Fréttablaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 56
32 29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI 49. ársþing HSÍ fer
fram í íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal á föstudag og bíða 67 tillög-
ur afgreiðslu þannig að það verð-
ur væntanlega handagangur í
öskjunni.
Meðal þess sem vekur athygli í
ár eru tillögur frá dómaranefnd
HSÍ sem miða að því að að bæta
starfsumhverfi dómara og að fá
fleiri dómara inn í starfið enda
hefur nýliðunin ekki verið eins og
best verður á kosið. Mælt er með
því að félög séu skikkuð til að
halda úti ákveðnum fjölda dómara
og uppfylli þau ekki ákveðin skil-
yrði er varða dómaramál í félag-
inu fái þau ekki keppnisleyfi.
Einnig vekur athygli að sektir aga-
nefndar sem verið hafa litlar 30
þúsund krónur eru hækkaðar í 250
þúsund samkvæmt einni tillög-
unni.
Tvær tillögur liggja fyrir þing-
inu er varða félagaskipti á Íslandi
en sárlega hefur vantað glugga í
janúar af ýmsum ástæðum. Ein
tillagan mælir með lengingu frá
júní til loka janúar en hin mælir
með að glugginn opni einfaldlega
aftur í janúar.
„Leikmenn sem finna ekki fót-
festu einhvers staðar geta með
þessari breytingu skipt um félag á
tímabilinu og þessi breyting mun
einnig koma sér vel fyrir þá hand-
boltamenn sem eru erlendis en
snúa kannski heim um jólin. Þeir
gætu byrjað að spila strax hér
heima í janúar verði þetta sam-
þykkt,“ sagði Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, sem var á
fullu að undirbúa ársþingið.
Ein athyglisverðasta tillagan
kemur frá Þór á Akureyri en Þórs-
arar bera hag leikmanna greini-
lega fyrir brjósti því þeir vilja
leyfa leikmönnum að skipta um
félag standi félag þeirra ekki við
A-samning í tvo mánuði. Með
öðrum orðum þá gætu leikmenn
skipt um félag fengju þeir ekki
greidd umsamin laun í tvo mánuði
en pottur ku víða vera brotinn í
hreyfingunni í launamálunum og
margir leikmenn oft beðið lengur
en í tvo mánuði eftir launum. Þórs-
arar vilja með þessari tillögu koma
í veg fyrir að félög kaupi sér sæti í
efstu á „kredit“ því samkvæmt
núverandi kerfi geta leikmenn ekki
farið á tímabilinu þótt þeir fái ekki
greidd laun. Verður áhugavert að
sjá hvort þessi tillaga gangi í gegn
en kunnugir segja það ekki líklegt.
HSÍ hefur síðan lagt fram til-
lögu þess efnis að hægt sé að ræða
við samningsbunda leikmenn 1.
mars sama ár og samningur við-
komandi leikmanns rennur út.
Vantað hefur skýrar reglur í þess-
um málum og hafa margir óskað
eftir þeim.
Það er áhugavert að sjá að í til-
lögu HSÍ um fyrirkomulag deilda-
keppninnar stendur ekki skýrum
stöfum að spiluð verði átta liða
úrvalsdeild eins og stefnt er að.
„Þetta eru nauðsynlegir varnaglar
því við getum ekki gengið að því
sem vísu að öll lið mæti til leiks á
næsta ári,“ sagði Einar. „Það er
öruggara að hafa vaðið fyrir neðan
sig en við stefnum samt að átta
liða úrvalsdeild.“
Ein af tillögum Þórsara er að
færa átta liða úrslit bikarkeppn-
innar aftur fyrir Íslandsmótið.
Spila þá heima og heiman og reyna
að búa til úrslitakeppnisstemn-
ingu. Deildarbikarinn, sem á að
vera eftir mót í ár, yrði þá færður
fram í byrjun árs.
Þór er líka með þá þörfu tillögu
að öll lið séu skikkuð til þess að
taka upp heimaleiki sína sem þau
síðan þurfa að senda til HSÍ. Það
yrði síðan á ábyrgð eftirlitsdóm-
ara að ganga úr skugga um að
kvikmyndavél sé til staðar í upp-
hafi leiks.
Þótt fjöldi tillagna liggi fyrir
þinginu er ekki þar með sagt að öll
félög séu að reyna að hafa áhrif á
störf hreyfingarinnar því lang-
flestar tillögurnar koma frá HSÍ
og aðeins Þór, HK og ÍR sáu
ástæðu til þess að senda inn tillög-
ur.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
26 27 28 29 30 31 1
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Haukar og ÍS mætast í
Iceland Express-deild kvenna.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
18.30 Meistaradeildin á Sýn. Lyon
gegn AC Milan. Inter gegn Villarreal
á Sýn Extra.
22.35 Formúlukvöld á Rúv.
22.45 Meistaramörk á Sýn.
KÖRFUBOLTI Haukar taka á móti ÍS
í kvöld í oddaleik liðanna í undan-
úrslitarimmu Iceland Express-
deildar kvenna. Haukar unnu
fyrsta leikinn á heimavelli, 76-66
en ÍS jafnaði metin um helgina
þegar þær unnu 83-71. Ívar
Ásgrímsson þjálfari ÍS segir að
nýtt mót sé í gangi og ekki skuli
vanmeta ÍS liðið þar sem leikur
þess hefur gjörbreyst frá því í
upphafi Íslandsmótsins.
„Við byrjuðum mjög seint að
æfa og vorum ekki í nægilega
góðu formi til að byrja með. Við
fengum útlendinginn okkar ekki
fyrr en undir lok janúar og við
vorum því alveg bakvarðarlaus
fram að því. Það er því ekkert
hægt að miða tímabilið við það
sem er að gerast í dag þar sem við
vorum einfaldlega ekki tilbúin.
Ég er sannfærður um að við
værum ofar í töflunni ef við hefð-
um verið með frá upphafi mótsins
enda erum við í allt öðrum gír í
dag,“ sagði Ívar við Fréttablaðið í
gær.
„Ég býst við áframhaldi á
þeirru baráttu sem einkennt hefur
leikina, sérstaklega um fráköstin.
Lið eins og Haukar og Keflavík
eru fljót að refsa og því er lykilat-
riði að vera með sem fæsta tapaða
bolta. Haukarnir tóku 22 sóknar-
fráköst í fyrsta leiknum sem þær
unnu en við löguðum það í næsta
leik og sigruðum. Baráttan og
hugarfarið verða einkennandi og
það lið sem hefur betur þar mun
taka einvígið,“ sagði Ívar.
Megan Mahoney og Helena
Sverrisdóttir hafa verið lykil-
menn Hauka í vetur og Ívar veit
að það þarf að stöðva þær í að eiga
sinn besta leik í kvöld. „Megan er
lykilleikmaðurinn hjá þeim. Eftir
að hún kom breyttist leikur þeirra
og hann hætti að fara í gegnum
Helenu jafn mikið og hann gerði í
byrjun tímabilsins þar sem hún
var allt í öllu. Við erum búin að
spila það oft á móti Haukum að
liðin eru farin að þekkjast vel,“
sagði Ívar að lokum. - hþh
Haukar og ÍS mætast í oddaleik um sæti í úrslitum Íslandsmóts kvenna:
Tekst ÍS að slá út deildarmeistarana?
MARIA CONLON Útlendingurinn í liði ÍS
sem hefur styrkt liðið til muna. Hér skorar
hún í fyrsta leik liðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leikmenn frjálsir ferða sinna fái
þeir ekki greidd laun í tvo mánuði
Ársþing HSÍ fer fram á föstudag en tæplega sjötíu tillögur bíða afgreiðslu á þinginu. Þar af eru nokkrar
mjög áhugaverðar tillögur en athygli vekur að fá félög sjá ástæðu til þess að leggja fram tillögur.
EINAR ÞORVARÐARSON Framkvæmdastjóri HSÍ býst við líflegu ársþingi á föstudag enda
liggja 67 tillögur fyrir þinginu. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
AÐRAR ÁHUGAVERÐAR TILLÖGUR:
- Gildistími samninga leikmanna verði til
sýnis á hsi.is.
- Hægt verði að taka dómarapróf á netinu.
- Annar flokkur lagður niður, þriðji flokkur
lengdur um eitt ár og kallaður unglingaflokkur.
- Öll lið verði að hafa dómarafulltrúa innan
sinna raða sem haldi utan um dómaramálin
í félaginu.
ÍÞRÓTTALJÓS
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
henry@frettabladid.is
> Golflandsliðið á Spáni
Íslenska landsliðið í golfi er komið til
Spánar þar sem það keppir á Sherry-mót-
inu í golfi sem hefst í dag. Keppnin fer
fram á Sodogrande-svæðinu á suðurhluta
Spánar frá 29. mars til 1. apríl. Þetta er
fjögurra daga mót og er bæði einstakl-
ings- og liðakeppni, þar sem þrjú bestu
skorin telja í karlaflokki og tvö
bestu í kvenna-
flokki. Í framhaldi
af mótinu verður
Staffan Johansson
landsliðsþjálfari
með æfingabúðir fyrir
íslenska landsliðið en
Ólöf María Jónsdóttir
kemur til Spánar frá
Bandaríkjunum á
morgun og sama
dag kemur Birgir
Leifur Hafþórs-
son til móts við
landsliðshópinn frá
Lúxemborg.
Þór/KA upp í efstu deild
Sameiginlegt lið Þórs og KA hefur þegið
boð KSÍ um að taka þátt í Landsbanka-
deild kvenna í sumar. ÍBV ákvað að
senda ekki kvennalið, ekki frekar en ÍA
sem féll úr deildinni í fyrra. Þór/KA lék
umspilsleiki gegn FH um sæti í efstu
deild síðastliðið haust en tapaði þeim,
samt sem áður fá þær tækifæri núna til
að spila á meðal þeirra bestu.
„Við vissum að þetta væri alvarlegt,
en vonuðumst til að það yrði ekki jafn
alvarlegt og þetta,“ segir Elísabet Gunn-
arsdóttir, þjálfari Vals, um markmann
sinn Guðbjörgu Guðmundsdóttur sem
er með slitið krossband og verður frá í
að minnsta kosti sjö mánuði. Guðbjörg
er á leiðinni í aðgerð áður en ströng
endurhæfing tekur við en þetta er gríð-
arlegt áfall fyrir hana og Valsliðið.
„Við spiluðum við Stjörnuna á
fimmtudaginn í síðustu viku í níu stiga
frosti og hún var ekki búin að hafa ýkja
mikið að gera og því stóð hún kyrr ansi
mikið. Svo kemur sending til baka og
hún ætlar að sparka frá en þá fer kross-
bandið bara í löppinni sem hún stígur í.
Það er skrýtið með krossbandameiðsli
að oft fer þetta þegar enginn á von á
því, ekki þegar um tæklingu er að ræða
eða slíkt,“ sagði Elísabet en Guðbjörg er
aðalmarkmaður U21 árs landsliðs
Íslands og varamarkmaður aðal-
landsliðsins.
„Guðbjörg var eini markmað-
urinn okkar. Þetta er síðasta
staðan sem við máttum missa
út úr. Íslenskir markmenn í
kvennaknattspyrnunni standa
ekki í röðum og það er
lítið úrval af mjög
góðum markmönn-
um. En við leysum
þetta fyrir sumarið
og við ætlum að vera
með tvo markmenn. Við
höfum alla anga úti og
erum búin að vera að tala
við Ásu Dögg Aðalsteinsdóttur sem er
hjá klúbbnum sem við erum að
reyna að ná samingum við,“ sagði
Elísabet en Ása er markmaður U-19 ára
landsliðs Íslands.
Valsstúlkur eru á leiðinni til La Manga
á Spáni þar sem þær mæta þremur
norskum úrvalsdeildarklúbb-
num. „Það er ekki gæfulegt
að fara markmannslaus
út í þetta verkefni
en við leysum
það eins
og annað,“
sagði Elísabet
að lokum.
GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR, MARKMAÐUR VALS: FRÁ Í MARGA MÁNUÐI VEGNA KROSSBANDASLITS
Martröð hvers knattspyrnumanns
HANDBOLTI Línumaðurinn Sigfús
Sigurðsson sagði við Fréttablaðið í
gær að fátt benti til þess lengur að
hann færi til þýska úrvalsdeildar-
félagsins Flensburg.
Magdeburg hefur sagt Sigfúsi
að leita á önnur mið og nokkur lið
í Þýskalandi og Skandinavíu hafa
sýnt honum áhuga og eitt þeirra
var stórlið Flensburg.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að fjársterk félög í Danmörku séu
að íhuga það alvarlega að bjóða
Sigfúsi samning en aukinn pening-
ur er kominn í danska boltann og
þeir bestu njóta góðs af því.
Sigfús Sigurðsson:
Ekki á leið til
Flensburg
BUBBI VANNI
2x15 - leisð 28.3.2006 20:37 Page 1