Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 25. mars 2006 53
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
17
81
0
3/
20
06
tískuvika
PS
Persónulegur stílisti
vertu í stíl við sjálfa þig og Vorið
Mánudag – föstudags kl. 17 - 18
• Förðunarsýning: Það nýjasta í förðun, litum og útliti.
• Persónulegur stílisti gefur þér góð ráð
• Tískusýning starfsmanna: Starfsmenn sýna uppáhaldsmerkin sín
Laugardagur og sunnudagur kl. 14 - 16
• Tískusýning starfsmanna: Starfsmenn sýna uppáhaldsmerkin sín
• Förðunarsýning (laugardag): Það nýjasta í förðun, litum og útliti
• Persónulegur stílisti gefur þér góð ráð
• Bindishnútar (sunnudag): Sýnikennsla í gerð bindishnúta
Hvaða hnútur passar við kragann?
Lukkupottur og vinningar
Allir sem bóka tíma hjá Persónulegum stílista út apríl lenda
í lukkupotti. Vinningar frá Oroblu, Origins, Samsonite
og Designers gjafapakkar úr heimilisdeild, ásamt
vöruúttekt hjá Persónulegum stílista að verðmæti 10.000,
15.000 og 20.000 kr. Þrjú nöfn dregin út 1. maí.
Afsláttur og Gjafapakkar
50 fyrstu sem bóka sig hjá Persónulegum stílista fá
lúxusprufur að gjöf frá Origins. Allir sem bóka tíma út apríl
fá ráðgjöf í snyrtivörudeild og 15% afslátt af því sem
keypt er. Auk þess fæst 10% afsláttur af Designers at
Debenhams alla tískudagana.
16. - 26. mars
hjá debenhams
Komdu og taktu forskot á það flottasta fyrir vorið. Fáðu starfsfólk, stílista og heimsfræga fatahönnuði Debenhams
í lið með þér til að sníða glæsilega vorlínuna að þér og þínum stíl.
Spennandi hlutir að gerast alla sýningardagana :
Sýningar,
kennsla,
kynningar
vinningar
&
Carine Roitfeld er ritstjóri franska
Vogue og er auk þess dáð sem
tískufyrirmynd af mörgum. Hún
er ekta Parísarpía og fylgir
frönsku tískureglunni „hafðu það
einfalt!“ Hún er með þykkar dökk-
ar augabrúnir, dökka húð og slétt
hár sem rammar andlit hennar inn
eins og hjálmur. Mörgum þykir
hún kaldlynd í fasi en sjálf segist
hún eingöngu vera feimin og að
hún skýli sér á bak við hárið. „Ég
er indælli en ég lít út fyrir að
vera,“ segir hún í einu viðtalinu.
Carine sem er á sextugsaldri er
falleg á óhefðbundinn hátt og ekki
beinlínis smáfríð. Hún er að sjálf-
sögðu alltaf í flottum fötum en að
hennar mati eru skórnir það sem
fullkomnar heildina. „Ég er alltaf í
sömu fötunum, svartri kápu og
pilsi en ég legg samt alltaf áherslu
á einn hlut. Oftast eru ég þá í ein-
hverjum rosalegum háhælaskóm.
Skórnir og hárið eru það sem gera
lúkkið.“
Í PELSI Hún á ófáa pelsana en segist þó
ekki ganga lengur í þeim því þeir lykti svo
illa.
Skórnir fullkomna heildina
Á FREMSTA BEKK Hér er hún á fremsta
bekk á sýningu Zac Posen.
CARINE ROITFELD Hún sækir allar flottustu
tískusýningarnar. Hér er hún á tískuvikunni
í New York, haustið 2005.
ZAPPA
PLAYS
ZAPPA
miðasala 2. apríl
www.rr.is
Sú kona er varla til sem dreymir
ekki um að eignast ekta Chanel-
tösku. Hin klassíska Chaneltaska,
svört bólstruð með gullkeðju,
hefur verið móðins í nokkra ára-
tugi. Nú er hún mjög eftirsótt,
ungpíur væla þær út úr stælömm-
um og mömmum og fara með þær
eins og gull og demanta. Það er
líka þess virði því töskurnar eru
langt frá því að vera gefins. Í sum-
arlínu Chanel er lögð áhersla á
gyllt leður og gallaefni. Sama góða
Chanel-útlitið skín þó í gegn enda
er engin ástæða til að breyta því
sem er vel heppnað. Því miður fást
þessar dásemdartöskur ekki á
Íslandi en tískumeðvitaðir ferða-
langar eru hvattir til að skoða þær
í erlendum stórborgum!
Sjóðheitar
frá Chanel
GLÆSIKVENDI
Í flottum kjól og ennþá
flottari skóm á sýningu hjá
Matthew Williamsson.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES