Fréttablaðið - 07.03.2006, Page 38
7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
Kjólarnir voru með látlausara móti á 78.Óskarsverðlaunahá-tíðinni. Gyllti liturinn var töluvert áberandi í bland við ljósar rómantískar blúndur. Jessica Alba var í kjól sem
minnti helst á Óskarsstyttuna sjálfa, Jennifer Lopez var eins
og Dísa ljósálfur í grasgrænum síðkjól úr einhvers konar
silkiefni og Michelle Williams bar af í ljóskarrýgulum
síðkjól sem var sérlega fallega sniðinn. Allt of
margar fóru hins vegar „öruggu leiðina“ og
klæddust svörtum síðkjólum. Sandra Bullock
var ein af þeim, mætti í svörtum hlýralausum
„prom-kjól“ sem var lítið spennandi. Það sem
bjargaði henni var þó sætu eplakinnarnar en
hún gætti þess vel að spara ekki kinnalitinn.
Það sama má segja um Jennifer Aniston sem
var ósköp sæt en kjóllinn var allt of hefðbund-
inn.
Sú sem þótti alls ekki vera að gera það gott var
Charlize Theron en kjóllinn hennar þótti minna á
ljótan skúlptúr og á öxl hennar var stærðarinnar
slaufa sem féll ekki í kram tískuspekúlanta. Í Vanity
Fair-partíið mættu fleiri tískudrottningar og þar á meðal
Selma Blair, sem var í fallegum gamaldags blúndukjól
en keyrði yfirum með því að vera líka með gamaldags
hárgreiðslu sem minnti of mikið á Ditu Von Teese, það
er aldrei flott að herma. Einnig var þarna Mischa Bart-
on sem var í svörtum og hvítum kjól sem var senni-
lega umdeildur. Madonna var ekkert flott í ljós-
bleikum stelpukjól og með sína hrikalegu vöðva
en Zooey Deschanel var hins vegar ekkert að
stressa sig á því að vera mjög fín og var í stað-
inn hrikalega töff í stuttum babydoll kjól og
svörtum sokkabuxum og skóm.
martamaria@frettabladid.is og hilda@frettabladid.is
LÍTIÐ UM TÍSKUSLYS
ZOOEY DESCHANEL Þessi flotta leikkona
mætti í Vanity Fair partíið eftir verðlaun-
in og var mjög töff í sætum kjól
og svörtum sokkabuxum við.
Eins og klippt út úr nýliðnum
tískuvikum.
DÍSA LJÓSÁLFUR
Jennifer Lopez
í „vintage“-kjól
frá hönnuðinum
Jean Desses.
Kjóllinn er ógur-
lega vel sniðinn
með fallegri
áferð.
RÓMANTÍSK
Uma Thurman
klæddist kjól
frá Versace.
Á BLEIKA
TÍMABIL-
INU Madonna
hefur oft verið
smartari til
fara. Sniðið
á kjólnum er
svo sem ekki
svo slæmt
en liturinn er
alveg voðalegur.
TÍSKUSLYS Charlize Theron var ekki alveg að gera
sig í þessum kjól úr smiðju John Galliano fyrir
Dior. Efnið og sniðið passa hreinlega ekki saman
og svo er litavalið afleitt.
JESSICA ALBA Hún var
glæsileg í Versace-kjól.
REESE WITHERSPOON Leikkonan
hreppti Óskarinn í sínum flokki og var
glæsileg í gömlum kjól úr smiðju
Christian Dior.
MISCHA BARTON The OC
leikkonan var töff í svörtum
og hvítum kjól.
SELMA BLAIR Hún
var eins og gamal-
dags kvikmynda-
stjarna.
MICHELLE WILLIAMS Án efa sú flottasta
þetta kvöld. Hún geislaði í sinnepsgulum
Veru Wang kjól og með dumbrauðan
varalit við.
GULLI SLEGIN Donatella
Versace var óvenju glæsi-
leg og notaði gyllta
litinn á réttan
máta, hæfilega
mikið ekki of
lítið.
TÓK ENGA ÁHÆTTU Jennifer Aniston
hefur oft verið flottari.
RACHEL WEISS
Var frískleg
þrátt fyrir að
vera komin sjö
mánuði á leið.
VEL HEPPNUÐ Keira
Knightley klæddist
Veru Wang kjól og var
með gamalt Bulgari
hálsmen við. NORDIC-
PHOTOS/GETTYIMAGES
„Þetta hefur gengið vonum fram-
ar, við áttum aldrei von á þessu
þegar við fórum af stað með mynd-
ina,“ segir Skúli Malmquist hjá
kvikmyndafyrirtækinu Zik-Zak,
sem framleiðir stuttmynd Rúnars
Rúnarssonar, Síðasta bæinn.
Myndin var tilnefnd til Óskars-
verðlauna í flokki leikinna stutt-
mynda en laut í lægra haldi fyrir
írsku myndinn Six Shooter, með
Brendan Gleeson í aðalhlutverki.
„Því var spáð að hún og Síðasti
bærinn ættu mesta möguleika á að
vinna,“ segir Skúli og kveðst frá-
leitt súr yfir að hafa misst af stytt-
unni.
Rúnar var viðstaddur hátíðina
ásamt Þóri Sigurjónssyni, félaga
Skúla hjá Zik-Zak. Skúli heyrði í
þeim á sunnudagskvöld og var
ekki annað að heyra en þeir væru
kampakátir. Hvorki hefur heyrst
né spurst til þeirra síðan, sem má
kannski skrifa á fagnaðarhöldin
að keppninni lokinni. „Ég veit að
strax eftir hátíðina var öllum sem
voru tilnefndir boðið í veislu hjá
ríkisstjóranum í Kaliforníu, það
er að segja hjá Arnold Schwarzen-
egger, en ég heyrði ekki í þeim svo
seint og veit ekki hvort þeir fóru
þangað. En ég býst við að það hafi
verið skálað.“
Skúli segir að tilnefningin hafi
þegar opnað Síðasta bænum
margar dyr. „Við höfum gert
býsna stóra samninga við
dreifingaraðila í Bandaríkjunum;
myndin hefur verið sýnd í bíóhús-
um í tvær vikur og verður sýnd
áfram, hún fór í dreifingu á
iTunes og er á topp 40 þar og verð-
ur svo sýnd á nokkrum kapal-
stöðvum. Það er varla hægt að
biðja um meira.“ -bs
Arnold Schwarzenegger
bauð í partí
SKÚLI MALMQUIST
Heyrði ekki betur
en Rúnar og Þórir
væru kampakátir fyrir
hátíðina í Holly-
wood.