Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 19
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
P-pillunni er dreift ókeypis til
unglingsstúlkna á aldrinum sex-
tán til nítján ára í Noregi. Færri
stúlkur í þessum aldurshópi
verða nú þungaðar en áður. Ljós-
mæður og skólahjúkr-
unarfræðingar geta
skrifað upp á lyfseðla
fyrir stúlkurnar. Yfirvöl í
Danmörku hafa lýst yfir áhuga á
að skoða þetta fyrirkomulag.
Snuðnotkun er talin draga úr
líkum á vöggudauða. Í nýjum
leiðbeiningum sem Landlæknir
hefur sent frá sér er mælt með
snuðnotkun á svefntíma til varn-
ar skyndidauða ungbarna. Þetta
eru uppfærðar leiðbeiningar í
ljósi nýrra rannsókna. Leiðbein-
ingarnar má nálgast á www.
landlaeknir.is.
Faghópur iðjuþjálfa á geðsviði
stendur fyrir málþingi fimmtu-
daginn 16. mars 2006 í hátíðar-
salnum á Kleppi. Málþingið er
opið öllum og ókeypis þátttaka.
Dagskrá málþingsins má sjá á
www.gedhjalp.is.
ALLT HITT
[HEILSA]
Júlíus Brjánsson, sem þjóðin þekkir best sem annan
af Kaffibrúsakörlunum, stundar hestamennsku og
heldur sér þannig í formi.
„Ég stunda hestamennsku og því fylgir ekki eingöngu að
stíga á bak heldur hirðir maður um hrossin, ber hey og
mokar skít og þetta er bara talsverð hreyfing,“ segir Júlíus
Brjánsson, sem fer í hesthúsið alla daga vikunnar og
stundum tvisvar á dag.
„Síðan er líka stórlega vanmetin sú hreyfing sem fólk
fær út úr því að vera á hestbaki,“ útskýrir Júlíus en þeir
sem fari á hestbak í fyrsta skipti verða óneitanlega varir
við það. „Þetta er bara innyflaleikfimi og það skrítna er að
harðsperrurnar sem fólk fær eru á mjög skrítnum stöðum,“
segir hann og hlær. „Þær eru í maganum og rassinum og
ýmsum öðrum stöðum þar sem fólk fær yfirleitt ekki harð-
sperrur.“ Sjálfur fær Júlíus ekki lengur harðsperrur nema
kannski í fyrsta sinn sem hann fer á bak á veturna þegar
hestarnir koma á hús eftir sumar og haustbeit.
Þrátt fyrir þá hreyfingu sem Júlíus fær úr hestamennsk-
unni segist hann viss um að hann hefði gott af meiri og fjöl-
breyttari líkamsrækt og eins og margir stefnir hann á að
bæta úr því í framtíðinni. „Þessa dagana sit ég til dæmis
algerlega á rassinum,“ segir Júlíus, sem nýverið tók við rit-
stjórn hestavefsins www.847.is. „Þar af leiðandi eykst
þörfin á hreyfingu enn meira,“ áréttir Júlíus, sem ætlar
næstu mánuði að einbeita sér alfarið að nýja starfinu. Öll
önnur sviðsframkoma verður að bíða betri tíma.
Annars segist Júlíus mjög heilsuhraustur og er þakklátur
fyrir það. „Líkamlega hef ég ekki undan neinu að kvarta.
Andlega hliðin skánar hins vegar ekkert, maður er
geðveikur og verður það bara áfram,“ segir hann glettinn.
Mokar skít
alla daga
FJÖLGAR UM 21 PRÓSENT Á MILLI ÁRA.
Í nýlegri könnun Gallup á afstöðu fólks til reyklausra veitinga- og
kaffihúsa voru 74 prósent aðspurðra hlynnt reykingabanni á
þessum stöðum.
Lýðheilsustöð fékk Gallup til að gera svipaða könnun fyrir um ári
og niðurstöðurnar nú sýna að stuðningur við reykbann er aukast,
því þá var um 61 prósent hlynnt reykingabanni. Fjölgunin nemur
um 21 prósenti. Hafa ber þó í huga að spurningin er ekki eins
orðuð í ár og í fyrra og getur það haft einhver áhrif á svörun fólks.
Fleiri vilja reykleysi
74 prósent aðspurðra vilja banna reykingar á veitinga- og kaffihúsum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR
Júlíus fer í hesthúsið alla daga vikunnar og stundum tvisvar á dag.
SPARKVÖLLUM
FJÖLGAR
Sparkvellir hafa valdið
byltingu á Íslandi, bæði
varðandi knattspyrnu-
iðkun og almenna
hreyfingu. HEILSA 5
NÁMSKEIÐ FYRIR
KONUR Í ORLANDO
Lífsstíls- og heilsunámskeið er nýtt
fyrirtæki sem var stofnað með það
að markmiði að konur gætu látið
sér líða vel og lítið vel út.
HEILSA 4
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
7. mars, 66. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.15 13.39 19.04
Akureyri 8.02 13.23 18.46