Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 14
7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Rannsóknir eldfjalla-
fræðingsins Haraldar
Sigurðssonar hafa leitt í
ljós ótrúleg menningar-
verðmæti við eldfjallið
Tambora í Indónesíu.
Fjöldi sjónvarpsstöðva
og framleiðenda setti
sig nýlega í samband
við Harald vegna rann-
sóknanna.
Tíu erlendar sjónvarpsstöðvar og
kvikmyndaframleiðendur hafa
sett sig í samband við Harald Sig-
urðsson, prófessor í eldfjallafræði
við Rhode Island-háskóla í Banda-
ríkjunum, með ósk um að fá að
búa til heimildarmynd um rann-
sóknarvinnu hans við rætur eld-
fjallsins Tambora í Indónesíu.
Haraldur hefur stýrt fimm
manna rannsóknarteymi fræði-
manna sem hefur ásamt aðstoðar-
fólki unnið að því að grafa upp
þorp sem varð undir í einu afl-
mesta eldgosi sögunnar árið 1815.
Þorpið hefur þegar verið kallað
„Pompei austursins“ eftir hinu
fornfræga þorpi í sunnanverðri
Ítalíu, sem grófst undir í eldgosi í
eldfjallinu Vesúvíusi hinn 24.
ágúst árið 79 eftir Krist. Stórfeng-
legar fornleifar komu í ljós eftir
að Pompei var grafin upp og er
staðurinn í hópi mest sóttu ferða-
mannastaða á heimsvísu.
Miklar vonir eru bundnar við
rannsóknirnar og hafa stjórnvöld í
Indónesíu sýnt þeim mikinn
áhuga.
Haraldur segir menningarsögu
smáríkja sem grófust undir í gos-
inu í Tambora merkilega. „Í hlíð-
um Tambora-eldfjallsins voru tvö
ríki. Í vesturhlutanum var
Tambora-ríkið, þar sem um tíu
þúsund manns bjuggu. Í austur-
hluta fjallsins var síðan ríkið
Sanggar og í gosinu lifði hluti
kóngafjölskyldunnar af. Nýlega
hitti ég afkomendur þessa fólks í
Indónesíu. Ég átti með þeim
ánægjulega stund.“
Áhugi á rannsóknunum hefur
verið gríðarlegur og segir Harald-
ur þann áhuga aukast dag frá degi.
„Meðal þeirra framleiðenda sem
sett hafa sig í samband við mig
eru breska ríkisútvarpið og
fræðslusjónvarpsstöðin Discovery
Channel, svo einhverjar séu nefnd-
ar. En sú síðarnefnda hefur þegar
unnið eina heimildarmynd um
rannsóknir okkar.“
Sérstaða fyrirbæris eins og
þess sem Haraldur rannsakar nú
við Tambora felst í fullkominni
varðveislu á menningu og lífshátt-
um fólks. „Ég tel að það séu mikl-
ar líkur á því að Tambora geti í
framtíðinni þjónað sama hlutverki
og Pompei.“
Haraldur segir menningu
Tambora-ríkis koma æ betur í ljós.
„Sérstaða þessara staða felst í ótrú-
legri varðveislu á öllu því sem er í
bæjunum sem grófust undir í eld-
gosunum. Að hádegi 24. ágúst 79
eftir Krist grófst Pompei undir í eld-
gosi, þar með taldir allir bæjarbúar
og eigur þeirra. Þarna varðveitist
algjörlega menning og list, jafnvel
krot á veggjum. Aðstæður við Tam-
bora eru svipaðar eftir því sem rann-
sóknir okkar hafa leitt í ljós.“
Rannsóknir Haraldar við Tam-
bora halda áfram í sumar.
magnush@frettabladid.is
Pompei austursins kemur í ljós
UNNIÐ AÐ UPPGREFTRI Aðeins fjórir bæjarbúar af tíu þúsund lifðu af eldgosið í Tambora árið 1815. Tambora-ríkið hafði sérstakt tungumál
en eftir eldgosið eru aðeins til varðveitt 48 orð úr tungumálinu. Margra ára frekari rannsóknarvinna bíður nú Haraldar Sigurðssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
Ellen Kristjánsdóttir söngkona hefur í nógu að snúast
þessa dagana en hún undirbýr nú tónleika með
manni sínum, Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, og
einnig tónleikaferð til Kanada með bróður sínum,
Kristjáni Kristjánssyni. Þau hafa oft leikið saman á
tónleikum en dagskrá ferðarinnar til Kanada er þó
ekki alveg ljós ennþá. „Ég og Kristján bróðir verðum
með tónleika í Kanada í apríl. Það verður örugglega
voðalega skemmtilegt.“
Fjölskylda Ellenar er mikil tónlistarfjölskylda,
svo ekki sé meira sagt. Bæði eiginmaður hennar og
bróðir starfa sem tónlistarmenn og þá er Þorsteinn
Einarsson, söngvari og gítarleikari Hjálma, tengda-
sonur hennar. Dóttir Ellenar og Eyþórs, Sigríður,
eignaðist fyrir tveimur mánuðum dóttur með Þor-
steini og var hún skírð í höfuðið á ömmu sinni. „Litla
Ellen er auðvitað alveg dásamleg. Tónlistin virðist
ætla að haldast í fjölskyldunni um ókomna tíð, sem
er auðvitað ánægjulegt. Það er aldrei að vita nema
við Kristján gefum aftur út plötu, hver veit. Ég hef
annars alveg nóg að gera þessa dagana og ætla
mér að velja úr þeim verkefnum sem berast til
mín.“
Ellen og Eyþór eru þegar farin að undirbúa sálma-
tónleika í Fríkirkjunni hinn 9. apríl en Eyþór kom í
gær heim úr vel heppnaðri tónleikaferð til Indónesíu.
„Við munum halda tónleika um páskana þar sem við
flytjum sálma sem ég gef einnig út á plötu.“
Ellen fékk listamannalaun til gerðar sálmaplöt-
unnar á sínum en hún færði gamla sígilda sálma
í fallegan og látlausan búning. Platan hefur selst
afar vel og virðast vinsældir plötunnar ekkert
vera að dvína.
Ellen og Kristján bróðir hennar munu hita
upp fyrir tónleika Lizu Ekdal hinn 24. mars í
Háskólabíói.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR SÖNGKONA
Undirbýr tónleika í Fríkirkjunni
HARALDUR AÐ STÖRFUM Mikið verk bíður
nú Haraldar og aðstoðarfólks hans við
Tambora, en stórkostleg menningarverð-
mæti hafa fundist við uppgröft á svæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
SJÓNARHÓLL
KJARABARÁTTA
SLÖKKVILIÐSMANNA
BJARNI ÞÓR EYVINDSSON
FORMAÐUR FÉLAGS UNGLÆKNA
Eiga hrós
skilið
„Það er greinilegt að kjör þeirra hafa
dregist verulega aftur úr eða þeir eru
ekki metnir að verðleikum,“ segir
Bjarni Þór Eyvindsson, formaður félags
unglækna, um kjarabaráttu slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna. Bjarni segir
margt hafa breyst hjá þessari stétt.
Áður fyrr komu margir að þessu starfi
í hlutastarfi en nú vinna þessi störf
sérmenntaðir einstaklingar. „Þeir eiga
hrós skilið fyrir störf sín dags daglega
þar sem þeir leggja sjálfa sig í hættu
við að bjarga lífi og eignum annarra
og það hefur sýnt sig að þjóðfélagið
metur störf þeirra mun meira en
samninganefnd sveitarfélaganna.
Ég held að ef fólkið í landinu fengi
að ráða væri þessi stétt á mun betri
launum.“
Bjarni segir að meta verði þá
áhættu sem þeir setji sig í og því eigi
að vera sanngjarnt að meta framlag
þeirra í hlutfalli við það. Hætta á
alvarlegum slysum sé hlutur sem verði
að meta að verðleikum.
Mikið á sig lagt fyrir
bílinn
„Það var nú einkum til að fá
góðan bílskúr sem við fórum
að byggja...“
ALDA INDRIÐADÓTTIR, ÍBÚÍ Í
KÓRAHVERFI, Í FRÉTTABLAÐINU.
Ekki fyrir teprur
„Ég reyndi bara að taka af
mér tepruhettuna og gera
þetta og fannst það bara
skemmtilegt.“
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR, ÞING-
KONA SAMFYLKINGARINNAR, Í
FRÉTTABLAÐINU UM ÞÁTT SINN Í
UPPSETNINGU PÍKUSAGNA.
ÍÞRÓTTIR A-sveit Taflfélags Reykja-
víkur bar öruggan sigur úr býtum
í efstu deild á Íslandsmóti skákfé-
laga sem lauk á sunnudaginn. Met-
þátttaka var á mótinu, sem var
haldið í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð, og hátt í 400 skákmenn tefldu.
Taflfélag Reykjavíkur var sigur-
sælt á mótinu en B-lið þess sigraði
í annarri deild með miklum yfir-
burðum. Verða því tvær sveitir
frá Taflfélagi Reykjavíkur í efstu
deild á næsta ári. Í þriðju deild
sigraði Skákdeild Fjölnis og upp-
skar þar árangur gróskumikils
starfs undanfarin ár í Grafarvogi.
Sama má segja um sigurvegara
fjórðu deildar, B-sveit Taflfélags
Vestmannaeyja, en skáklífið í
Vestmannaeyjum hefur verið sér-
staklega þróttmikið undanfarin ár.
Þess má geta að A-sveit Taflfélags
Vestmannaeyja hafnaði í öðru sæti
í efstu deild. - sdg
A-SVEIT TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Sigurvegarar Íslandsmóts skákfélaga
hampa hér verðlaunabikarnum.
Metþátttaka á Íslandsmóti skákfélaga:
Tæplega 400 skákmenn öttu
kappi í Hamrahlíðinni
ÁSTA RAGNHEIÐUR OG BJARNI BEN.
VANRÆKJA AÐ SKRÁ SIG Í LEYFI
Fjölmargir hafa þegið
boðsferðir til Taívan
ÞINGMENN
SVÍKJA ÚT
LAUN Á
FERÐALAGI
2x15 6.3.2006 21:05 Page 1