Fréttablaðið - 07.03.2006, Side 42

Fréttablaðið - 07.03.2006, Side 42
30 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 4 5 6 7 8 9 10 Þriðjudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Valur og HK mætast í DHL- deild kvenna í handbolta.  20.00 Fram og Stjarnan mætast í DHL-deild kvenna í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  19.00 Upphitun með Guðna Bergs á Sýn.  19.30 Barcelona-Chelsea á Sýn. Juventus-W. Bremen á Sýn Extra og Villarreal-Rangers á Sýn Extra2.  21.35 Meistaramörk á Sýn. Bikarmeistarar Vals í knattspyrnu eiga ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Liðið er landlaust sökum byggingarframkvæmda á Vals- svæðinu og þess vegna þarf liðið að leita að æfinga- svæðum út um alla borg og jafnvel hjá félögum sem Valur er í beinni samkeppni við. Æfingavikan hjá Val er því ansi skrautleg en hún byrjar klukkan 6.30 á mánudagsmorgnum í líkamsrækt- arstöðinni Hreyfingu. Síðar um kvöldið er æft á félagssvæði Fram. Á þriðjudögum er „mið- næturæfing“ í Egilshöll sem byrjar klukkan hálftíu og leik- menn eru því að skila sér heim um miðnæturleytið. Sökum þess hversu seint þessi æfing er þá er gefið frí á miðvikudeginum en klukkan 6.30 á fimmtu- dagsmorgun er aftur æfing í Hreyfingu. Rétt eins og á mánudög- um fylgir kvöldæfing í kjölfar- ið en hún fer fram á KR-velli. Á föstudögum er hvíld og svo er æfing á laugardegi. „Svona er bara landslagið hjá okkur og mér dettur ekki í hug að væla yfir þessu. Menn hafa lent í öðru eins, og við tökum því sem að höndum ber,“ sagði harðjaxlinn Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, sem sagðist hafa lent í álíka ástandi þegar hann var með Þrótt á sínum tíma og félagið flutti upp í Laugardal. Það segir sig sjálft að slíkur undir- búningur er enginn draumur fyrir þjálfara enda æfingaálagið mjög dreift. „Við mætum tilbúnir til leiks sama hvernig undirbúningurinn verður,“ sagði Willum Þór, sem er nokkuð bjartsýnn á að endurheimta Garðar Gunnlaugsson fyrir sumarið en hann fór sem kunnugt er til Skotlands þar sem hann er á mála hjá Dunfermline. BIKARMEISTARAR VALS: LANDLAUST LIÐ SEM ÆFIR ÚTI UM ALLA BORG Þýðir ekkert að væla yfir þessu Hannes í formanninn Hannes Sigurbjörn Jónsson, varaformað- ur KKÍ, hefur ákveðið að bjóða sig fram í formannskjöri sambandsins á næsta ársþingi en Ólafur Rafnsson hyggst láta af störfum þar sem hann ætlar í forsetaframboð hjá ÍSÍ. Hannes er eini frambjóðandinn enn sem komið er. HANDBOLTI Spútniklið vetrarins í handboltanum er án nokkurs vafa Fram. Þetta unga og skemmtilega lið hefur blómstrað undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar í sumar og hefur verið hreint frá- bært að fylgjast með framförun- um sem margir leikmanna liðsins hafa tekið undir hans stjórn. Liðið hefur sýnt undanfarið að það mun berjast um Íslandsmeistaratitil- inn allt til enda mótsins en þeir voru ekki margir sem höfðu trú á því fyrir veturinn. Liðið er á toppnum sem stendur og hefur því örlögin í eigin hendi. Ein af stjörnum liðsins er Akur- eyringurinn Sverrir Björnsson sem hefur bundið vörn Fram-liðs- ins saman með miklum myndar- brag og séð til þess að liðið saknar fyrirliða síns frá síðustu leiktíð, Guðlaugs Arnarssonar, minna en ella. Sverrir hafði lítið leikið hand- bolta í tæp þrjú ár þar sem hann var nánast meiddur allt síðasta árið sitt áður en hann hélt utan til Danmerkur og síðar Bandaríkj- anna í nám. Hann ætlaði sér í fyrstu að spila samhliða námi í Danmörku en ekkert varð af því. „Hungrið var einfaldlega ekki til staðar lengur. Það var líka ágætt að sjá að það var líf eftir boltann og ég kunni því ágætlega,“ sagði Sverrir léttur en hann fór aftur að sprikla er hann kom til Bandaríkj- anna, eins fáranlega og það nú hljómar. „Ég var hluti af 25 manna hópi sem æfði einu sinni til tvisvar í viku. Þetta voru meira og minna Evrópubúar sem höfðu kynnst handbolta og höfðu gaman af því að leika sér. Þetta voru nú engir snillingar en samt mjög skemmti- legt að spila með þeim,“ sagði Sverrir, sem var búsettur í Bos- ton. Álíka hópar frá New York og New Jersey voru einnig að æfa og liðin hittust síðan reglulega og spiluðu „túrneringu“ yfir helgi. Sverrir kom síðan heim til Íslands á ný síðasta sumar og var þá hvorki í góðu líkamlegu formi né leikformi. Hann missti af öllu undirbúningstímabilinu þar sem hann byrjaði ekki að æfa fyrr en í september og varð því að spýta vel í lófana. „KA vildi líka fá mig en svo fékk ég fína vinnu í Íslandsbanka og ákvað því að vera í bænum. Ég frétti af því að Guðmundur hefði áhuga á að fá mig til Fram, sem kom mér reyndar svolítið á óvart. Í kjölfarið vaknaði verulegur áhugi á að byrja aftur af fullum krafti,“ sagði Sverrir, sem byrjaði að hreyfa sig yfir sumarið þannig að hann var ekki alveg á byrjunar- reit í september. „Það kom samt skemmtilegt atvik fyrir fljótlega eftir að ég byrjaði. Þá var sendur póstur til mín þar sem var beðið um persónu- legar upplýsingar. Ég laug þá því hvað ég væri þungur og munaði alveg rúmum tug á þeirri tölu sem ég gaf upp og þeirri sem var raun- veruleg,“ sagði Sverrir og hló dátt enda kominn í gott form í dag. Sverrir lék við góðan orðstír hjá KA og Aftureldingu áður en hann fór út. Þá ekki síður sem sóknarmaður en sem varnarmað- ur en hjá Fram hafa tækifærin í sóknarleiknum verið af skornum skammti. Hann hefur leikið þeim mun betur í vörninni og kvartar ekki yfir hlutskipti sínu. „Ég er mjög sáttur enda finnst mér mjög gaman að taka á því í vörninni. Ég hef líka ábyrgðar- hlutverk í vörninni sem ég kann vel við. Það er gaman að því að Guðmundur skuli bera traust til mín og ég hef gert mitt besta til að endurgjalda traustið,“ sagði Sverrir, sem hefur fulla trú á því að Fram geti farið alla leið. „Það hafa allir gaman af því sem við erum að gera og við trúum því að við getum lagt hvaða lið sem er. Það er ekkert leyndarmál að við stefnum á titilinn úr því sem komið er.“ henry@frettabladid.is Laug til um þyngdina Sverrir Björnsson kom til landsins síðasta sumar allt of þungur og í engu formi. Með vilja og dugnaði hefur hann komið sér í form og það er ekki síst frábærum varnarleik hans að þakka að Fram situr í öðru sæti DHL-deildarinnar. LYKILMENN FAGNA Sverrir fagnar hér með markverðinum Egidijus Petkevicius en þessir fyrrverandi leikmenn KA hafa farið mikinn með Fram í vetur. Sverrir hefur bundið vörnina saman og Petkevicius varið vel fyrir aftan hana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Ekki liggur enn fyrir hver verður ráðinn aðstoðar- landsliðsþjálfari með Alfreð Gíslasyni. Reyndar er enn á huldu hvort það verði ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari yfir höfuð og að því er Einar Þor- varðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir kemur vel til greina að ráða einstakling í hvert verk- efni fyrir sig. Þar af leiðandi er líklegt að maður verði ráðinn eingöngu til að aðstoða Alfreð í leikjunum gegn Svíum. Eftir þá leiki yrði framhaldið skoðað á ný. Nöfn þeirra Geirs Sveinssonar, Dags Sigurðssonar og Guðmundar Guðmundssonar hafa helst verið nefnd í þessu sambandi. Margir telja líklegt að Guðmundur Guðmunds- sonar, fyrrum landsliðsþjálfari og núverandi þjálfari Fram, komi til með að vera við hlið Alfreðs í Globen- höllinni 11. júní næstkomandi en Guðmundur sagði við Fréttablaðið í gær að slík beiðni hefði ekki borist til hans. Ef hún kæmi væri alls óvíst hvað hann segði. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er málið á algjöru byrjunarstigi og frétta ekki að vænta á næstu dögum. - hbg Ekkert gerst í málefnum aðstoðarlandsliðsþjálfara í handbolta: Ekki fastráðinn aðstoðarmaður? GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON Aðstoðar hann vin sinn Alfreð? > Gunnar Þór hjá Lyn Gunnar Þór Gunnarsson, vinstri bakvörðurinn hjá Fram, er staddur hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lyn þar sem hann verður til reynslu út vikuna. Gunnar Þór fór til Noregs á sunnudag- inn eftir að félagið lýsti yfir áhuga á að skoða leikmanninn betur. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Gunnar Þór fer til reynslu til liðs á Norðurlönd- unum en áður hafði hann verið hjá Öster í Svíþjóð. Öster gerði í kjölfarið tilboð í Gunnar Þór sem forráðamenn Fram höfnuðu á þeim forsend- um að tilboðið hefði verið „hlægilega lágt“. FÓTBOLTI Hið óumflýjanlega átti sér stað í gær þegar Sunderland rak stjórann sinn, Mick McCarthy, úr starfi en hann hefur stýrt liðinu í þrjú ár. Hvorki hefur gengið né rekið hjá liðinu í vetur, það er langneðst í úrvalsdeildinni og svo gott sem fallið. Sunderland mun ráða bráða- birgðastjóra út tímabilið en fram- tíðarstjóri verður ráðinn í sumar. - hbg Mick McCarthy: Rekinn frá Sunderland FÓTBOLTI Mark Halsey, dómari leiks Chelsea og WBA, hefur klagað bæði félög til enska knattspyrnu- sambandsins vegna atvika í leik liðanna um helgina. Halsey segir leikmenn Chelsea hafa veist að sér, Mourinho hafa hegðað sér ósæmilega á hliðarlín- unni og liðið hafi mætt of seint til leiks í síðari hálfleik. WBA er klag- að vegna slæmrar hegðunar Bry- ans Robson, stjóra WBA, en það sló í brýnu á milli Mourinhos og Robsons á hliðarlínunni og mátti litlu muna að upp úr syði. - hbg Chelsea og WBA: Klöguð til aganefndar ÓLÆTI Mourinho og Robson lendir saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Hin fertuga markamask- ína Teddy Sheringham er ekki dauð úr öllum æðum. Þrátt fyrir háan aldur er hann að leika vel fyrir West Ham og er búinn að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár. Hann lætur einnig til sín taka utan vallar þar sem hann reynir stíft við Ungfrú Bretland þessa dagana. Sheringham var dómari í feg- urðarsamkeppninni og hefur sést á stefnumótum með hinni 22 ára gömlu Danielle Lloyd síðan en hann lét strax til skarar skríða eftir keppnina. - hbg Teddy Sheringham: Á eftir ungfrú Bretlandi Í BARÁTTU VIÐ LIONEL RITCHIE Danielle Lloyd er eftirsótt af Teddy Sheringham og söngvaranum Lionel Ritchie. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Raul Bravo, varnarmaður Real Madrid, kveðst hafa fengið það hlutverk að stöðva Thierry Henry hjá Arsenal í leik liðanna á miðvikudaginn. Henry fór afar illa með varnarmenn Real í fyrri leikn- um, en þá spilaði Bravo ekki eins og það hefur reyndast oftar verið í vetur. En þjálfarinn Juan Ramon Lopez Caro telur að Bravo búi yfir hraðanum sem varnarmenn þurfa að hafa til að hafa eitthvað í Henry að gera. „Ég er mjög þakklátur fyrir það traust sem hann sýnir mér og ætla að launa honum það með því að spila vel.” Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo kemur aftur inn í leikmannahóp- inn hjá Real eftir að hafa verið skilinn eftir í kuldanum gegn Atletico Madrid í spænsku deildinni á laugardag fyrir að leggja sig ekki nægilega fram. Ronaldo fær nú annað tækifæri og mun Fern- ando Martin, nýr forseti Real, vonast til þess að þessi aðvörun til Brasilúmanns- ins verði til þess að hann skori mörk gegn Arsenal. Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Benfica hafi ekkert sýnt í fyrri leik liðanna í sextánliða úrslitum Meistaradeildarinnar sem Liverpool muni ekki ráða við á Anfield. Gerrard er sigurviss fyrir síðari leikinn á miðviku- daginn og segir að andrúmsloftið á leikvanginum muni verða leikmönnum Benfica um megn. „Við höfum verið að spila vel að undanförnu og með hjálp áhorfenda er ég viss um að við förum áfram.” Robbie Fowler, sóknarmaður Liver-pool, segist ætla að skora í leiknum gegn Benfica, en það hefur ennþá ekki gerst síðan hann kom aftur til liðsins frá Man. City í lok janúar. „Heppnin hlýtur að fara að falla með mér og öðrum framherjum liðsins og ég vona að það verði á miðvikudaginn,“ sagði Fowler í gær. Lyon á við mikil meiðslavandræði að stríða fyrir síðari leikinn gegn PSV í kvöld og er allt útlit fyrir að fjórir fastamenn verði frá, en liðið spilar á heimavelli í kvöld eftir 1-0 sigur í Hol- landi í fyrri leiknum. ÚR SPORTINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.