Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 35
ette. Franski næringarfræðingur- inn Francoise L‘Hermite segir að franska leyndarmálið sé að setjast niður með fjölskyldu eða vinum þegar þú snæðir, og að borða þrjár máltíðir alltaf á sama tíma dags. Hún bendir á að Frakkar borði aldrei fyrir framan sjónvarpið og að þeir borði mjög hægt og njóti bæði matarins og félagsskapar- ins. „Í Frakklandi eru matmáls- tímar mjög sérstakar stundir, þar sem þú deilir bæði mat og sam- ræðum,“ segir hún. „ Í Norður- Evrópu, Englandi og Ameríku virðist matur bara vera orkugjafi fyrir líkamann. Þú átt alltaf að njóta þess sem þú borðar. Annars ertu að brjóta allar reglur.“ Inga Þórsdóttir, prófessor í næringar- fræði hjá Landspítalanum, segir þó að börn í Suður-Evrópu séu að hraðfitna og tíðni offitu t.d. í Ítalíu há, sennilega vegna skyndibita- bylgju sem er koma þangað lika. „Hinsvegar hafa þeir kannski komist lengur undan þeirri hörðu markaðssetningu á óhollu fæði sem við höfum orðið fyrir barðinu á hér og td. Bandarikjunum og Bretlandi. Matarhefðir Frakka hafa vafalaust hjálpað þeim til þess að sporna betur við þessari þróun.“ Spornað við skyndibitamenningunni Sumsé - máltíðir í Frakklandi sinna félagslegri þörf. Þær eru samsett- ar af nokkrum smáum réttum, með nægum tíma á milli fyrir melting- una. Hér á Íslandi borðum við mikið meira af tilbúnum og hálf- tilbúnum réttum. Við borðum skyndibitamat reglulega. Við borð- um einn rétt, og venjulega mikið af honum. Mismunandi fjölskyldu- meðlimir borða oft mismunandi hluti á mismunandi tímum. Það tekur okkur korter að undirbúa kvöldmatinn. Á meðan við erum að innbyrða risavaxið Mars-súkku- laði á rauðu ljósi í hádeginu eru Frakkar að fá sér litla bita á meðan þeir ræða um hvað þeir eru að borða. Allir sem hafa eytt sumar- fríi í Suður-Frakklandi hafa tekið eftir því að Frakkar eru upptekn- ari af gæðum en magni. Í næstum hverju einasta smáþorpi í Frakk- landi eru markaðir stútfullir af heimagerðum pylsum, geitaosti, fíkjum og trufflum úr skóginum. Þetta er ekki bara kostur fyrir miðstéttina sem á nægilegan pen- ing, heldur er alltaf eitthvað til, fyrir alla, alla daga. Í stað þess að vera háðir tilbúnum vörum sem eru stútfullar af rotvarnarefnum og óæskilegri fitu leggja Frakkar mikið upp úr því að framreiða óunninn mat. Þess vegna velja franskar konur frekar bita af dökku „alvöru“ súkkulaði heldur en til dæmis Snickers-stöng. Þetta er líka spurning um snobb sem þær frönsku eru þekktar fyrir. Snobb er líka gott fyrir línurnar. Markaðurinn fyrir tilbúnar mál- tíðir í Bandaríkjunum jókst um 39 prósent frá árunum 1999 til 2003 og hinn þriggja milljarða dollara markaður fyrir „fæðustangir“ á víst að tvöfaldast árið 2007. Amer- íska tilbúna fæðan er farin að ná í hillur íslenskra matarverslana með sínu ískyggilega innihaldi. Pakkningar eru ofast risastórar eða Supersize. En hversu lengi frakkar geta haldið út gegn skyndi- menningunni er spurning. Nýjar tölur sýna því miður að Frakkar eru að fitna eftir því sem fleiri hamborgarastaðir bætast í hópinn. Vonandi munu frakkar heyja harða baráttu til að halda áfram þjóðar- sambandi sínu við mat. Kannski verður það pjattið og snobbið sem mun bjarga frönskum konum. Eins og Anne Barone segir í bók sinni: „Franska konan sér sig sem fallega konu fyrst og fremst, þrátt fyrir alla galla sem hún kann að hafa. Henni finnst hún eiga skilið að vera grönn og heilbrigð og geta klætt sig í falleg föt.“ Ef við setj- um mat í aðalhlutverk í okkar skyldum hlaðna lífi í stað þess að troða honum inn um varir okkar þegar við höfum nokkrar mínutur aflögu getum við kannski hætt í sífelldum vítahring megrunar, ofáts og samviskubits. Og þá kom- umst við jafnvel líka í Chanel- dragtina í stærð 38. Anna Margrét Björnsson bjó í París í tvö ár og reynir að ala börn- in sín upp eftir frönskum matar- hefðum. Chic and Slim: How French women eat all that rich food and don‘t get fat eftir Anne Barone og French women don‘t get fat eftir Mireille Giuliano fást báðar á amazon.com ■ Florence Helga Guérin, lista- kona og móðir í París Ég er hálf íslensk og hálf frönsk, en matarvenjur mínar eru fransk- ar. Ég borða þrjár máltíðir á dag á reglulegum tímum, og oftast við matarborðið. Ég borða alltaf mikið af grænmeti og ávöxtum, og tek sérstaklega eftir því að á Íslandi borðar fólk á hvaða tíma dags sem er. Þeir fá sér kannski ís klukkan 14 og svo pizzu klukkan 16! Það er líka virkilega mikið af skyndibita- stöðum og sjoppum á Íslandi, miklu meira en í París. Ef ég ætti heima á Íslandi myndi ég fá mér fisk á hverjum degi, en að vísu eru pylsur og kókosbollur svo góðar að hver veit, kannski gæti maður aldrei staðist þetta. PARÍSARDÖMUR Að snæðingi á veitingahúsi við St. Germain götuna á vinstri bakka Parísar- borgar á sjötta áratugnum. LAUGARDAGUR 25. mars 2006 35 Fermingargjafir fyrir poppara, rappara og rokkara... Rafmagnsgítarar frá 15.900 kr. Trommusett frá 36.500 kr. Kassagítarar frá 10.900 kr. Gítarmagnarar frá 9.900 kr. Mbox með Pro Tools frá 41.500 kr. Hljómborð frá 23.900 kr. Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.