Fréttablaðið - 07.03.2006, Side 39
Það kom flestum í opna skjöldu að
kvikmyndin Crash skyldi hreppa
Óskarsverðlaunin sem besta
myndin þegar þessi eftirsóttu
verðlaun voru afhent í 78. skipti
aðfaranótt mánudagsins. Almennt
höfðu leikir sem lærðir veðjað á
að Brokeback Mountain yrði fyrir
valinu og umræðan um verðlaunin
í Bandaríkjunum eftir þessa
niðurstöðu hverfist meira og
minna öll um það að Hollywood
hafi hafnað samkynhneigðum, en
eins og alþjóð veit fjallar myndin
um ástarsamband tveggja kúreka.
Óvenjujöfn dreifing
Ang Lee hreppti verðlaunin fyrir
bestu leikstjórn fyrir Brokeback
Mountain. Fyrir fram var talið að
sú mynd myndi sópa að sér verð-
launum en aldrei þessu vant var
enginn afgerandi sigurvegari og
dreifing helstu verðlauna á milli
mynda kom skemmtilega á óvart.
Þannig fengu Memoirs of a Geisha,
Brokeback Mountain, Crash og
King Kong allar þrenn verðlaun.
Memoirs of a Geisha var verð-
launuð fyrir búninga, kvikmynda-
töku og listræna stjórnun. Broke-
back Mountain fékk auk
leikstjóraverðlaunanna styttur
fyrir bestu tónlistina og besta
handrit unnið upp úr áður útgefnu
efni. Crash var sem fyrr segir
valin besta myndin en hreppti
einnig verðlaun fyrir klippingu og
besta frumsamda handritið. Verð-
laun King Kong voru fyrir tækni-
brellur, hljóðblöndun og hljóð-
klippingu.
Spádómar rættust
Önnur verðlaun í helstu flokkum
voru í takt við spádóma og þannig
var Philip Seymour Hoffman verð-
launaður sem besti leikarinn í
aðalhlutverki fyrir Capote og
Reese Witherspoon fékk styttu
sem besta leikkonan í aðalhlut-
verki fyrir frammistöðu sína í
Walk the Line. Það er helst að það
hafi komið á óvart að George
Clooney skyldi hreppa verðlaunin
sem besti leikarinn í aukahlut-
verki fyrir Syriana. Breska leik-
konan Rachel Weisz fékk síðan
Óskar sem besta leikkonan í auka-
hlutverki fyrir The Constant
Gardener.
Írskt gamalmenni lagði það
íslenska
Íslendingar fylgdust þó óvenju-
spenntir með að þessu sinni þar
sem stuttmyndin Síðasti bærinn
eftir Rúnar Rúnarsson var til-
nefnd í flokki leikinna stuttmynda.
Það er síður en svo daglegt brauð
að Íslendingar komist þetta langt
en aðeins Friðrik Þór Friðriksson
og Sjón hafa áður náð þessum
merka áfanga. Síðasti bærinn
hreppti þó ekki verðlaun þrátt
fyrir að hafa ýmislegt með sér og
varð undir í baráttunni við Six
Shooter.
Stewart skilaði sínu
Jon Stewart, stjórnandi The Daily
Show, stóð sig þó vel í hlutverki
kynnisins og stýrði framhjá forar-
pyttum óbærilegra leiðinda. Hann
stendur vitaskuld í skugga Billy
Crystal, sem hefur verið ástsæl-
asti Óskarsverðlaunakynnirin á
síðari árum, en stenst samanburð-
inn betur en flestir forverar hans
enda nýtur hann þess að nokkuð er
liðið frá því Crystal tók verkið að
sér síðast.
Stewart tók góða spretti og hitti í
mark þegar hann sagði að Björk
Guðmundsdóttir hefði ætlað að
mæta en Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, hefði skotið hana
þegar hún var að máta kjólinn sinn.
Flestum ætti að vera það í fersku
minni þegar Björk mætti í svanslíki
þegar Dancer in the Dark keppti til
verðlaunanna. Þá vakti það einnig
lukku þegar Stewart skaut á George
Clooney og sagði að hann endaði öll
stefnumót sín á orðunum „góða nótt
og gangi þér þér vel“.
thorarinn@frettabladid.is
BESTA MYND:
Crash
BESTI LEIKSTJÓRI:
Ang Lee (Brokeback Mountain)
BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI:
Philip Seymour Hoffman (Capote)
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI:
Reese Witherspoon (Walk the Line)
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI:
George Clooney (Syriana)
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI:
Rachel Weisz (The Constant Gardener)
BESTA FRUMSAMDA HANDRIT:
Crash
BESTA HANDRIT BYGGT Á ÁÐUR BIRTU
EFNI:
Brokeback Mountain
BESTA TEIKNIMYND:
Wallace & Gromit - The Curse of the
Were-Rabbit
BESTA HEIMILDARMYND:
March of the Penguins
BESTU TÆKNIBRELLUR:
King Kong
BESTA KVIKMYNDATAKA:
Memoirs of a Geisha
BESTA ERLENDA MYND:
Tsotsi (Suður-Afríka)
HELSTU VERÐLAUN
Óvæntur árekstur á Óskarsverðlaunum
ANG LEE Var vel að verðlaunum fyrir leik-
stjórn kominn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ROBERT ALTMAN Þessi aldni meistari fékk heiðursóskar fyrir framlag sitt til kvikmyndanna.
Leikkonurnar Meryl Streep og Lily Tomlin afhentu honum styttuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PHILIP SEYMOUR HOFFMAN OG REESE WITHERSPOON Fengu verðlaunin sem besti leikar-
inn og leikkonan, hann fyrir Capote og hún fyrir Walk the Line. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2006 39
HAGKAUP SMÁRALIND
HAGKAUP SKEIFUNNI
HAGKAUP KRINGLUNNI
HAGKAUP SPÖNGINNI
HAGKAUP GARÐABÆ
HAGKAUP EIÐSTORGI
HAGKAUP AKUREYRI
NETTÓ, AKUREYRI
NETTO, MJÓDD
NETTÓ, AKRANESI
NÓATUN SELFOSSI
FJARÐARKAUP HAFNAFIRÐI
ÚRVAL NJARÐVÍK
ÚRVAL HAFNAFIRÐI
ÚRVAL EIGILSSTÖÐUM
ÚRVAL HRÍSALUNDI
ÚRVAL HÚSAVÍK
ÚRVAL DALVIK
ÚRVAL ÓLAFSFIRÐI
ÚRVAL ÍSAFIRÐI
ÚRVAL SIGLUFIRÐI
ÚRVAL BORGARNESI
ÚRVAL, BLÖNDUÓSI
STRAX, FÁSKRÚÐSFIRÐI
KAUPFÉLAG V-HÚNV.
AG V-HÚN HVAMMST.
KAUPFÉLAG SKAGF.
SAUÐÁRKR. KAUPFÉLAG
STEINGRÍMSFJARÐAR,
HÓLMAV.
KAUPFÉLAG STEINGRÍMFJAR.
DRANGSN.
LÆKURINN NESKAUPSTAÐ
EFNALAUG DÓRU, HÖFN
HEIMAHORNIÐ,
STYKKISHÓLMI
LYFJA, PATRÓ.
PALOMA GRINDAVIK
FATABÚÐIN ÍSAFIRÐI
VERSLUNN RANGÁ, SKIPAS.
56
H-SEL LAUGAVATNI
ÞÍN VERSLUN, SELJABRAUT
RVK.
PLÚS MARKAÐURINN,
HÁTÚNI 106
GAMLA BÚÐIN, HVOLSVELLI
DALAKJÖR BÚÐARDAL
KASSINN ÓLAFSVÍK
RAFLOST, DJÚPAVOGI
BJARNI EIRÍKS, BOLUNGARVÍK
EINAR ÓLAFSS, AKRANESI
KRÓNAN REYÐARFIRÐI
KRÓNAN BÍLDSHÖFÐA
KRÓNAN SELFOSSI
KRÓNAN JAFNASELI
KRÓNAN HVALEYRARBRAUT
KRÓNAN LÁGHOLTSVEGI
KRÓNAN SKEIFUNNI
KRÓNAN MOSÓ
KRÓNAN VESTMANNAEYJUM
KJARVAL KLAUSTUR
KJARVAL VÍK
KJARVAL HVOLSVELLI
KJARVAL HELLU
11.11 HÖFN
EFNALAUG VOPNAFJARÐAR
ÚTSÖLUSTAÐIR
SLOGGITILBOÐ MAXI: