Fréttablaðið - 29.03.2006, Page 46
29. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Ásthildur Magnúsdóttir
frá Tjaldanesi,
andaðist á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
fimmtudaginn 23. mars sl. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 30. mars
nk. og hefst athöfnin kl. 15.00. Jarðsett verður í
Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristjón, Hólmfríður og Lára Sigurðarbörn
Ásthildur, Guðrún og Þórarinn Magnúsarbörn.
JARÐARFARIR
13.00 Jón Ólafur Halldórsson,
Birkiholti 4, Bessastaða-
hreppi, verður jarðsunginn
frá Bessastaðakirkju.
14.00 Sigurbjörn Stefánsson
bóndi, Nesjum, verður jarð-
sunginn frá Hvalneskirkju
miðvikudaginn 29. mars.
15.00 Ingvi Elías Valdimars-
son húsasmíðameistari,
Álfaheiði 8a, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju.
15.00 Arnar Freyr Valdimarsson,
Efstuhlíð 25, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju.
ANDLÁT
Rósa Ólafsdóttir, Vesturgötu 14a,
lést á Heilbrigðisstofunun Suður-
nesja sunnudaginn 19. mars. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
Hilmar Ölver Sigurðsson lést í
Gautaborg sunnudaginn 26. mars.
Útför fer fram í kyrrþey.
Kristín Kristjánsdóttir frá Hnífs-
dal, Sjafnarvöllum 2, Keflavík, lést
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 26. mars.
Karl Þorsteinsson, Hörðalandi 6,
Reykjavík, lést á krabbameinsdeild
Landspítalans þriðjudaginn 21.
mars.
Sigrún Lilja Eiríksdóttir, Vatns-
holti 3a, Keflavík, lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja föstudaginn
24. mars.
Þorleifur Óli Jónsson, Hátúni 12,
lést mánudaginn 20. mars. Úför
hefur farið fram í kyrrþey.
Jóna Þórðardóttir, Ljósheimum 6,
Reykjavík, lést á Landspítalanum
Fossvogi fimmtudaginn 16. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
AFMÆLI
Hera Björk Þór-
hallsdóttir söng-
kona er 34 ára.
Laufey Steingríms-
dóttir matvæla-
fræðingur er 59 ára. Guðrún Þ. Step-
hensen leikkona
er 75 ára.
Í dag gefur Íslands-
póstur út þrjár frí-
merkjaraðir. Verð-
gildi þeirra er frá
fimmtíu til hundr-
að og sextíu krón-
ur og koma raðirn-
ar úr ýmsum
áttum.
Ein raðanna
þriggja tengist
bíósýningum og
kvikmyndagerð á
Íslandi en það er
Hany Hadaya,
grafískur hönnuð-
ur, sem teiknaði
frímerkin. Fyrstu
jepparnir eru svo
innblástur í aðra frímerkja-
röðina, sem Hlynur Ólafs-
son teiknaði. Fyrsti fjór-
hjóladrifni jeppi
landsins var
þýskur herjeppi
af Tempo Vidal
gerð en í seinni
heimsstyrjöld-
inni komu jepp-
ar frá Banda-
ríkjunum til
landsins.
Þriðja frí-
merkjaröðin er
með þema sem
heitir „Náttúru-
vættir“. Um er
að ræða svoköll-
uð Norðurlanda-
frímerki og eru
þau gefin út í
samstarfi við hin Norðrlönd-
in. Hönnun var í höndum
Dags Hilmarssonar.
Ný frímerki
Lítið hefur sést til Halldóru
Björnsdóttur á fjölunum
undanfarið enda hefur hún
verið upptekin við annað
verkefni. Hún átti lítinn
dreng hinn nítjánda þessa
mánaðar og verður í fæðing-
arorlofi allt næsta leikár.
Halldóra heldur upp á
fertugsafmælið sitt í dag
svo það má eiginlega segja
að hún hafi fengið litla strák-
inn í æfmælisgjöf. „Það ligg-
ur við að ég gleymi því að ég
eigi afmæli í þessu amstri,“
segir hún og hlær. Fyrir á
hún tvær dætur, eina að
verða sextán ára og aðra að
verða tíu, en Halldóra var
einmitt ófrísk af þeirri yngri
þegar hún hélt upp á þrí-
tugsafmælið.
Afmælisveislur Halldóru
hafa vitaskuld litast af þessu
barnaláni. „Þrítugsafmælið
mitt var bara mjög nett enda
var ég komin fimm mánuði á
leið og bauð nokkrum vinum
og kunningjum í mat heima.
Núna breyti ég hins vegar
fertugsafmælinu í skírnar-
veislu. Við ætlum að skíra
hérna heima og vera með
skírnartertu og kaffi fyrir
fjölskylduna. Ætli ég bjóði
ekki líka upp á kransaköku
og kampavín í tilefni dags-
ins.” Mikil veisluhöld hafa
ekki verið vaninn á stóraf-
mælum Halldóru hingað til
en hún útilokar ekki að það
muni breytast. „Það hefur
oft verið erfitt að finna góð
helgarkvöld til að halda upp
á afmælin því ég hef verið
að leika mikið. En þar sem
ég hef ekki verið partíhæf
undanfarin stórafmæli verð
ég bara að halda vel upp á
fimmtugsafmælið.“
Garðveislur eru ekki í
boði fyrir afmælisbörn
marsmánaðar og að sögn
Halldóru hefur gluggaveðr-
ið verið í aðalhlutverki á
afmælunum hennar. „Þá er
komin vorlykt í loftið svona
dag og dag og páskahátíðin á
næsta leiti. Sú stemning er
farin að ríkja á þessum tíma
og það finnst mér mjög nota-
legt ef maður horfir fram-
hjá páskahretinu. Það er
orðið bjart og páskaskraut
og páskaliljur farnar að
skjóta upp kollinum að
ógleymdum páskaeggjun-
um. Mér er alltaf minnis-
stætt átta ára afmælið mitt
sem bar upp á páskadag og
ég fékk risapáskaegg í
afmælisgjöf frá frænku
minni. Þessi frænka var í
uppáhaldi lengi á eftir,“
segir Halldóra.
Eftir afmælið og barn-
eignarleyfið stígur Halldóra
aftur á svið Þjóðleikhússins
þar sem hún er fastráðin.
Síðasta hlutverkið hennar
var Hester Swan í leikritinu
Mýrarljós og var hún til-
nefnd til Grímuverðlaun-
anna fyrir frammistöðuna.
Að sögn Halldóru stendur
hún á tímamótum í leikhús-
lífinu um þessar mundir. „Í
leikhúsinu breytist aðeins
ferillinn hjá manni þegar
maður verður fertugur.
Maður hættir að skoppa um
sviðið í líki ungra meyja og
önnur hlutverk taka við,
skemmtilegri og krefjast
þeirrar reynslu sem maður
hefur öðlast.“
HALLDÓRA BJÖRNSSDÓTTIR: FERTUG Í DAG
Fékk strák í afmælisgjöf
HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR LEIKKONA Eignaðist líka barn þegar hún var þrítug og heldur í þá venju að bjóða fjöl-
skyldunni í kaffiboð á stórafmælum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
MERKISATBURÐIR
1638 Sænskir landnemar stofna
byggðina Nýju-Svíþjóð þar
sem nú er Delaware-ríki
Bandaríkjanna.
1947 Gos hefst í Heklu og voru
þá liðin 102 ár síðan síðast
hafði gosið í fjallinu.
1961 Lög um launajöfnuð
kvenna og karla eru
staðfest á Alþingi. Stóð til
að fullu jafnrétti yrði náð 1.
janúar 1967.
1985 Maður fellur í jökulsprungu
í Kverkfjöllum og var ekki
bjargað fyrr en eftir 32
klukkustundir.
1999 Hlutabréfavísitalan Dow
Jones er 10006.78 stig
við lokun markaðar og í
fysta sinn yfir 10.000 stiga
markinu.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Þorgeir Þórarinsson
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 30. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn
í Grindavík.
Helga Haraldsdóttir
Lúther Þorgeirsson Bryndís Svavarsdóttir
Ragnhildur Jóna Þorgeirsdóttir
Ragnar Rúnar Þorgeirsson Penkae Phiubaikham
Haraldur Þorgeirsson Helga Haraldsdóttir
Hafsteinn Þorgeirsson Áslaug Jakobsdóttir
Sverrir Þorgeirsson Birna Rut Þorbjörnsdóttir
Grétar Þorgeirsson Diana Von Ancen
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
EMANUEL SWEDBERG (1688-1772)
LÉST ÞENNAN DAG
„Mannkynið er grunnurinn
sem himnaríki byggir á.“
Sænski uppfinningamaðurinn Emanuel
Swedberg sneri baki við vísindunum
um miðjan aldur og einblíndi á
trúarlegt líferni.
Á þessum degi árið
1973 fór síðasti
bandaríski hermaður-
inn frá Suður-Víetnam.
Tveir mánuðir höfðu
þá liðið frá því að
friðarsamningur milli
Bandaríkjanna, Norður-
og Suður-Víetnam og
Víetkong hafði verið
undirritaður í París.
Samningurinn kvað á
um að allir stríðsfangar
skyldu frelsaðir og var
það gert á sama tíma.
Við brottför hermannanna lauk beinum afskiptum
Bandaríkjamanna af Víetnamstríðinu sem hafði þá
staðið yfir í átta ár. Óbeinni þátttöku Bandaríkjanna
var þó ekki lokið því
sjö þúsund starfs-
menn varnarmála-
ráðuneytis urðu eftir í
Saígon til að aðstoða
Suður-Víetnama í
áframhaldandi stríði
við Norðrið.
Þrátt fyrir friðarsamn-
inginn og brottför
hermannanna hélt
stríðið áfram fram í
apríl 1975. Þrítugasta
apríl 1975 féll Saígon
í hendur Norður-
Víetnömum og þurfti þá að flytja síðustu bandarísku
starfsmennina í brott með loftbrú. Seinna sama dag
gáfust Suður-Víetnamar upp.
ÞETTA GERÐIST > 29. MARS 1973
Bandarískir hermenn yfirgefa Víetnam
ÚR VÍETNAMSTRÍÐINU
Sigríður Bjarnadóttir, Lyngmóum
14, Garðabæ, lést á heimili sínu
föstudaginn 24. mars.
Guðrún Sigríður Steingrímsdótt-
ir, fyrrum húsfreyja í Laufási við
Laufásveg, lést á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund í Reykjavík
laugardaginn 25. mars.
Þórir Baldursson
tónskáld er 62 ára.
NÝ FRÍMERKI Í röð sem
tengist bíósýningum og
kvikmyndagerð.