Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 56
Notaðir Bílar - Bíldshöfða 10
587-1000 - Bílasalan Skeifan
Verðtilboð kr. 6.890.000,-
Nýskráður 28.2.2006
Sjálfskiptur, loftkæling, leðuráklæði, sólúga, 7 sæta,
dökkar rúður, 6 diska geislaspilari, hraðastillir,
rafdrifin sæti, auka dekkjagangur á álfelgum
dráttabeisli, o.m.fl.
“Nýr” Toyota Land Cruiser 100
Blúsdívurnar frá Chicago, Deitra
Farr, Zora Young og Grana Louis,
og Mississippiblúsmaðurinn Fruit-
land Jackson verða aðalgestir Blús-
hátíðar í Reykjavík, auk rjómans
af íslenskum blústónlistarmönn-
um. Hátíðin fer fram á Nordica
Hotel dagana 11.-13. apríl og í Frí-
kirkjunni á föstudaginn langa.
Blúshátíð verður sett með tón-
leikum á Nordica þann 11. apríl.
Þar koma fram Andrea Gylfadóttir
Páll Rósinkranz, Skaf, óvæntur
leynigestur og fleiri. Kvöldið eftir
mun Fruitland Jackson halda tón-
leika ásamt Dóra Braga, Sigga Sig.,
Krummunum, Fjallaskáldunum og
óvæntum leynigesti. Skírdags-
kvöld taka Dívurnar þrjár völdin
með Vinum Dóra og að kvöldi
föstudagsins langa syngja þær gos-
pel og sálma ásamt Fruitland Jack-
son og íslenskum tónlistarmönnum
í Fríkirkjunni. Miðaverð er 2.000
krónur á hvert kvöld eða 5.000
krónur á öll kvöldin. Miðasala er
hafin og fer fram í verslunum Skíf-
unnar, BT á Akureyri og Selfossi
og á midi.is. Nánari dagskrá má
finna á blues.is.
Blúshátíð í apríl
FRUITLAND JACKSON Blúsarinn frá Mississippi er á leiðinni til Íslands í apríl.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Mér heyrist sem Graham Coxon,
fyrrum gítarleikari Blur, hafi nýlega
lent í ástarsorg. Að minnsta kosti
fjalla flestir textarnir á nýju plötu
hans, Love Travels At Illegal Speeds,
um ástir sem aldrei fengu að
blómstra. Hann hljómar örlítið
bitur.
Mér heyrist hann líka reyna að
höfða til yngri hlustendahóp en áður.
Lögin eru flest byggð á einfaldari
gítarstefjum en áður og hljómur
plötunnar er pönkaður, skítugur og
óheflaður eins og hjá Babyshambles
eða Artic Monkeys. Það fer Coxon
svo sem ágætlega, en einhvern veg-
inn fæ ég á tilfinninguna að hann sé
að reyna elta eitthvað í stað þess að
leyfa hæfileikum sínum að hrinda
sér í ný og óvæntari ævintýri. Af
einhverjum ástæðum trúi ég því
bara ekki að hann hafi ennþá mestar
mætur á því að semja lög sem minna
á Song 2 eða önnur lög með Blur.
Síðasta plata Coxons, Happiness
in Magazines, var nokkuð fín og
fékk betri viðtökur en fyrri plötur
hans. Fyrir vikið gefur hann út
þessa sjöttu breiðskífu sína hjá EMI,
sem gefur enn út plötur Blur.
Honum tekst alveg sæmilega til
hérna. Lítið hægt að setja út á laga-
smíðar, þannig séð, en þær sökkva
einhvern veginn ekki mjög djúpt
inn. Platan hljómar eins og lögin séu
hönnuð fyrir tónleikasett, og kannski
væri best að upplifa þau þannig. Á
plasti eiga þau til að virka örlítið
pirrandi í einstefnu sinni. Kannski
vegna þess að maður fær á tilfinn-
inguna að maður hafi heyrt þau öll
áður, eða að minnsta kosti keimlík
lög.
En á köflum nær þetta að vera
nokkuð hressandi pöbbaplata. Get
vel séð fyrir mér hóp af hafnar-
verkamönnum saman á pöbbnum
fyrir fótboltaleik að taka lúftgítar
með nokkrum lögunum hérna.
Graham Coxon virðist vera að
taka skýra stefnu á sólóferli sínum,
og það er að hljóma eins og pönkaðri
lög Blur gerðu. Persónulega vildi ég
nú bara óska þess að hann og Damon
myndu grafa stríðsöxina og Coxon
myndi taka upp stöðu sína aftur í
þeirri frábæru sveit. Hann gæti vel
haldið áfram að gefa út svona plötur
sem hliðarverkefni, en hann á lík-
legast aldrei eftir að skína jafn bjart
einn og hann gerði sem liðsmaður
þeirrar sveitar.
Birgir Örn Steinarsson
Reiður og bitur með
brostið hjarta
GRAHAM COXON:
LOVE TRAVELS AT ILLEGAL SPEEDS
Niðurstaða: Sjötta breiðskífa Grahams Coxon
er hrá, pönkuð og keyrð áfram með sóðaleg-
um gítarstefjum. Hljómar eins og tilraun til
þess að komast aftur inn í bílskúrinn.
Tölvuleikurinn Godfather er kom-
inn út fyrir PC, Playstation 2, Xbox
og PSP. Leikurinn er byggður á
bókinni Godfather eftir Mario Puzo
og samnefndri kvikmynd. Hefur
leikurinn þegar fengið mjög góða
dóma gagnrýnenda.
Godfather er saga um fjöl-
skylduna, virðingu og tryggð.
Leikurinn gerist í New York á
árunum 1945 til 1955, þar sem
leikmenn eiga að klifra upp met-
orðastiga mafíunnar og ná yfir-
ráðum yfir borginni.
Myndin Godfather skartaði
mörgum af þekktari leikurum
Hollywood og komu sumir þeirra
að gerð leiksins. Meðal þeirra sem
ljá leiknum rödd sína og andlit eru
Marlon Brando sem Don Vito Cor-
leone, James Caan sem Sonny Cor-
leone og Robert Duvall sem Tom
Hagen.
Godfather kominn út
DON CORLEONE Guðfaðirinn stjórnar
hlutunum með harðri hendi í tölvuleiknum
Godfather.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Queen Latifah er í skýjunum með nýja Ice Age karakterinn sinn en
hún er ein af þeim sem tala inn á
myndina. Hún talar fyrir stóran mammút
og segir þetta í fyrsta sinn sem hún
hefur haft nógu stóran rass. „Ég hef
aldrei verið með mjög
stóran rass miðað við
svart fólk. Ég er ekki
með lítinn rass en
ekki mjög stóran.
Ég er því ánægð
með að geta haft
stóran rass í
teiknimynda-
heiminum
fyrst ég er ekki
með slíkan
í alvörunni,“
sagði Latifah.
Leikarinn John Leguizamo segir það hafa reynst talsvert erfitt fyrir hann
að leika í Bráðavaktinni vegna þess að
allir vinnuhrekkirnir beindust að honum.
„Það var eins og þau væru að bjóða
mig velkomin í fjölskylduna með því að
hrekkja mig,“ sagði hann en vinnu-
hrekkirnir eru orðnir klassískir síðan
hrekkjalómurinn George Clooney lék í
þáttunum. „Í einum þættinum var mikill
texti og í lok síðasta atriðis-
ins átti ég að ná í hanskana
mína í vasann. Þau höfðu
hins vegar bundið þá alla
saman svo ég þurfti að
taka upp allt atriðið
aftur. Þau settu líka
vaselín á símann
minn þegar ég átti
að hringja í einni
senunni,“ sagði
Leguizamo.
Sylvester Stallone hefur verið gagn-rýndur fyrir að koma leikkonunni
Ellen Barkin ekki til hjálpar þar sem hún
var í andnauð á veitingastað. Stallone
fullyrðir hins vegar að hann hafi ekki
tekið eftir atvikinu. „Ef hún var að hósta
og nánast kafna hefur hún gert
það mjög kurteisislega
því ég tók ekki eftir
því. Ég hefði pottþétt
blandað mér í slaginn
ef svo hefði verið.
Ef ekki bara til að
reyna að sleppa
við að borga
reikninginn,“ sagði
Stallone.
Tónlistarmaðurinn Wyclef Jean tók sér pásu frá hjálparstörfum sínum til
þess að vinna með Shakiru fyrir
næstu plötu hennar. „Ég hef verið
að vinna að hjálparstörf-
um á Haítí að undan-
förnu og fór þaðan til
Ameríku til að vinna
með Shakiru,“ sagði
Wyclef sem býr nú á
Bahamaeyjum. „Þetta
er besti staðurinn í Kar-
íbahafinu. Þetta gerist
ekki betra en hér.“
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
THE PRODUCERS kl. 8 og 10.45
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 3 og 5.50
RENT kl. 5.20 B.I. 14 ÁRA
CAPOTE kl. 8 B.I. 16 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 2.40 og 10 B.I. 12 ÁRA
CONTANT GARDENER kl. 5.30 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 3 og 10.20
THE PRODUCERS kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.45
SÝND Í Í LÚXUS kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.45
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 1, 3.40, 5.45, 8 og 10.15
PINK PANTHER kl. 1, 3.45, 5.50, 8 og 10.10
YOURS MINE AND OURS kl. 4 og 6
RENT kl. 8 og 10.45 B.I. 14 ÁRA
ZATHURA M/ÍSLENSKU TALI kl. 1 B.I. 10 ÁRA
D.E.B.S. kl. 4
STRÁKAR-STRÁKUM kl. 6
TRANNYSHACK kl. 8
SEVIGNÉ kl. 10
TRANSAMERICA kl. 8
SKEMMTU ÞÉR VEL
Á FRÁBÆRRI FJÖLSKYLDUMYND!
ÓSKARSVERÐLAUNIN
Besta leikkona
í aukahlutverki
Rachel Wisz
- DÖJ, kvikmyndir.com
ÓSKARSVERÐLAUNIN
sem besti leikari í
aðalhlutverki
Mamma allra
grínmynda er
mætt aftur í bíó!
Fór beint á
toppinn í
Bandaríkjunum
Í REGNBOGANUM
- SV MBL.IS
WWW.XY.IS
200 kr.
afsláttur fyrir
XY félaga
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STEVE MARTIN
KEVIN KLINE
JEAN RENO
BEYONCÉ
KNOWLES
Pink Panther demanturinn er horfinn og
heimsins frægasta rannsóknarlögregla
gerir allt til þess að klúðra málinu...
SPRENGHLÆGILEGUR SÖNGLEIKUR
FRÁ GRÍNSNILLINGNUM MEL BROOKS!!
ÓSKARSVERÐLAUNIN
sem besta leikkona í
aðalhlutverki - Reese
Witherspoon
UPPLIFÐU MAGNAÐAN
SÖNGLEIKINN!!
STÚTFULL AF
STÓRKOSTLEGRI
TÓNLIST!
2 FYRIR 1
FYRIR VIÐSKIPTAVINI GULLVILDAR
- L.I.B - TOPP5.IS
- S.K. - DV
TRISTAN & ISOLDE kl. 5.45, 8 og 10.20
THE NEW WORLD kl. 10
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 4, 6 og 8
NANNY MCPHEE kl. 2 400 KR.
YOURS MINE & OURS kl. 2 400 KR.
PINK PANTHER kl. 4