Fréttablaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 46
 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HRÓSIÐ ...fær Stöð 2 fyrir að endurvekja Prúðuleikarana. LÁRÉTT 2 selur 6 stefna 8 dæling 9 forskeyti 11 í röð 12 krapi 14 sykurlögur 16 borðaði 17 spíra 18 höld 20 bardagi 21 tigna. LÓÐRÉTT 1 teikniblek 3 í röð 4 hlutavelta 5 beita 7 fjarskiptatæki 10 mánuður 13 augnhár 15 fálma 16 svif 19 klukkan. LAUSN: LÁRÉTT: 2 urta, 6 út, 8 sog, 9 sam, 11 mn, 12 slabb, 14 síróp, 16 át, 17 ála, 18 tök, 20 at, 21 aðla. LÓÐRÉTT: 1 túss, 3 rs, 4 tombóla, 5 agn, 7 talstöð, 10 maí, 13 brá, 15 pata, 16 áta, 19 kl. Hinn 18. mars verða sýndar í Háskólabíói heimildarmyndirnar Ég er arabi og 1001 nótt sem fjalla báðar um stríðið í Írak og þátttöku Íslendinga í því. Ég er arabi var sýnd fyrir þremur árum í Háskólabíói á kvik- myndahátíðinni Shorts and Docs en 1001 nótt er sjálfstætt fram- hald hennar, sem þeir Ari Alex- ander kvikmyndagerðarmaður og Sigurður Guðmundsson mynd- listarmaður eru að leggja loka- hönd á þessa dagana. Ari segir að myndin Ég er arabi hafi ekki fengist sýnd í sjónvarpi hér á landi vegna þess að hún hafi þótt of róttæk og ekki fallið að dagskrárstefnu sjónvarpsstöðv- anna. „Myndin fékk ekki mikla umfjöllun á sínum tíma. Umræðan eins og hún var í öllum fjölmiðlum var eins og þetta væri hið eina rétta þótt meirihluti Íslendinga, áttatíu prósent, væri á móti stríð- inu í könnun Gallups,“ segir Ari. „Fólk má bara hafa vissar skoðan- ir í þessu þjóðfélagi en þessi mynd beinist ekki að persónu Halldórs eða Davíðs.“ Að sögn Ara byggir 1001 nótt á myndefni sem hann hefur tekið af netinu og er nafnið vísun í að 1001 nótt sé liðin síðan stríðið hófst. „Á þessum þremur árum hefur ótrú- lega margt breyst. Ég hef fengið auðveldan aðgang að efni þar sem amerískir hermenn og arabar taka myndir af hermönnum að drepa fólk,“ segir hann. Myndirnar tvær verða sýndar hvor á eftir annarri og tekur sýn- ing þeirra alls um það bil 45 mín- útur. - fb Margt breyst á þremur árum ARI ALEXANDER Kvikmyndagerðar- maðurinn Ari Alexander sýnir á næst- unni tvær heimildarmyndir í Háskólabíói ásamt myndlistarmanninum Sigurði Guðmundssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Akureyringurinn og uppstopparinn Haraldur Ólafsson ætlar að hætta að stoppa upp fugla af ótta við hina skæðu fuglaflensu. Þess í stað ætlar hann að einbeita sér að því að stoppa upp fiska eins og hann hefur gert með góðum árangri undanfarin ár. Meðal ann- ars var hann kjörinn heimsmeistari atvinnumanna, fyrir lax frá Bíldu- dal sem hann stoppaði upp og fór með á HM sem var haldið í Illinois í Bandaríkjunum um síðustu páska. Myndlistarmaðurinn Örn Ingi Gísla- son fylgdi Haraldi eftir í ferðinni og tók upp heimildarmynd um ævin- týrið. Verður hún væntanlega frum- sýnd í sjónvarpi með vorinu. „Það má segja að ég sé hættur í bili. Eftir hinn átjánda næsta mán- aðar ætla ég að sjá til hvernig landið liggur. Það er engin skelfing í gangi og kollegar mínir í Skandinavíu ætla að halda áfram að taka inn fugla með vissum varúðarráðstöfunum,“ segir Haraldur. „Það er aldrei of varlega farið og alveg eins gott að bíða í nokkra mánuði. Það getur alveg verið að sama staða komi upp eftir ár þegar við fáum aftur far- fuglana til okkar. Það gæti orðið enn verra, hver veit?“ segir hann. Haraldur byrjaði fyrir alvöru að stoppa upp dýr fyrir níu árum. „Fyrir tólf til þrettán árum var þetta áhugamál en svo hætti ég að æfa og keppa í ólympískum lyftingum og þá varð til tími sem maður vissi ekki alveg hvað maður ætti að gera við,“ segir hann. „Ég hafði áhuga á veið- um og svo leiddi þetta hvert af öðru. Ég var búinn að keppa í lyftingum í tólf til fimmtán ár og fannst ágætt að halda bara áfram að keppa í þessu þó þetta væri allt, allt öðru- vísi.“ Haraldur segir góðan möguleika á að hann byrji aftur að stoppa upp fugla þegar fram líða stundir. „Ég er ekkert voðalega svartsýnn hvað framtíðina snertir hvað varðar þetta fugladót. Það er alveg nóg að baða þá upp úr 45% alkóhóli eða iðnaðar- spíra og svo er málið dautt. Fuglarn- ir komast heldur ekki yfir hafið ef þeir eru orðnir veikir en þetta sýnir að fólk er hugsandi. Allur vari er góður og það er um að gera að fara varlega,“ segir Haraldur, sem er einn af um það bil tíu uppstoppurum hér á landi. Er hann þegar byrjaður að búa sig undir næsta heimsmeistaramót, sem verður haldið í Reno í Nevada í haust. freyr@frettabladid.is HARALDUR ÓLAFSSON UPPSTOPPARI: HEFUR VAÐIÐ FYRIR NEÐAN SIG Hættur vegna fuglaflensu HARALDUR ÓLAFSSON Haraldur er hættur í bili að stoppa upp fugla. Mun hann þess í stað einbeita sér að fiskunum. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON 1. Íslandsbanka. 2. Björn Borg. 3. AZ Alkmaar. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á síðu 8. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI TÓNLISTIN Ég hlusta mest á rapp og rokk en á eiginlega enga sérstaka uppáhaldstónlistarmenn eða -hljómsveitir. Ég er frekar opinn fyrir tónlist af þessu tagi. Þær útvarps- stöðvar sem ég er hrifnastur af eru til dæmis X-ið, Xfm og Fm 95,7. BÓKIN Ég les eiginlega aldrei bækur og er meira fyrir að horfa á sjónvarpið í frístundum mínum. Ég glugga þó af og til í skólabækur eins og gengur og gerist. BÍÓMYNDIN Ég er mest fyrir spennumyndir og þá standa myndirnar Fight Club og Boondock Saints upp úr. Ég held ekkert upp á sérstaka leikara en ef þeir eru í spennumynda- geiranum er mjög líklegt að þeir höfði til mín. BORGIN Nýlega dvaldi ég í Melbourne í Ástralíu og heillaðist af þeirri borg. Mannlífið er lifandi og fólkið er ótrúlega almennilegt og vingjarnlegt. Ég var að taka þátt í HM og gekk það bara ótrúlega vel. BÚÐIN Þær sem ég held mest upp á eru búðirnar Brim og Smash. Þegar ég kaupi mér föt fer ég ítrekað í þessar tvær búðir og nánast eingöngu. Fötin sem fást í þess- um búðum höfða til mín og passa vel í minn fatastíl. VERKEFNIÐ Núna er ég nýkominn af HM og við taka stanslausar æfingar fyrir EM og næsta HM. Ég æfi tvisvar á dag svo það gefst lítill tími í nokkuð annað þessa dagana. Þetta er stíft prógram en mér finnst þetta skemmtilegt. AÐ MÍNU SKAPI: VICTOR KRISTMANNSSON FIMLEIKAKAPPI Rapp, spennumyndir og fimleikar FRÉTTIR AF FÓLKI Spjallvefurinn www.malefnin.com hefur verið einn helsti griðastaður kverúlanta á netinu á síðustu árum. Flest innlegg þeirra sem þar skrifa í skjóli nafnleyndar munu þó stangast á við nafn vefjarins og munu seint teljast málefnaleg en vef- urinn virðist hafa náð að fylla býsna vel það skarð sem innhringiþátturinn Þjóðarsálin skildi eftir sig á Rás 2. Eigandi Mál- efnanna, Stefán Helgi Kristinsson, hefur nú brugðið á það ráð að loka vefnum tímabundið, væntanlega vegna ítrekaðra ærumeiðinga sem málverjarnir svokölluðu hafa birt þar um nafngreinda einstaklinga. „Ég hef ákveðið að loka malefnin.com um óákveðinn tíma vegna aðstæðna sem hafa komið upp,“ segir Stefán í tilkynningu sem birtist gestum Málefnanna. Hann bætir því við að sér þyki „ægilega leiðinlegt að þurfa að gera þetta en mér virðist sem það sé eina leiðin eins og lagaumhverfið á Íslandi er í dag.“ Þá lætur hann þess getið að vefurinn sé til sölu. Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, er líklega einn þeirra sem gráta ákvörð- un Stefáns þurrum tárum en hann hóf á dögunum ákafa herferð gegn „nafnlausum rógberum“ á netinu. Þá hugsar keppinautur Stefáns, Hrafnkell Daníelsson sem rekur svipaðan vef undir léninu alvaran.com, sér vænt- anlega gott til glóðarinnar enda getur hann nú látið sig dreyma um aukna umferð um Alvöruna. Sjálfur hrökklaðist Hrafnkell af Málefnunum eftir að hafa lent upp á kant við spjallfélaga sína þar. Þá má ekki gleyma því að sprækustu málverjarnir stigu margir hver sín fyrstu skref á spjallvef Vísis en yfirgáfu hann vegna meintrar ritskoð- unar. Innherja- spjall Vísis er þó enn uppi og því hæg heimatökin fyrir nöldurþyrsta að snúa aftur til föðurhús- anna. - þþ Hefur sé› DV í dag? flú STALST Í SJÚKRASKRÁ ÖRYRKJA Yfirlæknir gekk erinda tryggingafélags Bíður áminning eftir úrskurð Persónuverndar 2x10 6.3.2006 21:06 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.