Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 20
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR20 ■ LAUGARDAGUR, 18. MARS Miklihvellur á Laugarvatni Mikið eru börnin í grunnskólan- um á Laugarvatni heppin að hafa kennara eins og Sigurð St. Helga- son, mann sem elskar bæði nátt- úruna og lífið og er jafnvígur á kennslubækur og bók náttúrunn- ar. Í stóru landi hefði hann orðið nokkurs konar David Attenborough, alhliða upp- fræðari fólksins en hérna varð þessi hámenntaði lífeðlisfræð- ingur brautryðjandi í fiskeldi og svo þegar hann þreyttist á því að ala upp laxfiska fór hann að ala upp börn. Við skruppum austur til að heimsækja Guðrúnu og Sigurð og fengum að skoða fræðasetur sem Sigurður rekur með nemendum sínum, grunnskólakrökk- unum þarna á Laugar- vatni, í gömlu gróður- húsi. Þar er greinilega margt rannsakað því að þar gat að líta allt frá uppstoppuðum selsham upp í gríð- arlega áhrifamikið málverk af sköp- un heimsins, sem vísinda- menn kalla Miklahvell sín á milli. ■ MÁNUDAGUR, 20. MARS Eftirspurn eftir íslenskum ribbalda- hætti Útgef- andinn minn segir mér að þýskir útgefendur séu að bjóða í bókina mína Valkyrjur. Það er kannski vísbending um að alþjóðleg eftir- spurn sé að myndast eftir bókum um ribbaldahátt og spillingu í íslenskri pólitík og viðskiptum. Það er ekki við mig að sakast út af því. Ég skrifa bara um það sem ég sé í kringum mig. Rithöfundar eru eins og blessuð börnin sem læra það sem fyrir þeim er haft. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 21. MARS Þrjátíu milljón töskur og tölvunámskeið Ég er greinilega ekki eini maðurinn sem hefur lent í því að farangur- inn minn hefur týnst. Á síðasta ári rötuðu þrjá- tíu milljón ferða- töskur ekki rétta leið á áfangastað með farþegaflugi. Flestar þeirra komust þó á endanum í hendur réttra eigenda, en meira en 200 þúsund töskur fundust þó aldrei. Það eru því sæmilegar líkur á því að maður sjái far- angurinn sinn aftur þegar maður bregður sér til útlanda. Ég hef ekki heyrt múkk í byggingarfull- trúa Reykjavíkur þrátt fyrir nokkra tölvupósta og þrátt fyrir blaðaskrif um þessar furðu- legu framkvæmdir við Hlaðvarp- ann. En á netinu finn ég fundargerð frá fundi í Skipulagsráði Reykjavíkur. Þar stendur: „Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 10. mars s.l., vegna stöðvunar fram- kvæmda á lóðinni nr. 3 við Vesturgötu. Stöðvun byggingarfulltrúa á framkvæmdum staðfest.“ Þetta bendir ótvírætt til þess að ég hafi ekki verið að bulla þegar ég hélt því fram að byggingaraðil- ar væru að brjóta lög. Ekki hefur þessi stöðvun þó haft nein sjáanleg áhrif á fram- kvæmdirnar því að þarna eru daglega um 20 manns að störfum og hamast við að byggja - vænt- anlega undir stjórn bygginga- meistarans tommustokks- lausa. Í kvöld settist ég á skóla- bekk. Byrjaði á 80 stunda tölvunámskeiði að læra að nota forritin Photo- shop, Illustrator, InDesign, Acrobat og eitthvað fleira. Það er náttúr- lega geggjun fyrir mann á mínum aldri að ætla að eltast við nútímann. En eitt- hvað verður maður að gera til að halda heila- sellunum í þjálfun. Ég var dáldið taugatrekktur í byrjun, spenntur að takast á við nýtt verkefni og um leið hræddur um að standa ekki undir því. Svona líður sennilega börnum þegar þau byrja í skóla. Að sjálfsögðu er ég aldurs- forset- inn á nám- skeiðinu. Og tossinn í bekknum. Ég verð ábyggilega með harð- sperrur í heilanum í fyrramálið. ■ MIÐVIKUDAGUR, 22. MARS Sýnilegar og ósýnilegar varnir Ekki skil ég allt þetta raus um varnarmál og allra síst einhverjar síendurteknar fullyrðingar um að hér verði að vera „sýnilegar varn- ir“. Ég hefði talið að það lægi í augum uppi (ef svo má að orði komast) að „ósýnilegar“ varnir væru miklu kraftmeiri en þær sýnilegu. En hvað sem því líður virðast menn hafa þeim mun minna vit á varnarmálum sem þeir gas- pra meira um þau. Eitt gleymist í þess- ari umræðu og það er sú ein- falda staðreynd að hvort sem við njótum sýnilegrar eða ósýnilegrar verndar þá erum við í varnarbandalaginu NATO og árás á eina þjóð í því félagi jafngildir árás á þær allar. Á þessum tímum einka- væðingar væri það fáránlegt að búa til nýtt ríkisbákn með því að stofna her. Miklu nær væri ein- faldlega að kaupa smáaug- lýsingu í því sérstæða tímariti Soldier of For- tune og óska eftir málaliðum. Líka mætti hugsa sér að leita eftir tilboði í landvarnir hjá Frönsku útlendingahersveitinni sem er þaulvön því að líta eftir smáþjóðum. Útlendingahersveitin er til dæmis með herstöð á Fíla- beinsströndinni sem einnig hefur auga með Tógó og Benín og getur verið komin þangað á innan við þremur tímum ef ófriður brýst út. Við gætum tekið nokkur her- fylki á leigu, og til að hafa ein- hverjar tekjur á móti gætum við gert þessi herfylki út í víkinga- ferðir. Í fyrsta lagi gætum við látið liðið ræna flugvél til að koma sér hingað ókeypis eða skipi. Í annan stað gætum við lagt undir okkur bæði Færeyjar og Græn- land, og smám saman byggt upp stórveldi hérna. Við gætum sem sagt tekið herflokk á leigu og gert reksturinn sjálfbær- an með því að fela hernum að fara í varnarstríð við nágrannaþjóðir okkar. Og það gæti komið sér vel að hafa aðgang að vaskri drengjasveit, til dæmis ef Danir þrjóskast við og halda áfram að birta nýjar og nýjar greiningar á íslensku efnahags- lífi. Við gætum falið Frönsku útlendingahersveitinni að kenna Dönum að sókn er besta vörnin. ■ FIMMTUDAGUR, 23. MARS Næsti, gjöri svo vel ... Það er ekki öll vitl- eysan eins. Þrákálf- urinn sem var feng- inn til að hlaupa í skarðið sem ákær- andi í hinu ámátlega Baugsmáli er búinn að áfrýja sýknu- dómin- um fræga til hæstaréttar. Þetta kalla ég að kunna ekki að skammast sín. Enda vandar sá dagsfarsprúði maður Jóhannes í Bónus þessu liði ekki kveðjurnar: „Jóhannes Jónsson í Bónus mætti til skýrslu- töku til Ríkislög- reglustjóra í morgun, harðákveð- inn í að tjá sig ekki við starfs- menn embætt- isins, og sagði Baugsmálið fjögurra ára apaspil.“ Fer ekki að verða kominn tími til að Alþingi Íslendinga taki í taumana? Hefur Ríkislögreglu- stjóraembættið ekkert þarfara að gera heldur en halda áfram að ofsækja menn sem ýmist hafa verið sýknaðir af sakargiftum eða dómstólar, allt upp í hæstarétt, hafa vísað málatilbúnaði embættisins frá sér? Væri ekki nær að drífa í því að sækja til saka glæpamennina í Olíumálinu sem sumir hverjir eru búnir að viðurkenna sekt sína, og hljóta að bíða í ofvæni eftir að koma fyrir dómara og fá synda- kvittun? Það er hreinn dónaskap- ur að láta olíufurstana bíða svona lengi eftir allt sem þeir hafa afrek- að. Alla vega er þetta apaspil orðið nokkuð langdregið. Og jafnvel þótt hinir ákærðu í þessu máli séu nógu stöndugir til að geta borið hönd fyrir höfuð sér hlýtur maður að spyrja: Á hvern verður ráðist næst? Og hver er það annars sem gefur þegar spilað er apaspil? ■ FÖSTUDAGUR, 24. MARS. Bankar eða pulsuvagn? Þýska forlagið dtv keypti Valkyrjur í gær. Þeir gefa út marga helstu metsölu- höfunda heimsins. Nú er spurning hvort maður ætti að fjárfesta í pulsu- vagni í Kaupmannahöfn? Eða treysta íslensku bönkun- um? Mikilihvellur og apaspil Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá Miklahvelli á Laugarvatni og alþjóðlegri eftirspurn eftir íslenskum ribbaldahætti; fjallað er um þrjátíu milljón týndar ferðatöskur og sýnilegar og ósýnileg- ar varnir. Síðan víkur sögunni að olíufurstum, Ríkislögreglustjóraembættinu og apaspili og lýkur í pulsuvagni í Kaupmannahöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.