Fréttablaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 18
29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Mjög slæmt veður var á Holta-
vörðuheiði og Vatnsskarði í fyrra-
kvöld. Björgunarsveitin Káraborg
frá Hvammstanga og Flugbörgun-
arsveitin á Laugabakka voru kall-
aðar út um klukkan 21 til að aðstoða
ökumenn sem fest höfðu bíla sína á
Holtavörðuheiði og um svipað leyti
var Flugbjörgunarsveitin í Varma-
hlíð kölluð út vegna ökumanna sem
voru í vandræðum í Vatnsskarði.
Aðstæður voru erfiðar í Vatns-
skarði; bálhvasst, hálka og sama og
ekkert skyggni. Svo mikill var
stormurinn að nokkrir bílar fuku
út af veginum um Vatnsskarð eftir
að ökumenn höfðu stöðvað þá en
engin slys urðu þó á fólki.
Of margir hunsa viðvaranir
Vöruflutningabifreið með
tengivagn lenti að hálfu út af veg-
inum við Húnaver í fyrrakvöld og
lokaði þjóðveginum fyrir umferð
stærri ökutækja. Beðið var með
að koma bifreiðinni upp á veginn
þangað til í birtingu í gær.
Björgunarsveitin Ísólfur á
Seyðisfirði var einnig kölluð út í
fyrrinótt vegna ökumanna sem
voru í vandræðum á Fjarðarheiði,
á milli Egilsstaða og Seyðisfjarð-
ar, en engan sakaði þar frekar en á
Norðurlandi.
Starfi björgunarsveitarmanna
á Norður- og Austurlandi lauk far-
sællega um klukkan 2 í fyrrinótt
Veðurstofan gerir ráð fyrir
áframhaldandi snjókomu og
slæmu veðri um norðanvert land-
ið næstu sólarhringa og Vegaerðin
hvetur vegfarendur til að athuga
færð á vegum áður en lagt er upp
í langferð.
Ingibjörg Daníelsdóttir, hjá
umferðarþjónustu Vegagerðar-
innar, segir of marga ökumenn
virða að vettugi viðvaranir Vega-
gerðarinnar og Veðurstofunnar.
„Sumir virðast halda út í óvissuna
að næturlagi og stíla upp á að
starfsmenn Vegagerðarinnar eða
björgunarsveitarmenn komi þeim
til aðstoðar,“ segir Ingibjörg.
Bílar skemmdust í sandstormi
Sjálfvirkur veðurmælir við
Papey sýndi að vindurinn hefði
farið í 136,5 metra á sekúndu
klukkan 4 í gærmorgun og 103,4
metra á sekúndu klukkan 7. Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur
segir þessar tölur ekki standast og
skýringin sé tæknilegs eðlis en
ekki veðurfarsleg.
Engu að síður var bálhvasst
við suðausturströndina og stða-
fest að vindurinn hafi farið í allt
að 48 metra á sekúndu í hviðum á
Skeiðarársandi. Ökumenn voru
varaðir við að aka um sandinn en
sumir létu sér ekki segjast og
dæmi um að bílar hafi skemmst
vegna sandfoks snemma í gær-
morgun. „Það var vitlaust veður á
þessum slóðum og í raun ekki
glóra að vera þarna á ferðinni,“
segir starfsmaður Vegagerðarinn-
ar á Höfn.
Afar misjafnt virðist
vera með hvaða
hætti sýslumenn
landsins innheimta
svokallaðan
löggæsluskatt. Einn
þeirra sem telja
innheimtuna afar
ósanngjarna og
koma hvað harðast
niður á lands-
byggðinni er Tryggvi
Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði.
Hvað er vandamálið?
Það ríkir mikill hringlandaháttur um
innheimtu þessa gjalds hjá sýslumönn-
um landsins og þeim virðist í sjálfsvald
sett hvernig þeir túlka lögin. Að mínu
viti er um landsbyggðarskatt að ræða
og við höfum sent umboðsmanni
Alþingis bréf vegna þessa.
Hvernig er þetta á Seyðisfirði?
Hér er okkur gert að greiða löggæslu-
kostnað vegna lokadansleiks Listahátíð-
ar unga fólksins. Þrátt fyrir að bærinn
ráði til eftirlits og aðstoðar tugi manna
krefur sýslumaður félagsheimilið þar
sem dansleikurinn fer fram um lög-
gæslukostnað.
Hvað ber ábyrgðina?
Dómsmálaráðherra ber ábyrgð og
sýslumenn eru í raun ekki að gera
annað en verða við kröfum að ofan
um að auka tekjur embætta sinna
með hverjum þeim hætti sem mögu-
legur er.
Ósanngjörn
skattheimta
SPURT & SVARAÐ
LÖGGÆSLUSKATTUR
Í vikunni fann lögreglan á Haítí hauskúpur
manna sem hún telur hafa verið notaðar við
helgisiði vúdú. Hauskúpur hafa táknrænt
mikilvægi í vúdú og trúa sumir að þær bægi frá
illum öndum.
Hver er uppruni vúdú?
Vúdú er algengasta heitið á
trúarbrögðum sem meirihluti
íbúa á Haítí aðhyllist. Talið
er að rætur trúarinnar liggi í
Vestur-Afríku, frá Gana í vestri til
landsvæðanna kringum neðsta
hluta Kongófljóts, og mun hún
hafa borist frá Afríku til Haítí
á tímum þrælasölunnar. Þar
blandaðist trúin kaþólsku, sem
hefur verið opinber trúarbrögð
þar í landi í um 500 ár.
Hvað er vúdú?
Haítíbúar sem aðhyllast vúdú trúa að einn guð
sé skapari alls. Einnig trúa þeir á tilvist anda og
goða sem þeir geta leitað til. Þessir andar og
goð munu flest vera afrísk að uppruna
og bera það með sér en sum þeirra
hafa verið samsömuð kaþólskum
dýrlingum og bera þá nöfn þeirra.
Sem dæmi má nefna Dambala,
einn af guðum Fon-þjóðarinnar
í Benin í Vestur-Afríku, sem
tengist slöngum og birtist
stundum í slöngulíki. Hann
er tilbeðinn í vúdú, stundum
undir þessu heiti en stundum
er látið svo heita sem hann
og heilagur Patrekur séu einn
og sami.
Kærleikur og stuðningur innan fjöl-
skyldunnar er einna mikilvægasta gildið innan
vúdú. Einnig er lögð áhersla á örlæti og það að
gefa til samfélagsins.
Er vúdú galdratrú?
Í hugum margra tengist vúdú göldrum, þá
sérstaklega vúdú-brúður og uppvakning hinna
dauðu (e. zombies). Rannsóknir á grasafræði
þjóðflokka styðja við kenningar um tilraunir
til að vekja upp dauða en það er minniháttar
fyrirbrigði í menningu dreifbýlissvæða Haítí og
ekki hluti af vúdú-menningunni sjálfri.
Það að stinga prjónum í vúdú-brúður tengist
upphaflega lækningarmeðferðum. Hvernig
vúdú-brúðan fór að tengjast því að bölva
einstaklingum er óvitað. Sumir telja að þrælar
hafi komið þeirri sögusögn af stað til að hræða
þrælaeigendur.
Heimildir: Vísindavefur Háskóla Íslands Wikipedia.org
FBL GREINING: VÚDÚ
Úbreiddustu trúarbrögðin á Haítí
76 7993
ÁR 2000 2002 2004
Svona erum við
> Fjöldi tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Heimild: Hagstofa Íslands
Pétursborg
6. maí
frá kr. 39.990
Kr. 39.990
Flugsæti með sköttum báðar
leiðir. Netverð á mann.
.
Kr. 59.990
Flug, skattar og gisting í tvíbýli í
"standard" herbergi á Hotel
Moscow í 3 nætur. Netverð á mann.
Einstök helgarferð
í maí
Heimsferðir bjóða nú
einstakt tækifæri á að
heimsækja þessa merku
borg á frábærum tíma.
Fjögurra nátta helgarferð á
frábærum kjörum í beinu
morgunflugi 6. maí.
Fjölbreytt gisting í boði og
einstakar kynnisferðir með
Pétri Óla Péturssyni
fararstjóra o.fl..
Hvöss norðanátt með skafrenningi og ofankomu olli mikilli
ófærð á vegum um allt norðan- og austanvert landið í gær
og fyrrinótt. Fjöldi fólks lenti í erfiðleikum á fjallvegum
sökum ófærðar og björgunarsveitarmenn voru kallaðir til
aðstoðar á Holtavörðuheiði, Fjarðarheiði og í Vatnsskarði
en engan sakaði. Aftakaveður var á Suðausturlandi í gær-
morgun og skemmdust bílar í sandfoki á Skeiðarársandi.
KAPPKLÆDD Akureyringar drógu fram
vetrarklæðnaðinn í gær og víst að honum
verður ekki lagt næstu dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Sigurður Ragnarsson
Útlitið ekki gott
Sigurður Ragnars-
son veðurfræðingur
segir að búast
megi áfram við
norðlægum áttum
með snjókomu og
skafrenningi um
norðanvert landið.
„Veðrið verður
keimlíkt vikuna á
enda og jafnvel lengur. Þegar líður að
helgi má búast við harðnandi frosti
og getur það farið niður í 6 gráður við
sjávarsíðuna norðanlands en eitthvað
mildara syðra. Það er litlar breytingar
að sjá í kortunum svo langt sem spár
ná og ekki útlit fyrir hlýnandi veður
fyrr en eftir rúma viku,“ segir Sigurður.
Fátt er svo með
öllu illt að ekki
boði nokkuð gott
og skíðamenn
taka síðbúnum
vetri fagnandi.
Guðmundur Karl
Jónsson, staðar-
haldari í Hlíðarfjalli
við Akureyri, segir
að nú sé mun meiri snjór á skíða-
væðinu en undanfarin ár og útlitið
gott fyrir skíðafólk. „Það er von á
meiri snjókomu og tökum við henni
fagnandi enda fáum við aldrei nóg af
snjó. Snjókoman síðustu daga er sú
besta á þessu árstíma síðan árið 2002
og stefnir í góða páska og Andrésar
andar leika,“ segir Guðmundur Karl.
Guðmundur Karl Jónsson
Skíðasvæðin
full af snjó
Aftakaveður og ófærð
RÉTTI FERÐAMÁTINN Það kafsnjóaði á
Akureyri í gær og var hálka og þæfings-
færð á götum. Sumir brugðu á það ráð
að fara á milli staða á vélsleðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
FRÉTTASKÝRING
KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON
kk@frettabladid.is
TRYGGVI
HARÐARSON