Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 16
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 ������������������ ��������� �������������������������������������������� ������������������������������� ����������� �� ��������������������������������������� ��������������������������������������������� ������������������������������������������� ������������������������������������ ���� ������������������������������������������ ���������������������������������������� ��������������������������������������������� ������������������ ������������������������� ���������������������������������������������� ���� ������������������ �������������� ���������������������� ������������ ��������������������� ������������������ Aðeins rúm fyrir pólitík í pólitík Helga Sigrún Harðardóttir, skrifstofu- stjóri þingflokks Framsóknarflokksins, gerir fréttaflutning á mbl.is og ruv.is að umtalsefni í pistli á timinn.is sem er einn af áróðursvefjum flokksins. Á fréttamiðl- unum tveimur var sagt frá umræðum á þingi um flutning Fæðingar- orlofssjóðs út á land. Mbl.is sagði flutn- ingnum fagnað á þingi en ruv.is sagði flutninginn gagnrýndan. Helga Sigrún segir í pistli sínum athyglisvert að sjá svo augljóslega hve pólitískar skoðanir fréttamanna lita frásagnir þeirra. Ekki virðist rúm í kolli Helgu Sigrúnar fyrir nokkuð sem kallast fréttamat og þarf svo sem ekki að koma á óvart enda eru þeir sem gefa sig að stjórnmálum einkar lagnir við að skoða tilveruna út frá pólitík og engu öðru. Banabiti Framsóknar Helga Sigrún er þeirrar skoðunar að stjórnmálaflokkarnir hafi almennt slík tök á fjölmiðlunum að þeir geti vélað um hverjir vinni á miðlunum og hverjir ekki. Segir hún Framsóknar- flokkinn algjörlega frían af slíku og veltir fyrir sér hvort hann geti hreinlega dáið drottni sínum sökum þess. Orðrétt segir hún: „Í mínum huga er vald fjölmiðlanna ógnvænlegt og hafa framsóknarmenn goldið þess til langs tíma, að hafa ekki potað sínu fólki að í réttar stöður á fjölmiðlunum. Framsóknarmenn treysta á lýðræðið, málfrelsið og sanngirnina og hafa neitað sér um að taka þátt í þeim leik sem leikinn hefur verið á fjölmiðlun- um. Ég velti fyrir mér hvort það verður hans banabiti.“ Rangnefni Þegar Bandaríkjaher var fundinn staður á Íslandi á sínum tíma varð Miðnesheiði á Suðurnesjum fyrir valinu. Fljótlega var flugvöllurinn nefndur Keflavíkurflugvöll- ur og má af því ætla að völlurinn hafi tilheyrt Keflavík og síðar Reykjanes- bæ. Svo er ekki því Miðnesheiði er í Sandgerði þar sem útgerðarfélagið Miðnes var lengi helsti vinnustaðurinn og bæj- arskrifstofurnar standa við Miðnestorg 3. Út frá þeirri staðreynd væri því í raun réttara að flugvöll- urinn héti Sandgerðisflug- völlur og kannski lag fyrir Sandgerðinga að Frelsi snýst um að eiga val. Þess vegna er frelsið kjarni þess sem við köllum mennsku. Mannfólkið þarf að borða, sofa, lifa og fjölga sér en í því felst engin sérstaða. Það eru valkostirnir sem gera okkur mennsk. Valkostirnir eru líka kjarni sjálfsvitundarinnar. Ef ættum ekki valkosti þyrftum við enga sjálfsvitund, aðeins eðlishvatir. Valkostir mannanna eru tak- markaðir við stað, stund og iðu- lega er þrengt að þeim af öðru fólki. Öll frelsisbarátta snýst hins vegar um að fjölga þessum valkostum, geta valið sér nýtt hlutskipti. Mestu takmarkanirn- ar á frelsinu er þegar fólki er sagt að það eigi ekkert val. Að valkostir séu ekki „raunhæfir“, að við eigum að gera eins og allir aðrir, að lestin sé komin af stað og bruni áfram án þess að neitt sé við því að gera. Í orðræðu frelsis- sviptingar þá heita ögrandi val- kostir „draumórar“, „öfgar“ eða „jaðarskoðanir“. Mannfólkið skiptist ekki með afgerandi hætti í frjálsa menn og þræla. Þvert á móti erum við öll stödd á mismunandi stigum frels- is. Margir þættir hafa áhrif á það. Fólk getur fjölgað valkostum sínum með því að skapa sér greið- an aðgang að ýmsum lífsgæðum samfélagsins, t.d. menntun og upplýsingu. Frelsið snýst að hluta til um aðgengi að lífsgæðum. Auðhyggjan segir okkur að ríkidæmi fjölgi valkostum. Við sjáum þetta endurspeglast í aug- lýsingum fjármálastofnana. Þetta er að hluta til rétt, en þá verður fólk að vera samkvæmt sjálfu sér. Auðhyggjumaður sem heldur því fram að fátækt fólk hafi sama frelsi og þeir sem hafa meira, t.d. til að forða sér undan náttúru- hamförum, er ekkert annað en hræsnari. En orðræða um frelsið er því miður iðulega hræsnisfull. Það er fleira en auður sem fjölgar valkostum fólks. Fyrir þá sem skortir auðinn er það sam- takamátturinn og samstaðan sem breytir lífinu. Þegar samtaka- mátturinn veikist þá fækkar val- kostum hinna veiku. Ein leiðin til að veikja samtakamáttinn er að segja fólki að það eigi í raun ekki val, að mótmæli gegn valdhöfum séu tilgangslaus, að það sé „búið að ákveða“ eitthvað. Þannig virk- ar orðræða frelsissviptingar líka. Pólitík snýst fyrst og fremst um frelsi. Frelsisbarátta blökku- manna í Bandaríkjunum og Suður-Afríku snerist um að öðl- ast sömu valkosti og aðrir hópar. Kvenfrelsi snýst um að konur eigi sömu valkosti og karlar, sem þær eiga því miður ekki ennþá í okkar upplýsta nútímasamfélagi. Gegn þessum baráttuhreyfingum stendur íhaldsstefnan, sem boðar að frelsi eins megi ekki auka á kostnað annarra. Og það er vissu- lega rétt, að aukið valfrelsi eins hóps getur takmarkað frelsi ann- ars hóps, hópsins sem hefur van- ist því að drottna yfir öðrum. Frelsið getur verið takmörkuð auðlind í sumum tilvikum. Það er hins vegar afskræming frelsisins til að velja á milli ólíkra valkosta að halda því fram að frelsið sjálft geti verið valkostur. Að hægt sé að „velja frelsið“. Þegar íhaldsstefnan kennir sig við frjálshyggju þá er hún í raun að reyna að takmarka valkostina því að auðvitað vilja allir frelsið. Með því að kalla sig „frjáls- hyggju“ reynir íhaldsstefnan að takmarka frelsi okkar til að velja eitthvað annað en hana. Einokun á frelsishugtakinu getur aldrei orðið annað en tilraun til frelsis- skerðingar. Sama hugsun kom fram með öllu róttækari hjá bandaríska íhaldsmanninum Francis Fuku- yama þegar hann bjó til frasann „endalok sögunnar“. Í skilningi hans merkti þetta endalok pólit- ískra valkosta, að framvegis ættum við aðeins valkost sem væri auðvald, markaðshyggja og hið afar takmarkaða borgaralega lýðræði. Ekki er hægt að hugsa sér meira ófrelsi en þetta, að ein- ungis einn pólitískur valkostur sé í boði. Sem betur fer hafa margir komið auga á þetta og andóf gegn þessari hugmyndalegu einokun brýst m.a. fram í mótmælum gegn hnattvæðingunni. „Hnatt- væðingin“ er jú ekki annað en tröllaukin tilraun pólitískra og efnahagslegra valdahópa til þess að eyða valkostum jarðarbúa, að steypa alla veröldina í sama mót. Krafan um takmörkun val- kostanna kemur ekki aðeins frá íhaldsmönnum, þótt þeir séu helstu merkisberar hennar nú á dögum. Hugmyndin um sam- ræðustjórnmál er t.d. vinsæl hjá norrænum félagshyggjumönn- um. Við verðum hins að gæta okkur vel á því að samræðu- stjórnmál geta auðveldlega umhverfst í samstöðustjórnmál, þar sem krafa er gerð um að þjóð- in hafi einn vilja. Við eigum frek- ar að efla orðræðu frelsisins, skerpa hugmyndina um að það séu alltaf margir kostir í boði. Það er alltaf til önnur leið. Frelsið er forsenda mennskunnar Í DAG FRELSIÐ SVERRIR JAKOBSSON Með því að kalla sig „frjáls- hyggju“ reynir íhaldsstefnan að takmarka frelsi okkar til að velja eitthvað annað en hana. Einokun á frelsishugtakinu getur aldrei orðið annað en tilraun til frelsisskerðingar. Úrslit kosninganna í Hvíta-Rússlandi um síðustu helgi voru eins og menn höfðu almennt búist við. Lúkasjenko fékk um 83 af hundraði greiddra atkvæða. Hann hefur því ekki að ástæðulausu af mörgum verið talinn síðasti einræð- isherrann í Evrópu. Það gefur því auga leið að það er erfitt fyrir andstæðinga hans að heyja einhverja raunverulega kosn- ingabaráttu, þar sem hann hefur heljartök á fjölmiðlum í land- inu, ekki síst sjónvarpinu sem er ríkisrekið og forsetinn virðist stjórna því beint. Einvaldurinn Alexander Lúkasjenko hefur því þriðja kjörtímabil sitt sem forseti Hvíta-Rússlands örugg- ur í sessi, því hann tekur ekki mikið mark á margra daga mót- mælum í miðborg höfuðborgarinnar Minsk, og lét reyndar hreinsa torgið þar í gær í orðsins fyllstu merkingu. Nokkur hópur mótmælenda hefur haldið þar til í tjöldum í vorkuldan- um undanfarna daga, en ekki haft erindi sem erfiði. Þrátt fyrir öfluga sveit eftirlitsmanna frá Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu er ljóst að kosningarnar fóru ekki fram með lýðræðislegum hætti. Það eru ekki aðeins grunsemdir um kosningasvindl á sjálfan kjördaginn, heldur halda flestir hinna erlendu eftirlitsmanna því fram að aðdragandi kosninganna hafi ekki verið á þeim lýðræðislegu nótum sem menn eru vanir á Vesturlöndum. Andstæðingum forsetans var ekki gefinn kost- ur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, þannig að hinar tíu milljónir íbúa landsins gætu gert sér einhverja grein fyrir stefnumálum þeirra. Þeirra helsta vopn var að fara hús úr húsi og boða þannig fagnaðarerindið. Rússar eru þó ekki sammála því að kosningarnar hafi ekki farið fram með lýðræðislegum hætti. Í opinberum yfirlýsing- um frá Moskvu segir að ekki verði annað séð en að kosningarn- ar hafi farið fram samkvæmt almennt viðurkenndum reglum og að ekkert gefi tilefni til að efast um lögmæta niðurstöðu þeirra. Þessi yfirlýsing Rússa kemur ekki á óvart, því þótt talað sé um að persónulegt samband þeirra Pútíns Rússlands- forseta og Lúkasjenko sér ekkert sérstakt, þá eru Hvít-Rússar mikilvægir nágrannar Rússa og samskipti landanna mikil. Hvít-Rússar eru mjög háðir Rússum hvað varðar gas sem orkugjafa og til þess hefur verið tekið að Rússar hækuðu ekki verið á gasinu til Hvít-Rússa nú um áramótin, líkt og til margra annarra. Formælendur Evrópusambandsins hafa gagnrýnt mjög hvernig staðið var að kosningunum í Hvíta-Rússlandi um síð- ustu helgi, en geta lítið annað gert. Viðskiptaþvinganir myndu fyrst og fremst koma niður á fátækum íbúum landsins, þar sem meðalmánaðarlaun í fyrra eru talin hafa verið sem svarar sex- tán þúsund krónum íslenskum. Það er frekar talið vænlegt að beita pólitískum þrýstingi á stjórnvöld í Rússlandi til að hafa áhrif á gang mála í Hvíta-Rússlandi, vegna þess hve Rússar eiga mikið undir því að vera í góðu sambandi við Vesturlönd. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Lúkasjenko kosinn sem einræðisherra. Langt í lýðræðið hjá Hvít-Rússum ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.