Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
7.950,-
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
490,-
TROMSNES rúmgrind/sófi
stál, háglans hvítt 100x209 cm
MELHUS náttborð
Ø40x67 cm
NORESUND náttborð
Ø50x66 cm 1.990,-
HEMNES náttborð
34x51x79 cm 5.950,-
CORRAS náttborð, hvítt
52x40x58 cm 2.490,-
MELDAL rúmgrind/sófi
stál, háglans svarbrúnt 208x95 cm
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
Bjart og ferskt!
Tilefni til breytinga
Dagana 9. mars - 22. apríl
VESTBY rúmgrind, ómeðhöndlaður
gegnheill viður 120x218 cm 2.950,-
VESTBY náttborð 44x40x40 cm 1.490,-
17.950,-
BREKKE rúm með hirslum
birkispónn/hvítt 208x101 cm
12.950,-
1.990,-
MALM rúm, eikarspónn
211x107 cm 14.900,-
MALM kommóða, eikarspónn
40x48x56 cm 4.950,-
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Konunglegur!
����������
���������
���������������
Nú er fullyrt að Frakkar séu okkur Íslendingum haukar í
horni eftir að Bandaríkin hafa
svikið okkur í tryggðum. Myndir
hafa birst í blöðum af utanríkis-
ráðherrum Íslands og Frakklands
saman. Á einni myndinni varð ekki
betur séð en að sá franski væri
með glott á vörum sem gaf til
kynna að hann sæi í brotthvarfi
varnarliðsins möguleika á því að
rifja upp gamla takta í franskri
heimsvaldastefnu.
ÞAÐ skyldi þó aldrei vera að
Frakkarnir sæu núna glufu til þess
að koma höggi á Bandaríkjamenn í
eilífum slag þessara tveggja ríkja
í því að hafa áhrif á heiminn, en í
þeim slag hefur heldur hallað á
Frakka síðustu áratugina.
ÉG fagna þessu. Mér þætti áhuga-
vert að sjá franska herstöð á Mið-
nesheiði með tiheyrandi frönskum
áhrifum á samfélagið. Kanasjón-
varp hvað? Ég sé fyrir mér Frakka-
sjónvarp, með innihaldsríkum
umræðum um minimalisma og
strúkturalisma og Frakkaútvarp
með tónlist eftir Gainsbourg. Ég
sé fyrir mér að franski herinn
myndi styðja Keflavíkurgöngur
með ráð og dáð og jafnvel taka þátt
í þeim sjálfur, enda rík mótmæla-
hefð þar í landi og líka hluti af
menningunni að vera í mótsögn
við sjálfan sig. Sala á baguett og
croussant myndi aukast í keflvísk-
um bakaríum, sem og framhjáhöld
almennt. Hvarvetna um Reykja-
nesskaga myndi glitta í alpahúfur
og trönur og eldheit rifrildi í kjall-
araholum yfir rauðvínsglasi um
trúmál og heimspeki myndu fær-
ast í vöxt.
ÞAÐ hefur þegar verið gefið í skyn
að fyrst að Bandaríkjamenn vilja
ekki sjá um varnirnar geti aðrir
gert það, og þá Frakkar geri ég ráð
fyrir. Þetta er því allt að gerast. Til
þess að koma þessum einföldu
skilaboðum á framfæri greip utan-
ríkisráðherra til athyglisverðrar
líkingar einsog frægt er orðið.
Hann sagði: „Maður getur ekki allt-
af farið með sætustu stelpuna heim
af ballinu en stundum kannski eitt-
hvað sem gerir sama gagn.“
ÉG sé strax frönsk áhrif í þessari
líkingu. Dáldið stórkarlaleg. En
það sem vekur athygli mína er líka
annað. Utanríkisráðherra notar
orðið „eitthvað“ um það sem gera
skuli sama gagn og stelpa. Það er
líka mjög franskt, leyfi ég mér að
segja, því hin kaþólska menning
leyfir jú ekki alltaf, eins og menn
vita, að dugandi karlmenn fullnægi
hvötum sínum á hefðbundinn hátt.
Menn þurfa oft að fara í kringum
mjög strangar reglur sem gilda um
samlífi kynjanna í páfadómi með
alls konar úrræðum.
Í þessari líkingu eru til dæmis sama
kyn ekki útilokað, né heldur dýr eða
hreinlega hlutir eins og bollar eða
flíkur. „Maður fær ekki alltaf sem
maður vill og þá verður maður að
vinna úr því sem maður þá fær í
staðinn,“ sagði ráðherrann. Ég tel
óhikað að þetta sé til vitnis um það
að við séum þegar byrjuð að sjá hér
á landi frönsk/kaþólsk menningar-
áhrif, svolítið súrrealískan þanka-
gang með bullandi kynferðislegum
undirtóni. Ég held að við munum
einmitt sjá fullt af svoleiðis efni í
Frakkasjónvarpinu.
Frönsk áhrif