Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 6
6 25. mars 2006 LAUGARDAGUR FJÁRSVIKAMÁL Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli óskaði eftir því í gær að Nígeríumennirnir tveir, sem teknir voru með 100 þúsund evrur í fórum sínum fyrir rúmri viku, verði í gæsluvarðhaldi í tvær vikur til viðbótar. Rannsókn málsins er vel á veg komin en enn á eftir að yfirheyra vitni í málinu sem geta gefið skýr- ari mynd af ferðum Nígeríumann- anna hér á landi. Þeir komu hingað til lands 16. mars frá Kaupmanna- höfn og ætluðu sér að fara af landi brott daginn eftir, en voru þá stöðvaðir við eftirlit á vellinum. Ábending barst til lögreglunnar á Keflavíkurflugvell um að Nígeríumennirnir væru líklegir til þess að tengjast fíkniefnamisferli. Leit var gerð í farangri mann- anna en engin fíkniefni fundust. Því næst voru mennirnir teknir í nákvæma leit á Landsspítalanum þar sem kannað var hvort menn- irnir væru með fíkniefni innvort- is. Svo reyndist ekki vera. Eftir að mennirnir höfðu verið hér á landi í einn sólarhring fann lögreglan evrurnar en mennirnir höfðu upphaflega ætlað að fara til Kaupmannahafnar 19.mars en flýttu ferðinni, þar sem þeim tókst að sinna störfum sínum á skemmri tíma en þeir áætluðu í fyrstu. Íslendingarnir sem höfðu við- skipti við mennina voru handteknir í vikunni en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum. Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa hjá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli, eru Íslend- ingarnir grunaðir um ólögmæt viðskipti með falsaða peninga. „Íslend- ingarnir tengjast þessu meðal annars með þeim hætti að þeir hafi hugsanlega verið plataðir í viðskiptum með falsaða peninga. Rannsókn á þeirra aðild að málinu stendur nú yfir.“ Nígerísk fjársvikastarfsemi er þekkt um allan heim og meðal ann- ars sú leið að selja falsaða peninga. Mál af þessu tagi hefur ekki áður komið inn á borð lögregluyfirvalda á Keflavíkurflugvelli. Eyjólfur biður fólk um að vera á varðbergi gagnvart grunsamleg- um tölvupóstum eða öðrum skila- boðum. Hann segir jafnframt að ólíklegt sé að falsað fé hafi komist í umferð. „Algengast er að Níger- ísk glæpasamtök komi sér í sam- band við fólk með því að auglýsa tilboð sem virðast freistandi. Ef fólk svarar þessum tilboðum af áhuga er það að bjóða hættunni heim.“ magnush@frettabladid.is SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Pétur Gautur · Hafnarborg · 4. - 27. mars SAMGÖNGUMÁL Banaslysum í umferðinni fækkaði á síðasta ári miðað við árið á undan en alvar- legum umferðarslysum fjölgaði á sama tíma samkvæmt skýrslu Umferðstofu um umferðarslys árið 2005. Síðastliðið ár reyndist betra en fyrri ár í flestum tilvikum. Heildar- fjöldi slysa, slasaðra og látinna var minni en árið 2004. Fækkaði slösuð- um og látnum úr 1156 í 1013 og slysum úr 790 í 671. Sé litið til ársins 1999 þegar flest slys urðu á síðasta áratug er fækkunin alls um 43 prósent miðað við síðasta ár. Nítján manns létust í sextán banaslysum sem flest urðu í dreifbýli en ekkert barn var þar á meðal. Hefur slys- um á börnum að fjórtán ára aldri fækkað talsvert á síðustu árum. Voru þau 105 á síðasta ári en 176 fyrir tíu árum. - aöe UMFERÐARSLYS Á HELLISHEIÐI Nítján létust á síðasta ári í umferðinni og hafa ekki færri látist í umferðinni síðan árið 1997 og heildarfjöldi slasaðra aldrei verið lægri en á liðnu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Góður árangur náðist í umferðaröryggismálum á nýliðnu ári: Slysum fer stöðugt fækkandi ■ Banaslys algengust í dreifbýli. ■ Alvarleg slys algengust í þéttbýli. ■ Slysum á börnum hefur fækkað. ■ Fleiri karlmenn létust en kvenmenn. ■ Ölvun kom við sögu í sex banaslysum. ■ Flest óhöpp urðu milli fimm og sex á daginn. ■ Flest slys urðu í desember. Umferðarslys árið 2005: Staðreyndir KJÖRKASSINN Stafar okkur ógn af erlendum glæpagengjum? Já 83% Nei 17% SPURNING DAGSINS Í DAG Er rétt að halda rannsókn Baugsmálsins áfram? Segðu skoðun þína á visir.is Náðu ekki að nota fölsuðu peningana Rannsókn á fjársvikum tveggja Nígeríumanna er langt komin. Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, segir ólíklegt að falsað fé hafi komist í umferð hér á landi. Enn á eftir að yfirheyra nokkur vitni. ATBURÐARÁSIN Í MÁLINU HINGAÐ TIL 16. mars Nígeríumennirnir tveir koma hingað til lands frá Kaupmannahöfn um miðnætti. Í fórum þeirra finnast efni og tól til peningafölsunar. Þeir er báðir teknir í nákvæma fíkniefnaleit á Landspítalanum. Fíkniefni finnast ekki við leitina og er þeim sleppt í kjölfarið. 17. mars Nígeríumennirnir eru stöðvaðir við eftirlit á Keflavíkurflugvelli 17. mars, eða daginn eftir að þeir komu frá Kaupmannahöfn. Þeir eru á heimleið. Í fórum þeirra finnast 100 þúsund evrur, eða 8,7 milljónir íslenskra króna. Mennirnir eru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í vikutíma, vegna gruns um fjár- svik. Annar mannanna áfrýjar úrskurðinum til Hæstaréttar. 22. mars Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness. 23. mars Tveir Íslendingar eru handteknir í tengslum við málið. Nígeríumennirnir eru taldir hafa platað þá í fjármálum. Auk þess sem Íslendingarnir eru grunaðir um ólögmæt viðskipti. 24. mars Gæsluvarðhald er framlengt um tvær vikur yfir báðum mönnunum. EVRUR Það getur verið erfitt fyrir ókunnuga að átta sig á því hvort um falsaða peninga er að ræða, en sérfræðingar lögreglu eiga í flestum tilfellum auðvelt með að þekkja falsaða seðla frá ekta. Nígeríumennirnir eru grunaðir um að falsa peninga og selja hér á landi fyrir 100 þúsund evrur. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES ÁSTRALÍA, AP Ástralar hafa áhyggj- ur af fleiru en bara tjóninu sem hvirfilbylurinn Larry olli þegar hann reið yfir Queensland aðfara- nótt mánudags. Vallabían Joey er týnd og krókódílarnir á búgarði Margaret Tabone eru svo skelfdir að þeir komu ekki matarbita niður. Tabone hefur alið Joey upp síðan hann var nýfæddur, og kom hann á hverjum morgni til hennar til að fá mjólk. Nú hefur hann og um 50 kengúrur af búgarðinum ekki sést síðan á sunnudag. Fari krókódílarnir ekki að borða gæti Tabone jafnframt tapað töluverðu fé, en hún elur 5.000 krókódíla fyrir skinn þeirra og kjöt. - smk Fórnarlömb hvirfilbyls: Vallabía týnd VALLABÍA Margaret Tabone, krókódíla- bóndi, heldur hér á vallabíu, en uppáhalds vallabían hennar hefur ekki sést síðan hvirfilbylur reið yfir Ástralíu fyrr í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ágreiningur um vísitöluhækkun Kona var í gær dæmd í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða byggingarfyrirtækinu Hyrnunni tæpar 5 milljónir króna vegna íbúðar sem konan keypti. Neitaði hún að greiða vísitöluhækkun sem orðið hafði á kaupverði. VERSLUN Smáratorg hyggst reisa 26 þúsund fermetra verslunar- miðstöð í Reykjanesbæ og er gert ráð fyrir að húsnæðið verði tilbú- ið að tveimur árum liðnum. Mun verslunin rísa við Reykja- nesbraut á því svæði sem áður var nýtt undir gókart braut en sú starf- semi er nú hætt. Mun verslunar- húsnæðið hýsa fjölmargar versl- anir og veitingastaði en fyrstu teikninga af byggingunni er að vænta innan skamms. - aöe Nýtt verslunarhúsnæði: Smáratorg á Reykjanesi Stal frá Olís og braut umferðar- lög Rúmlega þrítugur maður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi til þriggja ára. Hann tók heimildarlaust út vörur hjá Olís á Selfossi fyrir tæpar 65 þúsund krónur og braut ítrekað umferðarlög. DÓMSMÁL Notuðu nafn sem þeir áttu ekki Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð hérðasdóms um að fyrirtækinu Gagna- stýringu veri gert að skipta um nafn. Strikamerki mótmæltu því að fyrirtækið notaði nafnið Gagnastýring sem Strika- merki greiddi fyrir við samruna þess við fyrirtæki með því nafni fyrir fimm árum en ákvað svo að nota ekki. ATVINNUMÁL Verkalýðs- og starfs- greinafélög á Suðurnesjum ásamt bæjarstjórnum Sandgerðis og Reykjanesbæjar hafa komið af stað átaki um að koma stafsmönn- um varnarliðsins til aðstoðar. „Það felst í því að stofna upplýsingaveitu fyrir starfsmenn hvort sem þeir starfa hjá varnar- liðinu eða öðrum þar tengdum,“ segir Kristján Gunnarsson, for- maður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur. Gengið var frá þessu á fundi formanna félaganna og bæjarstjóra í fyrradag. „Þar geta starfsmenn fengið upplýsingar um það hvar þeir geta fengið áfallahjálp, farið í símenntun og það verður boðið upp á námskeið um það hvernig megi nýta sér atvinnumiðlun og ráðningarþjónustur, hvernig eigi að gera starfsferilsskrá og fleira.“ Starfsmenn varnarliðsins fá nú frídag hálfsmánaðarlega sem þeim er ætlað að nýta sér til atvinnuleitar. - jse Átak til aðstoðar íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins: Fá frídag til atvinnuleitar STARFSMENN VARNARLIÐSINS Átaki sem ætlað er að auðvelda starfsmönnum varnar- liðsins að finna sér nýja atvinnu hefur verið ýtt úr vör. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.