Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 12
12 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR HUNDASLEÐAKEPPNI Alaskabúinn Lance Mackey er einn hinna 83 hundaþjálfara sem hófu Iditarod-hundasleðakeppnina í Alaska á sunnudag. Mackey og hundar hans unnu Yukon Quest-keppnina í febrú- ar, sem er talin mun erfiðari keppni, og segja því sumir að teymið sé vel búið undir Iditarod-keppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAMENNSKA Gistinóttum á hót- elum í janúar fjölgaði um tæp þrettán prósent milli ára sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Fjölgaði þeim úr 36.000 í janúar í fyrra í 40.600 á sama tíma í ár. Fjölgunin var hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, þar sem gistinótt- um fjölgaði um áttatíu prósent. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 600, sem er tæplega fimmtíu prósenta aukning frá ári til árs. Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 8,5 prósentum en á Austurlandi var hún rúm þrjú pró- sent. Gistinóttum á Suðurlandi fækkaði hins vegar. - pss Gistinætur í janúar: Fjölgunin mest á Vestfjörðum DANMÖRK Hætta er á því að dansk- ir bankar missi viðskipti taki þeir ekki upp sömu starfshætti og íslenskir bankar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tólf síðna umfjöllun um íslensku bankanna í danska viðskiptablaðinu Børsen í gær. Skandinavískir bankar verða í framtíðinni að fjárfesta í þeim fyrirtækjum sem þeir lána pen- inga. Um þetta eru þeir Yngvi Kristinsson frá Landsbankanum og Jónas Sigurgeirsson frá KB banka sammála. Benda þeir á að sú aðferð hafi gefið góða raun fyrir íslensku bankana sem og stóra alþjóðlega banka. Banka- stjórar dönsku bankanna eru hins vegar ekki sannfærðir um ágæti aðferðarinnar. Segja þeir það ekki í verkahring banka að skipta sér af rekstri fyrirtækja enda kunni það að valda hagsmunaárekstrum. Tíminn verði að leiða í ljós hvort íslenska leiðin virki til lengri tíma. Gengi íslensku fjármálafyrir- tækjanna er líkt við rakettu í grein Børsen og bent á að verðmæti þeirra hafi margfaldast síðustu tvö ár. Landsbankinn hafi vaxið um tæp 400 prósent á meðan stærstu bankar Dana, Nordea og Danske Bank, hafi á sama tíma vaxið um sextíu prósent. Stærð dönsku bankanna skýrir reyndar að hluta til þennan mun enda erf- iðara fyrir þá að vaxa jafn hratt. Rætt er við danska fjármála- sérfræðinga um þennan mikla vöxt og koma fram skiptar skoð- anir. Einn viðmælandi blaðsins segir þær eðlilegar enda hafi rekstur bankanna skilað góðri afkomu. Annar segist sammála um að hlutirnir líti vel út á papp- írnum en setur spurningarmerki við hvernig tölurnar séu fengnar og segir að verðmat á óskráðum eignum bankanna kunni að vera óraunhæft. Niðurstaða útreikninga blaðs- ins er að hlutfall verðs og tekna sé álíka hjá íslensku og dönsku bönk- unum. Hins vegar segir blaðið að tölurnar kunni að vera ólíkt reikn- aðar hjá bönkunum og því segi þessir útreikningur ekki alla sög- una. kristjans@frettabladid.is Danir læri af Íslendingum Danska viðskiptablaðið Børsen var með umfangs- mikla umfjöllun um íslenska banka. Gengi íslenskra fjármálafyrirtækja er líkt við rakettu. Skiptar skoð- anir eru um starfsaðferðir íslensku bankanna. YNGVI ÖRN KRISTINSSON HJÁ LANDSBANKANUM Yngvi Örn segir skandinavíska banka verða að fjárfesta í þeim fyrirtækjum sem þeir lána pening til. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VILTU KITLA HLÁTURTAUGARNAR? MIÐASALAN HEFST Á FÖSTUDAGINN Í BORGARLEIKHÚSINU Miðasala hefst föstudaginn 10. mars kl. 10.00 í Borgarleikhúsinu í síma 568 8000. Korthafar VISA fá miða á fyrstu sýningarnar á 1.800 kr. Fyrsta sýning verður 30. apríl. Á ÞAKINU Datt í stiga Maður slasaðist illa um nýliðna helgi þegar hann datt í stiga á veitingahúsinu Amsterdam í miðborg Reykjavíkur. Hann var fluttur á slysa- og bráðamóttöku Landspítala með slæman höfuðáverka. LÖGREGLUMÁL Bílvelta á Hellisheiði Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bíl sínum á leið frá Reykjavík til Selfoss í gærmorgun með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Ökumaðurinn, sem er á sextugsaldri, slapp ómeiddur en bíllinn er óökufær. Nýtt í Palme-málinu Sænska lög- reglan hefur fengið í hendur byssuhlaup sem hugsanlega tengist morðinu á Olof Palme fyrir tuttugu árum. Hlaupið er af byssu af gerðinni Magnum 357, sams konar byssu og notuð var við morðið. SVÍÞJÓÐ Fleiri dauðir fuglar Sænsk stjórn- völd tilkynntu í gær um fjögur ný H5-til- felli í dauðum fuglum við Oskarshamn í Suður-Svíþjóð, en enn er verið að kanna hvort dauðir fuglar sem þar fundust í síðustu viku hafi drepist úr H5N1-veiru- afbrigðinu. Það þykir þó líklegt. ÍRAK, AP Forseti Íraks, Kúrdinn Jalal Talabani, lýsti því yfir í gær að hann hygðist kalla þing landsins saman næstkomandi sunnudag, en það er síðasti dagur lögbundins frests til að halda fyrsta fund nýkjörins þings eftir kosningar. Þá hefst nýr sextíu daga frestur sem stjórnmálaleiðtogum Íraka gefst til að kjósa nýjan forseta og koma sér saman um skipun nýs forsætisráð- herra og ríkisstjórnar. Forystumenn stærstu stjórn- málafylkinga sjíamúslima skund- uðu í gærkvöld á neyðarfund með Talabani í þeim tilgangi að fá hann til að falla frá óbilgjarnri afstöðu varðandi mönnun nýrrar ríkis- stjórnar, til að forða því að í odda skerist milli fylkinga sem hæglega gæti endað með stjórnlausu borg- arastríði. Að minnsta kosti fjórtán manns fórust í nokkrum sprengjutilræðum í Bagdad og víðar um landið í gær, og yfirmaður þeirra sveita stjórn- arhersins sem gæta öryggis höfuð- borgarinnar var skotinn til bana af leyniskyttu. Ofbeldið undirstrikaði hvernig togstreitan milli fylkinga veldur hættulegu valdatómi í landinu. Leið- togar Kúrda eins og Talabani for- seti, og súnní-araba þrýsta á sjíann Ibrahim al-Jaafari, núverandi for- sætisráðherra, að hverfa frá þeirri kröfu sinni að verða það áfram í nýju stjórninni. Hann og aðrir leið- togar sjía-múslima voru uppteknir af því að reyna að brúa eigin innri ágreining. - aa FRESTUR VIRTUR Jalal Talabani Íraksforseti, í jakkafötum, ásamt fulltrúum heittrúaðra sjíamúslima í Bagdad í gær. Hann tilkynnti að nýkjörið þing kæmi saman á sunnudag- inn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Viðræður um myndun þjóðstjórnar í Írak enn í uppnámi: Forsetinn kallar þing saman

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.