Fréttablaðið - 29.03.2006, Blaðsíða 24
MARKAÐURINN
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hagar hafa eignast fimm sér-
vöruverslanir í Kringlunni og
Smáralind, sem reknar eru undir
merkjum Change, Coast og Oasis,
og taka við rekstri þeirra á næstu
dögum. Seljendur verslananna eru
hjónin Ingibjörg Þorvaldsdóttir
og Jón Arnar Guðbrandsson, sem
höfðu sérleyfi fyrir þessi merki
á Íslandi. „Við höfum náð frá-
bærum árangri á Íslandi og er
það Ingibjörgu mest að þakka,“
segir Jón Arnar og kímir. „Oasis-
verslunin í Kringlunni hefur oft
verið notuð sem sýnidæmi fyrir
þær verslanir sem hafa verið að
koma inn frá öðrum löndum og
hefur í gegnum tíðina verið sölu-
hæsta verslun Oasis fyrir utan
Bretland.“
Jón Arnar segir að þau muni
nú einblína á danska markaðinn
en þau reka fjórar Oasis-versl-
anir, meðal annars í Magasin du
Nord, og undirbúa opnun fimmtu
verslunarinnar í Illum. Hann
segir að Oasis hafi fengar góðar
viðtökur í Danmörku og standi
merkið dönskum samkeppnisað-
ilum fyllilega á sporði.
Samkvæmt heimildum var
velta þessara fimm verslana,
sem Hagar festu kaup á, rétt um
þrjú hundruð milljónir króna á
síðasta ári og varð góður hagnað-
ur af starfseminni.
Hagar hafa sett stefnuna á
minni sérvöruverslanir að und-
anförnu eftir að hafa haldið að
sér höndum um nokkurt skeið
og eingöngu einblínt á þær stóru
sérvöruverslanir sem félag-
ið rekur eins og Debenhams
og Zara. „Í framhaldi af því að
við seldum Skeljung höfum við
sett stefnuna á smásölumarkað-
inn,“ segir Finnur Árnason, for-
stjóri Haga. Hagar keyptu fyrir
nokkrum vikum fimm verslanir
í Kringlunni um svipað leyti og
félagið seldi Skeljung. Þetta voru
tískuverslanirnar Karen Millen,
Whistles, Shoe Studio, Warehouse
og All Saints.
Finnur segir að Hagar muni
opna nýja verslun í Smáralind
í næsta mánuði undir merkj-
um bresku verslunarkeðjunnar
Evans, sem selur kvenföt fyrir
eldri konur.
Nær öll þessi tískumerki eiga
það sammerkt að vera annað
hvort í eigu Mosaic Fashions
eða Shoe Studio Group, sem eru
að hluta til í eigu Baugs Group,
stærsta hluthafans í Högum.
Hagar sækja áfram
inn á sérvörumarkað
Kaupa tíu tískuverslanir í Kringlunni og Smáralind á
skömmum tíma, þar á meðal Oasis og Karen Millen.
29. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Fyrirtækin IOD (Innflutningur
og dreifing, sem er hluti af fyrir-
tækjasamstæðu Tölvulistans) og
Heildsala Opinna kerfa (hluti af
Kögunarsamstæðunni) hafa feng-
ið leyfi Microsoft
á Íslandi til að
dreifa hugbún-
aði fyrirtækisins.
Hingað til hefur
eini dreifingar-
aðili Microsoft
hér verið
Tölvudreifing.
„Þetta mun
væntanlega leiða
til enn öflugri
dreifingar en áður hér á
landi og aukinnar samkeppni á
heildsölu Microsoft-hugbúnað-
ar,“ segir í tilkynningu Microsoft
á Íslandi, en IOD og Heildsala
Opinna kerfa vinna eftir svoköll-
uðu „sub-distribution“ kerfi. Það
þýðir að fyrirtækin geta keypt
hugbúnað og hug-
búnaðarleyfi af
bæði íslenskum og
erlendum dreifing-
araðilum sem eru
með beinan samn-
ing við Microsoft
og endurselt smá-
sölufyrirtækjum
hér.
Tölvudreifing
verður eftir sem
áður eini íslenski dreif-
ingaraðilinn með beinan samning
við Microsoft. - óká
Fleiri dreifa hug-
búnaði Microsoft
9,4%
*
* Ávöxtun sl. 6 mánu›i fær› upp á ársgrundvöll er 9,4% m.v. tímabili› 31. ágúst
2005 til 28. febrúar 2006
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
8
6
6
OASIS Í SMÁRALIND Hagar hafa keypt tíu tískuverslanir í Kringlunni og Smáralind á
skömmum tíma.
Microsoft hefur staðfest útgáfu-
áætlun sína fyrir næstu útgáfu
Windows-stýrikerfisins sem bera
mun nafnið Windows Vista.
Fyrirtæki með hugbúnaðar-
leyfissamninga við Microsoft
geta uppfært stýrikerfi sín í nóv-
ember næstkomandi, en Windows
Vista kemur ekki á markað fyrir
heimilistölvur fyrr en í janúar á
næsta ári.
Útgáfurnar sem koma á
markað í janúar 2007 eru þær
sem seldar eru í verslunum og
þær sem fylgja nýjum tölvum.
„Microsoft ákvað að gefa ekki út
Windows Vista fyrir neytendur á
þessu ári til að tryggja aðgengi
að vörum og þjónustu vikurnar
eftir fyrsta útgáfudag, en eins og
gefur að skilja er það erfiðara í
framkvæmd í miðri jólaösinni.
Jafnframt dregur það úr álagi að
gefa fyrirtækja- og neytendaút-
gáfurnar út hvora á sínum tíma,“
segir í tilkynningu Microsoft á
Íslandi.
Næsta „beta“-prufuútgáfa
Windows Vista verður gefin
út fyrir mitt þetta ár til allt að
tveggja milljóna tölvuáhuga-
manna sem vilja prófa nýjasta
stýrikerfi Microsoft þegar á
vinnslustigi. Talsmenn Microsoft
segja reynsluna af síðustu prufu-
útgáfu, sem um hálf milljón
manna hefur tekið þátt í að prófa,
hafa verið mjög góða. - óká
VIÐ KYNNINGU Á MICROSOFT VISTA Microsoft kynnti í júlí í fyrra nafnið á stýrikerfinu
sem tekur við af XP. Nordicphotos/Getty Images
Fyrirtækin fá Vistu í nóvember
Actavis hefur gert þriggja
ára samstarfssamning við Og
Vodafone sem nær til allrar fjar-
skiptaþjónustu fyrirtækisins hér
á landi. Actavis er með starf-
semi í yfir þrjátíu löndum og yfir
10.000 starfsmenn.
Markmiðið er sagt vera að
einfalda umsýslu Actavis í fjar-
skiptamálum og er stefnan að
koma á virkum tengslum við
Vodafone fyrirtæki í löndun-
um þar sem fyrirtækið er með
starfsstöðvar. „Starfsemi Actavis
teygir sig víða um heim og það
gerir þjónusta Vodafone fyrir-
tækja einnig. Þess vegna er Og
Vodafone vel til þess fallið að
halda starfsmönnum Actavis í
góðu sambandi heima og að heim-
an,“ segir Hörður Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Actavis á
Íslandi. - óká
Samið um símaþjónustu
FORSVARSMENN FYRIRTÆKJANNA
Hörður Þórhallsson, framkvæmdastjóri
Actavis á Íslandi, og Árni Pétur Jónsson,
forstjóri Og Vodafone.
Samson eignarhaldsfélag,
stærsti hluthafinn í
Landsbankanum, hagnaðist um
8.262 milljónir króna í fyrra.
Félagið heldur utan um fjörutíu
prósenta eignarhlut í
Landsbankanum sem metinn var
á 112 milljarða króna um síðustu
áramót. Í bókum félagsins er
hluturinn metinn á 46,1 milljarð
króna.
Eigið fé var bókfært á 14.292
milljónir króna í árslok en miðað
við markaðsvirði bréfanna í
Landsbankanum nam eigið fé
68.335 milljónum króna að teknu
tilliti til skatta.
Fimm hluthafar eiga Samson
en 99 prósent hlutafjár eru í
eigu Björgólfsfeðga. - eþa
Samson vanmetinn
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Eigið fé
Samsonar myndi hækka um 52 milljarða ef
hlutabréf yrðu færð á markaðsvirði.
Lýður Guðmundsson, sem til-
kynnti á aðalfundi Bakkavarar
að hann yrði framvegis starf-
andi stjórnarformaður Exista,
mun starfa á skrifstofu Exista í
Lundúnum. „Við sjáum fram á
vaxandi umsvif hjá Exista og að
félagið verði sett á markað á þessu
ári,“ segir Erlendur Hjaltason,
forstjóri félagsins. Hann segir
að ástæður þessarar ákvörðunar
Lýðs megi rekja til þessa.
Um verkaskiptingu þeirra
segir Erlendur að hún verði eins
og gerist milli forstjóra og starf-
andi stjórnarformanns. - eþa
Lýður starfar
í Lundúnum