Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 42
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR42 Enginn aðgangur,“ stendur á tveimur tungumálum á hurðinni. Ég opna hana og geng inn. Efst í stiganum stendur dimm, kuflklædd vera þögul og hreyfingarlaus. Ég geng upp tröppurnar, og ábótinn býður mér inn. Valamo-klaustur hefur, eins og svo margt í Finnlandi, átt sér harmþrungna sögu. Það var á eyju á Ladoga-vatni á landamærum sænsku og rússnesku konungs- ríkjanna, þar sem oft var barist, og klaustrið jafn oft brennt. Munk- arnir þar voru þekktir fyrir að vera hreinni í anda og af harðara efni en aðrir, og voru þeir því sendir í erfiðustu verkefni orþód- okskirkjunnar, svo sem að þramma í gegnum alla Síberíu til að kristna pólsvæði Norður-Ameríku. Í kirkjugarðinum er kapella til minnis um Heilagan Hermann, sem snérí ínúítum í Alaska til orþódokstrúar. Og orþódoks eru þeir enn, þó að bandaríska heims- veldið hafi tekið við völdum af því rússneska þar um slóðir. Prinsinn og íkoninn „Fyrir hundrað árum síðan var Valamo-klaustur eitt ríkasta klaustur Rússlands, og þar voru um þúsund munkar,“ segir ábót- inn. „En svo þegar fyrri heims- styrjöldin braust út voru allir þeir sem ekki var búið að innvígja sendir í herinn, og ekki sneru þeir allir aftur. Þegar svo kommúnist- ar tóku völdin reyndu þeir mark- visst að gera út af við trúarbrögð, og þegar seinni heimsstyrjöld braust út voru bræðurnir ekki orðnir nema 200.“ Klaustrið hafði þá orðið hluti af Finnlandi, sem lýsti yfir sjálfstæði árið 1917. „Í Vetrarstríðinu milli Finn- lands og Sovétríkjanna þegar landsvæðið tapaðist til Rússlands sendi finnski herinn fjörutíu vöru- bíla til að flytja bræðurna og helstu verðmæti til hina nýju landamæra.“ En hvers vegna var hinu nýja klaustri valinn staður í Valamo? Ábótinn sýnir mér mynd af tveim- ur dýrlingum hangandi fyrir ofan dyrnar. „Prins Henrik af Hollandi kom í heimsókn í gamla klaustrið rétt fyrir stríð og fékk þar íkona gef- ins. En þegar hann fór í heimsókn í sumarhús finnsks þingmanns hinum megin við landamærin gleymdi hann íkonanum þar. Þegar þingmaðurinn svo bauð húsið til sölu fannst íkoninn, og við vissum að Guð hafði valið okkur stað hér.“ Ísland tilheyrir Moskvu Ábótinn kynnir sig sem Sergei, en það er þó ekki skírnarnafn hans. Hann er reyndar alfinnskur í báðar ættir. „Faðir minn var orþódoks, en móðir mín lútersk, og flestir orþodokstrúar í Finn- landi eru kvæntir lúterstrúar- mönnum. Trúin er þó vaxandi, aðallega vegna innflutnings Rússa, en einnig Grikkja og Rúmena.“ Sergei segist hafa heyrt að á undanförnum áratug hafi fyrsta orþódokskirkjan verið opnuð á Íslandi. Í Finnlandi eru um 60.000 orþódokstrúar, og þó það sé ekki nema rúmt eitt prósent af þjóðinni telst kirkjan þó sem þjóðkirkja númer tvö, og prestar fá laun sín greidd frá ríkinu. Finnland heyrir undir patríarkann í Ístanbúl, sem er einn elsti og virtasti patríarka- stóllinn frá því borgin var höfuð- borg Austrómverska heimsveldis- ins, en Ísland heyrir undir patríarkann í Moskvu. Garðyrkjumaður eða guðsmaður? En hvernig kom það til að Sergei ákvað að gerast munkur? „Ég kom fyrst til Valamo og hóf að hefja sjálfboðastörf hér þegar ég var fjórtán ára gamall. Mér fannst þetta vera eins og himna- ríki, afar friðsælt og fallegt. Ég hef aldrei íhugað neitt annað alvarlega, nema þá kannski helst að verða garðyrkjumaður. Þegar ég kom úr hernum árið 1989 sótti ég svo um að gerast munkur. En ábótinn neit- aði að blessa mig, og sagði að ég ætti að fara í skóla og gerast orþód- oks kennari í staðinn. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum og hóf fram- haldsnám í Joensuu, en sumarið eftir kölluðu þeir í mig frá Valamo og báðu mig um að koma og aðstoða við vinnu með bátinn Sergei. Aðstoðarábótinn spurði mig þá hve- nær ég ætlaði að koma að bjarga sálu minni, og að af kennurum væri margir en af munkum fáir.“ Konungur og drottning fjölskyld- unnar Ég spyr ekki hvers vegna fjórtán ára strákur hafði svona mikið meiri áhuga á guði en stelpum. Kannski er hann aðgengilegri? Eða kannski bliknar jafnvel sjálft kynlífið í samanburði við heilagleikann? „Bræður mínir skildu ekki ákvörðun mína, og móðir mín, Lút- erstrúarkonan, studdi mig, og sagði að ég yrði þá að minnsta kosti nálægt heimahögunum. Fyrstu fimm árin í klaustrinu var ég í mót- tökunni á gistiheimilinu. Ég þoldi þá vinnu ekki og bað um að skipta, en fékk ekki, svo ég reyndi að þjóna hverjum gesti okkar sem væri hann Kristur sjálfur, rétt eins og þegar Abraham tók við englun- um. Svo varð ég djákni, þá presta- munkur og loks árið 1997, 32 ára að aldri, varð ég ábóti.“ Sumir af siðum orþódokstrúar koma okkur kannski spánskt (eða öllu heldur grískt) fyrir sjónir. Ef gengið er inn á heimili orþódoks- fjölskyldu, til dæmis, er íkona heimilisins fyrst heilsað með krossmarki og síðan fjölskyldu- meðlimum. Og þegar maður og kona giftast bera þau kerti undir athöfninni sem tákn um hreinleika hjónabandsins, og eru svo krýnd með kórónum sem konungur og drottning fjölskyldunnar. Góða heilsu þarf til að ganga á guðs vegum En hvað þarf til að gerast munkur? „Fyrst af öllu þarf maður að gerast orþódokstrúar. Yfirleitt eru menn svo settir í sjálfboðavinnu í eitt ár, og eru þá enn í borgaraleg- um fötum. Best er að vera heilsu- hraustur, þar sem guðsþjónustur okkar eru fremur langar, og menn þurfa að standa í tvo tíma í senn kvölds og morgna, þar sem guðs- þjónustur hér eru klukkan sex og sex. Hjá prestum eru þær ekki nema einu sinni í viku. Þegar menn verða munkar fá þeir svo nafn ein- hvers rússnesks dýrlings, og reyni ég yfirleitt að velja mönnum nöfn dýrlinga sem mér finnst lýsandi fyrir þá. Og hvernig er daglegt líf munk- ana í Valamo? „Við reynum helst að finna mönnum starf í samræmi við borg- aralegt starf þeirra, en það getur þó verið erfitt. Bróðir Mikael var til dæmis matvælafræðingur, og því hefði verið eðlilegast að láta hann brugga vín. En sá sem sér um bruggunina hefur verið í því lengi og vill ekki að aðrir taki við.“ Bræður munu brugga Sergei segist hafa viljað forða munkunum frá því að vinna í afgreiðslunni, en af því sé tals- verð hagræðing, og því sé það nú þar sem hinn ólánsami bróðir Mikael starfar. Vonandi hefur hann sömu þjónustulund og for- veri hans. Bræðurnir eru nú tíu talsins, og þar að auki eru fimmtíu aðrir starfsmenn. Valamo er þekkt fyrir að vera góður og kyrrlátur staður til að slaka á, og koma um 160.000 pílagrímar og aðrir gestir þangað á hverju ári. Meðal frægra gesta er skáldið Pentti Saarikoski, sem kom þangað til að jafna sig og skrifa á milli drykkjutúra, og virð- ist hið afbragðsgóða vín sem bræðurnir brugga ekki hafa trufl- að hann að ráði. ■ „Eins og í himnaríki“ Valamo-klaustur er á friðsælli eyju á Ladoga-vatni. Enginn aðgangur að klaustrinu nema fyrir innvígða. Kona kemur til guðsþjónustu, en þær geta verið tveggja tíma langar. Valur Gunnarsson heimsækir orþódoksklaustrið Valamo í Finnlandi og spjallar við ábótann Sergei sem hefur verið munkur frá fjórtán ára aldri. Rétttrúnaðarprestar í skrautlegri kapellu Valamo-klausturs. Sergei ábóti er lengst til hægri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.