Fréttablaðið - 07.03.2006, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2006
MADRÍD Spænska veðurstofan
hefur gefið út viðvaranir vegna
áframhaldandi snjóa og hvass-
viðris um allan Spán næstu dag-
ana en meiri snjó hefur kyngt
niður þennan veturinn á landsvísu
en áður hefur gert í langan tíma.
Gildir viðvörun veðurstofunn-
ar um öll héruð landsins að Galisíu
og Kanaríeyjum undanskildum.
Er búist við enn meiri snjókomu
og hálku á vegum, en tæplega 200
manns létust í umferðarslysum í
febrúar sem flest mátti rekja til
slæmrar færðar. Hefur þurft að
loka mörgum hraðbrautum ítrek-
að síðustu vikurnar og verður svo
líklega áfram næstu daga. - aöe
ÓVANIR HÁLKU Snjó hefur kyngt niður í
landinu og búist er við miklu hvassviðri
næstu sólarhringana. AFP.NORDICPHOTOS
Óvanalegt veðurfar á Íberíu:
Veður válynd
um allan Spán
RANNSÓKNIR Vetrarmælingar rann-
sóknarskipsins Bjarna Sæmunds-
sonar hafa leitt í ljós að hiti og
selta sjávar eru áfram yfir meðal-
lagi umhverfis landið. Helstu
niðurstöður sýna að hlýsjórinn að
sunnan var með svipaðan styrk og
verið hefur síðustu ár þó að hiti
hans hafi lækkað.
Fyrir Norðurlandi var
útbreiðsla hlýs sjávar svipuð og
síðasta vetur. Hiti og selta hafa
hækkað og eru nú yfir meðallagi
samkvæmt rannsóknum síðustu
þrjátíu ára. Norðaustan- og aust-
anlands var hiti á bilinu 1,7 til 3,2
gráður á celsíus yfir landgrunnin-
um, sem er í meðallagi. Hitastig
við botn á landgrunninum
umhverfis landið var 4-7 gráður á
celsíus. ■
Ástand sjávar í febrúar:
Hiti og selta
yfir meðallagi
MENNTAMÁL Framhaldsskólanem-
ar ætla að fjölmenna á Austur-
völl á morgun til að mótmæla
„ólýðræðislegum vinnubrögðum
og meingölluðum áætlunum“
menntamálaráðherra um stytt-
ingu framhaldsnáms, eins og
segir í tilkynningu frá Hags-
munaráði framhaldsskólanema.
Undanfarna daga hefur
menntamálaráðherra fengið fjöld-
ann allan af póstkortum frá nem-
endum þess efnis að draga skerð-
ingaráform sín til baka.
Menntamálaráðherra hefur
ekki brugðist við þeim kröfum og
þar af leiðandi ætla nemendur að
mótmæla. - pss
Nemar mótmæla:
Ósáttir við
styttingu náms
HVERFAGÆSLA Öflug hverfagæsla á
Seltjarnarnesi hefur orðið til þess
að engin innbrot hafa verið til-
kynnt síðan bærinn hóf átak sitt í
október á síðasta ári.
Lúðvík Hjalti Jónsson hjá Sel-
tjarnarnesbæ er að vonum ánægð-
ur með árangurinn. Innbrotaalda
hafði geisað áður en átakið hófst
og er því ljóst að ávinningur verk-
efnisins er mikill.
Hverfagæsla er hugsuð sem
stuðningur bæjarfélagsins við
störf lögreglunnar en hún felst í
því að bílar frá öryggisgæslu-
fyrirtæki aka um hverfi bæjarins
eftir ákveðnu skipulagi og líta eftir
eigum bæjarbúa. - pss
Íbúar Seltjarnarness ánægðir:
Engin innbrot
síðan í október
VEIÐIMAÐUR Þessi veiðimaður sat í
makindum undir regnhlíf í sólskini við
Ascarate-vatnið í Texas fyrr í vikunni og
veiddi sér til matar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HAAG, AP Milan Babic, fyrrverandi
leiðtogi Króatíu-Serba, svipti sig
lífi í fangelsi í Hollandi á sunnu-
dagskvöld, að því er Stríðsglæpa-
dómstóll Sameinuðu þjóðanna
greindi frá í gær.
Babic, sem afplánaði þrettán
ára fangelsisdóm fyrir glæpi gegn
mannkyni, fannst andaður í klefa
sínum í fangelsi dómstólsins í
Scheveningen, útbæ Haag.
Þetta er í annað sinn sem fangi
Stríðsglæpadómstóls SÞ fremur
sjálfsmorð. Það fyrsta átti sér stað
árið 1998, en sá sem það framdi
hét Slavko Dokmanovic, sem var
líka einn af leiðtogum Króatíu-
Serba.
Babic lýsti sig sekan af ákæru
um að kynda undir þjóðernis-
hreinsunum gegn Króötum í
Krajína-héraði, en fyrir vikið voru
aðrar ákærur látnar niður falla.
Við dómsuppkvaðningu lýsti Babic
iðrun og bað „króatíska bræður“
sína afsökunar. Hann áfrýjaði
hinum þunga dómi en áfrýjuninni
var hafnað í júlí síðastliðnum.
Babic gaf sig sjálfur fram á sínum
tíma, ólíkt mörgum löndum hans
sem dómstóllinn hefur ákært fyrir
stríðsglæpi. Fréttin af andláti
hans er sögð til þess fallin að auka
enn á vantraust Serba til dóm-
stólsins.
- aa
MILAN BABIC Fyrrverandi leiðtogi Króatíu-
Serba fyrir réttinum í Haag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fyrrverandi leiðtogi Króatíu-Serba sviptir sig lífi í fangelsi í Hollandi:
Annað sjálfsvíg fanga í Haag