Fréttablaðið - 07.03.2006, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2006
Námskeiðið Súperform á fjórum vikum hjá Goran
Kristófer, íþróttafræðingi, er hannað til að koma þér af
stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur
námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu eftir jólin. Ef þú vilt:
Léttast
Styrkjast
Efla ónæmiskerfið
Bæta meltinguna
Hormóna jafnvægið
Andlega vellíðan
Auka minni og einbeitinguna
Auka orkuna
Komast í form
Bæta heilbrigði
Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar
fitubrennslu, hvernig þú átt að glíma við matar -og
sykurþörfina, hvernig þú ferð a því að brenna meira
og léttast.
Fimm tímar í viku – Brennsla, styrking og liðleiki
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar
Slökun og herðanudd í pottum að æfingu lokinni
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Karlar kl. 7.30
Konur kl. 6.30, 10.00, 16.30 eða 18.30
Nýtt námskeið hefst 13. mars nk.
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is. Námskeið greiðist við
skráningu – athugið síðast komust færri að en vildu.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
og kraftyoga
Allir yoga unnendur velkomnir
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Sykurlaus
jógúrt!
Hreina lífræna jógúrtin frá
Biobú er framleidd án sykurs.
A›eins er nota›ur lífrænn hrásykur í
ö›rum jógúrt tegundum frá Biobú.
Biobú ehf. • Stangarhyl 3a • Sími: 587 4500 • Netfang: biobu@biobu.is • www.biobu.is
w
w
w
.b
io
bu
.is
v
ar
k
os
in
n
be
st
i í
sle
ns
ki
b
æ
nd
av
ef
ur
in
n
Allir sem eru að byrja að hreyfa
sig tala um hvað þeim líði miklu
betur, séu almennt hressari og
orkumeiri. Aldrei hef ég heyrt
fólk segja að það finni engann
mun á sér andlega eða líkamlega
eða líða verr eftir að það er byrj-
að að hreyfa sig. Það efast því
ekki nokkur maður um mátt
hreyfingar á lífsgæðin almennt.
Þegar fólk byrjar að hreyfa sig
fer það líka ósjálfrátt að sækjast
í heilsusamlegri mat. Enda eru
sterk tengsl á milli þessara
tveggja þátta sem hafa mikil
snjóboltaáhrif. Gott mataræði
verður ómeðvitað mikilvægara
eftir því sem maður hreyfir sig
meira og síður mikilvægt eftir
því sem maður dregur úr hreyf-
ingu. Þetta geta eflaust margir
tekið undir. Þið hafið örugglega
tekið eftir því hvað maður hugs-
ar minna um hvað hvað lætur
ofan í sig um leið og maður hætt-
ir að hreyfa sig, jafnvel þó að
maður sé vanur að hreyfa sig
mikið og spái alla jafna í hvað
maður lætur ofan í sig. Þess
vegna tel ég að hreyfing sé til
alls fyrst. Hún verðlaunar okkur
ekki aðeins strax, heldur leiðir
hún okkur til betri vegar og
vellíðunar. Ef aðstæður ykkar
eða umhverfi er að breytast eitt-
hvað hvet ég ykkur til að muna
eftir hreyfingunni. Þá eru líka
minni líkur á að breytingarnar
verði erfiðar eða að við dettum
úr rútínunni sem oft er svo erfitt
að koma sér aftur í.
Sætindi og ofát
Margir finna fyrir því að þegar
maður byrjar að borða einföld
kolvetni, svo sem sætindi og
kartöfluflögur, er stundum erfitt
að hætta fyrr en maður er orðin
afvelta. Auðvitað kannast flestir
við það að borða stundum aðeins
of mikið, en þegar hreyfing er
mikilvægur þáttur af hversdags-
leikanum eru minnkandi líkur á
því að þetta gerist oft. Það er
eins og við náum að stoppa okkur
af fyrr.
Við erum hönnuð til hreyfingar
Líkaminn er hannaður til hreyf-
ingar og eldsneytið á tankinn
skal vera sérvalið af eigandan-
um. Þegar allt kemur til alls er
það enginn annar en við sjálf
sem ber ábyrgð á þeim líkama
sem okkur hefur verið gefinn.
Við fáum víst engan annan!
Með hækkandi sól hvet ég
ykkur því til að finna skemmti-
lega hreyfingu, sem ég er ekki í
vafa um að allir geti gert, til að
auka og nýta þá orku sem þið
hafið í dag. Því án hreyfingar
gætuð þið ekki haft hana á morg-
un!
Látið ykkur líða vel!
Borghildur
Tengsl hreyfingar
og mataræðis
Á vefsíðunni doktor.is er nú búið að
setja upp svæði þar sem algengum
spurningum og áhyggjuefnum um
fuglaflensuna er svarað.
Útbreiðsla flensunnar síðustu vikur
hefur valdið mörgum áhyggjum en
í Evrópu hafa komið upp nokkur
tilfelli á síðustu dögum. Vitneskja er
sterkasta vopnið í baráttu við hvaða
sjúkdóm sem er og því ættu svör
sem þessi að vera fyrsta stopp hjá
þeim sem vilja vita hvort þeir eigi að
hafa áhyggjur eða ekki.
Á vefnum má finna upplýsingar um
útbreiðslu fuglaflensunnar. Greinar
um einkenni og smitleiðir og tengla
við vefsíður sem tengjast fuglaf-
lensunni á einn eða annan hátt.
Til dæmis er þar tengill inn á vefsíðu
Landlæknisembættis þar sem meðal
annars eru taldar upp leiðbeining-
ar fyrir bæði ferðamenn, áhafnid
flugvéla, starfsfólk sem sér um þrif á
flugvöllum og sjúkraflutningamenn.
Einnig eru tilgreind fyrstu viðbrögð
á sjúkrastofnunum ef upp kemur
fuglaflensufaraldur.
fræðsla }
Fróðleikur um
fuglaflensu
SPURT OG SVARAÐ UM
FUGLAFLENSU OG ÍSLAND.
Í vikunni fara af stað námskeið
í Rope Yoga í Sporthúsinu í
Kópavogi.
Sporthúsið í Kópavogi fer af stað
með ný námskeið í Rope Yoga í
vikunni. Leiðbeinandi á námskeið-
inu er Elín Sigurðardóttir, meist-
arakennari í Rope Yoga og íþrótta-
fræðingur.
Í Rope Yoga eru allir vöðvar
líkamans virkjaðir en lögð er
áhersla á miðju líkamans, það er
mjaðmagrind, mjaðmir, kviðarhol,
mjóbakið og þindina, sem losar
um bakverki og spennu í hálsi.
Einnig er lögð áhersla á innan- og
aftanverð læri ásamt rassvöðvum.
„Ég hef margoft séð að Rope Yoga
getur gert kraftaverk fyrir
marga,“ segir Elín. „Iðkendur
koma til mín og tjá mér sína upp-
lifun og hversu jákvæð áhrif
ástundunin hefur haft á líf
þeirra.“
Frekari upplýsingar má fá á
www.elin.is.
Rope Yoga fyrir
líkama og sál
Elín Sigurðardóttir, Rope Yoga kennari, virkjar líkama og sál í Rope Yoga bekknum meðan
hundurinn Amor fær sér kríu. Námskeið í Rope Yoga hefjast í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG BA Í SÁLFRÆÐI