Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 26
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR26 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. JARÐARFARIR 13.30 Margrét Helgadóttir, Reynivöllum 4, Selfossi, verður jarðsungin frá Sel- fosskirkju. 14.00 Sverrir Sigurðsson, Hlíð- argötu 41, Fáskrúðsfirði, verður jarðsunginn frá Fáskrúðsfjarðarkirkju. 14.00 Aðalheiður Þorsteinsdóttir frá Litlu-Tungu í Holtum, Grænumörk 2, Selfossi, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í Holtum. 14.00 Erlendur Guðlaugsson, Meiðastöðum, Garði verður jarðsunginn frá Útskála- kirkju. 14.00 Hermann Sigurvin Þorgils- son, Hrísum, Fróðárhreppi, Ólafsvík, verður jarðsung- inn frá Brimisvallakirkju í Fróðárhreppi. ANDLÁT Guðmundur Geir Ólafsson, Grænumörk 3, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðjudaginn 21. mars. Edith Olga Clausen, Seljahlíð, áður Goðheimum 13, lést laugar- daginn 18. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Gunnhildur Gunnarsdóttir, Hafnarbraut 20, Höfn í Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn miðvikudaginn 22. mars. Már Ágúst Björgvinsson verslun- armaður, Hörgslandi á Síðu, lést fimmtudaginn 22. mars. MERKISATBURÐIR 1807 Breska þingið afnemur þrælahald í Vestur-Indíum. 1838 Póstskip kemst til landsins eftir miklar hrakningar en það átti að leggja að í nóvember árið áður. 1901 Fyrsti Mercedes-bíllinn er frumsýndur á bílasýningu í Nice. 1975 Friðlýsing Vatnsfjarðar í Barðastrandarsýslu er samþykkt og friðlandið um eitt hundrað ferkílómetrar að stærð. 1975 Faísal konungur af Sádi- Arabíu er skotinn til dauða af frænda sínum. 1992 Alþingi samþykkir breyt- ingar á lögum sem leyfir löndun á afla úr erlendum veiðiskipum. CLAUDE DEBUSSY (1862-1918) LÉST ÞENNAN DAG „Umfram allt, herrar mínir og frúr, verðið þið að gleyma að þið séuð söngvarar.“ Franski snillingurinn Debussy hafði ákveðnar skoðanir á því hvernig tónlistin hans skyldi flutt. Á þessum degi árið 1957 skrifuðu nokkur ríki Evrópu undir svokall- aða Rómarsáttmála sem marka upphaf Evrópusambandsins eins og við þekkjum það í dag. Sáttmálarnir eru tveir talsins og varð annar þeirra mikið frægari en hinn en það er stofnsáttmáli Evrópubandalagsins. Minna hefur farið fyrir Rómarsáttmálanumum stofnun Evrópska bandalagsins um kjarnorku sem átti að stuðla að friðsamlegri nýtingu kjarnorku. Sex ríki stóðu að samningun- um en það voru Belgía, Frakk- land, Holland, Ítalía, Lúxemborg og Vestur-Þýskaland. Tilgangur bandalagsins var að stuðla að samkennd meðal ríkja Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina. Undir- liggjandi var líka trygging á því að Þýskalandi og Frakklandi lenti ekki saman á ný. Frá undirritun Rómarsátt- málana hefur Evrópusambandið vaxið á ógnarhraða en sáttmálinn aldrei misst gildi sitt. Í honum er að finna mörg af meginmark- miðum Evrópusambandsins sem litið er til í dag eins og fyrir fimmtíu árum. Rómarsáttmálinn og Maastricht-sáttmálinn frá 1991 mynduðu hálfgerða stjórnarskrá Evrópusambandsins þangað til eiginleg stjórnarskrá var gerð nú á dögunum. ÞETTA GERÐIST > 25. MARS 1957 Ríki Evrópu skrifa undir sáttmála í Róm HÖFUÐSTÖÐVAR ESB Í BRUSSEL Sigurður Karlsson vill sjálfur kalla sig leikara á eftirlaunum. Hann heldur upp á sextugsafmælið sitt í borginni Turku í Finnlandi þar sem hann býr nú, aðallega við leik, en einhver störf svona til hliðar. „Ég er að skemmta mér við að þýða úr finnsku en það er hæfilega erfitt og reynir á höfuðið. Ég hef alltaf haft meiri trú á heilaleikfimi en vöðvaleik- fimi,“ segir Sigurður hæstánægður með lífið og tilveruna. Eftir að hafa verið leikari í fjörutíu ár fannst Sig- urði tími til kominn að breyta til. „Ég ákvað að fara að læra finnsku og hef verið að læra hana bæði við háskólann og með ýmsu öðru móti. Finnska er mjög spennandi tungumál.“ Sigurður segir lífsmunstur sitt vera þægilegt og vildi helst ekki hafa það öðruvísi. „Mér finnst voðalega nota- legt að ráða mínum tíma. Ég hef nóg að gera og hef eiginlega ekki mátt vera að því að njóta þess að vera ekkert að gera. En ég stefni að því að setjast niður með tærnar upp í loftið og gera ekki neitt.“ Hann sér þó ekki fyrir sér nákvæma tímasetningu á því hvenær hælarnir fara að vísa niður fyrir alvöru en veit að það verður að minnsta kosti ekki fyrr en sumri fer að halla. „Í sumar stendur til í annarri borg hérna í Finnlandi að setja upp íslenskt leikrit í svokölluðu sumarleikhúsi. Borgar Garðarsson ætlar að leikstýra leikrit- inu „Þið munið hann Jörund“ eftir Jónas Árnason og hann vill að ég verði með í því og leiki eina Íslendinginn í leikritinu. Mér finnst spennandi til- hugsun að fá að prófa þetta finnska sumarleikhús sem er gjarnan undir berum himni,“ segir Sigurður og tekur undir með blaðamanni að verkefnið sé mjög spennandi, svona fyrir fyrrver- andi leikara. Hann er því með margt á prjónun- um og kippir sér ekki upp við lítilræði eins og sextugsafmæli. „Þetta gerist hvort sem maður gerir eitthvað í því eða ekki. Afmælið var bara tækifæri fyrir mig að bjóða fólki að koma hing- að,“ segir Sigurður. Hann býst við um tuttugu manns í „voðalega flottan mat“ á veitingahúsi í bænum. „Ég lét það boð út ganga að þeir sem gerðu sér erindi og kæmu í heimsókn til mín fengju að minnsta kosti eitthvað að borða. Tíu manna hópur ákvað að koma frá Íslandi og eru það nánustu ættingj- ar ásamt kærustum og mökum. Svo á ég von á ýmsu fólki sem ég hef verið í tengslum við hérna í Finnlandi og við ætlum bara að hafa það skemmtilegt.“ SIGURÐUR KARLSSON: SEXTUGUR Í DAG Vill sitja með tærnar upp í loftið og gera ekki neitt SIGURÐUR KARLSSON Fær nánustu fjölskyldu í heimsókn til Finnlands í tilefni af sextugsafmælinu. Þrátt fyrir að vera leikari á eftirlaunum er Sigurður með nóg á prjónunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrir okkar hönd, fjölskyldna okkar og annarra nákominna færum við öllum innilegar þakkir sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Böðvars G. Baldurssonar Smárarima 74, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við þeim sem önnuðust hann í veikindum. Guð blessi ykkur. Gerður Jensdóttir Grétar Böðvarsson Signý Marta Böðvarsdóttir Haukur Böðvarsson. Bróðir okkar, Jónas Helgason frá Gvendarstöðum, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstudaginn 17. mars, verður jarðsunginn frá Þóroddstaðarkirkju í dag klukkan 14. Rannveig Helgadóttir Sæmundur Helgason Oddur Helgason Jórunn Helgadóttir Kristín Helgadóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Kjartan Rósinkrans Stefánsson rafvirkjameistari, lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn 14. mars. Jarðsungið verður frá Háteigskirkju mánudaginn 27. mars. kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar- og vinafélagið Bergmál. Skúlína Hlíf Kjartansdóttir Skúlína Sigurveig Stefánsdóttir Guðrún Anna Kjartansdóttir Páll Á. R. Stefánsson Elínborg Kjartansdóttir Össur S. Stefánsson Stefán Rósinkrans Kjartansson Sjöfn Marta Hjörvar Barnabörn og langafabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Sigurðar Péturssonar Teigagerði 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Hjúkrunarþjónustu Karitas. Herdís Sigurjónsdóttir Magni Sigurjón Jónsson Kristín Björnsdóttir Þorbjörg Jónsdóttir Jóhannes Á. Kristinsson Borghildur Anna Jónsdóttir Pétur Jónsson Sigrún Ólafsdóttir Helga Björk Jónsdóttir Daníel B. Gíslason Áki Ármann Jónsson Alda Þrastardóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ásthildur Magnúsdóttir frá Tjaldanesi, andaðist á Landspítala Háskólasjúkrahúsi fimmtudaginn 23. mars sl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 30. mars nk. og hefst athöfnin kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Fyrir hönd aðstandenda, Kristjón, Hólmfríður og Lára Sigurðarbörn Ásthildur, Guðrún og Þórarinn Magnúsarbörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.