Fréttablaðið - 29.03.2006, Side 30
Fyrirtækin sem mynda Icelandair Group eru með starfsemi um
allan heim og hafa þjónað Íslendingum og tengt Ísland við
umheiminn í tæp 70 ár. Frábært starfsfólk á öllum mörkuðum
fyrirtækjanna, 2.300 einstaklingar, hafa notfært sér góðar
hugmyndir í starfi sínu. Einstakt leiðakerfi yfir Norður-
Atlantshaf og öflugur flugfloti með skilvirkri nýtingu hafa gefið
okkur kraft til að ná framúrskarandi árangri á alþjóðamarkaði.
VIÐ ERUM
ICELANDAIR GROUP
GÓÐ HUGMYND FRÁ ÍSLANDI
VIÐ ERUM ICELANDAIR
Icelandair er alþjóðaflugfélag sem leggur áherslu á gæða-
þjónustu með hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks að leiðar-
ljósi. Við fljúgum í reglulegu áætlunarflugi til 22 áfangastaða í
Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. Árið 2005 flutti félagið
1.526.241 farþega. Starfsmenn: Um 1000.
www.icelandair.is
VIÐ ERUM ITS
Icelandair Technical Services (ITS) annast viðhald flugvéla
Icelandair og fleiri flugfélaga, í Keflavík og erlendis. Einnig
annast félagið viðhaldsþjónustu fyrir erlend flugfélög sem lenda
á Keflavíkurflugvelli. Starfsmenn: 220.
VIÐ ERUM IGS
Iceland Ground Services annast flugvallarþjónustu við flugfélög
og farþega á Keflavíkurflugvelli. Flugþjónustan skiptist í fjórar
deildir: Flugafgreiðslu, flugeldhús, veitingaþjónustu í flugstöð og
fraktmiðstöð. Starfsmenn: Rúmlega 400.
www.igs.is
VIÐ ERUM ICELANDAIR CARGO
Icelandair Cargo er flugflutningafyrirtæki á leiðum yfir Norður-
Atlantshaf þar sem flutningur til og frá Íslandi er kjölfestan.
Félagið heldur uppi reglulegu fraktflugi til ýmissa áfangastaða í
Evrópu og Norður-Ameríku. Starfsmenn: Tæplega 50.
www.icelandaircargo.is
VIÐ ERUM LOFTLEIÐIR ICELANDIC
Loftleiðir Icelandic býður ferðaskrifstofum og flugfélögum um
allan heim úrvals leiguþjónustu, leigu á flugvélum og áhöfnum.
Starfsmenn: Tæplega 10.
www.loftleidir.com
VIÐ ERUM FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Flugfélag Íslands annast áætlunarflug innanlands. Auk þess
heldur félagið uppi áætlunarflugi til Færeyja og Grænlands.
Farþegar árið 2005: 338 þús. Starfsmenn: 240.
www.flugfelag.is
VIÐ ERUM ICELANDAIR HOTELS
Félagið rekur keðju heilsárshótela undir vörumerkinu Icelandair
Hotels og keðju sumarhótela undir merkjum Hótels Eddu.
Á sumrin, þegar öll hótelin eru í rekstri, eru þau 23 víðs vegar
um landið. Starfsmenn: Rúmlega 250.
www.icehotel.is
VIÐ ERUM ICELAND TRAVEL
Íslandsferðir eru ferðaheildsala sem sérhæfir sig í sölu, skipu-
lagningu og umsjón með ferðum til Íslands og leiðsögn og
annarri þjónustu hér á landi við erlenda ferðamenn.
Starfsmenn: 50.
www.icelandtravel.is
VIÐ ERUM FJÁRVAKUR
Fjárvakur annast bókhald, uppgjör og launavinnslu fyrir félög
innan Icelandair Group. Félagið er eitt stærsta fyrirtækið á
íslenskum markaði sem tekur að sér umsjón verkþátta á
fjármálasviði. Starfsmenn í árslok 2005: Tæplega 70.
VIÐ ERUM BLUEBIRD CARGO
Fraktflugfélagið Bláfugl rekur fimm Boeing 737 fraktflugvélar á
alþjóðlegum fraktflutningamarkaði og fara 80% starfseminnar
fram erlendis. Starfsmenn: Tæplega 70.
www.blafugl.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
31
83
0
0
3/
20
06