þrír lifandi kettir hafa greinst
með fuglaflensu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÁK Alþjóðleg skákhátíð verður
haldin á vegum Skáksambands
Íslands dagana 6.-18. mars. Af
þessu tilefni koma margir sterkir
skákmenn til landsins til að tefla á
22. Alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótinu sem stendur til 14. mars en
viðburður þessi er einnig hugsað-
ur sem hátíð fjölbreytileika og
fjölmenningar og er því haldinn
undir yfirskriftinni „Skákin brúar
bil“. Vegna skákhátíðarinnar koma
til landsins skákmeistarar frá
öllum heimsálfum.
Alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótið byggir á ríkri hefð og var
fyrst haldið 1964. Flestir sterk-
ustu skákmenn heims hafa komið
til landsins til að tefla á mótinu en
fyrir fjörutíu árum varð Reykja-
víkurskákmótið fyrsti viðburður-
inn sem á alþjóðavísu kenndi sig
við höfuðborgina.
Mótið í ár hófst í Skákhöllinni
Faxafeni 12 í gær og teflt verður
daglega næstu níu daga, á virkum
dögum frá 17.00 og um helgar frá
14.00.
Alþjóðlegt hraðskákmót í minn-
ingu Haraldar Blöndal, lögfræð-
ings og eins stofnenda skákfélags-
ins Hróksins, verður haldið dagana
15.-16. mars í Ráðhúsinu í Reykja-
vík en þar mega allir spreyta sig
sem kunna mannganginn.
- shá
Alþjóðleg skákhátíð í Reykjavík hófst í gær:
Skákhátíð fjölbreytileikans
ALÞJÓÐLEGA REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ
Færeyski unglingameistarinn Helgi Dam
Ziska gerði sér lítið fyrir og sigraði hol-
lenska ofurstórmeistarann Jan Timman í
fyrstu umferð mótsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA